Fréttablaðið - 01.10.2002, Side 1
Breskir flugslysasérfræðingarsegja að vélin sem fórst í
Skerjafirði árið 2000 hafi ekki
verið lofthæf. bls.2
Sharon sætir harðri gagnrýni íÍsrael. Umsátrið um höfuð-
stöðvar Arafats er sagt vanhugs-
að. bls. 4
Fangelsin eru ekki ætluð fyrirmeðferðarstarf segir lögregl-
an. Sogn hefur tekið fanga til
vistunar. Enginn ósakhæfur sem
hefur útskrifast þaðan hefur
brotið af sér eftir útskrift. bls. 4
Margra ára markaðsstarf sauð-fjárbænda er nú að skila ár-
angri en tæp 100 tonn verða flutt
til Bandaríkjanna í ár. Vonir eru
um að 700 tonn verði flutt út inn-
an fimm til sjö ára. bls. 4
bls. 22
MENNING
Tekur við
lyklavöldum í Austur-
bæjarbíói í dag
bls. 16
ÞRIÐJUDAGUR
bls. 22
189. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 1. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Alþingi kemur
saman
ÞINGSETNING Alþingi, 128. löggjafar-
þing Íslendinga, kemur saman í
dag. Þingsetningarathöfnin hefst
kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni. Forseti Íslands setur
þingið og að því loknu tekur Páll
Pétursson félagsmálaráðherra við
fundarstjórn og stjórnar kjöri for-
seta Alþingis. Páll á lengsta þing-
setu þingmanna að baki. Fjárlaga-
frumvarpi verður dreift til þing-
manna kl. 16
Þrá augans
LJÓSMYNDASÝNING Rakel Pétursdóttir,
deildarstjóri fræðsludeildar Lista-
safns Íslands verður með leiðsögn í
hádeginu um ljósmyndasýninguna
„Þrá augans“. Hádegisleiðsögnin
verður í Listasafninu við Fríkirkju-
veg og hefst klukkan 12.00.
32 liða úrslit
SS-bikar
HANDBOLTI Fylkir og Ármann mæt-
ast í 32 liða úrslitum SS-bikars
karla í handknattleik í kvöld. Þetta
er fyrsti leikurinn í 32 liða úrslitun-
um, 11 leikir fara fram á morgun
en 32 liða úrslitunum lýkur á
fimmtudag. 29 lið taka þátt í SS-
bikarkeppni karla í ár og er það
frábær þátttaka enda er utandeild-
in orðin mjög stór. Leikur Fylkis og
Ármanns verður í Fylkishöllinni og
hefst klukkan 20.00.
PERSÓNAN
Tengipunktur
gamalla nemenda
við skólann
AFMÆLI
Gott sumar
hjá Rauða ljóninu
LANDBÚNAÐUR „Við höfum sagt það
ítrekað opinberlega að okkur þykja
60 til 70% framleiðslustyrkir of
háir. Þetta verða menn að skoða,
ekki síst þar sem Evrópusamband-
ið er á sama tíma með sína styrki í
rúmum 30%,“ segir Sigurður Jóns-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu.
Hann segir að skynsamlegra
gæti verið að hefja innflutning á
kjötvörum og draga þar með úr
framleiðslustyrkjum í stað þess að
leita uppi erlenda kjötmarkaði fyr-
ir íslenskt kjöt vegna offram-
leiðslu hér á landi. Samtökin segja
rannsóknir sýna að auka megi hag-
kvæmni og líklegt sé að innflutn-
ingur hefði í för með sér jákvæð
áhrif á umhverfið.
Þrátt fyrir fullyrðingar um
hreinleika landbúnaðar á Norður-
slóðum bendi margt til að enn betri
kostur sé að hefja innflutning á
kjöti en stunda slíka framleiðslu
innanlands.
„Það gæti verið hagkvæmara
fyrir skattgreiðendur í heildina
þegar tillit hefur verið tekið til
allra þátta, meðal annars flutnings-
kostnaðar,“ segir Sigurður Jóns-
son.
Hann segir staðreynd að á stór-
um svæðum í S-Ameríku og Ástral-
íu séu aðstæður til ræktunar ákjós-
anlegar, þar sé hvorki notaður til-
búinn áburður né vaxtahormón eða
önnur óæskileg efni. Þá hafi vís-
indaráð ESB staðfest að minni
hætta sé á kúariðu og öðrum dýra-
sjúkdómum þar en í hvaða ESB-
ríki sem er.
