Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 9

Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 9
9MIÐVIKUDAGUR 16. október 2002 INNLENT VIÐSKIPTI Áhugi almennings á hlutabréfakaupum hefur farið hraðminnkandi að undanförnu. Hlutabréf á Bandaríkjamarkaði hafa lækkað verulega og almenn svartsýni ríkir á mörkuðum víða um heim. Við þessar aðstæður getur verið fýsilegt fyrir lang- tímafjárfesta að kaupa hlutabréf. Í fjárfestingarkjarna SPH verð- bréfa bendir Már Wolfgang Mixa á að við núverandi aðstæður hafi lítið borið á umræðu um hvort nú sé rétti tíminn til að kaupa hluta- bréf. Umræðan hafi fremur snú- ist um hvort meiri lækkanir verði á mörkuðum. Ýmsa mælikvarða er hægt að nota við að meta verð hlutabréfa í sögulegu samhengi. Samkvæmt samanburði SPH verðbréfa eru bandarísk hlutabréf vanmetin um 40% gagnvart skuldabréfum. Á sama tíma og hagnaður fyrir- tækja hefur dregist saman tíma- bundið um 10 - 20% hefur verð margra stöndugra hlutafélaga lækkað um meira en helming. Þetta ásamt ýmsu öðru styður það að markaðurinn sé mjög svart- sýnn og hlutabréf vanmetin sem fjárfestingarkostur.  BYGGÐAMÁL Ný byggðastefna Sam- bands íslenskra sveitarfélaga mótast af hugmyndum síðustu aldar. Þetta er mat Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins, sem gagnrýnir harðlega nýsam- þykktar tillögur Sambandsins í byggðamálum. „Tillögurnar eru ekkert annað en stórfelld kröfugerð á hendur ríkisvald- inu um aðgerðir í gamaldags kommissara-stíl til að hefta byggðaþróun,“ segir Kjartan. „Svona aðgerðir skila engu og eru bara fjáraustur úr vösum skatt- greiðenda.“ Kjartan segir tillögurnar fela í sér milljarða ef ekki tugmilljarða króna kostnað fyrir ríkið. Þetta séu aðgerðir sem reyndar hafi verið alla síðustu öld en ekki gengið. Hann segist ennfremur telja að ein tillagan brjóti gegn jafnræðisreglu í skattheimtu. Samkvæmt henni eigi að lækka skatta á landsbyggðinni á kostnað íbúa á Faxaflóasvæðinu og í því sambandi hafi tekjuskattur, eignaskattur og þungaskattur verið nefndir, sem og endur- greiðsla námslána. „Mér fannst það með ólíkindum að flestir sveitarstjórnarmenn af suðvest- urhorninu greiddu þessari stefnu atkvæði sitt þrátt fyrir að í henni sé bein tillaga um að skattalegum aðgerðum sé beitt til þess að hafa áhrif á byggðaþróun. Það hlýtur að vera óvenjulegt að stjórnmála- menn standi beinlínis að tillögum þess efnis að gripið sé til slíkrar skattamismununar sem koma nið- ur á umbjóðendum þeirra,“ Kjartan segir að margt annað í byggðastefnunni orki tvímælis. Til dæmis sé lagt til að stækka enn frekar hið opinbera með nýju ráðuneyti byggða- og sveitar- stjórnarmála, sem og að allir landsmenn eigi greiðan aðgang að rafrænum samskiptum. Þá segist hann ekki sjá betur en að tillögur um skipan raforkumála gangi gegn nýjum orkulögum. „Ég tel mig bera miklar taugar til landsbyggðarinnar en þessar aðgerðir eru ekki í tengslum við raunveruleikann. Það besta sem hægt er að gera fyrir landsbyggð- ina eru almennar aðgerðir, eins og það að lækka skattinn á fyrirtæki í 18%.“ trausti@frettabladid.is HELSINKI, AP Finnska lögreglan handtók í gær sautján ára pilt sem grunaður er um að hafa hjálpað félaga sínum, Petri Gerdt, að „afla sér upplýsinga um hvernig sprengjur eru gerðar.“ Lögreglan tók þó fram að hinn nítján ára Petri Gerdt hafi upp á eigin spýtur smíðað sprengjuna, sem varð honum og sex öðrum að bana í verslunarmiðstöðinni í Vantaa á föstudaginn. „Hann gerði þetta einn. Það voru engir aðrir með honum í verslunarmiðstöðinni,“ sagði Tero Haapala lögregluforingi í leyni- þjónustu Finnlands. „Við erum ennþá engu nær um tilefnið.