Fréttablaðið - 01.10.2002, Síða 8
8 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
LONDON, AP „Ég býst við að ég sé
ofurlítið móðguð vegna þessara
ummæla,“ sagði Edwina Currie
eftir að John Major, fyrrverandi
forsætisráðherra Breta, sagði að
ástarævintýri þeirra væri sá hluti
ævi sinnar sem hann „skammað-
ist sín mest fyrir.“
Edwina Currie ljóstraði því
upp um helgina að á árunum 1984-
88 hefði hún verið ástkona
Majors, sem var forsætisráðherra
árin 1990-97. Currie var sjálf ráð-
herra í stjórn Margrétar
Thatchers um hríð.
„Hann skammaðist sín ekki
mikið þegar á þessu stóð, get ég
sagt ykkur,“ sagði Currie í viðtali
við breska dagblaðið Times í gær.
Hún sagðist þó ánægð með að
hann væri ekki svo „vitlaus“ að
reyna að neita þessu. Hins vegar
væri „dapurlegt að hann geti ekki
látið vingjarnleg orð falla.“
Currie skýrði frá sambandi
þeirra í dagbókarbrotum sem
birtust í The Times um helgina.
Major, sem er 59 ára, segir að eig-
inkona sín hafi lengi vitað af
þessu. Hún hafi fyrir löngu fyrir-
gefið honum framhjáhaldið.
Major þótti frekar litlaus
stjórnmálamaður og var gjarnan
kallaður „grái maðurinn“ þess
vegna.
Currie segir að hann hafi verið
svo þögull á almannafæri að henni
hafi þótt spennandi að draga fram
í dagsljósið þann mann sem hann
hafði í raun og veru að geyma.
Henni hafi reynst auðvelt að
draga hann á tálar. „Og það var al-
veg óvænt svo framúrskarandi
gott, svo lengi.“
Ljóstrað upp um ástarævintýri „gráa mannsins“:
Major segist
skammast sín
AP
/P
A
KRYDD Í TILVERUNNI
John Major og Edwina Currie á fundi evrópskra íhaldsmanna árið 1994. Major sagði að
ástarævintýri þeirra væri sá hluti ævi sinnar sem hann „skammaðist sín mest fyrir.“
www.hagkaup.is
Kringlan - Skeifan - Smáralind
Loksins á Íslandi
LAUNAMÁL Álftaneshreyfingin
gagnrýnir harðlega nýjan ráðn-
ingarsamning við Gunnar Val
Gíslason sveitarstjóra. Kristján
Sveinbjörnsson, fulltrúi listans,
sagði að samkvæmt samningnum
væri sveitarstjórinn með um 720
þúsund í mánaðarlaun, sem væri
15% hækkun. Hann væri því með
óeðlilega há laun, sem væru í
engu samræmi við umfang starfs-
ins og fjárhagsstöðu sveitarfé-
lagsins.
Kristján sagði að samanborið
við laun annarra í sömu stöðu
væri sveitarstjórinn í Bessastaða-
hreppi með mjög há laun. Sem
dæmi væri bæjarstjórinn í Kópa-
vogi með 100 þúsund krónum
lægri laun.
Guðmundur G. Gunnarsson,
oddviti Bessastaðahrepps, sagði
að auk þess að vera sveitarstjóri
væri Gunnar Valur skipulagsfull-
trúi hreppsins. Laun hans væru
því eðlileg miðað við allt annað.
„Minnihlutinn er að fara fram
með algjörlega staðlausa stafi og
fullyrðingar,“ sagði Guðmundur.
„Við tökum á engan hátt undir það
að það sé verið gera þarna ein-
hverja annarlega hluti. Það er
enginn feluleikur í þessu hjá okk-
ur frekar en öðru.“
Minnihlutinn gagnrýnir 720.000 króna laun
sveitarstjóra Bessastaðahrepps:
Ekki í samræmi við
umfang starfsins
GUNNAR VALUR GÍSLASON
Álftaneshreyfingin segir að Gunnar Valur
Gíslason sveitarstjóri sé með 100 þúsund
krónum hærri laun en bæjarstjórinn í
Kópavogi.
ORÐRÉTT
STUÐNINGSYFIRLÝSING VIÐ
STJÓRNENDUR
SPILAVÍTIS
Framhald þessa
máls og það hvort
ríkisábyrgð verði
veitt ÍE er í hönd-
um ríkisstjórnar-
innar og ég treysti
ráðherrum hennar
til að halda skynsamlega á þessu
máli.
ÓIafur Örn Haraldsson, DV, 30. september.
EKKERT LIGGUR Á
Það er í tísku þessa dagana að
skipa menn í stöður til bráða-
birgða.
Jón Sigurðsson, DV, 30. september.
EÐA BARA SÆTTA SIG VIÐ
HANA
Besta leiðin til að berjast við
vömbina er að taka á henni af
heiðarleika og skynsemi.
Gaui litli. Viðskiptablaðið, 25. september.
