Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2002, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 01.10.2002, Qupperneq 2
2 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGURLÖGREGLUFRÉTTIR LANDBÚNAÐUR „Í aðild að Evrópu- sambandinu felast ekki bara hætt- ur fyrir landbúnaðinn heldur líka sóknartækifæri, með auknum markaðsaðgangi og stuðningi við búháttabreytingar,“ sagði Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, á Evrópuráðstefnu ASÍ. Hann sagði að áhrif landbúnað- arstefnu ESB á landsbyggðina yrðu án efa umtalsverð, enda stæðum við í dag utan þess þáttar í starfi ESB. „Hvað landbúnaðarmál áhrær- ir er ljóst að ESB-aðild mun hafa í för með sér miklar breytingar á umhverfi innflutnings landbún- aðarafurða. Hún mun hafa í för með sér lægra matvælaverð fyr- ir neytendur, en auka á sam- keppni við innlenda framleiðslu. Ég hef áhyggjur af stöðu íslensks landbúnaðar, hvort heldur er inn- an ESB eða utan. Sú þróun sem nú á sér stað innan Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar hlýtur einnig að kalla á umræðu um það hvort við ættum betra með að verja þann stuðning sem íslensk- ur landbúnaður þarf á að halda, þróa hann til betri vegar og hugs- anlega efla hann, ef við værum aðilar að ESB. Ég legg áherslu á að mikil- vægt er að að lögð verði vinna í að skýra til fulls kosti og galla að- ildar að ESB fyrir landbúnaðinn,“ sagði Halldór.  Áhrif ESB-aðildar á íslenskan landbúnað: Ekki bara hættur held- ur líka sóknartækifæri HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Verðum að skýra til fulls kosti og galla ESB-aðildar fyrir landbúnaðinn. Friðrik Þór Guðmundsson: Krefst af- sagnar flug- málastjóra FLUGMÁL „Þarna staðfestist flest allt sem við aðstandendurnir höf- um haldið fram. Nú eru það ekki lengur meintir sorgbitnir að- standendur sem halda þessu fram heldur virtustu sérfræðing- ar heims á sviði flugslysarann- sókna,“ segir Friðrik Þór Guð- mundsson um nýja skýrslu breskra flugslysasérfræðinga um Skerjafjarðarslysið. „Kenning flugslysanefndar um eldsneytisskort er nú ólík- legri orsakaþáttur en vélarbilun vegna olíuleysis. Förgun hreyf- ilsins eru alvarlegri tíðindi en nokkurn tíma áður. Bretarnir staðfesta mistök við flugumferð- arstjórn. Einnig í eftirliti flug- málastjórnar hvað varðar loft- hæfi vélarinnar og öryggismál á flugvellinum í Vestmannaeyjum um þjóðhátíðarhelgina. Þannig mætti áfram telja,“ segir Friðrik Þór. Aðstandendurnir hafa krafist þess að samgönguráðherra sjái til þess að málið verði nú allt end- urupptekið. „Ekkert annað kem- ur til greina. Og í ljósi niðurstöð- unnar ættu bæði flugmálastjóri og framkvæmdastjóri flugörygg- issviðs að segja af sér. Fari ráð- herra ekki að okkur kröfu og til- lögu Bretanna ætti hann að gera það sama,“ segir Friðrik Þór.  Flugmálastjórn: Bíður með viðbrögð FLUGMÁL Flugmálastjórn fékk skýrslu bresku flugslysasér- fræðinganna um Skerjafjarðar- slysið í hendur í gær. Heimir Már Pétursson, upplýs- ingafulltrúi stofnunarinnar, sagði að skýrsla Bretanna væri þar til skoðunar. Viðbragða við henni yrði að vænta á næstu dögum. Bretarnir segja í skýrslunni að Flugmálastjórn hefði ekki átt að veita vélin sem fórst lofthæf- isskírteini. Það var gert fáum vikum áður en vélin fórst.  