Fréttablaðið - 16.10.2002, Page 8
8 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
ERLENT
ÞINGVELLIR Hálffimmtugur fyrir-
tækjaeigandi í Reykjavík hefur
keypt ónýtt sumarhús í þjóðgarð-
inum á Þingvöllum fyrir 14 millj-
ónir króna. Lóðinni, sem stendur
inn af Valhöll og er við vatnsbakk-
ann, fylgir ekki leigusamningur
við ríkið þar sem samningurinn
við fyrri eiganda hússins var út-
runninn án endurnýjunar. Húsið
hefur verið rifið.
Þingvallanefnd hefur sam-
þykkt kaupin fyrir sitt leyti en
segist ekki munu falla frá neinum
þeim rétti sem hún hefur vegna
þess að lóðaleigusamningurinn sé
útrunninn. „Sala húss þessa sam-
kvæmt framangreindum skjölum
er án nokkurrar ábyrgðar Þing-
vallanefndar,“ segir í yfirlýsingu
nefndarinnar.
Sigurður Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Þingvallanefndar,
segir að með þessu sé ekki verið
að segja að leigusamningurinn
verði hugsanlega ekki endurnýj-
aður. „Það er einfaldlega verið að
vekja athygli á því að það þurfi að
endurnýja samninginn,“ segir Sig-
urður.
Gengið var endanlega frá kaup-
unum á sumarhúsinu nú í október.
Ekki mun hafa komið til greina að
Þingvallanefnd neytti forkaups-
réttar síns. „Nefndin hefur þannig
möguleika að ganga inn í hæsta til-
boð en þetta eru gríðarmiklir pen-
ingar,“ bendir Sigurður á.
Bústaðinn sjálfan hafði bygg-
ingarfulltrúi uppsveita Árnes-
sýslu lýst nánast ónýtan og hættu-
legan vegna fokhættu og er verið
að rífa hann. Hyggst nýi eigandinn
reisa nýtt hús á lóðinni. Verið er að
teikna það og verða uppdrættir
lagðir fyrir byggingarfulltrúann
til samþykktar.
Nýi eigandinn hefur þegar lagt
akveg frá göngustíg við lóðamörk
og að húsinu. Eins hefur hann gert
göngustíginn sjálfan ökufæran að
lóðinni. Um stíginn hefur hann síð-
an bæði ekið fólksbílum og vinnu-
vélum. Undir venjulegum kring-
umstæðum er slíkt óheimilt enda
er um að ræða óvenju viðkvæman
stað milli gjárinnar og vatnsins.
Sigurður segir að öllu verði breytt
í fyrra horf þegar framkvæmdum
er lokið.
gar@frettabladid.is
Ónýtt Þingvallahús
keypt á 14 milljónir
Greiddar voru 14 milljónir króna fyrir ónýtan sumarbústað í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Lóðaleigusamningur útrunninn. Þingvallanefnd hefur ekki bolmagn til að neyta
forkaupsréttar og samþykkir söluna.
SUMARBÚSTAÐURINN KEYPTI OG RIFNI
Sumarbústaðurinn í þjóðgarðinum við Þingvallavatn sem var rifinn nú á haustdögum.
Myndin er tekin í sumar.
SAMKEPPNISMÁL Smíði leið-
beininga Samkeppnis-
stofnunar um góða við-
skiptahætti á matvöru-
markaði er á lokastigi.
Leiðbeiningarnar eru
gerðar í kjölfar skýrslu
stofnunarinnar um mat-
vörumarkaðinn sem gef-
inn var út í fyrra.
Þess er að vænta að
stofnunin kynni leiðbein-
ingarnar á næstu vikum.
Unnið hefur verið að
þeim frá því í vor, meðal
annars með því að senda
drög þeirra til umsagnar
hagsmunaaðila á borð við sam-
tök matvörukaupmanna og
heildsala, Neytendasamtökin,
Samtök iðnaðarins og Bænda-
samtökin. Einnig hefur verið
rætt við lykilstarfsmenn ein-
stakra fyrirtækja.
Steingrímur Ægisson við-
skiptafræðingur hjá Samkeppn-
isstofnun segir að við upphaf
vinnunnar hafi gætt viss mis-
skilnings hagsmunaðilanna.
„Þeir héldu sumir að við værum
með í bígerð nýjar og íþyngjandi
reglur. En við erum einfaldlega
að ramma inn í reglur viss atriði
þannig að menn átti sig á betur
því hversu langt má ganga með
hliðsjón af ákvæðum samkeppn-
islaga,“ segir hann.
Samkeppnisstofnun:
Leiðbeiningar
á lokastigi
SAMKEPPNISSTOFNUN
Erum að ramma inn í reglur viss atriði
þannig að menn átti sig betur á því hversu
langt má ganga með hliðsjón af ákvæðum
samkeppnislaga, segir Steingrímur Ægis-
son hjá Samkeppnisstofnun.
Utanríkisþjónustan:
Eiður til
Kína
SENDIHERRAR Utanríkisráðherra
hefur ákveðið að gera umfangs-
miklar breytingar á skipan sendi-
herra í utanríkisþjónustunni.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins, tekur við starfi sendi-
herra í London af Þorsteini Páls-
syni, sem flyst til Kaupmanna-
hafnar. Gunnar Snorri Gunnars-
son, sendiherra Íslands hjá ESB í
Brussel tekur við starfi ráðuneyt-
isstjóra. Kjartan Jóhannsson, sem
starfað hefur á viðskiptaskrif-
stofu ráðuneytisins tekur við
starfi Gunnars í Brussel.