„Það væri mjög forvitnilegt að
skoða þetta frekar í víðara sam-
hengi,“ segir Sigurður Jónsson.
Samtök verslunar og þjónustu:
Skynsamlegra að flytja kjötið inn
TÓNLIST
Hann er
leiðtoginn
SÍÐA 13
SÍÐA 14
Ljóð á
bláu
nótunum
ÍÞRÓTTIR
REYKJAVÍK Í dag verður
suðaustanátt 10-15 m/s
dálítil rigning.
Hiti 8 til 15 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Rigning 9
Akureyri 8-13 Skýjað 13
Egilsstaðir 8-13 Skýjað 13
Vestmannaeyjar 10-18 Rigning 11
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
ÞETTA HELST
PATTSTAÐA Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, á erfitt þessa dagana. Græningjar og Vinstriflokkurinn, sem studdu minnihluta-
stjórn hans síðasta kjörtímabil, höfnuðu í gær lokatilboði um áframhaldandi samstarf. Sænska þingið kom saman í fyrsta sinn í gær eftir
kosningar. Hér ræðir Persson við Bo Lundgren, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, en Lundgren hyggst að óbreyttu leggja fram vantrausts-
tilögu á stjórn Perssons á morgun.
AP
-M
YN
D
FJÁRHAGSVANDI „Það verður að
finna lausn á þessum vanda. Þetta
stefnir í mikið óefni ef ekkert
verður að gert,“ segir Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, um
fjárhagsvanda dvalar- og sjúkra-
heimila. Uppsafnaður fjárhags-
vandi þeirra frá fyrri árum nemur
um það bil milljarði króna og
stefnir í að staðan versni á þessu
ári. Vilhjálmur segist óttast að ef
ríkisvaldið auki ekki framlög til
dvalar- og sjúkraheimila kunni svo
að fara að draga verði úr þjónustu.
„Fjárhagsleg úttekt á vist- og
hjúkrunarheimilum hefur leitt í
ljós að þau daggjöld sem eru
greidd duga ekki til að standa und-
ir eðlilegum rekstri,“ segir Vil-
hjálmur. „Það vantar 500 til 600
milljónir á þessu ári til þess að
daggjöldin standi undir
þeim rekstri sem samið
hefur verið um.“ Sú
upphæð bætist við fyrr-
nefndan milljarð í upp-
safnaðan vanda frá
fyrri árum.
Lögum samkvæmt á
ríkisvaldið að greiða
kostnað við rekstur
dvalar- og sjúkraheim-
ila. Samband íslenskra
sveitarfélaga hefur í
samráði við samtök
dvalar- og sjúkraheim-
ila óskað eftir viðræð-
um við heilbrigðisráð-
herra og fjármálaráð-
herra um lausn á vanda
heimilanna. Því segir Vilhjálmur
að hafi enn ekki verið svarað.
Hann segir einnig athugavert að
ríkisvaldið hafi ekki gætt jafn-
ræðis við fjárveitingar til dvalar-
og sjúkraheimila. Þannig hafi ver-
ið samið við Sóltún um
hærri greiðslur en önnur
dvalar- og vistheimili fái
úr ríkissjóði.
„Við höfum verið að
vinna að úttekt á þessu í
sumar,“ segir Jón Krist-
jánsson, heilbrigðisráð-
herra. „Við höfum lagt
mikla vinnu í þetta og
vonum að niðurstaða
liggi fyrir áður en kemur
að 2. umræðu fjárlaga.
Ég tek undir að þarna er
um fjárhagsvanda að
ræða.“ Hann segir að
reynt verði að koma til
móts við kröfur um lausn
á vandanum. Það verði
svo að ráðast hvort allir verði sátt-
ir við þær tillögur.
brynjolfur@frettabladid.is
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
15%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
þriðjudögum?
51%
75%
Rúman milljarð vantar
í rekstur dvalarheimila
Uppsafnaður fjárhagsvandi. Eykst um hálfan milljarð á þessu ári. Daggjöld duga ekki fyrir
rekstri. Stendur upp á ríkið að greiða kostnaðinn, segir formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Tillögur til úrbóta fyrir 2. umræðu fjárlaga segir heilbrigðisráðherra.
UNNIÐ AÐ HANNYRÐUM Á HRAFNISTU
„Það er vitlaust gefið,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Einn og hálfan
milljarð vantar til að leysa fjárhagsvanda dvalar- og sjúkraheimila að
mati sveitarstjórnarmanna og sjálfseignarstofnana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T