HEIMIR MÁR PÉTURSSON Tjáum okkur innan fárra daga DUBLIN, AP Gerry Adams hefur ver- ið hátt settur í Írska lýðveldishern- um, IRA, frá því 1971, lengur en nokkur annar. Um leið hefur hann verið lykilmaðurinn í friðarumleit- unum á Norður-Írlandi. Þetta er fullyrt í nýrri bók um sögu IRA eftir Ed Moloney, sem er virtur blaðamaður á Írlandi. Í bók- inni kemur jafnframt fram að Adams hafi átt hlut að mörgum verstu hryðjuverkum IRA. Adams hefur verið leiðtogi stjórnmálaflokksins Sinn Fein frá því 1983. Hann hefur jafnan hald- ið því fram að hann hafi aldrei verið meðlimur í IRA. Ekki segist hann þó hafa nein áform um að höfða mál á hendur höfundi bók- arinnar. „Sumum gæti þótt Adams afar fráhrindandi maður, ekki þess eðl- is að maður vildi að hann kvæntist dóttur manns. En á því leikur eng- inn vafi að hann er herfræðisnill- ingur og án hans hefði ekkert frið- arferli átt sér stað,“ sagði Moloney, sem hefur síðustu fjögur ár rann- sakað innviði IRA betur en nokkur annar. Hann segist hafa komist að þeirri niðurstöðu að Adams ætti skilið að fá friðarverðlaun Nóbels. Margir mótmælendur á Norður- Írlandi eiga afar erfitt með að sætta sig við að Sinn Fein taki þátt í samsteypustjórn héraðsins og eru eflaust annarrar skoðunar en Moloney.  Nýútkomin saga IRA: Adams gegndi lykilhlutverki LEIÐTOGAR SINN FEIN Gerry Adams og Martin McGuinnes mættu í jarðarför eins af yfirmönnum IRA í maí árið 1987. Höfundur bókar um sögu IRA segir að Adams eigi skilið friðarverðlaun Nóbels. AP /M YN D FLUGÖRYGGI Flugmálastjórn átti ekki að gefa út lofthæfiskírteini fyrir flugvélina TF-GTI sem fórst með sex manns í Skerjafirði sum- arið 2000. Rannsóknarnefnd flug- slysa vanrækti að kanna hvort mótor f l u g v é l a r i n n a r hafði brætt úr sér á fluginu og byggði þess í stað á vafasömum álykt- unum um eldsneyt- isskort. Þetta er niðurstaða tveggja breskra flugslysa- sérfræðinga. Bresku sérfræðingarnir, Bernie Forward og Frank Talyor, voru ráðnir af ættingjum fórnar- lamba Skerjafjarðarslyssins til að rannsaka kringumstæður slyssins. Forward og Taylor segja að mótor TF-GTI hafi verið annarrar gerðar en upplýsingaplata á hon- um gaf til kynna. Platan hafi ver- ið af mótor flugvélar sem fram- leidd var 1966. Útilokað hafi reynst að upplýsa hvaðan mótor- inn sjálfur var kominn. Ef leitað hefði verið eftir uppruna mótors- ins og upplýsingum um hugsan- lega breytingu á honum hefði loft- hæfiskírteini ekki verið veitt og öll atburðarásin verið stöðvuð í upphafi. Í skýrslunni segir að flugslysa- nefndin hafi látið undan þrýstingi Flugmálastjórnar og fellt úr loka- skýrslu sinni kafla, sem var í frumskýrslu, um að vélin hafi í reynd ekki verið lofthæf þegar hún fékk útgefið skírteini nokkrum vikum fyrir slysið. Stað- reynd sé að flugvélin var ekki lofthæf. Flugslysanefnd er gagnrýnd fyrir að hafa ekki kannað hvort mótorinn hefði brætt úr sér. Nefndarmenn hefðu strax ein- blínt á kenningu um elds- neytisskortinn og horft framhjá öðrum möguleikum. Mótorinn var kominn í hendur eigandans fjór- um dögum eftir slysið. Bretarnir segja að skoðun flugslysanefndar- innar á hreyflinum geti í besta falli talist vera yfirborðskennd. Flugmálastjórn svarað Bretun- um því til að stofnunin hefði enga ástæðu haft fyrir frekari skoðun á hreyfli vélarinnar við skráningu. Þetta segja Forward og Taylor erfitt að sætta sig við í ljósi þess að leiðarbók vantaði og upplýs- ingaplatan var af öðrum mótor. „Við teljum að framangreint veki margar spurningar varðandi rekstur LÍO og eftirlit flugmála- stjórnar með þessum rekstri, auk þess er varðar útgáfu skírteinis vegna þessarar ákveðnu flugvélar og samsetningar við hreyfil, spurningum sem höfundarnir geta ekki fylgt eftir,“ segja Forward og Taylor. gar@frettabladid.is Skerjafjarðarvélin