Fréttablaðið - 01.10.2002, Side 22
22 1. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
... fær Júlíus Hafstein fyrir um-
mæli sín um að Björn Bjarnason
hefði átt að láta það eiga sig að fara
í borgina. Júlíus sagði einnig í Silfri
Egils að fyrst hann sé kominn í
borgina þá eigi hann að einbeita sér
að því að vinna til baka tapað fylgi
Sjálfstæðisflokksins. Nú geta menn
svo sem deilt um þessa skoðun, en
það er ekki á hverjum degi sem
sjálfstæðismenn ganga þvert á
flokkslínuna og þora að hafa sjálf-
stæðar skoðanir á ákvörðunum
flokksins. Það er mikilvægt fyrir
flokkinn að innanbúðarmenn þori
að ganga út úr hallelúja-kórnum og
ræði opinskátt um aðferðir og
vinnubrögð. Vonandi fylgja fleiri í
fótspor Júlíusar.
Gott sumar hjá
Rauða ljóninu
Hilmar Guðjónsson leikur
seinheppna brúðgumann í Full-
komnu brúðkaupi í Loftkastalan-
um en þessi sameiginlega leik-
sýning nemendafélaga MR,
Verzló, Kvennó, MH og MS hefur
gengið fyrir nánast fullu húsi all-
an síðasta mánuð. Hilmar, sem er
18 ára í dag, er á öðru ári í
Kvennó og hefur verið viðloð-
andi leiklistina allt frá því hann
lék eitt margbrotnasta hlutverk
barnabókmenntanna, sjálfan
Trölla í Trölli stal jólunum, árið
1995 í uppsetningu Mýrarhúsa-
skóla.
„Þetta er eitt það besta sem
hefur komið fyrir mig,“ segir
Hilmar aðspurður um samstarfið
í kringum Fullkomið brúðkaupi.
„Þetta er búið að vera gjörsam-
lega frábært í allt sumar, fyrst
æfingarnar og svo sýningarnar í
haust. Þetta er algjörlega okkar
verkefni, eða fyrirtæki öllu held-
ur, og við sem erum í þessu erum
ástfangin af þessu. Við ætluðum í
upphafi bara að hafa fimm sýn-
ingar en þær eru þegar orðnar
sjö og við erum búin að bóka okk-
ur út október og höldum svo bara
vonandi áfram.“
Hilmar kann afskaplega vel
við sig í Kvennó. „Það er rosalega
góð stemmning hérna. Ég var svo-
lítið efins þegar ég valdi skólann
fyrst en sé ekki eftir því.“ Hvað
kynjahlutfallið snertir segir
Hilmar að strákarnir séu um 30%
„þannig að þetta er allt að koma“.
Hilmar er maðurinn á bak við,
Rauða ljónið, hið glaðlega lukku-
dýr KR-inga, og er að vonum
ánægður með árangur sinna
manna. „Þetta er búið að vera
fínt sumar. Mikið stuð á vellinum
og ljónið skilar alltaf sínu“.
Hilmar á tvö ár eftir í Kvennó
og ætlar svo að reyna að komast
inn í Leiklistardeild LHÍ. „Það er
auðvitað erfitt að komast að þar
en ég held ég láti reyna á það.
Annars fer maður kannski bara
út í eitt ár. Aðalmálið er auðvitað
bara að lifa lífinu.“
Hilmar heldur vitaskuld upp á
daginn með góðu partíi eins og
menntskælinga er siður. „Boggi,
félagi minn og bekkjarbróðir, á
líka afmæli í dag. Hann er ári
eldri en ég en við ætlum að slá
upp sameiginlegu bekkjarafmæli
af þessu tvöfalda tilefni.“
thorarinn@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
1. OKTÓBER
FÓLK Í FRÉTTUM
FÓLK Í FRÉTTUM
AFMÆLI
Hollvinasamtök Flensborgar-skóla í Hafnarfirði verða
stofnuð í kvöld. Forsvarsmaður
samtakanna er Árni E. Alberts-
son, sem er einn þeirra nemenda
sem útskrifuðust úr skólanum
árið 1977. „Okkur fannst vanta
einhvern flöt þar sem fólk gæti
sameinast í þeim tilgangi að reyna
gera vel við skólann í tilefni ým-
issa áfanga,“ segir Árni aðspurð-
ur hvers vegna ákveðið hafi verið
að ráðast í stofnun samtakanna.
„Afmælishópar hafa verið að gefa
ýmislegt til skólanna. Með stofn-
un samtakanna myndast kjörinn
vettvangur fyrir það auk þess
sem samtökin gætu virkað sem
tengipunktur gamalla nemenda
við skólann.“
Árni, sem starfar sem aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá ríkissak-
sóknara, er fæddur Vestfirðingur
en ólst upp í Hafnarfirði. „Maður
nær því ekki alveg að vera Gaflari
en er gjaldgengur sem Hafnfirð-
ingur,“ segir Árni. Helstu áhuga-
mál hans eru fjölskyldan, vinnan
og félagsmál.
Árni segist eiga mjög góðar
minningar frá Flensborgarskóla
eins og reyndar allur hópurinn
sem útskrifaðist 1977. Hluti þess
árgangs hefur einmitt séð um
undirbúning hollvinasamtakanna
með honum. Stofnfundurinn í
kvöld verður haldinn á sal Flens-
borgarskólans og vonast Árni til
þess að sem flestir láti sjá sig.
Árni er forsvarsmaður hollvinasamtaka
Flensborgarskólans í Hafnarfirði sem stofn-
uð verða í kvöld. Hann er fæddur Vestfirð-
ingur en alinn upp í Hafnarfirði.
