Fréttablaðið - 03.10.2002, Síða 4
4 3. október 2002 FIMMTUDAGUR
HAAG, AP Biljana Plasic, fyrrver-
andi leiðtogi Bosníu-Serba, lýsti
sig í gær seka um glæpi gegn
mannkyninu fyrir stríðsglæpa-
dómstól Sameinuðu þjóðanna í
Haag. Plavsic var meðal helstu
forsvarsmanna Serba í Bosníu
meðan stríðið þar stóð árin 1991-
95. Að stríðinu loknu tók hún við
af Radovan Karadzic sem for-
seti serbneska lýðveldisins í
Bosníu.
Í yfirlýsingu frá Plavsic seg-
ist hún vonast til þess að með því
að játa sig seka geti hún hjálpað
Serbum til þess að sættast við
nágrannaþjóðir sínar og jafn-
framt endurheimta virðingu sína
þegar fram líða stundir.
Plavsic gaf sig sjálf fram við
stríðsglæpadómstólinn í ársbyrj-
un 2001. Hún er eina konan sem
dreginn hefur verið fyrir dóm-
inn. Alls hefur dómstóllinn gefið
út ákæru á hendur 77 Serbum,
Króötum og Bosníu-Múslimum.
Þar af ganga 22 ennþá lausir.
Meðal þeirra eru Serbarnir
Radovan Karadzic og Vlatko
Mladic.
Frá því dómstóllinn tók til
starfa hafa átta sakborningar
játað sig seka. Meðal þeirra er
Goran Jelesic, sem hlaut 40 ára
fangelsisdóm eftir að hafa játað
sig sekan um stríðsglæpi.
Biljana Plasic, fyrrverandi leiðtogi Bosníu-Serba:
Játar sig seka um
glæpi gegn mannkyni
STRÍÐSGLÆPARÉTTARHÖLD Í BEINNI ÚTSENDINGU
Í ríkjum Balkanskaga er grannt fylgst með gangi mála hjá stríðsglæpastólnum í Haag.
Þessi mynd er tekin í Zagreb.
AP
/H
RV
O
JE
K
N
EZ
JÓN BJARNASON
Stærstum hluta tekjuafgangs frumvarps á
að ná fram með sölu þjónustufyrirtækja.
Frumvarpið staðfestir
skattatilfærslu:
Ýtir
undir aukinn
mismun
FJÁRLÖG „Það er jákvætt ef það
stenst að viðskipti við útlönd kom-
ast í jafnvægi. Eins ef verðbólgan
verður lág. Það tryggir sam-
keppnisstöðu atvinnulífsins og
eflir kaupmátt,“ segir Jón Bjarna-
son, fulltrúi Vinstri-grænna í fjár-
laganefnd, um fjárlagafrumvarp-
ið. Hann segir þó umtalsverða
annmarka á því.
„Það kemur fram að skattbyrð-
in færist til. Hlutfallsleg skatt-
byrði lífeyrisþega og lágtekju-
fólks eykst,“ segir Jón. Ennfrem-
ur stórhækki tryggingagjald, um
fjóra milljarða. Það bitni helst á
fyrirtækjum með hátt hlutfall
launa, til dæmis fyrirtækja í þjón-
ustu og frumvinnslu.
„Það sem stendur út af er að
velferðarþjónustan heldur hvergi
sínum hlut. Það má segja að kjör
aldraðra og öryrkja verði helst út
undan í stefnu þessarar ríkis-
stjórnar. Sömuleiðis heilbrigðis-
þjónustan, sjúkrahúsin skera nið-
ur þjónustu sína vegna fjár-
skorts.“
„Frumvarpið virðist því miður
ýta undir aukna mismunum á
kjörum fólks í þjóðfélaginu,“ seg-
ir Jón. „Við vitum að bilið á milli
kjara einstakra þjóðfélagshópa
hefur verið að breikka. Við mun-
um berjast gegn því.“
FJÁRLÖG „Það er verið að setja
fram hluti sem líta afskaplega vel
út en það hefur ekki verið tekið á
neinu af því sem við vitum að er
vandi í kerfinu,“ segir Gísli S. Ein-
arsson, fulltrúi Samfylkingar í
fjárlaganefnd um fjárlagafrum-
varpið sem hann kallar glópagull.
