Fréttablaðið - 03.10.2002, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 3. október 2002
debenhams
S M Á R A L I N D
WALLIS peysa
5.900 kr.
WALLIS skyrta
4.590 kr.
WALLIS toppur
5.500 kr.
Útgeislun...
Persónulegur stílisti
Ókeypis persónuleg þjónusta án nokkurra skuldbindinga.
Ráðgjöf um val á brjóstahöldurum
Um 70% kvenna nota ranga stærð brjóstahaldara. Fagfólk okkar ráðleggur
þér um rétt val, ókeypis og án skuldbindinga.
Gjafainnpökkun
Gjöfinni þinni pakkað inn í glæsilegar umbúðir.
Auk þess eru í boði frábær tilboð í öllum deildum verslunarinnar.
Verðið kemur þægilega á óvart!
er spurning um hugarfar
- og réttu fötin til a› l‡sa flví.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
1
87
91
09
/2
00
2
FLUGMÁL Rannsóknarnefnd flug-
slysa í Danmörku hefur sent frá
sér stutta frumskýrslu um atvikið
sem varð þegar farþegavél frá
flugfélaginu Jórvík féll stjórn-
laust í flugi við Grænland í ágúst.
Flugvélin var í leiguflugi með
grænlenska sjómenn frá Keflavík
til vesturstrandar Grænlands.
Rannsóknarnefndin segir að
áhöfn vélarinnar hafi beðið um
leyfi til að hækka flugið upp fyrir
ský þegar vélin var skammt frá
Kúlúsúk á austurströndinni. Níu
mínútum síðar hafi vinstri
hreyfilinn byrjað að hökta. Vélin
hafi fallið til vinstri og tapað hæð.
Áhöfnin hafi þá óskað eftir að
lendingarleyfi í Kúlúsúkk.
Rannsóknarnefndin segir að
vinstri hreyfillinn hafi síðan hætt
að ganga „að hluta“. Flugmennirn-
ir hafi átt í erfiðleikum með að
stýra vélinni. Loks hafi hún
steypst stjórnljóst niður í um 700
metra hæð þar sem tókst að
hemja hana að nýju. Þá hafði vél-
in tapað yfir 3.300 metra hæð.
Steypiflug Jórvíkur við Grænland:
Danir skila
frumskýrslu
STJÓRNSÝSLA Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hyggst senda
frá sér yfirlýsingu í dag vegna
skýrslu bresku flugslysasérfræð-
inganna um Skerjafjarðarslysið.
Að sögn Jakobs Fals Garðars-
sonar, aðstoðarmanns samgöngu-
ráðherra, ætlar ráðuneytið ekki að
bíða álitsgerða frá Flugmálastjórn
og Rannsóknarnefnd flugslysa
áður en það gefur yfirlýsingu sína
um skýrsluna.
„Við erum ekki sérstaklega að
bíða eftir því. Við fengum skýrslu
Bretanna í morgun. Hún vekur
óneitanlega upp ýmsar áleitnar
spurningar. Við höfum verið að
fara yfir skýrsluna og ýmislegt
annað þessu máli tengdu,“ segir
Jakob Falur.
Aðspurður segir Jakob Falur
samgönguráðuneytið ekki hafa átt
samtöl við Flugmálastjórn eða
Rannsóknarnefnd flugslysa. „Við
höfum aðeins sent þetta til nefnd-
arinnar og Flugmálastjórnar og
beðið um umsögn þeirra. Það gef-
ur auga leið að bæði Flugmála-
stjórn og rannsóknarnefndin þurfi
nokkurn tíma til að fara vandlega
ofan í þessa skýrslu,“ segir hann.
Aðstoðarmaður samgönguráðherra:
Bretar vekja ýmsar
áleitnar spurningar
STURLA BÖÐVARSSON
Þess er vænst að samgönguráðherra gefi í
dag yfirlýsingu um skýrslu bresku flugslysa-
sérfræðinganna um Skerjafjarðarslysið.
JERÚSALEM, AP „Heilli kynslóð
palestínskra barna er neitað um
rétt sinn til þess að njóta menntun-
ar,“ sagði Pierre Poupard, fulltrúi
UNICEF, sem er Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna.
Útgöngubann og vegatálmar
sem Ísraelsmenn hafa komið upp
á Vesturbakkanum hafa þau áhrif
að 226.000 palestínsk börn geta
ekki sótt skóla og 9.300 kennarar
komast ekki til vinnu sinnar. Þetta
er nærri fjórðungur allra barna
sem búa á Vesturbakkanum og
Gazasvæðinu.
Einna verst er ástandið í Nablus,
stærstu borginni á Vesturbakkan-
um. Þar hafa sumir foreldrar
brugðið á það ráð að kenna börnum
sínum heima eða senda þau í bráða-
birgðaskóla í nágrenninu.
Í sumum bæjum á Vesturbakk-
anum er útgöngubanni reyndar
aflétt um stundarsakir dag hvern
til þess að gera börnunum kleift að
fara í skóla. Foreldrar eru þó marg-
ir hverjir hræddir við að senda þau
út á göturnar þar sem ísraelskir
hermenn og skriðdrekar eru nánast
á hverju horni.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir Ísraelsher:
Heilli kynslóð
barna neitað
um menntun
ÚTGÖNGUBANNI MÓTMÆLT
Á þriðjudaginn brutu hundruð barna í Nablus gegn útgöngubanni Ísraelshers til þess að
mótmæla banninu.
AP/LEFTER
IS PITAR
AKIS