Fréttablaðið - 16.10.2002, Qupperneq 4
4 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNVÖLD
HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðis - og
trygginganefnd Alþingis hefur
rætt þann möguleika og þrýst á
um að Tryggingastofnun ríkisins
semji við sálfræðinga líkt og við
geðlækna. Er það ein af fjölmög-
um hugmyndum sem fram hafa
komið í nefndinni til að sporna við
auknum lyfjakostnaði heilbrigðis-
kerfisins sem er kominn úr bönd-
um. Eins og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær þá mun öll
landsframleiðslan, hver einasta
króna, fara í lyf árið 2041 að því
gefnu að landsframleiðslan aukist
um þrjú prósent á ári og lyfja-
notkunin um 14 prósent eins og
verið hefur.
Samninganefnd Trygginga-
stofnunarinnar hefur ekki talið
sig hafa heimild í lögum til að
semja við sálfræðingana en for-
maður Heilbrigðis - og trygginga-
nefndar er á öðru máli og vísar til
lagabreyting sem gerðar voru
gagngert í þessum tilgangi. Að
auki eru uppi hugmyndir í nefnd-
inni um að ráða sálfræðinga á
heilsugæslustöðvar þar sem þeir
kæmu til liðs við lækna sem
stundum eiga ekki önnur ráð en að
gefa lyf. Er það mat nefndar-
manna í Heilbrigðis - og trygg-
inganefnd að oft mætti mæta van-
líðan sjúklinga með sálfræðivið-
tali frekar en lyfjum.
Heilbrigðis - og trygginganefnd Alþingis:
Sálfræðingar
í stað lyfja
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Þrýst á um að gerðir séu samningar við sálfræðinga eins og geðlækna til lækka lyfjakostnað.
ERNA HAUKSDÓTTIR
Óttast áhrif fyrirhugaðra hvalveiða Íslend-
inga á ferðaþjónustu og hvetur menn til
þess að fórna ekki ferðaþjónustunni fyrir
smáútgerð
Erna Hauksdóttir:
Höfum ekki
efni á þjóð-
rembu
HVALVEIÐAR Aðild Íslands að Al-
þjóðahvalveiðiráðinu er fagnað í
ályktun Samtaka ferðaþjónust-
unnar. Samtökin beina því jafn-
framt til stjórnvalda að hvalveið-
ar verði ekki hafnar, hvorki í at-
vinnu- eða svokölluðu vísinda-
skyni, án samráðs við hagsmuna-
aðila þar með talið ferðaþjónust-
una.
„Þetta mun hafa umtalsverð
áhrif og við getum ekki leyft okk-
ur neina þjóðrembu í þessum efn-
um. Þetta snýst ekki eingöngu um
að við megum gera það sem okkur
sýnist heldur að við að við séum
ekki að fórna meiri hagsmunum
fyrir minni. Verði hvalveiðarnar
ekki í þolanlegri sátt við alþjóð-
legt umhverfi þá höfum við varað
við því að fólk kunni að sniðganga
Ísland og íslenskra vörur,“ segir
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtakanna. Hún leggur
áherslu á að málið verði skoðað í
heild.
„Við höfum ítrekað sagt að
markaðir fyrir hvali hafi ekki ver-
ið til staðar og það verður auðvit-
að að vera morgunljóst að við
séum ekki að skaða markaði okk-
ar fyrir ferðaþjónustu eða ís-
lenskan fisk með einhverri smáút-
gerð. Reynslan frá Noregi sýnir
okkur að það er ekki hægt að sýna
hval og skjóta hann á sömu slóð.
Það er nú sjálfgefið, þeir fara ekki
að sýna sig á miðjum orrustu-
velli,“ segir Erna.
Þingvallanefnd:
Göngubrú
rifin
ÞINGVELLIR Útgerðarmaður af Suð-
urnesjum sem reisti sumarhús í
þjóðgarðinum á Þingvöllum í sum-
ar hefur nú látið fjarlægja mikla
göngubrú sem hann byggði í óleyfi.
Göngubrúin var á milli hússins og
bílastæðisins þar sem húsið stend-
ur við vatnið inn af Hótel Valhöll.
„Við kröfðumst þess að hún yrði
fjarlægð enda var hún ekki á sam-
þykktum teikningum,“ segir Sig-
urður Oddsson, framkvæmdastjóri
Þingvallanefndar.