Helgi Ágústsson, sendiherra í
Kaupmannahöfn tekur við sendi-
herrastöðunni í Washington af
Jóni Baldvin Hannibalssyni, sem
fer til Helsinki og tekur við af
Kornelíusi Sigmundssyni.
Kornelíus verður aðalræðismaður
Íslands í Winnipeg. Þar hefur Eið-
ur Guðnason verið síðan í fyrra en
hann flyst nú til í Kína.
Ólafur Egilsson, sem verið hef-
ur í Kína flyst heim til starfa.
Gunnar Pálsson, fráfarandi fasta-
fulltrúi Íslands hjá NATO, hefur
tekið við starfi skrifstofustjóra
hjá ráðuneytinu. Fastafulltrúi Ís-
lands hjá NATO verður Gunnar
Gunnarsson, skrifstofustjóri
varnarmálaskrifstofu.
Skýrsla Matvæla-
stofnunar SÞ:
Viðvarandi
hung-
ursneyð
WASHINGTON, AP Árangurinn í barátt-
unni við hungursneyð hefur staðið í
stað undanfarin átta ár og í sumum
löndum hefur hungursneyð aukist.
Þetta kemur fram í skýrslu Mat-
vælastofnunar Sameinuðu þjóðanna
sem birt var í gær. Sjö löndum;
Kína, Indónesíu, Víetnam,
Thaílandi, Nígeríu, Ghana og Perú,
tókst að draga úr hungri hjá samtals
um 100 milljónum manna á árunum
1992 til 2000. Í 47 öðrum löndum
þjáðust 96 milljónir manna af hung-
ursneyð, sem stafaði m.a. af þurrk-
um og auknum mannsfjölda.
Nýtt blað á Akureyri:
Ekki
blásið af
FJÖLMIÐLAR „Við tökum ákvörðun
fljótt um hvort af útgáfunni verður
og þá hvernig að henni verður stað-
ið,“ segir Benedikt Sigurðarson,
stjórnarformaður KEA, um nýjan
fjölmiðil sem fyrirhugað er að setja
á laggirnar á Akureyri. „Þetta hef-
ur ekki verið blásið af,“ segir hann.
Um er að ræða dagblað sem
kæmi út þrisvar í viku auk ein-
hverra fylgiblaða. Birgir Guð-
mundsson, fyrrum fréttastjóri DV,
vann að undirbúningi blaðsins, en
hann hefur nú skipt um starfsvett-
vang og kennir við Háskólann á Ak-
ureyri. Kemur hann því ekki frekar
að blaðinu.
GJÖF Mæðrastyrksnefnd Reykjavík-
ur barst væn sending af matvörum
frá fyrirtækinu Ásbirni Ólafssyni,
eða fjögur bretti með vörum af
ýmsu tagi. Má þar nefna Maizena
vöffludeig og pönnukökudeig,
Knorr hrísgrjónarétti, súpur og sós-
ur og Maryland súkkulaðibitakex.
Sverrir Ögmundsson, sölustjóri
Knorr, segir hugmyndina af þessari
gjöf hafa komið upp á sölufundi
þegar í ljós kom að umbúðir nokk-
urra vörutegunda höfðu laskast í
flutningum. Hafi hugmyndinni ver-
ið vel tekið af forráðamönnum fyr-
irtækisins að færa Mæðrastyrks-
nefndinni vörurnar til dreifingar til
skjólstæðinga sinna.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur:
Komu færandi hendi
VÖRURNAR AFHENTAR
Sverrir Ögmundsson sölustjóri Knorr afhenti Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanni Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur vörurnar. Með á myndinni eru starfskonur nefndarinnar þær
Unnur Jónasdóttir, Guðrún Magnúsdóttir og Anna Auðunsdóttir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ORÐRÉTT
TIL AÐ GETA LESIÐ JONAS.IS
„Það er því afar mikilvægt að öll-
um bændum bjóðist öflugri teng-
ing við Internetið í síðasta lagi í
byrjun næsta árs.“
Áskell Þórisson ritstjóri Bændablaðsins
fjallar í leiðara um mismundandi aðgengi
dreifbýlis og þéttbýlis að Internetinu.
HVAÐ KOSTAR COMBI CAMP?
„Enn standa viðræður yfir varð-
andi prestsetrin þar með talinn
Þingvöll.“
Karl Sigurbjörnsson biskup ávarpaði
Kirkjuþing.
AF HVERJU EKKI BÍÓMYND?
„Enn eru eflaust til vettlingar
sem ég hef ekki heyrt af og gam-
an væri að mynda.“
Elísabet St. Jóhannsdóttir gerir Bænda-
blaðinu grein fyrir áhuga sínum á skag-
firskum vettlingum sem hún hefur ljós-
myndað með bókarútgáfu í huga.
HERMENN PYNTAÐIR Að sögn
mannréttindasamtaka í Mexíkó
hefur rúmlega 600 hermönnum
verið haldið föngum í bækistöðv-
um sínum undanfarna ellefu daga
og þeir pyntaðir. Ástæðan er rann-
sókn yfirvalda á eiturlyfjasölu sem
þeir eru grunaðir um að hafa
stundað.