Fréttablaðið - 11.10.2002, Side 6

Fréttablaðið - 11.10.2002, Side 6
6 11. október 2002 FÖSTUDAGUR Heilbrigðisráðherra um stefnu flokkanna: Tala út og suður STJÓRNMÁL Jón Kristjánsson segist ekki geta séð annað en stjórnar- andstaðan sé út og suður í skoðun- um sínum um heilbrigðismál og vísar þá til umræðu um heilbrigð- ismál utan dagskrár á þingi í fyrradag. „Ég botnaði ekkert í því hvaða stefnu fulltrúar Sam- fylkingarinn- ar hafa í heil- brigðismálum því það komu tvær útgáfur af því. Í hrein- skilni sagt fannst mér þeir tala út og suður. Jón segist ekki taka und- ir það að Framsóknar- flokkurinn sé að einangrast í skoðunum sínum á heilbrigðismálum en bendir á að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi talað fyrir einkarekstri. „Ég hef ekki orðið var við að ráðherr- ar flokksins hafi flutt þá stefnu til mín og það er ekki ágreiningur um stefnuna í ríkisstjórn.“  MUMMI Útvarpsstjóri frá næstu mánaðamótum. Mummi í Mótorsmiðjunni: Útvarp Reykjavík á leið í loftið FJÖLMIÐLAR „Þetta verður grasrót- arstöð með stórt hjarta,“ segir Mummi í Mótorsmiðjunni sem ætlar að söðla um og stofna út- varpsstöð á Laugaveginum. Stöð- in hefur fengið nafnið Útvarp Reykjavík og verður til húsa að Laugavegi 28: „Við ætlum að rokka beint á móti Biskupsstofu,“ segir Mummi sem þekktastur er fyrir starf sitt með unglingum í vímuefnavanda. Útsendingar hefjast um næstu mánaðamót: „Þetta verður dægurmálaút- varp með klassísku rokkívafi. Þarna á fólk að þekkja öll lögin sem leikin eru,“ segir Mummi í Mótorsmiðjunni sem reyndar heitir Guðmundur Týr Þórarins- son. Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 D ub lin Ekki missa af 37.995kr. 42.120kr. 25. október - 3 nætur Sta›grei›sluver› frá á mann í tvíb‡li á hótel Ormond Quay 6. desember - 2 nætur Sta›grei›sluver› frá á mann í tvíb‡li á hótel Paramount Innifalilð: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði og íslensk fararstjórn. Nýtt áætlunarflug: Flugvélin fundin SAMGÖNGUR Hagkvæmnisathug- anir, sem áhugahópar um nýtt áætlunarflug til og frá landinu hafa látið gera, sýna svo ekki verður um villst að Boeing 737- þotan er besti kosturinn í stöð- unni. Verður sú þota því fyrir valinu ef og þegar af stofnun nýs flugfélags verður. Boeing 737 tekur 148 farþega og var sú gerð flugvéla sem Flugleiðir notuðu áður en þeir endurnýjuðu flug- flota sinn og skiptu yfir í Boeing 757 sem er verulega stærri vél og hentar betur til Ameríkuflugs. Valið á Boeing 737 bendir því til þess að nýir flugrekstaraðilar stefni að áætlunarflugi til Evr- ópu. Mjög hefur verið þrýst á Atl- anta - flugfélagið að taka þátt í nýju áætlunarflugi til og frá landinu en félagið er með 23 flug- vélar í rekstri víða um heim. For- stjóri félagsins telur ekki grund- völl fyrir slíku áætlunarflugi allt árið, helst vegna þess að vélar fé- lagsins eru of stórar. Nýir aðilar hafa fundið lausnarorðið í Boeing 737. Forstjóri Atlanta hefur lýst áhuga aðila í ferðaskrifstofugeir- anum á áætlunarflugi til og frá landinu. Koma þar einnig til tíðar og miklar uppsagnir flugmanna hjá Flugleiðum sem leita að nýj- um verkefnum og sjá möguleika í nýrri samkeppni í áætlunarflugi við Flugleiðir.  