Fréttablaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 16.10.2002, Blaðsíða 21
ELTON JOHN Tónlistarmaðurinn Elton John gaf sér tíma til þess að brosa fyrir ljósmyndara á tónleikum sínum í Nassau Coliseum í New York á sunnudag. Þar kom hann fram með Billy Joel. Ekkert nema Í Brallaraborgarann fer einungis 100% hreint nautakjöt. Engin aukaefni, engin rotvarnarefni. Með fersku Brallarahamborgarabrauði og meðlæti að eigin vali: Ómótstæðilegt. Innihald: 4 Brallarahamborgarabrauð, 4 Brallarahamborgarar. A B X / S ÍA 9 0 2 1 3 5 9 Barnamyndatökur. Tilboð Kr. 6000 Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma, aðrar stækk- anir að eigin vali, með allt að 50% aflætti Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207 • www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími : 554 3020 • www.ljosmynd.is Passamyndatökur alla virka daga 21MIÐVIKUDAGUR 16. október 2002 BEVERLY HILLS, KALIFORNÍU, AP Leik- konan Winona Ryder lét ekki sjá sig fyrir dómstólum í gær á fyrs- ta degi réttarhalda yfir henni vegna ákæru um búðarhnupl. Fyr- ir vikið þurfti dómarinn í málinu að fresta réttarhöldunum um einn dag. Að sögn dómarans var Ryder fjarverandi vegna „óvenjulegra aðstæðna.“ Ryder, sem er þrítug, var hand- tekin 12. desember á síðasta ári fyrir utan fatabúð í Beverly Hills. Sökuðu öryggisverðir hana um að reynt að stela fötum að andvirði um 520 þúsund króna. Hún hefur ávallt neitað harðlega þeim ásök- unum. Ryder er meðal annars þekkt fyrir leik sinn í myndunum „Girl Interrupted“ og „Reality Bites.“  FÓLK „Aðeins nokkrum dögum eft- ir að Díana prinsessa lést í hörmu- legu bílslysi, rændi þjónn hennar tveimur kjólum og öðrum per- sónulegum munum frá heimili hennar í Lundúnum,“ sagði sak- sóknari sem sækir mál gegn Paul Burrell, fyrrverandi þjóni bresku konungsfjölskyldunnar, fyrir rétti í gær. Burrell þessi, sem Díana lýsti sem „klettinum í lífi sínu“, hefur verið sakaður um að ræna 300 hlutum frá bresku konungsfjöl- skyldunni. Hann neitar þó öllum sakargiftum. Meintur þjófnaður á að hafa átt sér stað frá janúar 1997 til júní 1998. Saksóknarinn segir að Burrell hafi komið seint um kvöld til vistaveru Díönu í Kensington höll stuttu eftir að hún lést í bílslysi þann 31. ágúst 1997. Lögreglumaður sem stöðvaði Burrell þegar hann var að yfir- gefa höllina segir að þjónninn hafi verið að fara yfir húsnæðið. „Hvers konar skyldur hafði mað- urinn?“ spurði saksóknari. „Að fara yfir vistaverur hennar klukk- an hálf fjögur um nótt?“ Lafði Sarah McCorquodale, systir Díönu, staðfesti seinna að ekki hefði verið hreyft við neinu í íbúðinni. Lögreglan leitaði á heimili Burrells í byrjun janúar árið 2001 og fundu þar hluti sem taldir eru vera úr fórum Díönu og fjöl- skyldu hennar. Í kjölfarið var hann handtekinn. Meðal hluta sem fundust var bréf frá drottning- unni til tengdadóttur sinnar og til Játvarðar prins.  U2: Fer á frímerki FRÍMERKI Írska rokksveitin U2 er stærsta hljómsveit heims og nú á að gefa út frímerki með henni. Salan á frímerkjunum hefst á föstudag en meðal annarra sem írska póstþjónustan ætlar að dreifa á frímerkjum eru Van Morrisson, Phil Lynott og Rory Gallagher. „Þetta tengir sveitirnar enn betur við aðdáendur,“ sagði Vivi- an Havey, yfirmaður írskra frí- merkja. „Aðdáendur vilja áreið- anlega koma höndum yfir merk- in.“  KLETTURINN Í LÍFI HENNAR Díana prinsessa sést hér með Paul Burrell sem hún lýsti sem „Klettinum í lífi hennar.“ Fyrrverandi þjónn Díönu prinsessu: Neitar öllum sakargiftum RYDER Winona Ryder var handtekinn þann 12. desember í fyrra fyrir búðarhnupl. Winona Ryder: Mætti ekki fyrir rétt TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Nick Cave hefur tilkynnt að hann muni gefa út nýja breiðskífu ásamt hljómsveit sinni The Bad Seeds snemma á næsta ári. Hún kemur til með að bera hið undarlega nafn „Nocturama“ og er formlegur út- gáfudagur hennar 3. febrúar. Þetta verður tólfta breiðskífa kappans frá því að hann hóf sóló- feril sinn árið 1984. Breiðskífan verður tíu laga og heitir fyrsta smáskífulag hennar „Bring it On“. Platan var hljóðrit- uð í Melbourne í Ástralíu, heima- landi Cave, á þessu ári. Allir fyrr- um samstarfsfélagar Cave, Mick Harvey, Blixa Bargeld, Thomas Wydler, Martyn Casey, Conway Savage, Jim Sclavunos og Warren Ellis leika á plötunni. Nick Cave gaf síðast út breið- skífuna „No More Shall We Part“ í fyrra.  Nick Cave: Ný breiðskífa í febrúar NICK CAVE Gaf út plötu í fyrra eftir að hafa gengið í gegnum þriggja ára ritstíflu. Virð- ist endurnærður á nýjan leik því von er á nýrri plötu í febrúar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.