Fréttablaðið - 11.10.2002, Side 10

Fréttablaðið - 11.10.2002, Side 10
10 11. október 2002 FÖSTUDAGURFÓTBOLTI BECKHAM David Beckham, leikmaður Manchester United og fyrirliði enska landsliðsins, tók þátt í æfingu landsliðsins í gær eftir að hafa misst af æfingu á miðvikudag vegna kálfameiðsla. Á laugardag leikur enska landsliðið við Slóvakíu í undankeppni EM. Uppselt er á viðureign Íslandsog Skotlands í undankeppni EM, sem fram fer á Laugardals- vellinum á morgun. Gífurleg eftir- spurn hefur verið eftir miðum í forsölu og kláruðust miðarnir í gær. Íslandsmeistarinn í borðtennis,Guðmundur E. Stephensen lék nýverið sinn fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni í borðtennis með liði sínu B-72 frá Osló. B- 72 sigr- aði þá glæsilega lið Modum 9 -1. Guðmundur lék til sigurs í tveimur einliðaleikjum. Hann vann einnig tvíliðaleik, 3-0. MOLAR ÍÞRÓTTIR Í DAG 15.30 Kaplakrikavöllur - Fótbolti Undankeppni EM 21.árs og yngri (Ís- land-Skotland) 18.30 Sýn Íþróttir um allan heim 19.15 Hveragerði - Körfubolti Intersportdeildin (Hamar - KR) 19.15 Njarðvík - Körfubolti Intersportdeildin (UMFN - Keflavík) 19.15 Seljaskóli - Körfubolti Intersportdeildin (ÍR - Skallagrímur) 19.30 Sýn Gillette-sportpakkinn 20.00 Valsheimili - Handbolti Essó-deild karla (Valur-Víkingur) 20.00 Selfoss - Handbolti Essó-deild karla (Selfoss-Fram) 20.00 Austurberg - Handbolti Essó-deild karla (ÍR-Þór Akureyri) 20.00 Vestmannaeyjar - Handbolti Essó-deild karla (ÍBV-HK) FORMÚLA Max Mosley, yfirmaður hjá Formúlu 1 sambandinu, segir að rætt hafi verið um að ökumenn verði látnir skipta um lið á miðju Formúlu 1 tímabilinu. Þannig vilja menn koma í veg fyrir að eitthvert eitt lið geti skarað langt fram úr hinum eins og gerðist með Ferrari-liðið á þessu ári. Þá vann Michael Schumacher hjá Ferrari fimmta heimsmeistaratit- il sinn þegar sex umferðir voru eftir í keppninni. Rubens Barrichello, liðsfélagi hans, hefur þegar tryggt sér annað sætið þeg- ar eitt mót er eftir.  SALO OG BARRICHELLO Finninn Mika Salo (til vinstri) ræðir við Rubens Barichello úr Ferrari-liðinu, á blaðamanna- fundi sem haldin var í Japan í tilefni af síðasta mótinu í Formúlu 1 sem haldið verður í landinu á sunnudaginn. Max Mosley, yfirmaður hjá Formúlu 1: Ökumenn skipti um lið á miðju tímabili RÓBERT GUNNARSSON Róbert er að gera það gott í Danmörku. Róbert Gunnarsson: Þriðji marka- hæstur í Danmörku HANDBOLTI Róbert Gunnarsson, leikmaður danska liðsins Århus GF og fyrrverandi leikmaður Fram, er þriðji markahæsti leik- maður dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með 36 mörk eftir sex leiki. Róbert skoraði 10 mörk í sigri liðsins á Otterup, 31-28 í dönsku deildinni í fyrrakvöld. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hinn Íslendingurinn í liði Århus , skor- aði 2 mörk. Århus GF hefur nú unnið þrjá leiki í röð og á sunnu- dag mæta þeir meisturunum frá Kolding sem eru í öðru sæti deild- arinnar á eftir GOG.  AP /M YN D AP /M YN D Howard Wilkinson nýr knattspyrnustjóri hjá Sunderland: Cotterill verður aðstoðarmaður FÓTBOLTI Howard Wilkinson, fyrr- verandi knattspyrnustjóri Leeds og Sheffield Wednesday, hefur tekið við knattspyrnustjórastarf- inu hjá Sunderland, sem losnaði eftir að Peter Reid var rekinn frá félaginu. Wilkinson hefur undan- farið starfað sem tæknilegur ráð- gjafi hjá enska landsliðinu. Hann varð Englandsmeistari með Leeds árið 1992. Steve Cotterill, sem verið hefur stjóri hjá Íslend- ingaliðinu Stoke, er hættur hjá félaginu og verður í staðinn að- stoðarþjálfari hjá Sunderland. „Ég tekst glaður á við þá áskorun sem framundan er hér hjá Sunderland. Með minni reynslu og hæfni Steve sé ég bjarta og spennandi tíma framundan hjá Sunderland og stuðningsmönnum þess,“ sagði Wilkinson í gær. Uppsögn Cotterill hjá Stoke kom forráðamönnum félagsins í opna skjöldu. „Leitin að eftir- manni hans hefst undir eins,“ sagði í yfirlýsingu frá félaginu. Cotterill skrifaði undir þriggja ára samning við Stoke í maí á þessu ári og tók þar við af Guð- jóni Þórðarsyni sem knatt- spyrnustjóri félagsins. Stoke er sem stendur í 15. sæti ensku 1. deildarinnar með 14 stig eftir 12 umferðir. Sunderland er í fjórða neðsta sæti ensku úrvals- deildarinnar með átta stig eftir níu umferðir.  