Fréttablaðið - 01.10.2002, Qupperneq 10
10 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS STJÓRNMÁL
Opið bréf
til Kristjáns
Þórs Júlíus-
sonar
Áhugamaður um íþróttir skrifar:
Ég hnaut um athyglisverðastaðreynd um daginn. Hún er
sú að rétt rúmlega 1% af kosnað-
inum við fjölnota íþróttahúsið á
Þórssvæðinu hefði nægt til þess
að greiða niður skuldir
Körfuknattleiksdeildar Þórs. Það
hefði á móti orðið til þess að ekki
hefði þurft að draga meistara-
flokk karla í körfuknattleik úr
keppni í úrvalsdeild og gjör-
breytt stöðu deildarinnar. En
kom bærinn til bjargar? Nei, svo
sannarlega ekki. Það heyrðist
vart múkk úr fílabeinsturni þín-
um þvert ofan í það sem þú og
þínir „menn“ höfðu látið í veðri
vaka fyrir kosningar. Eftir stend-
ur að Akureyringar eiga ekki
lengur körfuknattleikslið meðal
þeirra bestu og illa hefur verið
vegið að íþróttinni fyrir norðan
og rauninni um land allt. Hvað
varð um yfirlýsingarnar um að
vilja eiga úrvalsdeildarlið í öllum
greinum? Hvað varð um yfirlýs-
ingarnar um að hér yrði haldið
úti körfuknattleiksliði meðal
þeirra bestu? Hefur þú, Kristján,
ef til vill líka vald til þess að
ákveða hvaða íþróttir fá að lifa
og hvaða íþróttir fá að deyja?
Mér er spurn?
ÍDV í gær var auglýsing á blað-síðu 9 undir yfirskriftinni: Nær
auglýsingin þín alla leið? Undir
spurningunni eru tvær myndir;
önnur af manni að lesa DV og hin af
plastpökkum með Fréttablaðinu
liggjandi í garðshorni. Undir mynd-
unum er spurt: Hvar auglýsir þú?
Ætli þetta sé ekki í þrettánda
sinn sem DV birtir þessa auglýs-
ingu? Hún birtist títt fyrir um
tveimur mánuðum en hefur ekki
sést lengi. Hún poppar núna upp í
kjölfar þess að Fréttablaðið og
Morgunblaðið sögðu frá niðurstöð-
um fjölmiðlakönnunar Gallups um
lestur dagblaða. DV hefur hins veg-
ar ekki enn greint lesendum sínum
frá þessum niðurstöðum.
Nú er DV auðvitað í sjálfsvald
sett hvort þeir greini lesendum frá
stöðu blaðsins á dagblaðamarkaði.
En það ber vott um einhvern furðu-
legan greindarskort að ætla sér að
telja mönnum trú um að blað sem
lesið er að meðaltali af 32 prósent
landsmanna sé tryggari leið aug-
lýsenda að viðskiptavinum en blað
sem lesið er af 49 prósentum. Hér
er miðað við landið allt. Munurinn á
lestri á höfuðborgarsvæðinu er 71
prósent á móti 31 prósenti; Frétta-
blaðinu í hag.
Auk greindarskorts ber þessi
auglýsing einnig vott um skort á
siðsemi. Hverjum dettur í hug að
sýna vöru eða þjónustu samkeppn-
isaðila með þessum hætti? Er eitt-
hvert bílaumboð svo skyni skropp-
ið að því dytti í hug að auglýsa bíla
sína við hliðina á klesstum bílum
frá samkeppnisfyrirtækjum?
Myndin af pökkunum með Frétta-
blaðinu sýna aðeins vinnusvik
fyrrverandi starfsmanns. Ekkert
annað. Notkun DV á henni afhjúp-
ar hins vegar siðleysi aðstandenda
blaðsins.
Aðalritstjóri DV hefur skrifað
nokkra leiðara um siðferði í við-
skiptum og dásamað þar góðan
orðstír sinn sem aldregi muni
deyja. Mest af þessum skrifum
hafa verið álíka smekkleg og
minningargreinar sem líkið sjálft
skrifar. Framkoma aðalritstjórans
sýnir hins vegar að hann metur
siðferði svo; að það séu kvaðir á að
aðrir geri sem hann óskar helst.