hafði ekki lofthæfi Breskir flugslysasérfræðingar segja að vélin sem fórst í Skerjafirði árið 2000 hafi ekki verið lofthæf. Flugslysanefnd er sögð hafa vanrækt að kanna hvort mótor vélarinnar hefði brætt úr sér og einblínt þess í stað á vafasama kenningu um eldsneytisskort. REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Flugmálastjórn gaf út lofthæfisskírteini fyrir flugvél sem ekki var lofthæf, segja breskir flug- slysasérfræðingar. Flugvélin fórst með sex manns fáum vikum eftir útgáfu skírteinisins. Bretarnir segja að skoðun flugslysa- nefndarinnar á hreyflinum geti í besta falli talist vera yfirborðs- kennd. Rækjuskipið Aron ÞH-105 sökk: Fimm skipverjum bjargað SJÓSLYS „Það var átakanleg sjón að sjá á eftir þessu fallega skipi“, segir Arnþór Hermannson, skip- stjóri Sæþórs EA. sem kom fimm skip- verjum á rækjuskipinu Aroni ÞH-105 til bjargar í gærmorgun. Tilkynninga- skyldunni barst boð frá Aroni ÞH- 105 rúmlega sex um morguninn að sjór væri kominn í vélarrúmið og dautt væri á vélum. Skipið væri statt 25 sjómílur norður af Grímsey. Nærstöddum skipum var gert viðvart. Sæþór EA sem var um tvær sjómílur í burtu kom fyrstur á vettvang og var áhöfn- inni bjargað um borð. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar tiltæk með dælur en engar slíkar voru í skipinu. Fór hún í loftið klukkan 7.20 en níu mínútum síðar barst tilkynningum að báturinn væri kominn á hliðina. Aron ÞH sökk síðan um hálf átta leytið. Arnþór segir Sæþór hafa verið við hlið Arons um hálfa klukkustund áður en hann sökk. Veður var með besta móti og blankalogn og því ekki veruleg hætta á ferðum. Allir skipverj- anna höfðu klæðst flotgöllum.  Ástjörn hefur minnkað í sumar: Ekki ástæða til að óttast UMHVERFISMÁL „Ég er alinn upp á svæðinu og þekki ekki annað en að það séu sveiflur í tjörninni,“ segir Trausti Baldursson formað- ur umhverfisnefndar Hafnar- fjarðar. Hann segir að vísu hafi lækkað mjög í Ástjörn í sumar en vill ekki rekja það til byggðar í Áslandshverfinu, en margir Hafn- firðingar vilja meina að tjörnin sé nánast að hverfa. „Það er annað sem veldur áhyggjum en það er að bæði kríunni og hettumáfinum hefur fækkað. Hvað veldur eru menn ekki alveg vissir um en mín skoðun er sú að truflun frá byggð- inni spili þar inn í. Það er slæmt því hettumáfurinn hefur vernd- andi áhrif og fælir frá ránfugl og er árásargjarn við mink og tófu.“ Trausti telur ekki ástæðu til að óttast um tjörnina sem slíka og áhrif frá byggðinni í kring muni ekki þurrka hana upp. Rennslið minnki kannski eitthvað. „Það er frekar að trjágróðurinn sem hef- ur vaxið austan megin taki til sín vatn en menn halda alltaf að tré séu til allra hluta nytsamleg. En þau þurfa raka og taka hann til sín. Það þarf því að velja trjánum stað en ekki planta hvar sem er ef þau eiga að koma að þeim notum sem við ætlumst til.“  RÆKJUSKIPIÐ ARON ÞH-105 Fylgst var með útivistartímabarna í Reykjavík um helgina og hafði lögreglan meðal annars afskipti af nokkrum stúlkum í miðborginni. Ein þeirra var með í fórum sínum brúsa sem innihélt landa. Rætt var alvarlega við stúlkurnar og haft samband við foreldra. Tólf ökumenn voru kærðir íumdæmi Hafnarfjarðarlög- reglu um helgina. Þrír voru kærðir grunaður um ölvun við akstur. Þrjú umferðaróhöpp áttu sér stað og varð slys í einu þeirra. Sjö tilkynningar bárust vegna ónæðis af hávaða frá sam- kvæmum. Þá hafði lögregla af- skipti af fimm málum þar sem ungmenni undir átján ára aldri komu við sögu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.