BOEING 737 Vopnið í nýrri samkeppni við Flugleiðir. GIGT Í tilefni af alþjóðlegum gigtar- degi hefur Gigtarfélag Íslands skipulagt dagskrá laugardaginn 12. október í húsakynnum sínum að Ármúla 5, í Reykjavík. Markmið samtakanna Arthritis and Rheumatism International, sem eru alþjóðleg samtök gigtarfélaga í heiminum, er að vekja athygli á málefnum gigtsjúkra og þeim vanda sem fylgir gigtarsjúkdóm- um á þessum degi. Að sögn Stefáns Más Gunn- laugssonar forsvarsmanns ungra giktarsjúklina gleymist gjarnan að gigt er ekki aðeins öldrunarsjúk- dómur. „Einn af hverjum fimm Ís- lendingum er með gigt. Ríflega fjórðungur heimsókna á heilsu- gæslustöðvar er vegna gigtar og stoðkerfisvanda og 21% öryrkja í landinu hafa gigtarsjúkdóm sem fyrstu sjúkdómsgreiningu,“ segir Stefán. Hann bendir á að áætla megi að kostnaður samfélagsins á ári nemi 14 til 20 milljörðum króna. „Það er mjög mikilvægt fyrir gigtarsjúk- linga að hittast og tala saman því sjúkdómurinn er ólæknandi og fylgir sjúklingnum í gegnum lífið. Ekki síst fyrir þær sakir að verkir eru sárir og þeir hafa mikil áhrif á sálartetrið,“ segir Stefán Már.  JÓN KRISTJÁNSSON „Framsóknarflokkurinn er ekki að einangrast í skoðunum sínum á heilbrigðismálum.“ GIGT ER EKKI BARA ÖLDRUNARJÚKDÓMUR Ungt fólk fær líka gigt sem veldur sárum vekjum í liðum og stoðkerfi. Alþjóðlegur gigtardagur: Ungt fólk fær líka gigt Þróun milli mánaða: Verðlag hækkaði VERÐÞRÓUN Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,54% frá því í byrj- un september þar til í byrjun október. Sé húsnæði undanskilið hækkaði vísitalan hins vegar um 0,59%. Hagstofan nefnir í skýringum með nýju vísitölunni að sumarút- sölum sé lokið. Verð á fötum og skóm hafi hækkað um 4,9%. Áhrif þess á neysluverðsvísitöluna séu 0,27%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,5% sem jafngildir 2% verðbólgu á ári.  UMGANGSPEST Bráðsmitandi um- gangspest hefur stungið sér niður á Hrafnistu í Hafnarfirði og í Reykjavík og þeir sem hafa sýkst eru einangraðir frá öðrum heimil- ismönnum að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hjá Landlæknis- embættinu. Har- aldur segir sýking- arinnar fyrst hafa verið vart í síðustu viku og náði hún töluverðri út- breiðslu næstu daga á eftir. Hann segir ekki með fullu vitað hvort sýkingin hafi náð hámarki en grunur leikur á að um 50 til 60 manns, bæði heimilisfólk og starfsmenn, hafi veikst af völdum veirunnar. „ Sýk- ingin er af völdum veiru sem nefn- ist NLV og algengustu einkenni eru uppköst eða niðurgangur sem fylgt geta bæði kviðverkir og beinverkir en stundum vægur hiti. Sjúkdóm- urinn gengur í langflestum tilfell- um yfir á 1-3 sólarhringum án nokkurrar meðferðar. Aðeins í ein- staka tilfellum leiðir sýkingin til innlagnar á sjúkrahús og vökva- gjafar í æð.“ Haraldur segir að staðfesting á því hvaða veira væri að verki hefði legið fyrir í fyrradag og hefði þá þegar verið hafist handa við að stemma stigu við útbreiðslu veik- innar. „Svona fjöldasýking getur valdið miklum usla á sjúkrahúsum og fjölmennum stofnunum og smit berst auðveldlega manna á milli því er mikilvægt að loka á smitleið- ir. Aldraðir hafa ekki eins mikla mótstöðu og þeir sem yngri eru og geta verið lengur að jafna sig,“ segir Haraldur Ragnheiður Stephensen hjúkr- unarforstjóri á Hrafnistu sagði í gær að heimilisfólk væri við þokkalega heilsu. Hún vildi ekki gera mikið úr veikindum og taldi sýkinguna ekki verri en aðrar um- gangspestir. „Svo virðist sem pest- ir gangi í bænum allt árið og ég sé ekki að þessi hagi sér öðruvísi. Mér finnst þetta vera hálfgerður storm- ur í vatnsglasi en vissulega er gam- alt fólk lengur að ná sér.“ Hún sagði engan hafa orðið alvarlega veikan og þurft sérstakrar með- ferðar við. bergljot@frettabladid.is Smitandi veira á Hrafnistu Haraldur Briem smitsjúkdómalæknir segir mikilvægt að loka á smit- leiðir og því hafa sýktir verið einangraðir frá öðrum heimilismönnum. HRAFNISTA Enginn hefur orðið alvarlega veikur og þarfnast sérstakrar meðferðar við. Sýkingin er af völdum veiru sem nefnist NLV og al- gengustu ein- kenni eru uppköst eða niðurgangur sem fylgt geta bæði kvið- verkir og bein- verkir en stundum væg- ur hiti.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.