Honum sjálfum sé hins vegar allt
leyfilegt.
Fyrir viku birti DV viðtal við
Össur Skarphéðinsson, formann
Samfylkingarinnar, í helgarblaði
sínu. Í sama tölublaði reyndi aðal-
ritstjóri DV í leiðara að gera lítið
úr ummælum Össurar í viðtalinu.
Aðalritstjóranum er því ekki að-
eins í mun að sanna hversu siðlítill
hann er í viðskiptum heldur einnig
hversu rislítill hann er sem rit-
stjóri. En aðalritstjórum er sjálf-
sagt ýmist leyfilegt sem venjuleg-
um leyfist ekki.
Siðlítill siðaumvandari
skrifar um undarlegan tvískinnung
aðalritstjóra DV í siðferðismálum.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert
bréf sé ekki lengra en sem nemur
hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að
senda bréfin í tölvupósti, rit-
stjorn@frettabladid.is, hringja í
síma 515 7500, faxa í síma 515 7506
eða senda bréf á Fréttablaðið,
Þverholti 9, 105 Reykjavík.
LESENDABRÉF
Er meltingin í ólagi?
Er heilsan ekki eins og best verður á kosið?
Vita Biosa er afrakstur 20 ára rannsókna og fólk í yfir 100 löndum
sækir sér heilsubót til þessa fæðubótarefnis nú. Jurtadrykkurinn
er blanda af kryddjurtum og öðrum plöntum sem eru gerjaðar
með sérstakri blöndu af mjólkursýrugerlum. Vita Biosa vinnur
ekki eingöngu að hreinsun líkamans heldur stuðlar drykkurinn
einnig að því að jafnvægi náist í öllum líkamanum.
Eftirfarandi kynningar verða í apótekum Lyfju milli kl. 14.00 og 17.00
Í dag 1. okt. Lyfja Smáratorgi
Miðvikudag 2. okt. Lyfja Setbergi
Fimmtudag 3. okt. Lyfja Grindavík
Föstudag 4. okt. Lyfja Lágmúla
www.lifskraftur.is
BERLÍN, AP „Þessi skattaumræða fer
ákaflega í taugarnar á mér,“ sagði
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, í gær. Bæði jafnaðarmenn
og græningjar fullyrtu í gær að
engar skattahækkanir stæði fyrir
dyrum, þrátt fyrir að sumir ráða-
menn í flokkunum báðum hafi ver-
ið með yfirlýsingar um það. „Sumt
fólk talar hraðar en það hugsar,“
sagði Schröder.
Flokkarnir eru þessa dagana að
ræða um endurnýjun stjórnarsátt-
mála síns eftir þingkosningarnar í
september. Jafnaðarmenn töpuðu
verulega í kosningunum en Græn-
ingjar unnu mikinn sigur sem dugði
til að stjórnin hélt meirihluta sínum
á þingi.
Hægri menn í Þýskalandi gripu
yfirlýsingar stjórnarliða um skatta-
lækkanir á lofti og beindu spjótum
sínum að Schröder. Hann hafi verið
að ljúga blákalt fyrir kosningar
þegar hann lofaði því að skattar
yrðu ekki hækkaðir.
Í staðinn fyrir að hækka skatta
ætlar ríkisstjórnin að freista þess
að draga saman ríkisútgjöld, sem
mælist reyndar einnig misjafnlega
vel fyrir.
Schröder svarar gagnrýni:
Engar skattahækk-
anir á döfinni
SCHRÖDER OG SCHOLZ
Gerhard Schröder kanslari, fjær á mynd-
inni, og Olaf Scholz, nýkjörinn formaður
þýska Jafnaðarmannaflokksins.
Matarverð og
einkavæðing
Samfylkingin hefur áhyggjur af matarverðinu og bendir á að verð hér sé hærra en í löndunum
í Evrópusambandinu. Vinstri-grænir vilja að einkavæðingarnefnd verði lögð niður.
