Fréttablaðið - 01.10.2002, Síða 23
23ÞRIÐJUDAGUR 1. október 2002
FÓLK Í FRÉTTUM
Gömlu bankarnir* nb.is
Hvort vilt þú borga 52.950 kr.
eða 26.460 kr. í yfirdráttarvexti
næstu sex mánuðina?
(m.v. 600.000 kr. yfirdrátt)
*Búnaðarbanki, Íslandsbanki,
Landsbanki og sparisjóðirnir.
(m.v. vexti 21. ágúst) Farðu inn á www.nb.is eða hringdu í síma 550 1800
og léttu þér vaxtabyrðina strax.
Lestu smáa letrið
Við hvetjum þig til að kynna þér skilmála nb.is vegna tilboðsins á www.nb.is
Banki með betri vexti
Láttu ekki vaxtabyr∂ina sliga þig
1) Léttu byrðina strax...
Nb.is býður nýjum viðskiptavinum sem fá sér debetkort helmingi lægri
vexti á yfirdráttarheimild fyrstu sex mánuðina eftir að reikningur er
stofnaður. Þú færð 8,82% hjá nb.is í stað 17,65% hjá gömlu bönkunum.
2) ...og hafðu hana létta áfram.
Eftir fyrstu sex mánuðina heldur þú áfram að njóta betri
yfirdráttarvaxta sem eru allt að fjórðungi lægri en hjá gömlu bönkunum.
Helmingi lægri
yfirdráttarvextir
í sex mánu∂i
hjá nb.is
52.950 kr. 26.460 kr.
17,65%
8,82%
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
12
4
7
TÍSKA Í MÍLANÓ
Hinni frægi hönnuður Giorgio Armani
lagði áherslu á þrönga og fislétta kjóla í
jarðarlitunum á sýningu sinni í Mílanó í
gær. Ef hann fær einhverju að ráða eiga
kvenmenn eftir að klæða sig svona næsta
sumar og haust.
KÓNGAFÓLK Anna Bretaprinsessa
og eiginmaður hennar, Tim
Laurence, hafa verið kærð eftir
að bull terrier-hundur þeirra
réðst á fólk í hallargarðinum við
Windsor-höll. Samkvæmt breska
blaðinu The Mail þurfa prinsess-
an og eiginmaðurinn að mæta fyr-
ir rétt innan tíu daga. Verði þau
fundin sek eiga þau yfir höfði sér
sekt upp á 5 þúsund pund og allt
að sex mánaða fangelsisvist. Svo
gæti farið að hundur þeirra verði
einnig aflífaður og þeim meinað
að eiga dýr.
Lögreglan í Thames dalnum
hefur ekki tjáð sig um atvikið og
segist ekki nefna nöfn meintra
glæpamanna fyrr en búið sé að
dæma þá.
Samkvæmt frétt The Mail var
prinsessan með hundinn við æf-
ingar í garðinum þegar hann réðst
á karl og konu og glefsaði í þau.
Parið slapp þó með skrekkinn.
Þetta er í fyrsta skipti sem kónga-
fólk í Englandi þarf að mæta fyrir
rétt ef hraðasektir eru undan-
skildar.
ÍSLANDSVINURINN
Anna prinsessa kom til Ís-
lands á hestamannamót.
Hér sést hún með
hundana sína.
Hundur Önnu prinsessu:
Réðst á fólk í
hallargarðinum
við Windsor-höll
Áþingi Neytendasamtakannaum helgina vakti athygli að
þungavigtarmenn úr Samfylking-
unni gerðu bandalög í allar áttir
til að ná fram stuðningi við sjón-
armið Evrópusinna. Jón Magnús-
son, hæstaréttarlögmaður og
fyrrum formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna, og fé-
lagar í Samfylkingunni, eins og
ritstjórarnir Ingólfur Margeirs-
son og Mörður Árnason, sneru
þar bökum saman og náðu sínu
fram þrátt fyrir andstöðu öflugra
sjálfstæðismanna eins og Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar. Guðlaug-
ur Þór var kjörinn í stjórn af lista
uppstillingarnefndar, eins og
Samfylkingarmennirnir Mörður
Árnason og þingmannsefni Sam-
fylkingarinnar á Suðurlandi,
Björgvin G. Sigurðsson.
Ingólfur Margeirsson komstekki á lista uppstillingarnefnd-
ar til stjórnar Neytendasamtak-
anna þar sem þá voru fulltrúar
Samfylkingarinnar orðnir of
margir sam-
kvæmt réttum
prótókolli.
Ingólfur bauð sig
þá fram sjálfur,
og náði kjöri.
Ingólfur og
Björgvin G. Sig-
urðsson eru
harðir Evrópusinnar, auk þess
sem Mörður er talinn fylgja
flokkslínunni í þeim efnum. Það
er því viðbúið að heitt verði í kol-
unum þegar Evrópumál ber á
góma á fundum stjórnarinnar.
Stjórn knattspyrnudeildar ÍAkemur saman í dag ásamt leik-
mönnum og aðstoðarmönnum til
nokkurs konar
krísufundar.
Kurr mun vera
meðal leikmanna
og ku nokkrir
vera farnir að
hugsa sér til
hreyfings. Það
sem helst er
nefnt eru nún-
ingsfletir í sam-
skiptum þjálfar-
ans við leikmenn en Ólafur Þórð-
arson skrifaði á dögunum undir
nýjan tveggja ára samning við
stjórn ÍA. Óli þjálfi hefur aldrei
þótt mjúkmáll en sjaldan veldur
einn þá tveir deila.
Mikill fjöldi fólks hefur heim-sótt Kjarvalsstaði til að sjá
sýningu danska hönnuðarins
Arne Jacobsen. Jacobsen var
bæði merkur og afkastamikill
arkitekt og hönnuður þannig að
eftir hann liggur mikið verk.
Ekki er að búast við að hægt sé
að gera honum ítarleg skil á sýn-
ingu hér uppi á Íslandi en einum
sýningargesti varð að orði að allt
eins hefði mátt hengja upplýs-
ingaskiltin upp í versuninni Epal.
Sýningin væri ekki yfirgrips-
meiri en svo að á henni væru
húsgögn sem að stærstum hluta
fengjust þar, fyrir utan rúsínuna
í pylsuendanum, leðurklædda
Eggið hans Halldórs Laxness.