Að sögn Sigurðar á Þingvalla-
nefndin eftir að taka afstöðu til
beiðni eiganda hússins um að fá
reisa girðingu sem hann hefur
reyndar þegar gert undirstöður
fyrir.
DÓMSMÁL Fyrrverandi
lögreglumaður á Akureyri
hefur verið dæmdur í
Hæstarétti fyrir lífláts-
hótanir gegn fyrrum sam-
býliskonu sinni. Hann var
hins vegar sýknaður af
ákæru um nauðgunartil-
raun og líkamsárás.
Hæstiréttur lækkaði
refsingu mannsins úr tólf
mánaða fangelsi í fjögurra
mánaða fangelsi. Þrír
mánuðir af fangelsisvist-
inni falla niður brjóti mað-
urinn ekki af sér á næstu þremur
árum. Tveir dómarar Hæstarétt-
ar skiluðu sératkvæði. Þeir töldu
að staðfesta bæri dóm Héraðs-
dóms Norðurlands-
Eystra um tólf mánaða
fangelsisvist fyrir mann-
inum. Þar af áttu níu að
vera skilorðsbundnir til
þriggja ára.
Fólkið sem um ræðir
hóf sambúð 1991 og á
saman dreng sem fædd-
ur er 1994. Sambúð þeir-
ra var afar stormasöm
og var henni oft slitið.
Maðurinn hótaði konunni
ítrekað lífláti með gróf-
yrtum sms-skilaboðum í
farsíma. Í skilaboðunum sagði
hann allt mundu falla í ljúfa löð
léti hún að vilja hans og sýndi
honum „ástúð“.
Hæstiréttur mildar refsingu ofstopamanns á Akureyri:
Refsilækkun lögreglumanns
TÓKÍÓ, AP Sumarið 1978 var ung
japönsk kona, Hitomi Soga að
nafni, úti að versla ásamt móður
sinni þegar útsendarar frá Norð-
ur-Kóreu réðust að þeim, settu í
poka og fluttu úr
landi. Norður-
Kóreumenn notuðu
þær síðan til þess
að fræða njósnara
sína um japanska
tungu og menn-
ingu.
T i l f i n n i n g a -
þrungnir fagnaðar-
fundir urðu í Japan í gær þegar
Soga og fjórir aðrir Japanar, sem
einnig var rænt fyrir aldarfjórð-
ungi í sama tilgangi, komu loks
aftur heim til sín og hittu þar ætt-
ingja og gamla vini. Sýnt var frá
heimkomu þeirra í beinni útsend-
ingu í Japan í gær.
Auk Soga komu til Japans þau
Fukie Hamamoto og Yasushi Chi-
mura, sem voru ástfangið par
þegar þeim var rænt árið 1978.
Þau gengu síðar í hjónaband í út-
legðinni og eiga nú þrjú börn.
Loks komu í gær þau Kaoru
Hasuike og Yukiko Okudo, sem
einnig gengu í hjónaband í Norð-
ur-Kóreu. Þau eiga einn son.
Hitomi Soga giftist hins vegar í
Norður-Kóreu Bandaríkjamanni,
Charles Robert Jenkins, og á með
honum tvær dætur. Jenkins er
einn fjögurra Bandaríkjamanna
sem flúðu til Norður-Kóreu á sjö-
unda áratug síðustu aldar. Þeir
voru þá með bandaríska herliðinu
í Suður-Kóreu. Það var ekki fyrr
en 1996 sem bandarísk stjórnvöld
viðurkenndu að liðhlauparnir
fjórir væru enn á lífi í Norður-
Kóreu.
Jenkins segist ekki hafa neinn
áhuga á að fara frá Norður-Kóreu.
Það sé ekki auðvelt fyrir hann
„eins og á stendur“.
Einungis fáeinar vikur eru frá
því Kim Jong Il, leiðtogi Norður-
Kóreu, viðurkenndi að þrettán
Japönum hefði verið rænt á svip-
uðum tíma. Einungis fimm þeirra
væru enn á lífi. Ekkert er vitað
um örlög hinna átta, þar á meðal
móður Soga.
Kim Jong Il sagði að „öfl innan
hersins“ hefðu rænt fólkinu.
