Fréttablaðið - 16.10.2002, Qupperneq 16
16 16. október 2002 MIÐVIKUDAGURHVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
BÆKUR
FUNDIR
12.00 Kristín Björnsdóttir, M.A. í upp-
eldis- og menntunarfræðum, flyt-
ur erindi í fyrirlestraröð um fötlun-
arrannsóknir. Erindi hennar nefn-
ist Þroskaheftir framhalds-
skólanemendur. Fyrirlesturinn fer
fram í stofu 101 í Odda og er öll-
um opinn.
12.00 Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, heldur hádegisfund um
stöðu kvenna í stjórnmálum, í
stofu 103 í Lögbergi. Frummæl-
endur eru þingkonurnar Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir og Svan-
fríður I. Jónasdóttir, og Una María
Óskarsdóttir verkefnisstjóri ráð-
herraskipaðrar nefndar um auk-
inn hlut kvenna í stjórnmálum.
12.05 Rúnar Helgi Andrason, Psy.D., yf-
irsálfræðingur á Fjórðungssjúkra-
húsi Akureyrar, flytur erindið
Multimodal Therapy. í málstofu
sálfræðiskorar sem er haldin í
Odda, stofu 201 og er öllum
opin.
13.30 Fræðslu- og umræðufundur um
atvinnumissi og áhrif hans á líð-
an fólks og hvernig skynsamlegt
er að bregðast við verður haldin í
Hallgrímskirkju.
16.15 Jónína Sæmundsdóttir lektor við
Kennaraháskóla Íslands heldur
fyrirlestur um Áhrif ofvirkra
barna á vegum Rannsóknarstofn-
unar KHÍ Fyrirlesturinn verður
haldinn í sal 2 í nýbyggingu
Kennaraháskóla Íslands við
Stakkahlíð og er öllum opinn.
16.00 Á málstofu viðskipta- og hag-
fræðideildar Háskóla Íslands mun
Sigurður Jóhannesson sérfræð-
ingur flytja erindið Arðsemi virkj-
ana fyrir stóriðju. Málstofan er í
húsnæði Hagfræðistofnunar að
Aragötu 14 og er öllum opin.
20.00 Fyrsti fundur Ungra Vinstri-
Grænna um velferðarmál verður
haldin á Hótel Loftleiðum. Allir
velkomnir, ungir sem aldnir.
UPPÁKOMUR
14.00 Liðin eru 100 ár frá því St. Jós-
efsspítali á Landakoti hóf rekst-
ur. Í tilefni dagsins er starfsmönn-
um öldrunarsviðs boðið til kaffi-
samsætis. Fyrrverandi starfsmenn
Landakots eru einnig boðnir vel-
komnir.
LEIKSÝNINGAR
20.00 Með fulla vasa af grjóti er sýnt á
Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
er sýnt í Hafnarfjarðarleikhús-
inu.
TÓNLEIKAR
21.00 Þjóðlagatón-
leikar verða
haldnir í sal
Austurbæjar-
bíós. Fram
koma Færey-
ingarnir Han-
us G. Jóhan-
sen, trúbador
og lagahöf-
undur, Eivör Pálsdóttir, og Kári
Sverrisson bassaleikaranum Mika-
el Blak.Miðaverð 1500 kr. Forsala í
Hljómalind Laugavegi 21.
SÝNINGAR
Sýning á verkum fjögurra eistneskra
listamanna stendur í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Þeir
eru Jüri Ojaver, Paul Rodgers, Jaan
Toomik og Jaan Paavle.
Tróndur Patursson, frá Færeyjum, sýnir
málverk í aðalsal Hafnarborgar
Sýning á myndskreytingum úr nýútgefnu
ritsafni Snorra Sturlusonar stendur yfir í
Skála við Alþingishúsið. Sýningin er opin
frá klukkan 10 til 12 og 13 til 16 alla
virka daga og stendur til 18. október.
Flökt- Amublatory- Wandelgang er sam-
sýning Magnúsar Pálssonar, Erics And-
ersens og Wolfgangs Müllers í Nýlista-
safninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Svava Björnsdóttir sýnir verk á mynd-
vegg Maríellu að Skólavörðustíg 12. Sýn-
ingin stendur til 9. nóvember.
SýninginHandritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Félag trérennismiða á Íslandi stendur
fyrir sýningunni Skáldað í tré - skógar-
spuni í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýndir eru
renndir listmunir úr innlendum og inn-
fluttum viði. Sýningin stendur til 20.
október og er opið alla daga frá 12 til
18.
Þorri Hringsson sýnir olíu- og vatnslita-
myndir í Listasafni Borganess. Sýningin
er opin frá 13 til 18 alla virka daga og til
klukkan 20 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum. Sýningin stendur til 30.
október.
Tvær sýningar, Gallerí Hlemmur og
Unnar og Egill/Ný verk, standa yfir í
Gerðasafni, Kópavogi. Sýningarnar
standa til 21. október og er opið frá 11
til 17.
Óli G. Jóhansson sýnir í galleríi Sævars
Karls.
