Fréttablaðið - 16.10.2002, Qupperneq 10
10 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ólafur Ragnar Grímsson, forsetiÍslands, og heitkona hans, Dor-
rit Moussaieff, komu í opinbera
heimsókn til Kán-
tríbæjar í gær. For-
setinn þáði kúreka-
hatt að gjöf frá
Hallbirni Hjartar-
syni, veitinga- og
tónl is tarmanni .
Hattur þessi verð-
ur af embættis-
mönnum skráður
sem gjöf til for-
setaembættisins
og varðveittur á
B e s s a s t ö ð u m
ásamt kristalvösum, plöttum og
öðru glingri sem forsetar okkar
hafa þegið á ferðum sínum um
heiminn; útlönd og heimahaga.
Vigdís Finnbogadóttir tók upp
þennan sið í forsetatíð sinni; að fly-
tja opinberar heimsóknir forset-
ans heim. Eldri forsetar höfðu þeg-
ið heimboð frá þjóðhöfðingjum
annarra landa; haldið tölur í kvöld-
verðarboðum og skipst á gjöfum
við starfsbræður sína, sem tákn
um vilja til friðsamlegra sam-
skipta í framtíðinni. Opinberar
heimsóknir Vigdísar innanlands
drógu ekki úr heimsóknum hennar
til annarra landa; þvert á móti. Í
forsetatíð hennar fjölgað þessum
heimsóknum enda Vigdís vinsæl
meðal þjóðhöfðingja; viðkunnaleg
og góður fulltrúi skrítinnar þjóðar.
En ekki síður góður fulltrúi kven-
na; ein fyrst kvenna til að verða
kosin þjóðhöfðingi.
Þessi sérstaða Vigdísar sem
tákn um aukna hlutdeild kvenna í
opinberu lífi – ásamt hlýlegum
persónuleika – gaf forsetaembætt-
inu inntak sem því sárlega skorti.
Embætti forsetans hefur hvorki
stjórnsýslulegan né sögulegan til-
gang. Forsetinn er staðgengill
kóngsins sem landsmenn höfnuðu.
Sökum þessa tilgangsleysis er
hverjum forseta frjálst að skapa
embættinu inntak eftir sínu höfði –
og hjarta. Fyrsti dagur nýs forseta
í starfi er núllpunktur. Honum ber
ekki að varðveita samfellu sögunn-
ar – sem engin er. Hann þarf ekki
að vera valdsmannslegur eins og
Sveinn, hreppstjóralegur eins og
Ásgeir, hæverskur eins og Krist-
ján eða alþýðuhetja eins og Vigdís.
Þegar Vigdís mætti í sýslur lands-
ins stóð fólk ekki við vegkantinn
og veifaði forsetaembættinu. Það
veifaði alþýðuhetju sem sigrað
hafði hjarta þjóðarinnar með hlýj-
um og björtum persónuleika; ekki
ósvipað og Jón Páll, Hófí og Reyn-
ir Pétur.
Heimsókn Ólafs Ragnars til
Kántríbæjar er skopstæling. Hug-
myndin er idjótísk, leikaravalið
írónískt, leiksviðið gróteskt og inn-
takið absúrd. Þegar raunveruleik-
inn nær þessum hæðum verða
listamenn atvinnulausir.
„Heimsókn
Ólafs Ragnars
til Kántríbæjar
er skopstæling.
Hugmyndin er
idjótísk, leik-
aravalið
írónískt, leik-
sviðið gróteskt
og inntakið
absúrd.“
skrifar um opinbera heimsókn forseta
Íslands til Kántríbæjar.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
HORMÓNARMEÐFERÐ Landlæknis-
embættið hefur sent frá sér til-
kynningu þar sem læknar eru
beðnir að endurskoða afstöðu sína
til hormónameð-
ferðar kvenna á
breytingaskeiði.