Þingflokkur Vinstri-Grænnavill að framkvæmdanefnd
um einkavæðingu verði lögð nið-
ur. Flokkurinn hyggst bera upp
tillögu þessa efnis á Alþingi sem
hefst í dag.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur þingflokksins, sagði á blaða-
mannafundi í gær að ríkisendur-
skoðun ynni nú að beiðni VG að
ítarlegri skoðun á öllu starfi
einkavæðingarnefndarinnar. Til-
efni til skoðunar á nefndinni
væru ærin en kveikjan að því að
rannsóknarbeiðni var sett fram í
byrjun ársins væri misheppnuð
einkavæðing Landssímans.
Ögmundur sagði VG hafa átt
fund með ríkisendurskoðun í síð-
ustu viku. Þar hefði komið fram
að málið væri enn í vinnslu. „Það
er fráleitt annað en að einka-
væðingu verði frestað á meðan,“
sagði Ögmundur.
Þingflokkur VG boðaði einnig
frumvarp sem bannar að eigend-
um stofnfjár í sparisjóðum sé
greitt meira fyrir bréfin en sem
svarar til nafnverðs þeirra að
viðbættum verðbótum.
Kolbrún Halldórsdóttir al-
þingismaður sagði á fundinum
að VG myndi áfram vinna að því
að fletta ofan af þeirri „bábilju“
sem stjórnarflokkarnir haldi
fram að stóriðja væri Íslending-
um efnahagsleg nauðsyn. VG
væri að láta vinna að saman-
burði af ávinningi af stóriðiðju
og ávinningi fyrir þjóðarbúið af
því að Landsvirkjun væri látin
greiða niður skuldir sínar á
næstu sextán árum.
Þingmennirnir gagnrýndu í
þessu sambandi þá leynd sem hvíl-
ir yfir orkuverði til stóriðju.
Matarverð var 69% hærra á Ís-landi en í 15 löndum innan
Evrópusambandsins árið 2000.
Matarverð í Noregi var 62% hærra,
en bæði þessi lönd standa fyrir utan
ESB. Þetta kom fram á fundi Sam-
fylkingarinnar þar sem helstu
stefnumál og áherslur flokksins
fyrir komandi þing voru kynntar.
Flokkurinn hyggst leggja meginá-
herslu á neytendur, velferð fólksins
og fyrirtæki.
Á síðasta þingi lagði Rannveig
Guðmundsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, fram fyrirspurn til
ráðherra Hagstofu Íslands um þró-
un verðlagsvísitölu matvæla. Rann-
veig sagði að þá hefði komið í ljós
að vísitalan hefði hækkað gríðar-
lega á síðasta áratug og hún væri
enn að hækka. Ennfremur hefði
komið í ljós að hjá þeim Norður-
löndum, sem hefðu gengið í ESB,
hefði vísitalan lækkað. Á komandi
þingi hygðist Samfylkingin því
leggja fram þingsályktunartillögu,
þar sem þess væri m.a. krafist að
leitt yrði í ljós hvort ólík tenging
landa við Evrópusambandið hafi
áhrif á þróun matvælaverðs.
„Þær staðreyndir sem hafa kom-
ið fram við vinnslu málsins hafa
vakið mjög mikla athygli Evrópu-
sinna í flokknum,“ sagði Rannveig.
„Það hefur komið ljós hvað staða
okkar er óhagstæð í samanburði við
Evrópu, en líka hversu mikill inn-
byrðis munur er milli Norðurland-
anna.“
Á komandi þingi hyggst Sam-
fylkingin einnig leggja fram tillögu
til samanburðar á tekjum banka af
vaxtamun og þjónustugjöldum hér
á landi samanborðið við Norður-
lönd og Evrópusambandslöndin. Þá
mun hún einnig leggja fram tillögu
um skattfrelsi lágtekjufólks, um
flutninga fyrirtækja á landsbyggð-
inni og hvernig bregðast skuli við
fyrirsjáanlegu ójafnvægi í byggða-
málum vegna framkvæmda á Aust-
urlandi.
SAMFYLKINGIN KYNNIR SÍN MÁL.
VINSTRI-GRÆNIR OPINBERA STEFNUNA.Matarverð 69% hærra á Íslandi
Einkavæðing verði stöðvuð