Harpa Karls sýnir á Kaffi Sólon. Sýning-
in stendur til 18. október.
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er, Hugmyndir um Frelsi /
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20. október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Austurríski ljósmyndarinn, Marielis
Seyler sýnir í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Myndirnar á sýningunni voru
teknar á Íslandi sumarið 2001.
MYX Youth Artist Exchange sýnir í
Gallerí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth
Artist Exchange er hópur ungra mynd-
listamanna frá Bandaríkjunum og Ís-
landi.
Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn
hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í
Listasafninu á Akureyri.
Sýning Kimmo Schroderus og
Charlottu Mickelsson í Gallerí Skugga.
Á jarðhæð, í aðalsal og bakatil, sýnir
Kimmo skúpltúra sem bera yfirskriftina
„Tilfinningar“. Charlotte nefnir verk sitt í
kjallara Gallerí Skugga „Kjallari“, en þar
umbreytir hún rýminu með gagnsæjum
gúmmíþráðum. Sýningin stendur til 20.
október.
MIÐVIKUDAGURINN
16. OKTÓBER
SPARNAÐUR „Takmarkanir velferð-
arkerfisins endurspeglast í lág-
um lífeyrisbótum og hörðum
skerðingarákvæðum sem í gildi
eru. Lífeyrisþegum er fyrir-
munað að bæta stöðu sína, þótt
þeir gætu unnið hlutastarf, þá
eru skerðingarmörk tekna svo
lág – rúmlega 35.000 krónur í
dag – að slíkt skilar fólkinu
engu,“ segir Harpa Njáls félags-
fræðingur.
R a n n s ó k n a r n i ð u r s t ö ð u r
Hörpu um hvaða hópar búa við
fátækt á Íslandi – og hvers vegna
– koma út í bók sem Háskólaút-
gáfan og Borgarfræðasetur gefa
út í haust. Meðal þess sem Harpa
bendir þar á er að fólki sem hef-
ur ekki aðrar tekjur en lífeyris-
bætur frá Tryggingastofnun eða
félagsþjónustu sveitarfélaga,
vantar 40 til 50.000 krónur á
mánuði til að tekjur dugi fyrir al-
gjörum lágmarks-framfærslu-
kostnaði, miðað við verðlag í lok
ársins 2000. Hún segir engar vís-
bendingar um að staða þessara
hópa hafi batnað síðan.
Harpa segir að lög og reglu-
gerðir valdi því að fólk sem aflar
tekna umfram lágmarkið haldi
svo til engu eftir. „Þarna gætir
einnig vaxandi skattbyrði af
lægstu tekjum og bótum,“ segir
Harpa. Þannig sé fólk hneppt í
þá erfiðu stöðu að vera fyrir-
munað að geta bætt kjör sín.
„Íslensk stjórnvöld settur sér
það markmið að um miðja 20.
öldina að á Ísland yrði í fremstu
röð á því sviði meðal nágranna-
þjóða. Þróunin gengur þó þvert á
þetta markmið sem endurspegl-
ast meðal annars í lágu hlutfalli
landsframleiðslu sem varið er til
velferðarkerfisins og gjarnan er
miðað við,“ segir Harpa. Sam-
kvæmt tölum sem Harpa hefur
safnað saman hefur Ísland til
lengri tíma litið varið lægra hlut-
falli landsframleiðslu til velferð-
arkerfisins en hinar Norður-
landaþjóðirnar. Sé samanburður-
inn látinn ná til ESB-ríkja eru
Írar þeir einu sem verja lægra
hlutfalli til velferðarmála en Ís-
lendingar.
„Segja má að þannig verði fá-
tæktargildrur til í Íslensku vel-
ferðarsamfélagi. Ísland er ein af
ríkustu þjóðum heims, þar sem
lífskjör og lífsgæði eru með því
besta sem þekkist en jafnframt
er fólk sem á allt sitt undir hinu
opinbera hneppt í fátækt,“ segir
Harpa Njáls félagsfræðingur á
Borgarfræðasetri.
Fátæktargildrur í
velferðarkerfinu
Talsverðar umræður eru í samfélaginu um fátækt á Íslandi. Ýmsar
ástæður liggja að baki fátæktinni og ljóst virðist að lítill eða enginn
ávinningur sé fyrir bótaþega að leitast við að auka tekjur sínar,
segir Harpa Njáls félagsfræðingur.
HARPA NJÁLS
Gefur út bók um fátækt hér á landi. Segir engan hvata til sjálfsbjargar hjá bótaþegum
þegar allar aukatekjur fari í skerðingu og skatt.
Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona
Ég mæli með heimildarmyndinni um Sigurð
Guðmundsson eftir Ara Alexender. Hún var
frumsýnd á Listasafninu á sunnudagskvöld
en ég held að hún sé á leiðinni í bíó.
JPV útgáfa hefur sent frá sérnýja bók um Artemis Fowl.