Tilefnið er banda-
rísk rannsókn sem
gefur til kynna að
hormónar geti ver-
ið skaðlegir. Í bréfi
landlæknis til
læknanna segir
meðal annars: „ Í
ljósi ofangreindra niðurstaðna
vill landlæknir ítreka þau tilmæli
að ástæða sé til að endurskoða
hormónameðferð hvort sem hún
er samsett, stöðug eða kafla-
skipt.“
Sigurður Ragnarsson, hjá emb-
ætti landlæknis, segir ástæðu
þess að landlæknir bregðist við
með þessum hætti nú en ekki í
sumar þegar niðurstöður lágu fyr-
ir að alltaf taki tíma að skoða nýj-
ar upplýsingar. „Við ætlumst að-
eins til að læknar skoði og íhugi
áður en þeir ávísa hormónalyfjum
en það er fjarri lagi að við beinum
því til þeirra að hætta að með-
höndla með hormónum.“
Jens A. Guðmundsson
formaður félags kvenn-
sjúkdómalækna segist
ekki líta svo á að hormón-
ar séu eins hættulegir eins
og ætla mætti. „Það er alls
ekki hægt að alhæfa út frá
þessari rannsókn og ég lít
svo á að þessi tilmæli eigi
eingöngu við ef notaðar
eru ákveðnar tegundir
hormóna í fyrirbyggjandi
skyni til langs tíma,“ segir
Jens. Hann segist ekki vera sam-
mála því að hormónar þurfi að
vera varhugaverðir í öllum tilfell-
um. „Það er óvíst hvort þær niður-
stöður sem þarna koma fram eigi
við konur á Norðurlöndum. Hér á
Íslandi er ekki algengt að konur
taki hormóna til langframa eins
og í þessari bandarísku rannsókn.
Það er heldur ekkert sem gefur til
kynna að hormónar sem innihalda
aðeins estrogen séu skaðlegir.“
Jens segir að hann muni eftir
sem áður ávísa hormónum til
þeirra kvenna sem hann telur að
þarfnist þeirra. „Ég mun ráð-
leggja minni áherslu á hormóna-
gjöf í fyrirbyggjandi skyni en
sömu áherslu við óþægindum til
skamms tíma.“
Ólafur Håkanson kvennsjúk-
dómalæknir er sama sinnis.“ Á
Norðurlöndum og í Evrópu hafa
læknar ekki lagt sömu áherslu og
kollegar þeirra í Bandaríkjunum
á að gefa konum hormóna til að
fyrirbyggja sjúkdóma. Við ávís-
um hins vegar hormónum við
óþægindum á breytingarskeiði
einkum ef þau eru farin að hafa
áhrif á daglegt líf konunnar. Það
hefur ekki verið talað um að í
þessari rannsókn voru þriðjungur
kvennanna yfir kjörþyngd,
fimmtungur yfir sjötugt og
skammtarnir í engu samræmi við
það sem við erum vön að nota hér-
lendis.“
bergljot@frettabladid.is
Ávísa hormónum áfram
Landlæknir beinir því til lækna að íhuga og skoða vel hvort ástæða sé til að gefa hormóna. Lækn-
ar taka ekki eins djúpt í árinni og segja að hormónar eigi rétt á sér í meðhöndlun á óþægindum á
breytingarskeiði. Ekki sama hvort um er að ræða estrogen eða aðra samsetta hormóna.
LÆKNAR ÍHUGI HVORT GEFA EIGI HORMÓNA
Landlæknir beinir þeim tilmælum til lækna að íhuga vel hvort hormóna-
gjöf eigi rétt á sér áður en þeir ávísa þeim til kvenna á breytingaskeiði.
„Ég mun leggja
minni áherslu
á hormónagjöf
í fyrirbyggjandi
skyni en sömu
áherslu við
óþægindum til
skamms tíma.“.
SJÁVARÚTVEGUR „Það er bara rangt
sem haldið er fram að það séu ekki
stundaðar rannsóknir á áhrifum
veiða á vistkerfið,“ segir Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar vegna önd-
verðra fullyrðinga Guðmundar
Halldórssonar, formanns smábáta-
félagsins Eldingar.
„Þetta eru hlutir sem við hjá
Hafrannsóknastofnun höfum á
undanförnum árum sinnt í sam-
starfi við aðra og erum enn að
sinna.
