Fréttablaðið - 16.10.2002, Side 22
22 16. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
HÚSIÐ
Heilsuverndarstöðin við Bar-ónsstíg var umdeild þegar
hún reis snemma á sjötta áratug
síðustu aldar. Teiknuð af Einari
Sveinssyni af miklum myndar-
brag og á köflum með glæsileg-
um tilþrifum. Hreinstefnumenn í
sjónmenntum töldu Einar vera á
villigötum og bygginguna alls
ekki í takt við módernisma þess
tíma. Einar mun hafa tekið þessa
gagnrýni mjög nærri sér enda
stoltur af eigin verki. Einar
teiknaði Heilsuverndarstöðina til
að gegna því hlutverki sem í
nafninu felst en hún var snemma
nýtt að hluta sem sjúkrahús og
hefur reyndar aldrei hýst að fullu
þá starfsemi sem til var ætlast.
Síðar teiknaði Einar Borgarspít-
alann í Fossvogi en áður hafði
hann teiknað fjölmarga skóla í
Reykjavík enda Húsameistari
borgarinnar; sá fyrsti og eini.
Einar teiknaði Vogaskóla, Mela-
skóla og Laugarnesskóla og er
einnig höfundur að Laugardals-
sundlauginni.
Köllun sem ekki
var hægt að flýja
Þegar ég varð sjálfur edrú upp-lifði ég snertingu almættisins
og fann þá strax köllun í mínu
lífi. Það sem við mig hafði verið
gert skyldi ég hjálpa öðrum að
eignast. Þetta var ákveðin köllun
sem ég get ekki flúið frá heldur í
mínu hjarta að gera. Ég legg mig
í líma við að hlýða því,“ segir
Guðmundur Jónsson, stofnandi
Byrgisins. Guðmundur opnaði
Byrgið í desember árið 1996, þá
fyrir tólf manns.
Guðmundur lenti í hrakning-
um með aðstöðuna og kom meðal
annars við í Hlíðadalsskóla, þar
sem hann var með aðstöðu fyrir
hundrað manns. Hann flutti í
Rockville árið 1999.
„Þá þurfti ég að úthýsa fjörtíu
manns því staðurinn var ekki til-
búinn á þeim tíma sem til var
ætlast. Það tafðist í rúmt ár að
gera hann kláran og á meðan
þurfti ég að koma fólkinu fyrir í
húsum hér og þar í Hafnarfirði.
Sumir vildu vinna við að koma
Rockville í gang og á tímabili var
ég með tuttugu manna vinnu-
hóp.“ Nú eru um áttatíu manns
búsettir í Byrginu og að sögn
Guðmundar er möguleiki á að
opna fyrir fleiri en til þess þarf
pening.
„Við höfum fengið um 40
milljónir frá ríkinu frá því við
opnuðum Rockville, sem hafa
farið í endurbætur. Byrgið sjálft
hefur ekki fengið nema 2,5 millj-
ónir í styrk frá ríkinu frá 1996.
Við höfum lifað á velvild ein-
staklinga og fyrirtækja og á því
sem íbúar greiða fyrir sig. Þeir
greiða 47 þúsund krónur á mán-
uði.“
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
hóf kennslu í Byrginu fyrir ári
síðan og þá voru þrír sem tóku
hluta námsins. Nú eru tuttugu
manns í námi sem geta valið úr
fjórum námsgreinum.
Guðmundur segir að það erf-
iðasta við starfið sé að afeitra
fólkið. „Það þarf gífurlega um-
önnun og það þarf stöðugt að
vera á vakt. En það mannlega
erfiðasta er að keyra þau af göt-
unni í þvott og heitt rúm. Því
maður þarf sjálfur að skipta um
föt þegar maður er búinn að vera
með þeim í tvo til þrjá tíma. Það
er það erfiðasta, að sjá hrylling-
inn á götunni og hvernig menn í
íslensku þjóðfélagi geta búið.“
kristjan@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
16. OKTÓBER
FÓLK Í FRÉTTUM
PERSÓNAN
Ég helli venjulega upp á kaffi áafmælinu mínu og kalla
kannski á frændfólk sem er til í að
koma. Það verður eitthvað lítið,
bara opið hús hjá mér eins og
gengur,“ segir Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, aðspurð hvort hún
ætli að halda upp á afmælið.
