Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 6
6 16. október 2002 MIÐVIKUDAGURSPURNING DAGSINS
Saknarðu Keikós?
„Já, að sjálfsögðu sakna ég Keikós. En
þetta heldur ekki fyrir mér vöku. Ég get vel
unnt honum þess að vera í Noregi. Ég veit
að hann er þar í góðum höndum.“
Hallur Hallsson hefur ekki lengur með háhyrning-
inn Keikó að gera. Keikó er farinn til Noregs og fátt
sem bendir til að hann snúi aftur.
INNLENT
MIÐVIKUD. 2. OKT. KL. 17.20
Skotið á glugga á byggingavöruverslun í
Montgomery í Maryland.
Enginn særðist.
MIÐVIKUD. 2. OKT. KL. 18.04
Á bílastæði við matvöruverslun í
Wheaton í Maryland.
55 ára karlmaður lét lífið.
FIMMTUD. 3. OKT. KL. 07.41
Við bifreiðaverslun í White Flint í
Maryland.
39 ára karlmaður lét lífið.
FIMMTUD. 3. OKT. KL. 08.12
Á bensínstöð í Rockville í Maryland.
54 ára karlmaður lét lífið.
FIMMTUD. 3. OKT. KL. 08.37
Fyrir utan pósthús í Silver Spring í
Maryland.
34 ára kona lét lífið.
FIMMTUD. 3. OKT. KL. 09.58
Á bensínstöð í Kensington í Maryland.
25 ára kona lét lífið.
FIMMTUD. 3. OKT. KL. 21.20
Á götu í Washington.
72 ára karlmaður lét lífið.
FÖSTUD. 4. OKT. KL. 14.30
Bílastæði við byggingavöruverslun í
Fredericksburg í Virginíu.
43 ára kona særðist.
MÁNUD. 7. OKT. KL. 08.08
Fyrir utan skóla í Bowie í Maryland.
13 ára piltur særðist
MIÐVIKUD. 9. OKT. KL. 20.18
Á bensínstöð í Manassas í Virginíu.
53 ára karlmaður lét lífið.
FÖSTUD. 11. OKT. KL. 09.30
Á bensínstöð í Spotsylvaníu skammt frá
Fredericksburg í Virginíu.
53 ára karlmaður lét lífið.
MÁNUD. 14. OKT. KL. 21.15
Á bílastæði við verslanamiðstöð í Falls
Church í Virginíu.
Kona lét lífið.
STJÓRNMÁL Þorgeir Pálsson flug-
málastjóri og fulltrúar Rannsókn-
arnefndar flugslysa gengu á fund
samgöngunefndar Alþingis í gær.
Meðlimir samgöngunefndar vildu
fá svör við ýmsum spurningum
tengdum Skerjafjarðarslysinu í
ágúst 2000.
Að sögn Lúðvíks Bergvinssonar
samgöngunefndarmanns fóru
flugmálastjóri og rannsóknar-
nefndin fyrir sjónarmið sín varð-
andi skýrslu bresku flugslysasér-
fræðinganna og svöruðu spurning-
um.
„Bæði Rannsóknarnefnd flug-
slysa og Bretarnir hafa sett fram
talsverða gagnrýni. Nefndirnar
gagnrýna báðar að hreyfillinn hafi
fengið lofthæfisskírteini á sínum
tíma. Einnig kemur fram að eftir-
lit með smærri flugrekendum hafi
ekki verið sem skyldi. Til dæmis
er á það bent að engin formleg at-
hugun hafi verið gerð á Leiguflugi
Ísleifs Ottesen í tvö og hálft ár fyr-
ir slysið,“ segir Lúðvík.
Lúðvík segir nauðsynlegt að
skipa nýja nefnd sem fari yfir allt
málið. „En ég geld mikinn varhug
við því að samgönguráðherra skipi
nefndina. Stór hluti gagnrýninnar
hefur beinst að starfsemi sem und-
ir hann heyrir og hann er ábyrgur
fyrir. Því væri skynsamlegt til
þess að eyða og draga úr tor-
tryggni að fá annan aðila til þess
að skipa nefndina,“ segir Lúðvík.
LEYNISKYTTAN Í bandaríska hernum
er boðið upp á sérstök námskeið
fyrir verðandi leyniskyttur. Yfir-
stjórn hersins er þessa dagana að
fara í gegnum nemendaskrár
slíkra námskeiða. Þetta er gert að
beiðni alríkislögreglunnar FBI.
Grunur leikur nefnilega á því
að leyniskyttan, sem undanfarinn
hálfan mánuð hefur myrt níu
manns og sært tvo í Washington
og nágrenni, hafi hlotið þjálfun í
hernum. Þar er nemendum meðal
annars kennt að vinna tveir sam-
an: annar leitar uppi fórnarlömb,
hinn miðar og tekur í gikkinn.
