Fréttablaðið - 01.10.2002, Side 13
13ÞRIÐJUDAGUR 1. október 2002
NÝJAR
SENDINGAR
Í HVERRI VIKU
SONET • BRAUTAHOLT 2 • REYKJAVÍK • OPIÐ ALLA DAGA KL 12-19
„Komnir til að vera“
Geisladiskar
TILBOÐ
Taktu 6
á 2000
100 titlar 999,-
999,-
999,-
1.39
9,-
1.39
9,-
1.39
9,-
1.39
9,-
Geisladiskar frá 99 kr.
Tölvuleikir frá kr. 499
GOLF Skotinn Colin Montgomerie,
sem keppti fyrir hönd Evrópu í
Ryder-keppninni í golfi sem hald-
in var á Englandi um helgina,
vakti athygli fyrir skemmtilega
framkomu á mót-
inu. Monty, eins og
hann er kallaður,
hefur oft á tíðum
verið gagnrýndur
fyrir að vera þung-
ur í skapi bæði inn-
an vallar sem utan.
Hefur hann m.a. átt
það til að láta bæði
áhorfendur og fjölmiðlafólk fá
það óþvegið. Hann var hins vegar
léttleikinn uppmálaður á Belfry-
vellinum og virtist vera í afskap-
lega góðu skapi. Árangur hans í
keppninni var eftir því og bar
hann sigurorð af Bandaríkja-
manninum Scott Hoch. Lagði
hann grunninn að sigri evrópska
liðsins með frábærri spila-
mennsku.
Sam Torrance, fyrirliði evr-
ópska liðsins, var ánægður með
frammistöðu Montgomerie og
sagðist aldrei hafa séð hann eins
afslappaðan. „Ég hef spilað með
honum í Dunhill- og Ryder-
keppnum og hann hefur ávallt
verið frábær liðsmaður,“ sagði
hann. „Í þessari viku var hann
aftur á móti afslappaður allan
tímann og lét ekkert trufla sig.
Hann var ótrúlegur. Ég held að
hann hafi bara verið feginn að
geta spilað,“ sagði Torrance og
vísaði þar í þrálát bakmeiðsli
sem Montgomerie hefur átt við
að stríða undanfarið. „Ég held að
það hafi verið lykillinn að ár-
angri hans, auk þess sem hann
vildi virkilega sigra.“
Curtis Strange, fyrirliði banda-
ríska liðsins, lofaði Montgomerie
einnig í hástert eftir mótið. „Hann
er leiðtogi þeirra. Seve [Ballester-
os] var það lengi vel en nú hefur
Colin tekið við af honum. Öll lið
þurfa leiðtoga, ekki bara vegna
spilamennskunnar heldur einnig
vegna þess hvernig þau eiga að
hegða sér,“ sagði Strange um
Monty. „Hann er það svo sannar-
lega. Hann lék frábærlega og
leiddi liðið áfram bæði innan vall-
ar sem utan.“
„Hann er leiðtoginn“
Colin Montgomerie vakti athygli fyrir skemmtilega framkomu og góða frammistöðu í Ryder-
keppninni í golfi. Hefur lengi verið þungur á brún innan vallar sem utan. Sam Torrance, fyrir-
liði evrópska liðsins, var ánægður með frammistöðu kappans.
„Í þessari viku
var hann aftur
á móti af-
slappaður all-
an tímann og
lét ekkert tru-
fla sig“
MONTGOMERIE
Colin Montgomerie fagnar eftir að hafa sett niður pútt á 17. braut á Belfry-vellinum í Sutton Coldfield á Englandi.
MONTY OG TORRANCE
Colin Montgomerie og Sam Torrance, fyrir-
liði evrópska liðsins, fagna sigrinum í Ryder-
keppninni í golfi með bikarinn á lofti.
SIGRI FAGNAÐ
Sam Torrance heldur á bikarnum fyrir sigur
evrópska liðsins í Ryder-keppninni.
Torrance hefur verið fyrirliði evrópska liðs-
ins í 3 ár og segir að tími sé kominn á
breytingar.
Sam Torrance, fyrirliði
Evrópu:
Röðin kom-
in að öðrum
GOLF Sam Torrance, fyrirliði evr-
ópska liðsins í Ryder-keppninni í
golfi, verður að öllum líkindum
ekki áfram fyrirliði þrátt fyrir
góðan árangur um helgina. Hann
hefur þó ekki útilokað fyrirliða-
stöðuna alveg. „Þetta er ekki tím-
inn til að taka ákvörðun. Ég vil þó
ekki segja nei strax. Ég held samt
að röðin sé komin að einhverjum
öðrum,“ sagði Torrance í sigur-
vímu eftir sætan sigur evrópska
liðsins á því bandaríska.
Þrír menn eru taldir líklegir til
að hljóta fyrirliðastöðuna; þeir
Nick Faldo, Ian Woosnam og
Bernhard Langer. Torrance virð-
ist hafa mikið álit á Þjóðverjanum
Langer. „Hann spilaði ótrúlega.
Ég er viss um að hann verði fyrir-
liði, en hvenær það verður veit ég
ekki,“ sagði Torrance.
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, sendi
Torrance fagnaðarkveðjur í gær
og sagði sigur evrópska liðsins
hafa verið stórkostlegan. „Ég er
virkilega ánægður fyrir hönd Sam.
Ég hef þekkt hann síðan hann var
lítill strákur. Hann sýndi ró sína
allan tímann og hafði góða stjórn á
hlutunum,“ sagði Ferguson.
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarliðið
Manchester United skilaði 32,3
milljónum punda í hagnað á
fyrstu sjö mánuðum ársins, sem
samsvarar um 47 milljörðum ís-
lenskra króna, Það er 48% aukn-
ing frá sama tíma og í fyrra.
Manchester United er fyrir vikið
lang ríkasta félagslið heims.
Tekjuaukningu liðsins má helst
rekja til samninga um sjónvarps-
útsendingar og árangurs á Evr-
ópumótum.
Launakostnaður Manchester
United jókst um 20 milljónir
punda á milli ára og nemur nú um
48% af heildartekjum liðsins. Að
sögn forráðamanna liðsins er það
viðunandi niðurstaða en stefnan
var sett á að halda launakostnaði
í 50%. Launagreiðslur leikmanna
í ensku úrvalsdeildinni eru sagð-
ir vera á leið upp úr öllu valdi.
Sem dæmi má nefna að Leeds
borgar um 66% af tekjum liðsins
í laun.
Sjö mánaða uppgjör Manchester United:
47 milljarða
króna hagnaður
Á GÓÐUM LAUNUM
Leikmenn Manchester United eru á góðum launum hjá félaginu. Launakostnaður var þó
lægri en forráðamenn liðsins gerðu ráð fyrir.
Íslensk félagslið í
Evrópukeppni:
KR í for-
keppni Meist-
aradeildar
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar KR
taka þátt í forkeppni Meistara-
deildar Evrópu á næsta tímabili.
Bikarmeistarar Fylkis taka þátt
í Evrópukeppni félagsliða líkt og
Grindavík. Fylkir hafnaði í öðru
sæti deildarinnar en þar sem
Grindavík varð í þriðja sæti fær
liðið einnig sæti í forkeppni Evr-
ópukeppninnar. Nýliðar KA
lentu í fjórða sæti deildarinnar
og taka þeir þátt í Intertoto-
keppninni.
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D