Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.10.2002, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.10.2002, Qupperneq 24
Sú snilldarlega ráðstöfun dóms-málaráðherra að skera niður framlög til löggæslu í Reykjavík eykur til muna frelsi og svigrúm of- beldis- og afbrotamanna til að at- hafna sig óáreittir í höfuðborginni. Þessi niðurskurður leiðir einnig til mikilvægs sparnaðar á öðrum svið- um svo sem hjá dómstólum og fang- elsum. EF DÓMSMÁLARÁÐHERRA tekst að fækka lögreglumönnum í Reykjavík verulega mun að sjálf- sögðu vinnuálag og kostnaður minn- ka hjá dómsstólum þar sem mun færri glæpamenn verða handteknir og leiddir fyrir rétt. Biðlistar munu hverfa og fyrr en varir munu menn geta fengið á sig dóm í undirrétti fyrir hádegi og hæstaréttarúrskurð fyrir kvöldmat og farið svo út að skemmta sér á eftir. EINNIG mun þetta minnka eftir- spurn eftir fangelsisrými og hægt verður að breyta Litla-Hrauni í notalegt Edduhótel yfir sumartím- ann en brúka það á vetrin sem að- stöðu handa fáeinum útvöldum sí- brotamönnum til að framleiða núm- eraplötur á bíla efnafólks. Það er einnig ákaflega mannúðlegt að draga með þessum hætti úr ofsókn- um lögreglunnar á hendur þeim sem gera eitthvað af sér, því að á vissan hátt má segja að lögreglan sé sek um að hafa lagt ákveðinn minni- hlutahóp í þjóðfélaginu í einelti. Einnig þarf að draga úr þeirri órétt- látu mismunun sem nú viðgengst og felst í því að afbrotamenn þurfa helst að vera hættulega geðveikir til að fá að ganga lausir. ÞETTA mun hleypa ennþá meira fjöri í næturlíf höfuðborgarinnar og hafa hvetjandi áhrif á sjálfstæðan atvinnurekstur svo sem fylgdar- þjónustu frá fyrirtækjum sem sér- hæfa sig í að fylgja borgurum milli húsa eftir að skyggja tekur. Einnig væri ráðlegt að heimila almennan vopnaburð, en með því móti mætti kveða niður þær óánægjuraddir sem heyrast frá skotveiðimönnum yfir því að í ráði er að stytta rjúpna- veiðitímann. Ef grannt er skoðað kemur í ljós að lögreglan hefur fyrst og fremst atvinnu af því að hefta og skerða frelsi manna til að gera það sem þeim sýnist og því er löngu tímabært að taka lögreglu- málin í Reykjavík föstum tökum. Húrra fyrir dómsmálaráðherra!  G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • w w w . g l i t n i r . i s • S í m i 4 4 0 4 4 0 0 SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Húrra fyrir Sólveigu! Bakþankar Þráins Bertelssonar

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.