Fréttablaðið - 16.10.2002, Page 14
Leikarahjónin Michael Dou-glas og Catherine Zeta-Jones
eiga von á sínu öðru barni. Þetta
tilkynntu þau á
heimasíðu leikar-
ans og kemur þar
einnig fram að
von er á barninu í
heiminn næsta
vor. Fyrir eiga
þau soninn Dylan
sem nú er tvegg-
ja ára.
Graham Coxon, fyrrum gítar-leikari Blur, sagði í viðtali
við NME á dögunum að hann liti
ekki lengur á
hina þrjá liðs-
menn Blur sem
vini. Hann segist
hafa verið ósátt-
ur við þá stefnu
sem sveitin
markaði sér við
upptökur nýju
plötunnar. Hinir
þrír liðsmenn Blur hafi bara
verið í vinnunni og því viljað að
platan hljómaði „söluvæn og fag-
mannaleg“. Það sé hins vegar
eitthvað sem hann hafi óbeit á.
Coxon greindi einnig frá því í
viðtalinu að uppsögn hans hafi
komið í gegnum umboðsmann
þeirra. Það hafi sýnt betur en
allt hversu lítið sé eftir af vina-
tengslum liðsmanna.
Spænski tenórsöngvarinnPlacido Domingo var aðlaður
í breska sendiráðinu í Was-
hington á mánudag. Þetta er
heiðursnafnbót en breska krún-
an vill þakka honum fyrir fram-
lag sitt til tónlistar og góðgerða-
mála í gegnum árin. Domingo
hefur sungið fleiri Óperuhlut-
verk en nokkur annar tenór í
sögunni.
Framleiðsla á þriðju ScoobieDoo myndinni er hafin þrátt
fyrir að vinnsla á
annarri myndinni
sé fjarri því að
vera lokið. Leik-
arahópurinn,
Sarah Michelle
Geller, Freddie
Prinze Jr, Matt-
hew Lillard og
Linda Cardellini
fara með aðalhlutverkin í öllum
myndunum þremur.
14 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 2
MR. DEEDS kl. 5.50, 8 og 10.10
XXX kl. 5.15, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 8 og 10.50
kl. 6MAÐUR EINS OG ÉG
THE BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.30
HAFIÐ kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 6, 8 og 10.05
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali 4 VIT429
SIGNS kl. 8 og 10.20 VIT427
HAFIÐ kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.20 VIT433
MAX KLEEBLE´S... kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY 5.45, 8 og 10.20 VIT427
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT 444Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT 444
Sýnd kl. 5.45 og 10.20 VIT 445
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLIST Í kvöld bjóða Hljómalind
og færeyska plötuútgáfan Tutl
landsmönnum upp á þjóð-
lagatónleika í nýjum tónleikasal
í gamla Austurbæjarbíó. Þetta
verður fyrsti dagskráliðurinn í
tónleikaröð færeyskra tónlistar-
manna hér á höfuðborgarsvæð-
inu sem stendur yfir til 26. októ-
ber. Í kvöld koma fram, Hanus
G. Jóhansen trúbador sem jafn-
framt er sagður einn sérkenni-
legasti söngvari eyjanna, Kári
Sverrisson ásamt Mikael Blak
og hin 19 ára gamla Eivör Páls-
dóttir.
„Ég eyði öllum mínum tíma í
lagasmíðar eða flutning,“ segir
Eivör en auk þess að rækta sinn
eigin garð syngur hún með
hljómsveitinni Clickhaze sem
leikur á þrem tónleikum hér á
landi á næstu dögum. „Ég ræð
ekkert við þetta, ég verð að
vinna við tónlist allan daginn.
Ég hef lifað af tónlist frá því að
ég var 16 ára. Ef maður vill það,
þá getur maður það alveg. Það
er margir atvinnutónlistarmenn
í Færeyjum, en það er mjög
erfitt lífi. Helsta ástæðan fyrir
því að mér hefur tekist þetta er
sú að ég bý hjá foreldrum mín-
um.“
Fyrir tveimur árum gaf
Eivör út fyrstu geislaplötu sína í
Færeyjum. Hún varð óvænt vin-
sælari en heitt poppkorn í bíó.