WILKINSON OG COTTERILL Howard Wilkinson, til vinstri, og Steve Cotterill halda á trefli merkt- um Sunderland eftir að tilkynnt var að þeir yrðu við stjórnvölinn hjá liðinu. Ljósaleikvangurinn í Sunder- land er í baksýn. Ætlum okkur að vinna leikinn Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Stoke og íslenska landsliðsins, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Skotum á morgun. Segir mjög slæmt fyrir Stoke að hafa misst Steve Cotterill, knattspyrnustjóra, til Sunderland. FÓTBOLTI „Mér líst vel á leikinn. Við erum að reyna að undirbúa okkur sem best og við ætlum okkur að vinna leikinn,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Stoke og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er Fréttablaðið spurði hann út í leikinn við Skota á morgun. „Þó að Skotarnir hafa ekki verið upp á sitt besta upp á síðkastið þá eru þeir með leikmenn í sínu liði sem geta verið hættulegir. Þeir eru að spila í áþekkum liðum og við í íslenska landsliðinu, fyrir utan kannski Eið. Þetta verður hörkuleikur og ekkert gefið.“ Brynjar segir að stjóraskiptin hjá Stoke í gær hafi komið honum mjög á óvart, eins og öllum öðrum. „Það bjóst enginn við því þegar Peter Reid var rekinn á sunnudaginn að Cott- erill yrði boðið starfið hjá Sunder- land sem aðstoðarknattspyrnu- stjóri. Skiljanlega stekkur hann á það, enda er þetta mikið tækifæri fyrir hann. Hann var að koma upp úr 3. deildinni fyrir ári og maður skilur ákvörðunina. Þetta er hins vegar mjög slæmt fyrir okkur. Við vorum að komast sæmilega í gang og vorum búnir að fá ágætis stöðugleika í liðið,“ sagði Brynjar. „Maður sá fram á betri tíma og betri leik hjá okkur, enda hefur verið stígandi í liðinu.“ Hvernig stjóri var Cotterill? „Hann var nokkuð seigur. Hann náði vel til leikmanna og yfir höf- uð voru leikmenn mjög ánægðir með hann. Það verður erfitt að finna góðan þjálfara sem getur dottið inn í þetta núna á miðju tímabili og haldið áfram því starfi sem Cotteril var búinn að byggja upp.“ Aðspurður um tímabilið sem nú stendur yfir á Englandi sagði Brynjar að Stoke-liðið væri með nokkuð sterkan hóp.“Þau lið sem komu upp, þá sérstaklega við og Reading, ættum að geta staðið okkur ágætlega. Við ætlum að reyna að skríða aðeins hærra upp töfluna og vonandi gerum við það. Það myndi teljast nokkuð ásætt- anlegt ef við myndum enda um miðja deild.“ Samningur Brynjars við Stoke rennur út eftir þetta tímabil. Hann segist ekkert vera farinn að hugsa sér til hreyfings. „Ég ætla að tala við Stoke og sjá hvað þeir hafa í huga. Það væri fínt að vera áfram hjá þeim svo lengi sem gengið er ásættanlegt. Okkur lík- ar mjög vel þarna og það er engin ástæða til að fara að hreyfa sig mikið.“ freyr@frettabladid.is BRYNJAR BJÖRN Brynjar á æfingu með landsliðinu. Helgi Sigurðsson, félagi hans í liðinu, fylgist með í bak- grunni. Brynjar segir að andinn í íslenska hópnum sé fínn en að veðrið hefði hins vegar getað verið betra. Landsliðið æfði í Smárahöllinni í Kópavogi í gær vegna slæms veðurs. „Það verður erfitt að finna góðan þjálfara sem getur dottið inn í þetta núna á miðju tímabili og haldið áfram því starfi sem Cotteril var búinn að byggja upp“. AP /M YN D FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.