Líkur eru einmitt taldar á því
að morðinginn sé ekki einn að
verki. Vitni hafa oftar en einu
sinni séð tvo menn í hvítum sendi-
bíl aka á brott frá vettvangi morð-
anna.
Einnig er vitað að skotmaður-
inn er góð skytta, því hann skýtur
aldrei nema einu skoti úr tölu-
verðri fjarlægð. Þetta er einmitt
haft til marks um að hann hafi að
öllum líkindum hlotið þjálfun í
hernum eða í lögreglunni.
Vangaveltur hafa einnig verið í
bandarískum fjölmiðlum um að
morðinginn hljóti að vera mikill
áhugamaður um tölvuleiki. Á
tarotspili sem fannst við einn
morðstaðinn voru skrifuð þessi
skilaboð: „Kæri lögreglumaður,
ég er Guð“. Í hópi leikjaáhuga-
manna í Bandaríkjunum kvað
vera algengt að menn segist „vera
Guð“ þegar þeim gengur óvenju
vel í leikjatölvunum.
Aðrir segja ávarpið, „kæri lög-
reglumaður“, benda til þess að
skyttan beri mikla virðingu fyrir
lögreglunni. Vitnað er í sálfræð-
inga sem segja að morðinginn
vilji sjálfur njóta þeirrar virðing-
ar og þeirra valda sem lögreglan
hefur. Allt eru þetta þó vangavelt-
ur, sem ekki er vitað hve mikið er
hægt að byggja á.
Eftir morðið á mánudagskvöld
sögðu stjórnvöld þó að loks hafi
lögreglan fengið „almennilegar
upplýsingar frá vitnum“, sem
ekki hafi fengist eftir fyrri tilræði
leyniskyttunnar.
Lögreglan hefur samt ekki lát-
ið mikið uppi um þá vitneskju sem
hún segist hafa í fórum sínum. Á
mánudaginn sagði hún ástæðuna
vera þá, að menn vilji ekki að
morðinginn geti komist að því í
gegnum fjölmiðla að hann liggi
undir grun.
Ýmsir telja þessa upplýsinga-
fátækt hins vegar til marks um að
lögreglan viti í raun sáralítið um
morðingjann. Enda hefur hún
ekki enn haft hendur í hári hans.
Einu áþreifanlegu upplýsing-
arnar sem hingað til hafa verið
gerðar opinberar eru tölvugerðar
myndir af hvítum sendibíl, sem
vitni hafa séð í nágrenni morð-
staðanna.
gudsteinn@frettabladid.is
KJARAMÁL Laun heilsugæslulækna
hækka um 20% að meðaltali í
kjölfar úrskurðar kjaranefndar
um laun þeirra. Þetta er mat heil-
brigðisráðuneytisins. Laun
heilsugæslulækna verða nú þau
sömu og laun lækna á sjúkrahús-
um.
Heilsugæslulæknum verður
gert kleift að velja á milli tveggja
aðferða við ákvörðun launa sinna.
Annars vegar er um að ræða að
þeir þiggi föst mánaðarlaun. Hins
vegar að þeir vinni allt að fimmt-
ung vinnu sinnar á afkastatengd-
um launum. Velji læknar seinni
kostinn eiga þeir að geta bætt
laun sín umtalsvert. Hugmyndin
er sú að afköst í heilsugæslukerf-
inu aukist um leið. Þeir sem velja
fyrri kostinn geta fengið allt að
15% yfirborgun starfi þeir ekki
utan heilsugæslustofnana.
Nær allir heilsugæslulæknar
eru með sérfræðileyfi. Byrjunar-
laun þeirra eru 378.000 krónur á
mánuði. En við bætast greiðslur
eftir því hvaða kerfi menn velja
og hvaða skyldum þeir gegna.
Emil Sigurðsson hefur verið í
forsvari fyrir heilsugæslulækna í
Hafnarfirði sem hafa stefnt að
því að opna sjálfstæða lækna-
stofu. Hann segir að ekki hafi enn
verið tekið á réttindamálum
lækna. Hins vegar þurfi að fara
betur yfir úrskurðinn áður en
hægt sé að meta hann að fullu.
SUMARHÚS Á FLATEYRI SELD All-
mörg tilboð bárust í þrjú sumar-
hús við Oddatún á Flateyri, en til-
boðsfrestur rann út í síðustu
viku. Hæsta tilboðið hljóðaði upp
á rúmar 2,5 milljónir króna í
hvert hús. bb.is
NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS Á HÓLMAVÍK
Steypuvinnu við íþróttahús er
lokið, en um þessar mundir er
unnið að því að steypa þjónustu-
miðstöð fyrir væntanlega sund-
laug Hólmvíkinga. Enn hefur
ekki verið tekin ákvörðun um
hvort byggt verði yfir laugina.
bb.is
HAFNARSTARFSMENN Í SKÓLA
Ákveðið var á ársfundi Hafna-
sambands sveitarfélaga að stjórn
sambandsins gangi til samninga
við Slysavarnarskóla sjómanna
um sérsniðin námskeið fyrir
starfsmenn hafna.