Fyrsta bókin kom út á íslensku í
fyrra. Bækurnar eru eftir Írann
Eoin Colfer sem
hefur hlotið fjölda
viðurkenninga og
verðlauna fyrir
bækur sínar. Verið
er að kvikmynda
fyrri söguna um
Artemis sem hefur
farið sigurför um heiminn og not-
ið vinsælda jafnt hjá börnum sem
fullorðnum. Því hefur verið hald-
ið fram að bækurnar séu eins
konar sambland af Harry Potter
og James Bond. Guðni Kolbeins-
son þýddi bókina.
JPV útgáfa hefur einnig sentfrá sér í kilju skáldsöguna
Hjartað býr enn í helli sínum eft-
ir Guðberg Bergsson en höfund-
ur er einmitt að lesa hana í Ríkis-
útvarpinu um þess-
ar mundir. Þetta er
mikið endurskoðuð
útgáfa skáldsög-
unnar sem kom
fyrst út árið 1982.
Aðalpersóna sög-
unnar er fráskilinn
sálfræðingur sem stendur í sí-
felldum flutningum milli for-
stofuherbergja sem leigð eru út
af fráskildum eiginkonum ann-
arra manna. Sagan lýsir einum
sólarhring af eirðarlausu rangli
þessa manns um borgina.
Flugur, fyrsta íslenska bókinsem einvörðungu hafði að
geyma prósaljóð, hefur verið
endurútgefin hjá JPV útgáfu.
Bókin kom út árið
1922. Í bókinni eru
einnig minningar-
ljóð Tómasar Guð-
mundssonar um
Jón og minningar-
grein Þórbergs
Þórðarsonar um
Jón. Þar eru og birtar tvær stutt-
ar sögur eftir höfundinn sem lést
tuttugu og sex ára gamall. Hrafn
Jökulsson bjó bókina til prentun-
ar en Guðmundur Andri Thors-
son ritar inngang. Ljósmyndir
eru fengnar úr Þjóðminjasafni Ís-
lands.
Borgarleikhúsið:
Halldóra í
vífið
LEIKHÚS Gamanleikurinn Með vífið
í lúkunum er nú sýnt þriðja leikár-
ið í röð í Borgarleikhúsinu. Á
föstudagskvöldið verður aukasýn-
ing á leikritinu en þá tekur Hall-
dóra Geirharðsdóttir við hlut-
verki Ólafíu Hrannar Jónsdóttur í
leikritinu. Hún leikur Maríu, aðra
tveggja hamingjusamra eigin-
kvenna Jóns Jónssonar leigubíls-
stjóra, sem Steinn Ármann Magn-
ússon leikur. Allt leikur í lyndi hjá
Jóni þar til hann drýgir hetjudáð
og kemst í blöðin. Með önnur hel-
stu hlutverk fara Helga Braga
Jónsdóttir og Eggert Þorleifsson.
Leikstjóri er Þór Tulinius.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BARNABÆKURNAR HJÁ
PENNANUM-EYMUNDSSON
Harpa Jónsdóttir
FERÐIN TIL SAMARIKA
Árni Á. og Halldór Baldursson
GEITUNGURINN 1
Halldór Jónsson
ÍSLENSKU DÝRIN
Litlu Disney bækurnar
LILO OG STITCH VERÐA ...
Disneybók-útskorin
LILO FÆR GÆLUDÝR
Litlu Disney bækurnar
PÉTUR PAN OG JÓNA
SNÚÐUR OG SNÆLDA BÓK 1
Árni Á. og Halldór Baldursson
GEITUNGURINN 3
Thorbjörn Egner
KARÍUS OG BAKTUS
Áslaug Jónsdóttir
SEX ÆVINTÝRI
LIFUM SPART
SÝNINGAR Stærsta sýning á munum
úr James Bond myndum sem
haldin hefur verið stendur nú í
Vísindasafninu, Science Museum
í London. Sýningin var opnuð í
gær. Þar er hægt að sjá muni,
sviðsmyndir, fatnað, undratæki
og farartæki sem notuð hafa verið
í gerð myndanna. Gestir fá til
dæmis að skoða skrifstofu M og
tækjadeild Q. Meðal muna á sýn-
ingunni er þessi glæsilegi gyllti
bíll, Aston Martin DB5.
Bond sýningin verður opnuð al-
menningi í dag og er ekki að efa að
margir aðdáendur njósnarans
muni leggja leið sína í Vísindasafn-
ið og skoða gripina sem sumir
hverjir eru huldir ævintýraljóma.
Um þessar mundir eru einmitt
liðin 40 ár frá því að gestir kvik-
myndahúsa fóru að létta lund sína
með spæjaranum vinsæla. Vænt-
anleg mynd um 007, „Die another
day“, verður sú tuttugasta í röð-
inni. Hún verður frumsýnd í Bret-
landi þann 22. nóvember og viku
seinna hér á landi.
HONOR BLACKMAN
Bond stúlkan fyrrverandi, Honor Black-
man, sem lék Pussy Galore í Goldfinger,
rifjar hér upp kynni af glæsibifreið
leynilögreglumannsins á opnun stærstu
Bond sýningar sem haldin hefur verið.
Sýning á Bond leikmunum í London:
Minningar rifjaðar upp