Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.10.2002, Blaðsíða 8
STJÓRNMÁL Þorlákur Björnsson, for- maður kjördæmissambands Fram- sóknarflokksins í norðurkjördæmi Reykjavíkur, segir ekki rétt að lýsa skoðun á því hvern- ig velja eigi á fram- boðslista flokksins fyrir alþingiskosn- ingarnar í vor. A ð a l f u n d i r framsóknarfélag- anna í Reykjavík eru á sunnudag. Þar verða valdir fulltrúar í kjör- dæmissamböndin tvö í borginni. Þing þeirra 26. október ákveða hvernig valinu verður háttað. „Það væri fullkomlega óábyrgt af mér að gefa eitthvað í skyn um mína afstöðu. Það er ekki mitt að reyna að stýra fólki. Það er kjör- dæmisfundarins að ákveða. Vilji félagsmanna kemur í ljós á lýð- ræðislegan hátt,“ segir Þorlákur. Þorlákur segir ekkert nýtt að ekki sé sátt innan flokksins um hvort valin sé leið prófkjörs eða uppstillingar. „Það var ekki sátt fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor eða 1998 eða fyrir alþingis- kosningar 1995. Sjálfstæðismenn hafa þegar kosið uppstillingar- nefnd í tveimur kjördæmum.“ Hópur flokksmanna reynir að fá sem flesta flokksmenn á aðalfund- ina á sunnudagskvöld. Óskar Bergsson, fyrrum varaborgarfull- trúi, hefur sagt að markmiðið sé að tryggja prófkjörsleiðina. „Ef Óskar smalar vel trúi ég að það verði góð mæting. Það er hið besta mál. En ef hann er að smala til að hafa áhrif á hvaða aðferð við veljum til framboðsmála er hann auðvitað að smala vitlausum hóp því aðalfundirnir taka ekki þessa ákvörðun. Ég held að hann sé ein- faldlega að vekja athygli á sjálfum sér,“ segir Þorlákur. Eins og kunnugt er hyggst for- maður Framsóknarflokksins, Hall- dór Ásgrímsson, bjóða sig fram í norðurkjördæminu í alþingiskosn- ingunum. Fréttablaðið hefur ekki náð tali af Halldóri undanfarna daga. gar@frettabladid.is 8 11. október 2002 FÖSTUDAGUR Smáralind - Glæsibæ Simi 545 1550 og 545 1500 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 1 90 45 10 /2 00 2 Opi›: Smáralind mán. - föst. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18 Glæsibæ mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16 25%afsláttur Gildir í bá›um verslunum frá fimmtudegi til sunnudags. af öllum NIKE vörum í tilefni ársafmælis Smáralindar Allt n‡jar vörur Skór, buxur, peysur, bolir, gallar, toppar og margt fleira. Miki› úrval af barnavörum. Formaður segir Óskar smala vitlausum hópi Formaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í norðurkjördæmi Reykjavíkur segir flokksmanninn Óskar Bergsson vera að smala röng- um hópi vilji hann hafa áhrif á val á framboðsleiðum. Þingmenn á alþjóða geðheilbrigðisdeginum: Samstaða um eflingu geðheilbrigðisþjónustu HEILBRIGÐISMÁL Þörf er á stórauk- inni geðheilbrigðis- og sálfræði- þjónustu við börn og gera þarf átak í geðheilbrigðismálum al- mennt sagði Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir, Samfylkingu, í um- ræðu um geðheilbrigðismál við upphaf þingfundar á alþjóða geð- heilbrigðisdeginum. Hún sagði stöðuna slæma. Löng bið væri eftir meðferð og endurhæfingu, nokkurra mánuða bið eftir tíma hjá geðlæknum og heimilislausa alvarlega geðveika einstaklinga vantaði tilfinnanlega þjónustu. „Það bíða milli 60 og 70 börn eft- ir þjónustu á Barna- og unglinga- geðdeildinni,“ sagði Ásta. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- ráðherra, sagði nokkurn árangur hafa náðst í að bæta geðheilbrigð- isþjónustuna. Fleiri fengju þjón- ustu en áður. „Þessi árangur hef- ur náðst með endurskipulagningu starfseminnar.“ Hann sagði að þó væri enn næg verkefni til að takast á við. Að þeim væri unnið í ráðuneytinu. Efla þyrfti barna- og unglingageðdeildina. Einnig auka þjónustu í fangelsum. Endurskipulagning hjá Land- spítalanum hefur leitt til betri að- stöðu fyrir fatlaða sagði Ásta Möller, Sjálfstæðisflokki. Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingu, minnti þingmenn á að fjórði hver einstaklingur ætti einhvern tíma við geðræn vandamál að stríða. Samkvæmt því gætu 15 þing- menn lent í sömu sporum.  