„Þó menn segi að það hafi verið
tekið á heilbrigðiskerfinu fyrir
tveimur árum og það núllað allt út
var aðhald ríkisins það ræfilslegt
að það hleypti allri skriðunni af
stað aftur. Eftirfylgnin og áætl-
anagerðin er engin.“
Gísli segir að sá tekjuafgangur
fjárlagafrumvarpsins sem ekki er
til kominn vegna sölu eigna sé
minni en fjárhagsvandinn í vel-
ferðarkerfinu. „Það vantar tvo
milljarða til sjúkrahúsanna. Það
vantar sex hundruð milljónir til
dvalarheimila og hjúkrunarheim-
ila. Það eru fjölmörg hjúkrunar-
heimili í landinu komin að gjald-
þroti vegna uppsafnaðs halla.
Fjöldi minni framhaldsskóla er í
miklum vandræðum.“ Að auki
eigi eftir að taka á löggæslu. Þar
sé ekkert gert nú.
Ekki tekið á vanda velferðarkerfisins:
Glópagull frekar en ábyrg fjárlög
GÍSLI S. EINARSSON
Þó verulegur tekjuafgangur hafi verið und-
anfarin fimm ár fríar það menn ekki frá því
að taka á vandamálum.
MÆÐRAVERND Nýjar rannsóknir
hafa leitt í ljós að hófdrykkja get-
ur valdið fósturskaða á með-
göngu. Hættan eykst síðan í takt
við aukna neyslu að því segir í
nýjum bæklingi
sem gefin hefur
verið út á vegum
Áfengis- og vímu-
varnarráðs í
tengslum við
Landlæknisemb-
ættið og Mæðra-
vernd.
Jóna Dóra
Kristinsdóttir ljós-
móðir hjá Mæðravernd segir að
rannsóknir sýni að um leið og
fóstrið tengist blóðrás móðurinn-
ar fari allt sem hún láti ofan í sig
sem leið liggi inn í naflastrenginn
yfir í blóðrás fóstursins. Líffæri
fóstursins eru ekki nægilega
þroskuð til að brjóta niður áfengi
og verði því fóstrið fyrir meiri
áhrifum en móðirin.
„Lengi vel héldu konur að í lagi
væri að drekka eitt eða tvö rauð-
vínsglös eða bjór. Það var jafnvel
talið að það væri fóstrinu hollt.
Nýjar rannsóknir sýna hins vegar
að regluleg neysla þó svo að hún
sé í litlum mæli getur valdið
skaða. Börn hafa greinst með
hegðunarvandamál og sannað er
að slík áfengisneysla á meðgöngu
valdi námsörðugleikum hjá börn-
um. Í flestum tilfellum koma
þessi einkenni ekki fram strax
eftir fæðingu heldur smátt og
smátt eftir því sem börnin eld-
ast.“ segir Jóna Dóra.
Ragnheiður Jónsdóttir verk-
efnisstjóri hjá áfengis-og vímu-
varnarráði bendir á að taugakerf-
ið sé í mótun og geti áfengis-
drykkja skert hreyfigetu barnsins
síðar meir. Það sama eigi við um
barn á brjósti. „Sérstaklega er
vert að vekja athygli á því að létt
vín og bjór eru alveg jafn skaðleg
og sterkir drykkir. Mikill mis-
skilningur er að aðeins beri að
forðast sterka drykki.“
Jóna Dóra segir að konur séu
yfirleitt mjög móttækilegar fyrir
breyttu lífsmynstri á meðgöngu
og geri það sem þær geti til að
undirbúa fæðinguna. „Mín
reynsla er að þær taki allri leið-
sögn mjög vel og séu móttækileg-
ar fyrir því að breyta líferni sínu
til hins betra,“ segir hún. „Allar
rannsóknir sem hafa verið gerðar
bera að sama brunni. Áfengi á
meðgöngu getur valdið skaða og
engin öryggismörk eru þar á. Því
er best að sneiða hjá neyslu eða
sleppa henni algjörlega. Einnig er
sannað að börn kvenna sem neyta
áfengis á meðgöngu fæðast létt-
ari.“
bergljot@frettabladid.is
Ford Focus hefur hlotið frábæra dóma og er nú vinsælasti bíll í heimi.