Hann tók jafnframt fram að þetta
myndi aldrei gerast aftur. Tveim-
ur yfirmönnum í hernum hafi
þegar verið „harðlega refsað“ fyr-
ir athæfið.
Þótt Japönunum hafi núna ver-
ið leyft að ferðast til Japans fengu
börn þeirra ekki að koma með.
Auk þess ber þeim að snúa aftur
til Norður-Kóreu eftir eina eða
tvær vikur.
Junichiro Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans, segist þó stað-
ráðinn í að fá því framgengt að
Japanirnir fimm fái síðar meir að
koma aftur til Japans ásamt börn-
um sínum, og þá til frambúðar.
Tilfinningaþrungn-
ir endurfundir
Fimm Japanar komu aftur heim í gær eftir aldarfjórðungsdvöl í Norð-
ur-Kóreu. Þeim var rænt á sínum tíma og notaðir til að fræða njósnara í
Norður-Kóreu um japanska tungu og menningu. Börn þeirra fengu þó
ekki að koma með í þetta skiptið.
KOMIN AFTUR HEIM
Fukie Hamamoto, fyrir miðju, og Yashushi Chimura, eiginmaður hennar til hægri, koma
aftur til Japans eftir aldarfjórðungs fjarveru. Með þeim á myndinni er fulltrúi japönsku
stjórnarinnar sem var þeim samferða á leiðinni.
Tveimur yfir-
mönnum í
hernum hafi
þegar verið
„harðlega refs-
að“ fyrir at-
hæfið.
AP
/K
O
JI
S
AS
AH
AR
A
HÉRAÐSDÓMUR
NORÐURLANDS-EYSTRA
Hæstiréttur hefur verulega lækkað refsingu
sem héraðsdómur ákvað lögreglumanni
sem hótaði fyrrum sambýliskonu lífláti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
AN
U
S
ÁHYGGJUR AF BÖRNUM Í
PALESTÍNU Þorsteinn Ingólfsson,
fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóð-
unum, lýsti áhyggjum íslenskra
stjórnvalda af aðstæðum barna á
herteknu svæðunum í Palestínu.
Verið var að ræða félags- og
mannréttindamál í nefnd á veg-
um Sameinuðu þjóðanna.
GÆÐAVEFUR HEILBRIGÐISRÁÐU-
NEYTIS Jón Kristjánsson, heil-
brigðisráðherra, hefur opnað
gæðavef heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytisins. Þar er að
finna upplýsingar um gæðastarf,
umbótaverkefni og leiðbeiningar
auk fleira efnis.
NÝTT VERKEFNI
Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri
New York, ætlar að uppræta glæpastarf-
semi í Mexíkóborg.
Fær 370 milljónir fyrir að
lækka glæpatíðni:
Giuliani ráð-
inn til Mexík-
óborgar
MEXÍKÓBORG, AP Borgaryfirvöld í
Mexíkóborg hafa ráðið Rudolph
Giuliani, fyrrverandi borgar-
stjóra New York, til starfa sem
sérstakan ráðgjafa. Giuliani,
sem er hvað frægastur fyrir að
hafa lækkað glæpatíðni New
York borgar um 65% á valda-
tíma sínum, á að reyna að gera
slíkt hið sama í Mexíkóborg.
Hann hefur verið ráðinn í eitt ár
og fær um 370 milljónir króna í
laun á þeim tíma.
Þrátt fyrir góðan árangur
Giuliani í New York eru margir
Mexíkóar sem efast um að hann
ráði við þetta verkefni. Um 18
milljónir manna búa í Mexíkó-
borg, sem er talin ein hættuleg-
asta borg í heimi. Leigubílstjór-
ar hafa m.a. stundað það að ræna
farþegum sínum, aka þeim að
peningasjálfsölum og neyða þá
til að tæma reikninga sína.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
8,1%
Hefjum við hvalveiðar í
vísindaskyni á næsta ári?
Spurning dagsins í dag:
Eru Íslendingar fordómafullir í garð
útlendinga?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Veit ekki
27,3%
64,6%Já
HVALVEIÐAR Í BÍGERÐ
Mikill meirihluti lesenda
telur að hvalveiðar í
vísindaskyni hefjist
á næsta ári
Nei