Stjórnarráð Íslands: Bandaríski fáninn við hún LÖGREGLUMÁL Bandaríski fáninn var dreginn að húni við íslenska stjórnarráðið í fyrrinótt. Lög- reglan þurfti aðstoð Slökkviliðs- ins á höfuðborgarsvæðinu til að ná fánanum niður. Engin vit- neskja er um hver var að verki né um tilganginn. Til að koma fánanum á stöngina hefur þurft að klifra upp á þak stjórnarhúss- ins. Svo virðist sem það hafi tek- ist án nokkurrar vitundar. Neðan við fánann hékk borði með áletruninni „Pereat“, sam- kvæmt útvarpsfréttum RÚV. Orðið sé latnesk formæling og þýði „niður með hann“. Þá hafi einnig fundist teikning sem tákna átti íslenska skjaldar- merkið.  Þorlákur segir ekkert nýtt að ekki sé sátt innan flokks- ins um eina aðferð um- fram aðra; hvort menn séu hlynntir prófkjöri eða uppstillingu. ÞORLÁKUR BJÖRNSSON „ Mér finnst því að hann (Óskar) sé að gera þetta einfaldlega til að vekja athygli á sjálfum sér,“ segir Þorlákur. ÁSTA R. JÓHANNESDÓTTIR Spurði eftir efndum á loforði forsætisráð- herra um stórátak í geðheilbrigðismálum. Þótti ekki við það staðið. Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sala ríkisins á hlut þess í við-skiptabönkunum er eitt það já- kvæðasta sem hent getur íslenskt samfélag. Það er því sorglegt að ríkisstjórnin virðist ekki geta af- greitt þetta mál í þolanlegri sátt og án þess að vekja upp efasemdir um framkvæmd söl- unnar. Ríkisstjórn- inni virðist vera að takast að gera gott mál að illu. Svo framarlega sem heiðarlega er haldið á spöðunum skiptir í raun minnstu máli hversu hátt verð ríkið fær fyrir hlut sinn í bönkun- um. Helsti ávinningurinn af söl- unni er að koma bönkunum úr eigu ríkisins, frá pólitískri stjórn, og losa þá úr hagsmunaflækju valdablokka. Sá skaði, sem það hefur valdið íslensku samfélagi, að viðskipta- bankar voru lengst af reknir eftir pólitískum en ekki peningalegum hagsmunum, er gríðarlegur. Bankarnir beindu fjármagni til þeirra sem voru verðugir að mati valdamanna en héldu þeim frá öðrum. Þetta gerði fyrirtæki vel- viljuð valdinu feit, löt og væru- kær en hélt niðri eðlilegri athaf- nagleði þeirra sem stóðu utan valdablokka – samanlögð áhrif þessa var að íslenskt viðskiptalíf varð ekki eins kröftugt og það annars hefði orðið. Afleiðingar ríkisbankakerfis- ins voru alvarlegastar þegar skortur var á fjármagni; þá gat það skipt sköpum fyrir fyrirtæki að vera réttu megin markalínunn- ar. Síðasta áratug síðustu aldar var ekki skortur á fjármagni á Ís- landi. Þá gætti síður þessarar skekkju í bankakerfinu. Þegar hagkerfið dróst saman fyrir tveimur árum gusu hins vegar upp vankantar þessa kerfis. Ríkis- bankarnir fóru að leika aðalhlut- verk í viðskiptalífinu; höfðu vald- ið yfir hverjir héldu fyrirtækjum sínum, hverjir misstu þau og hverjir hrepptu. Þá kom í ljós að kerfið hafði ekki skipt um eðli. Góðæri hafði aðeins haldið niðri sjúkdómseinkennunum. Það er því mjög áríðandi fyrir íslenskt samfélag að Samson, fé- lag þeirra Björgólfsfeðga, kaupi ráðandi hlut í Landsbankanum og að mennirnir að baki Gildingu fái að ljúka kaupum á ráðandi hlut í Búnaðarbankanum. Báðum hóp- um er treystandi til að láta við- skiptaleg sjónarmið stjórna bönk- unum; taka rækilega til í rekstri þeirra og skuldasafni. Þótt þessi eigendaskipti hefðu ekki umtals- verð áhrif strax yrði áhrif þeirra á íslenskt samfélag langvarandi og góð.  „Þetta gerði fyrirtæki velvilj- uð valdinu feit, löt og værukær en hélt niðri eðlilegri athaf- nagleði þeirra sem stóðu utan valda- blokka.“ Aðalatriðið er að koma bönkunum úr eign ríkisins skrifar um hvernig ríkisstjórninni er að takast að gera sölu ríkisbankanna að slæmu máli. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON BRÉF TIL BLAÐSINS Misheppnaðir foreldrar Garðar skrifar: Ég velti því stundum fyrir mérhvað sé að foreldrum barna í Vesturbænum, já ekki börnunum sjálfum heldur foreldrunum sem ólu þau upp eða þóttust gera, rétt- ara sagt. Ég bý í Vesturbænum, geng gjarnan um hverfið mitt og alls staðar má sjá vitnisburð um mistök foreldranna. Það er hend- ing ef hvítmálaður veggur fær að vera í friði fyrir krotinu og leik- vellirnir í Vesturbænum eru sér kapítuli. Þar er engu líkara en fram fari svaðalegar svallveislur um helgar. Glerbrot, öldósir, sí- garettustubbar og þaðan af geðs- legri hluti má finna á leikvöllum litlu barnanna. Hvað gengur þeim til sem gera slíkt? Og hvað er að heima hjá börnum sem slíkt gera? Svari hver fyrir sig. 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.