fordfocus
Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • brimborg.is
Pantaðu núna.
Nýr Ford Focus kostar frá 1.495.000 kr.
Er hægt að hljóta
meiri viðurkenningu?
Kjötiðnaðarmenn SláturfélagsSuðurlands gerðu það gott á
norrænni fagkeppni kjötiðnaðar-
manna, sem haldin var í Herning
í Danmörku um helgina. Sendar
voru 18 vörur og fengust 11 verð-
laun, 3 gullverðlaun, 5 silfurverð-
laun og 3 bronsverðlaun. Dag-
skráin
Aukið atvinnuleysi
á næsta ári:
Útgjöld
aukast
FJÁRLÖG Gert er ráð fyrir að út-
gjöld atvinnuleysistryggingasjóðs
aukist um rúmlega hálfan millj-
arð króna á milli ára samkvæmt
fjárlögum næsta árs. Ástæðan er
fyrirséð aukning atvinnuleysis úr
tæpum tveimur prósentum í 2,5%.
Áætluð útgjöld atvinnuleysis-
tryggingasjóðs í atvinnuleysis-
bætur á þessu ári nema ríflega 1,6
milljörðum króna. Gert er ráð fyr-
ir að sú upphæð hækki í tæpa 2,2
milljarða króna á næsta ári.
Flugslysanefnd:
Fundur um
Bretaskýrslu
FLUGMÁL Rannsóknarnefnd flug-
slysa átti fund í gær vegna skýrslu
bresku flugslysasérfræðinganna
um Skerjafjarðarslysið. Nefndin
fær harða gagnrýni í skýrslunni
vegna vinnubragða sinna.
Að sögn Þorkels Ágústssonar
má jafnvel búast við því að rann-
sóknarnefndin skili samgöngu-
ráðuneytinu umsögn um innihald
skýrslunnar fyrir helgi.
„Við fengum skýrsluna í hendur
frá samgönguráðuneytinu og við
sendum því okkar viðbrögð til
ráðuneytisins. Það er verið að
ræða það innan nefndarinnar í
hvaða formi þessi viðbrögð verða,“
segir Þorkell.
INNLENT
Hófdrykkja á með-
göngu er vafasöm
Nýjar rannsóknir sýna fram á að regluleg hófdrykkja getur valdið skaða
á fóstri. Eftirtektarvert er að sannað er að léttvín og bjór valda sama
skaða og neysla sterkari drykkja.
NÝR BÆKLINGUR
Nýr bæklingur um skaðsemi neyslu áfengis á meðgöngu er kominn út. Þar kemur fram
að bjór er jafn slæmur og vodka. Athugið að barnið á myndinni tengist ekki áfengi á
meðgöngu.
Sérstaklega er
vert að vekja
athygli á því
að léttvín og
bjór eru alveg
jafn skaðleg
og sterkir
drykkir
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
13,1%
Slæmur 68,1%
Er aðbúnaður geðfatlaðra á
Íslandi góður, viðunandi eða
slæmur?
Spurning dagsins í dag:
Er nýja fjárlagafrumvarpið gott
frumvarp?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Viðunandi
18,7%Góður
SLÆMUR
AÐBÚNAÐUR
Netverjar eru
ósáttir við
aðbúnað
geðfatlaðra.