Persónan
Tengipunktur gamalla
nemenda við skólann
JARÐARFARIR
13.30 Erlendur Jónsson, Kópavogsbraut
1a, Kópavogi, verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju.
13.30 Tómas Ísfeld verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju.
14.00 Þórður Elísson. Þórustíg 9, Ytri-
Njarðvík, verður jarðsunginn frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju.
15.00 Pétur Friðrik Sigurðsson, listmál-
ari, verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju.
AFMÆLI
Hilmar Guðjónsson framhaldsskóla-
nemi er átján ára.
ANDLÁT
Dagbjörg Þórarinsdóttir, Hrafnistu, lést
24. september.
Kristján Svavar Jensson, Austurbrún 4,
Reykjavík, lést 26. september.
Hús Lærða skólans í Reykja-vík, nú Menntaskólans, var
vígt árið 1846, en skólinn hafði
áður verið á Bessastöðum. Þetta
var lengi stærsta hús bæjarins.
Ásta Magnúsdóttir var skipuðríkisféhirðir árið 1933. Hún
gegndi stöðunni í aldarfjórðung.
Ásta var fyrsta konan sem hlaut
opinbert embætti.
Ökumönnum og farþegum íframsætum bifreiða var gert
skylt að nota öryggisbelti við akst-
ur á vegum árið 1981. Níu árum
síðar náði bílbeltaskyldan einnig
til aftursæta.
Ríkissjónvarpið hóf útsending-ar á fimmtudagskvöldum árið
1987. Þar með fylgdi það í kjölfar
Stöðvar tvö sem árinu áður hafði
hafið sjónvarpsútsendingar alla
daga vikunnar.
TÍMAMÓT
HILMAR GUÐJÓNSSON
„Þetta er búið að vera fínt sumar. Mikið stuð á vellinum og ljónið skilar alltaf sínu.“
Íbúar Þingholtanna sjá æ oftarnorska listamanninn Odd
Nerdrup á gangi í hverfinu.
Nerdrup er að kanna nýjar
heimaslóðir en hann hefur sem
kunnugt er gert tilboð í kaup á
gamla Borgarbókasafninu við
Þingholtsstræti. Nerdrup kemur
gjarnan að kvöldlagi til að
skoða eign sína og framtíðar-
heimili og er vafalítið með hug-
myndir um hvernig nýta megi
húsið og lóðina sem er stór.
Nerdrup gengur í skósíðum loð-
feldi og hlustar á vasadiskó á
göngum sínum um Þingholtin.
Íbúar í hverfinu bíða spenntir
eftir að kynnast nýjum ná-
granna því Nerdrup ber það
með sér að vera skemmtilegur
og fara lítt troðnar slóðir.
Bandarískir blaðamenn, semvoru hér á ferð að skrifa um
íslenska hestinn, hugðust gera
sér dagamun um helgina og
skemmta sér í borg hinnar
norðlægu gleði. Mennirnir
bjuggu á Hótel Sögu og spurð-
ust fyrir um það í móttökunni
hvar væri hægt að komast í
spilavíti. Var þeim tjáð að eina
spilavítinu í Reykjavík hefði
verið lokað endanlega fyrir
stundu. Spurðu þeir þá um nekt-
arklúbba í höfuðborginni og var
tjáð að þeir væru bannaðir.
Höfðu þeir þá á orði að Ísland
væri orðin ein risastór kirkja.
Eiga þeir líklega eftir að skrifa
um þetta í fjölmiðla sína heima.
Samfylkingin hefur valið sérkosningastjórn fyrir komandi
kosningabaráttu. Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri í Hafnarfirði,
sem sumir út-
nefndu sigurveg-
ara kosninganna
síðasta vor, er
formaður kosn-
ingastjórnarinn-
ar. Með honum
sitja Svanfríður
Jónasdóttir, sem
lætur af þingmennsku næsta vor,
og Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi í
Kópavogi.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Vegna lokunar spilavítisins við
Suðurgötu 3 skal tekið fram að
starfsemi Happdrættis Háskólans
verður með óbreyttu sniði eftir sem
áður í næsta húsi þar við.
Leiðrétting
DÚFUR Í LAUGARDAL Dúfum mun fara fækkandi í borginni fari eru líklega ekki jafnmargir strákar með dúfnakofa og áður. Þessar
dúfur nutu þó haustblíðunnar í Grasagarðinum í Laugardal á dögunum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Hilmar Guðjónsson er átján ára í dag. Hann er að gera það gott í
aðalhlutverkinu í farsanum Fullkomið brúðkaup í Loftkastalanum
og hefur þar fyrir utan brugðið sér í gervi Rauða ljónsins.
Í dómssalnum
Dómarinn: Fæðingardagur?
Vitni: 15. júlí.
Dómarinn: Hvaða ár?
Vitnið: Á hverju ári.
Sendu brandara á surmjolk@frettabladid.is
ÁRNI E. ALBERTSSON
Árni segist eiga mjög góðar
minningar frá Flensborgar-
skóla í Hafnarfirði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Að því er raddir að norðanherma er séra Cecil Haralds-
son, sóknarprestur og forseti
bæjarstjórnar á Seyðisfirði, volg-
ur fyrir því að taka þátt í próf-
kjöri Samfylkingar í norðaustur-
kjördæmi. Það er því fyrirferð í
klerkinum þrátt fyrir að ekki séu
ýkja mörg ár síðan hann flutti
austur. Þannig var hann kosinn í
bæjarstjórn Seyðisfjarðar í vor
en virðist ekki ætla að láta það
standa í vegi fyrir frekara fram-
boðsbrölti.