Fréttablaðið - 11.10.2002, Side 1
bls. 22
ÍÞRÓTTIR
Ætlum að
vinna leikinn
bls. 10
FÖSTUDAGUR
bls. 22
198. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 11. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 10
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Nágrannaslagur
í körfunni
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fara fram í
Intersport-deildinni í körfubolta
klukkan 19.15. Njarðvík mætir
Keflavík á heimavelli, Hamar tekur
á móti KR og ÍR-ingar mæta
Skallagrími í Breiðholtinu.
Sex handboltaleikir
HANDBOLTI Fjórir leikir verða í Essó-
deild karla í kvöld. ÍR mætir Þór,
Fram sækir Selfoss heim, Valur og
Víkingur keppa í Víkinni og ÍBV og
HK úti í Eyjum. Tveir leikir verða
í Essó-deild kvenna. Fram mætir
KA/Þór og FH keppir við Stjörn-
una. Allir leikirnir hefjast klukkan
20.
Tuttugu ára afmæli
SÖGUÞING Í tilefni af 20 ára afmæli
Félagsráðgjafar við Háskóla Ís-
lands verður haldið söguþing í Nor-
ræna húsinu. Þingið hefst klukkan
13 og verður m.a. flutt erindi um
það hvernig það er að vera karl-
maður í félagsráðgjafanámi árið
2002. Auk þessa verður rætt um
adraganda og upphaf náms í félags-
ráðgjöf.
AFMÆLI
Ætlar að
halda veislu
PERSÓNAN
Það skánar
ekki úr þessu
STÓRIÐJA „Það eru viðræður í
gangi. Þær eru ekki komnar til
enda en vonandi verður hægt að
ljúka þeim á næstu tíu dögum,“
sagði Finnur Ingólfsson, formað-
ur álviðræðunefndar stjórnvalda.
Samningamenn Alcoa og eig-
endur Reyðaráls, Hæfi og Norsk
Hydro, hafa undanfarið rætt um
kaup Alcoa á umhverfismati og
framkvæmdaleyfi fyrir álver á
Austurlandi. Stefnt hefur verið að
því að ná niðurstöðu fyrir miðjan
mánuðinn og bendir flest til þess
að það takist. Drög að samningi
milli aðila mun vera í farvatninu
en verðhugmyndir hafa ekki verið
ræddar formlega. Kapp er lagt á
að ná samningum við eigendur
Reyðaráls þar sem bæði dýrt og
tímafrekt er að ráðast í gerð nýs
umhverfismats. Áætlað er að
kostnaður við umhverfismat sé að
minnsta kosti 300 milljónir króna,
auk rannsóknakostnaðar og ann-
ars sem matinu tengist. Þá tekur
matsferlið allt marga mánuði.
Ekki er búið að meta hvers virði
tímasparnaðurinn er sem hlýst af
því að kaupa álverspakkann af
Reyðaráli.
Michael Baltzell, aðalsamn-
ingamaður Alcoa heldur af landi
brott í dag en óvíst er hvenær við-
ræðum verður fram haldið.
Viðræður um kaup Alcoa á umhverfismati Reyðaráls:
Kostar hundruði milljóna króna
REYKJAVÍK Suðaustlæg 5-10
m/s í fyrstu og skúrir
síðdegis.
Hiti 7 til 12 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skúrir 10
Akureyri 10-15 Rigning 12
Egilsstaðir 13-18 Súld 12
Vestmannaeyjar 5-13 Skúrir 10
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
SAMGÖNGUR Meirihluti þeirra sem
eiga sæti í Flugráði hafa verið
umboðslausir frá 9. júní síðast
liðnum. Þá rann kjörtímabil
þeirra út án þess að umboð þeirra
væri endurnýjað eða aðrir kosnir í
þeirra stað. Samkvæmt lögum um
Loftferðir ber Alþingi að kjósa
þrjá af fimm mönnum sem sæti
eiga í Flugráði. Kjósa hefði átt í
Flugráð síðasta vor. Það gleymd-
ist. Niðurstaðan er því sú að ein-
ungis tveir fulltrúar af fimm í
Flugráði hafa umboð til að gegna
störfum sínum.