“ Gerdt bjó heima hjá foreldrum sínum og stundaði nám í efna- verkfræði. Hann þótti hlédrægur og átti fáa vini. Auk piltsins, sem handtekinn var í gær, eru þrír aðrir menn í haldi lögreglunnar grunaðir um að hafa verið í sambandi við Gerdt á spjallrás á Internetinu, þar sem sprengjugerð var til um- ræðu. Gerdt tók síðast þátt í samræð- um á þessari spjallrás miðviku- daginn 8. október. Hann sagði þar að sig hefði dreymt að lögreglu- bifreið kæmi „á sprengjustaðinn.“ „Sem betur fer var ég þegar farinn ‘að fljóta’ í hina áttina,“ sagði Gerdt þremur dögum fyrir ódæðisverk sitt.  VILJA SKÝRA SAMGÖNGUÁÆTLUN Á ársfundi Hafnasambands sveit- arfélaga var skorað á samgöngu- ráðherra og stjórnvöld að marka skýra stefnu um samræmda sam- gönguáætlun og hver verði hlut- ur sjóflutninga í þeirri áætlun. Ennfremur að taka til skoðunar möguleika á að auka mikilvægi sjóflutninga í hlutverki flutnings- jöfnunarsjóða til dæmis með þungavörur eins og fiskafurðir, olíu, sement og áburð. ENGIDALSVEGUR LAGAÐUR Fram- kvæmdum við Engidalsveg í Skutulsfirði verður að líkindum haldið áfram í dag, en hlé var gert fyrir um mánuði síðan vegna erfiðs tíðarfars. bb.is ERFIÐIR DAGAR Það hefur ekki verið tekið út með sældinni að miðla verðbréfum upp á síðkastið. Lækk- anir í Bandaríkjunum geta opnað ýmsar dyr fyrir langtímafjárfesta. Miklar lækkanir hlutabréfa: Kauptækifæri í hlutabréfum VENJULEGUR PILTUR Lögreglan í Finnlandi dreifði þessari samsettu mynd af efnaverkfræðinemanum Petri Gerdt til fjölmiðla í þeirri von að fá frekari upplýsingar frá fólki sem gæti hafa séð til ferða hans á föstudaginn. Finnska lögreglan enn engu nær um tilefni sprengjuárásarinnar: Fjórir netverjar handteknir AP / LE H TI KU VA / P O LI C E H O KJARTAN MAGNÚSSON Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að það hljóti að vera óvenjulegt að stjórn- málamenn standi beinlínis að tillögum þess efnis að gripið sé til skattamismunun- ar, sem komi niður á umbjóðendum þeirra. Nýsamþykkt byggðastefna brýtur gegn jafnræðisreglu Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir byggðastefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga brjóta gegn jafnræðisreglu í skattheimtu. Með ólíkindum að flestir sveitarstjórnarmenn af suðvesturhorninu greiddu þessari stefnu atkvæði sitt. Ekkert annað en stórfelld kröfugerð á hendur ríkisvaldinu. „Svona að- gerðir skila engu og eru bara fjáraustur úr vösum skattgreið- enda.“ Bæjarstjóri Seyðisfjarðar: Ekki brot BYGGÐAMÁL Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, segist ekki telja að nýsamþykkt byggða- stefna Sambands íslenskra sveit- arfélaga feli í sér brot á jafnræðis- reglu í skattheimtu líkt og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, heldur fram. „Þarna er Kjartan kominn í ákveðna mótsögn við sjálfan sig því sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa viljað lækka fasteignaskatta á eldri borgara,“ segir Tryggvi. „Með því má segja að þeir séu að mismuna fólki eftir aldurshópum og þar með að brjóta gegn jafn- ræðisreglu í skattheimtu.“ Tryggvi segir ýmis frávik frá jafnræðisreglu þekkjast í skatt- heimtu. Ef nýsamþykkt stefna feli í sér brot á jafnræðisreglunni hljóti allir byggðastyrkir í eðli sínu að brjóta gegn henni. Hann segir að það þekkist úti um allan heim að héruð og sveitir séu styrkt með einhverjum hætti. Ýmsum aðferð- um sé beitt, stundum skattaíviln- unum og stundum styrkjum. „Annars hefur mér í gegnum tíðina litist best á að jafna aðstöðu landsbyggðar og höfuðborgar- svæðis með því að bjóða ákveðna grunnþjónustu á sambærilegu verði. Það hef ég talið heillavæn- legustu landsbyggðarstefnuna.“ 

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.