Það var meðal annars í gangi
sérstakt tilraunaverkefni þar sem
rannsökuð eru áhrif togveiðarfæra
á botn í Stakksfirði, það er verið að
rannsaka áhrif hörpudiskplógs á
lífríkið á botninum í Breiðafirði og
sömuleiðis áhrif rækjuvörpu á líf-
ríkið. Ég nefni þetta sem dæmi en
við erum að skoða fjölmargt fleira,
svo sem skiljur og áhrif veiðar-
færa á aflasamsetningu og hvernig
hægt er að draga úr skaðlegum
áhrifum veiðarfæra á seiði og smá-
fiska,“ segir Jóhann Sigurjónsson.
Þá segir hann umfangsmikið
verkefni nýhafið en það miðar að
því að kortleggja allt Íslenska land-
grunnið.
„Við ætlum að ljúka því á næstu
fimm til tíu árum. Með því fáum
við yfirsýn yfir botngerðina kring-
um landið og ættum að vera betur í
stakk búin til að vernda og friða
svæði þar sem þess gerist þörf,“
segir Jóhann og bætir við að alltaf
megi gera betur.
„Við erum með öðrum orðum á
fullu í rannsóknarverkefnum sem
ættu að vera öllum ljós. Við höfum
oft kynnt þetta. Við vildum að
sjálfsögðu að rannsóknir okkar
væru öflugri, enda teljum við þær
mikilvægar bæði í nútíð og fram-
tíð og höfum óskað eftir auknu
fjármagni til rannsókna,“ segir Jó-
hann Sigurjónsson.
Hann vill ekki tjá sig um full-
yrðingar þess efnis að óeðlilega
sterk tengsl séu milli Hafrann-
sóknastofnunar og útgerðar-
manna.
„Til þess að ná árangri í okkar
rannsóknum teljum við mjög mik-
ilvægt að vera í nánum tengslum
við alla hagsmunaaðila, jafnt út-
vegsmenn sem sjómenn.“
the@frettabladid.is
Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar:
Áhrif veiða á vist-
kerfið rannsökuð
Herdís skrifar:
Þrír þættir þeirra Sigmars ogKristjáns á síðustu dögum, þ.e.
um stjórnmál, fólk í fjölmiðlum og
hormónanotkun kvenna hafa orðið
að aðhlátursefni.
Á sjónvarpsskjánum blöstu við
okkur í tveim þeim fyrri fimm ung-
ir karlmenn, þeir einir hafa vit á
stjórnmálum og engar konur fyrir-
finnast í fjölmiðlum.
Þátturinn um hormónanotkun
kvenna var þó hlægilegastur.
Hvernig brygðust karlmenn við því
ef fimm konur mættu í sjónvarps-
sal til að ræða um blöðruhálskirtils-
vandamál þeirra? Þá yrðu nú aldeil-
is rekin upp harmakvein.
Þessir ungu stjórnendur eru
haldnir ótrúlegri kvenfælni, fela
skal konur, þær eiga ekki að vera
til, og afsökunin sem heyrist þegar
rætt er um kvenmannsleysið í fjöl-
miðlum er alltaf sama gamla lumm-
an: konur hvorki þora né vilja láta í
sér heyra í útvarpi eða koma fram í
sjónvarpi.
Mig grunar að þeir hafi aðeins
samband við eina eða tvær konur
sem þeir vita að eru í miklum önn-
um og hafa ekki tíma til að mæta.
Kastljósið
hlægilega
RANNSÓKNASKIP HAFRANNSÓKNASTOFNUNARINNAR
Forstjórinn segir rangt að stofnunin stundi ekki rannsóknir á áhrifum veiða á vistkerfið.
Opinber heimsókn til Kántríbæjar
Nám í
Danmörku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Rafmagnsiðnfræði
• Véliðnfræði
• Grafísk hönnun
Odense Tekniske Skole heldur kynningu á námi við skólann
fimmtudaginn 17. okt. nk. kl. 20.30 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð
Allir velkommnir
ODENSE TEKNISKE SKOLE