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri og fulltrúar
Rannsóknarnefndar flugslysa gengu á fund
samgöngunefndar Alþingis í gær. Lúðvík
Bergvinsson segir samhljóm í gagnrýni
rannsóknarnefndarinnar og breskra sérfræð-
inga á Flugmálastjórn. „Nefndirnar gagnrýna
báðar að hreyfillinn hafi fengið lofthæfis-
skírteini á sínum tíma,“ segir Lúðvík.
Alþingismaður vill eyða tortryggni vegna Skerjafjarðarslyssins:
Aðrir en ráðherra skipi nýja nefnd
TÓLF SKOTÁRÁSIR Á TÓLF DÖGUM
Morðið á mánudagskvöld var framið um
það bil tíu kílómetra austur af Washington.
Eftir nærri tveggja vikna
morðæði:
Níu fallnir,
tveir særðir
Heimild: Associated Press;
ESRI; GDT
AP
VIRGINÍA
MARYLAND
Kona myrt á
mánudagskvöld
95
49566
95
Manassas
Washington D.C.
0 10 km
P
ot
om
ac
Fredericksburg
Látin Særð Hitti ekki
Morðtilræði leyniskyttunnar
STÖÐVUÐ Á HRAÐBRAUTINNI
Lögreglan stöðvaði þetta par á hraðbraut 495 í Virginíuríki í gær. Þau óku hvítum sendi-
ferðabíl sömu gerðar og talið er að leyniskyttan noti.
Morðin eru óráðin gáta
Ekkert lát er á morðum leyniskyttunnar í Bandaríkjunum. Ýmsar
kenningar á kreiki um morðingjann. Lögreglan sögð hafa loks fengið
góðar upplýsingar frá vitnum eftir síðasta morð.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN SÓLVANGUR Í HAFNARFIRÐI
Breytingar verða á launakerfi heilsugæslulækna þegar úrskurður kjaranefndar tekur gildi
um næstu mánaðamót. Enn er þó ýmsum kröfum heilsugæslulækna ósvarað.
Laun heilsugæslulækna hækka um 20%:
Fá sömu laun og sjúkrahúslæknar
AP
/T
H
E
W
AS
H
IN
G
TO
N
T
IM
ES
, C
LI
FF
O
W
EN
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.7 0.54%
Sterlingspund 136.21 -0.04%
Dönsk króna 11.61 0.05%
Evra 86.25 0.06%
Gengisvístala krónu 130,26 0,49%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 239
Velta 8.717 m
ICEX-15 1.310 -0,38%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 381.945.025
Pharmaco hf. 96.279.035
Össur hf. 56.542.994
Mesta hækkun
Íslandssími hf. 7,50%
Kaupþing banki hf. 0,80%
Búnaðarbanki Íslands hf. 0,63%
Mesta lækkun
Þróunarfélag Íslands hf. -2,33%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -2,31%
Pharmaco hf. -1,97%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8163,4 3,60%
Nsdaq*: 1273,1 4,30%
FTSE: 4130,3 5,00%
DAX: 3000,4 5,30%
Nikkei: 8836,7 3,60%
S&P*: 872,4 3,70%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Sprengjuhótun við
Alþingi:
Húsið rýmt
SPRENGJULEIT Um gabb var að ræða
þegar tilkynning barst að spreng-
ja myndi springa í Alþingishúsinu
í gærmorgun. Geir Jón Þórisson
yfirlögregluþjónn segir hótunina
hafa borist með SMS-sendingu
niður á Alþingi um hálfellefuleyt-
ið. Í kjölfarið hafi húsakynni
þingsins verið rýmd og ítarleg
sprengjuleit farið fram.
Lögreglan fékk til aðstoðar
þrjá sprengjusérfræðinga frá
Landhelgisgæslunni. Leituðu þeir
í rúman klukkutíma. Geir Jón seg-
ir fastmótað verklag fara í gang
við hótun sem þessa. Málið er í
rannsókn.
Lækkunarferlið heldur
áfram:
Seðlabankinn
lækkar vexti
VIÐSKIPTI Bankastjórn Seðlabanka
Íslands hefur ákveðið að lækka
vexti bankans í endurhverfum
viðskiptum við lánastofnanir um
0,3 prósentur í
6,8% í næsta
uppboði sem
haldið verður 22.
október. Aðrir
vextir Seðla-
bankans verða
lækkaðir um sömu prósentur.
Helstu ástæður lækkunarinnar
nú er að hjöðnun verðbólgu sé í
samræmi við spá bankans. Þá
bendi tölur um atvinnuleysi til
þess að vaxandi slaki sé í hagkerf-
inu. Í bankanum er nú unnið að
nýrri verðbólguspá sem lögð
verður til grundvallar vaxtaá-
kvörðun bankans á komandi mán-
uðum.