„Flugráð var látið vinna áfram
en þess gætt að láta það ekki taka
neinar ákvarðanir,“ segir Jóhann
Guðmundsson, sem situr fundi
Flugráðs fyrir hönd samgöngu-
ráðuneytisins. Stór hluti verkefna
Flugráðs sé að veita umsagnir um
mál sem samgönguráðherra beini
til þess. Þess hafi því verið gætt
að beina slíkum umsögnum til for-
manns Flugráðs. Skipunartími
hans og annars ráðherraskipaðs
Flugráðsmanns markist af setu
ráðherra.
Lögum um loftferðir var breytt
undir lok síðasta þings. Sam-
kvæmt því eru allir Flugráðs-
menn skipaðir af ráðherra, þar af
þrír að fenginni tilnefningu Sam-
taka atvinnulífsins og Samtaka
ferðaþjónustunnar. Þau lög taka
hins vegar ekki gildi fyrr en um
áramót. Jóhann segir að menn
hafi þurft að gera upp við sig
hvort Alþingi kysi menn til ára-
móta eða flýttu gildistöku lag-
anna. Ákveðið hafi verið að flýta
gildistökunni. Samgönguráðherra
flytur frumvarp þess efnis á
næstu dögum.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður samgöngunefndar og vara-
maður í Flugráði, segir að það hafi
verið mistök að endurnýja ekki
umboðið síðasta vor eða láta lögin
taka strax gildi. Menn hefðu ekki
áttað sig á því að gildistíminn
rynni út á þessum tíma. Hann seg-
ir þó erfitt að benda á sökudólg.
„Það hefði verið eðlilegt að fá
nótu frá Flugmálastjórn.“ Það sé
þó alltaf spurning hver eigi að
fylgjast með þessu. „Algengi mát-
inn er sá að þegar líður á seinni
hluta kjörtímabilsins eða skipun-
artíma nefndarmanna veki þeir
sjálfir athygli á því.“ Það hafi ekki
gerst nú og kosningin því gleymst.
brynjolfur@frettabladid.is
Flugráð án
umboðs
Síðasta vor gleymdist að kjósa fulltrúa Alþingis
í Flugráð. Kjörtímabil þeirra rann út í júlí.
Meirihluti Flugráðsmanna hefur því verið um-
boðslaus í fjóra mánuði. Lagafrumvarp lagt
fram á næstu dögum til að bjarga stöðunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Gólfefna
dagar
25-40%
afsláttur
FINNUR INGÓLFSSON
Vonast til að viðræðum
um hugsanleg kaup á
umhverfismati ljúki á
næstu dögum.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
62%
69%
BLÁSIÐ Í SEKKJAPÍPUR Á INGÓLFSTORGI Áhangendur skoska landsliðsins í knatt-
spyrnu setja nú svip á miðborgina. Fjölmargir Skotar fylgja landsliðinu til Íslands, en lönd-
in mætast í undankeppni Evrópukeppninnar á morgun klukkan 14. Uppselt varð á leikinn
síðdegis í gær.
Bílveltan í Skutulsfirði:
Stúlkurnar tvær látnar
ANDLÁT Stúlkurnar tvær er lentu í
bílveltunni í Skutulsfirði í Ísa-
fjarðardjúpi síðastliðinn sunnu-
dag létust í gærdag. Þeim hafði
verið haldið sofandi í öndunarvél
frá því slysið varð og komust þær
aldrei til meðvitundar. Báðar
hlutu þær alvarlega höfuðáverka.
Stúlkurnar voru átta og níu ára
gamlar, fæddar árið 1993 og 1994.
Móðir stúlknanna liggur enn
þungt haldið á gjörgæsludeild.
Henni er haldið sofandi í öndun-
arvél og að sögn vakthafandi
læknis fer heilsu hennar hrak-
andi.