Akureyringar halda til
Færeyja:
Ræða
samskipti
við Vága
AKUREYRI „Þeir komu til okkar í
vetur og ræddu samband sveitar-
félaganna. Nú
höldum við til
þeirra og ræðum
þetta frekar,“
segir Kristján
Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á
Akureyri. Hann
fer fyrir fimm
manna sendi-
nefnd Akureyr-
arbæjar sem
hélt í gær til
Vága í Færeyj-
um til að ræða samstarf bæjanna.
Kristján segir ómögulegt að
segja til um hvað komi út úr þess-
um viðræðum. „Við gerum ráð
fyrir að taka þessa fremur rólega.
Vinna að því að efla tengsl þess-
ara tveggja byggðarlaga, sérstak-
lega á sviði menningarmála. Ég
hef ekki trú á því að við tökum
upp formlegt vinabæjarsamband
strax. Ég geri frekar ráð fyrir að
við prófum okkur fyrst áfram.
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
Endurgjalda heim-
sókn sveitarstjórnar-
manna úr Vogum
frá síðasta vetri.
Bæjarstjórinn á Akranesi:
Eindregin
krafa að ríkið
borgi sitt
FJÁRHAGSVANDI „Vandinn hér á
Akranesi, eins og víða annars
staðar, er verulegur,“ segir Gísli
Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi.
Hann segir að skuldir dvalar-
heimilisins Höfða vegna ófull-
nægjandi dvalargjalda nema tug-
um milljóna króna. „Það er ein-
dregin krafa okkar að ríkið standi
undir daggjöldum sem standa
undir starfseminni.“ Annars segir
hann að hætt sé við að grafið sé
undan þessum þætti velferðar-
kerfisins.
Eigandi skyndibitastaðar
í Kína:
Dæmdur
til dauða
PEKING, AP Chen Zhenping, eigandi
skyndibitastaðar í borginni Nanj-
ing í austurhluta Kína, hefur ver-
ið dæmdur til dauða fyrir að eitra
matinn hjá samkeppnisaðila sín-
um með þeim afleiðingum að 38
manns létu lífið og um 300 manns
veiktust alvarlega. Atburðurinn
átti sér stað fyrir tveimur vikum.
Maðurinn viðurkenndi við yfir-
heyrslur hjá lögreglu að hafa eitr-
að matinn vegna afbrýðisemi
sinnar í garð keppinautarins. Not-
aði hann rottueitur til verknaðar-
ins.
BYGGINGAR „Ég er alinn þarna upp
að hluta og lít svo á að nú sé ég
kominn heim,“ segir Ernir
Snorrason geðlæknir sem byggt
hefur sér einbýlishús, sundlaug,
reiðskemmu, hest-
hús og hlöðu í
Seljabrekku í
Mosfellsdal þar
sem leiðin liggur
til Þingvalla. Bú-
garður geðlæknis-
ins sést vel frá vegi og hefur vak-
ið athygli fyrir smekkvísi og lág-
stilltan glæsileika. „Ég er með 30
hross og bý hér með fjölskyldu
minni sem telur tvö börn sem
reyndar bæði eru búsett erlendis
um þessar mundir,“ segir Ernir
sem stofnaði deCODE með Kára
Stefánssyni en dró sig fljótt út úr
því samstarfi og hefur látið hafa
eftir sér í blaðaviðtölum að hann
hafi nú meiri áhuga á hrossarækt
en erfðamengi mannsins. Eitt
sinn spurður um viðskilnað sinn
og Kára og deCODE segir Ernir
söguna af því þegar hann tefldi
eitt sinn við Kára og hafði betur.
Þegar Kára varð ljóst að skákin
var töpuð velti hann skákborðinu
um koll. Lærdómurinn sem Ernir
dró af þessu var sá að menn ættu
ekki að tefla við vini sína. Og þá
líklega ekki heldur að reka fyrir-
tæki með þeim.
„En ég vona að þetta sé nú allt
á réttri leið hjá deCODE og þeim
gangi vel í framtíðinni. Maður
getur ekki annað en vonað að svo
verði,“ segir Ernir Snorrason
sem neitar því að hann hafi feng-
ið mikið fyrir sin snúð þegar
hann seldi hlut sinn í deCODE.
„Það var ekkert hægt að selja
þetta þá,“ segir hann sáttur og
sæll í sveitinni sinni við Þing-
vallaveginn.
eir@frettabladid.is
Hestabúgarður
geðlæknisins
Ernir Snorrason stofnaði deCODE með Kára Stefánssyni. Hann hefur nú byggt sér hestabúgarð
í Seljabrekku við Þingvallaveg. Er með 30 hross og segist vera kominn heim.
BÚGARÐURINN
Seljabrekka við Þingvallaveg. Einbýlishús, sundlaug, reiðskemma, hesthús og hlaða.
Og þá líklega
ekki heldur að
reka fyrirtæki
með þeim.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T