Nú er hún flutt til Íslands til
þess að stunda söngnám og
kynnast íslensku tónlistarlífi al-
mennilega.
„Ég flutti líka hingað af því
að mig langaði til þess að skipta
um pláss. Ég er búin að vera í
Færeyjum svo lengi. Mig lang-
aði í breytingu. Færeyjar eru
litlar. Mig langar til þess að búa
til tónlist hér og kynnast sen-
unni. Ég get ekki verið í Dan-
mörku af því að þar myndi mér
aldrei líða eins og heima hjá
mér. Ísland er keimlíkara Fær-
eyjum einhvern veginn.“
Tónlistarleg tengsl
milli landanna
Í dag hefst tónlistarhátíðin Fairwaves, færeyska bylgjan 2002, þar sem
margir af þekktari tónlistarmönnum Færeyja koma fram. Þar á meðal
Eivör Pálsdóttir, Clickhaze og Hanus G. Jóhansen.
kl. 10
FILMUNDUR
BATTLE ROYALE
kl. 6, 8 og 10FÁLKAR
TÓNLIST Á mánudagskvöldið næsta
verða tónlistarverðlaunin tíma-
ritsins Q afhent í þrettánda skipt-
ið. Blaðið hefur náð, á stuttum
lífstíma sínum, að verða eitt vir-
tasta tónlistarmánaðarrit Bret-
lands og eru verðlaunin því eftir-
sótt. Tilnefningarnar eru valdar
eftir atkvæðaseðli sem lesendur
blaðsins senda inn eða fylla út á
netinu.
Tilnefningarnar í ár sýna það
glögglega að gagnrýnendur og
hinir almennu plötukaupendur
eru ekki alltaf sammála því Oasis
fær flestar tilnefningar í ár. Þar á
meðal er tilnefning í flokknum
„besta tónlistaratriði heimsins í
dag“. Þar keppa þeir við Coldplay,
Radiohead, Stereophonics og U2.
Coldplay platan „A Rush of
blood to the head“ keppir svo í
flokknum „plötu ársins“ við frum-
raun The Vines „Highly Evolved“,
Red Hot Chili Peppers plötuna
„By the Way“, Beth Orton plötuna
„Daybreaker“ og aðra plötu
Doves „The Last Broadcast“.
Bráðum Íslandsvinirnir í The
Hives eru tilnefndir fyrir smá-
skífu sína „Hate to Say I told you
so“ auk þess sem myndband lags-
ins var tilnefnt. Aðrar tilnefning-
ar til smáskífu ársins eru Nickel-
back - „How you remind me“, Oas-
is - „Hindu Times“, Red Hot Chili
Peppers - „By the way“ og The
Sugarbabes - „Freak like me“.
Hljómsveitirnar The Bees,
Cooper Temple Cause, The Coral,
Electric Soft Parade og The Vines
keppa um nýliðaverðlaunin.
Q verðlaunin 2002:
Oasis með flestar tilnefningar
OASIS
Þrátt fyrir að nýjasta breiðskífa þeirra „He-
athen Chemistry“ hafi fengið afleita dóma
virðast aðdáendur sáttir.
EIVÖR PÁLSDÓTTIR
Ætlar að vera hér á Íslandi í einhvern tíma og mun
örugglega lífga upp á tónlistarlífið hér.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
YFIRMAÐURINN
Bandaríska rokkstjarnan Bruce Springsteen
sést hér ásamt Steven Van Zandt í góðri
sveiflu á tónleikum kappans í París á mánu-
dag. Hann ferðast nú um heiminn til þess
að kynna nýjustu breiðskífu sína „The Ris-
ing“. Hér sést glögglega af hverju
Springsteen gengur undir nafninu „yfirmað-
urinn“ (The Boss) hjá aðdáendum sínum.