„Það er náttúrulega mikið að
gera núna. Þingið er á fullu og svo
er ég í prófkjörsundirbúningi
þannig að í nógu er að snúast. En
það er alltaf tími fyrir vini og fjöl-
skyldu, maður verður að gefa sér
tíma í það.“ Ásta segir ekki líklegt
að hún baki afmælistertu á af-
mælinu. „Það gæti verið að
tengdadóttir mín tilvonandi skelli
í köku fyrir mig. Hún er svo flink
að baka.“
Þegar Ásta er spurð um
minnisstæðan afmælisdag er hún
ekki lengi að nefna fimmtugsaf-
mælið sitt. „Stórafmælið mitt
þegar ég var fimmtug er mér
ákaflega eftirminnilegt. Ég hélt
það á Kjarvalsstöðum og það kom
ofboðslega margt fólk. Yfir 500
manns mættu. Það var mikið fjör
og dansað fram eftir nóttu. Skóla-
bræður mínir úr menntaskóla
voru með bítlahljómsveit og spil-
uðu fyrir mig. Það var alveg
geggjað og æðislegt fjör. En það
er náttúrlega ekki hægt að halda
svoleiðis á hverju ári, þó maður
vildi gjarnan hafa þannig fjör sem
oftast.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, alþingis-
maður, er 53 ára í dag. Hún ætlar að hella
upp á kaffi á afmælinu.
Afmæli
Tengdadóttirin
skellir í afmælisköku
JARÐARFARIR
13.30 Eiríkur J. B. Eiríksson, fyrrverandi
prentari, verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju.
13.30 Vigfús Helgason, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju
AFMÆLI
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, al-
þingismaður, er 53 ára gömul.
ANDLÁT
Gunnlaugur Magnússon, Rauðalæk 4,
lést 13. október.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, frá Sólbakka,
Grindavík, lést 13. október.
Lárus Sumarliðason, Garðvangi, Garði,
áður Aðalgötu 5, Keflavík, lést 13. októ-
ber.
Ingibjörg Pétursdóttir, Efstalandi 6,
Reykjavík, lést 12. október.
Anna Hjálmarsdóttir, Rofabæ 47, lést
11. október.
Sigríður Guðjónsdóttir, Egilsbraut 9,
Þorlákshöfn, lést 11. október.
Landshöfðingi tók formlega ínotkun síma árið 1890. Hann
hafði verið lagður milli Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Þetta var
fyrsta „málþráðarlagning“ hér á
landi.
Landakotsspítali í Reykjavíkvar formlega tekinn í notkun
árið 1902. St.
Jósefssystur
létu reisa
hann. Í Þjóð-
ólfi var sagt:
„Er það gleði-
legt að hér er komið á fót sjúkra-
hús er getur veitt sjúklingum öll
þægindi sem veitt verða.“
Marie Antoinette, áður Frakk-landsdrottning, var háls-
höggvin árið 1793, níu mánuðum
eftir að eiginmaður hennar, Loð-
vík sextándi var leiddur í fallöx-
ina. Þeim var steypt af stóli í
frönsku byltingunni sem hófst
árið 1789.
TÍMAMÓT
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Ólst upp í Hafnarfirði. Hann er giftur og á fjögur börn með konu sinni.
Fyrir átti hann þrjú börn.
Aukinn hiti í átökum um sæti áframboðslistum Sjálfstæðis-
flokksins og Samfylkingarinnar
speglast í að daglega spretta upp
nýir pólitískir vefir. Þingskör-
ungar í hópi kvenna sem nýlega
hafa opnað síður eru m.a. Sjálf-
stæðiskonurnar Ásta Möller og
Katrín Fjeldsted auk Samfylking-
arkvennanna Bryndísar
Hlöðversdóttur og Ástu R. Jó-
hannesdóttur.
Nýrri spámenn eru líka aðopna síður einsog Ágúst Ó.
Ágústsson, formaður Ungra Jafn-
aðarmanna og Björgvin G. Sig-
urðsson, þingmannsefni krata í
Suðurkjördæmi og fyrrum fram-
kvæmdastjóri Samfylkingarinn-
ar, sem opnaði harðpólitískan vef
á slóðinni bjorgvin.is. Þá er ótal-
inn hressilegur vefur Einars K.
Guðfinnssonar, þingmanns Vest-
firðinga, sem skefur ekki utan af
skoðunum sínum á ekg.is og
glöggir lesendur segja að hann
stefni greinilega að því að losa
Sturlu Böðvarsson flokksbróðir
sinn við áþján ráðherraembættis.
Sturla heldur uppi sínu vefsvæði
og reynir að verja stöðu sína, en
hann er að finna á sturla.is.
Ákvörðun Lárusar Orra Sig-urðssonar að segja sig frá
landsliðinu kom á óvart. Það var
vegna agabrota sem hann hætti.
Lárus Orri mun, ásamt nokkrum
félögum sínum í landsliðinu, hafa
haldið á vit gleðinnar eftir að
hafa tapað fyrir Skotum. Þeir
komu við á Thorvaldsen-bar þar
sem mikið bar á landsliðsmönn-
unum. Lárus Orri hélt einn gest-
anna vera þjón og þegar sá vildi
ekki taka við pöntun frá varnar-
manninum skvetti hann úr bjór-
glasi yfir saklausan gestinn.
Lárusi Orra var hent út. Sá sem
fékk bjórinn yfir sig ætlar ekki
að kæra, en sagði í samtali við
Fréttablaðið að Lárus hefði sýnt
manndóm í samskiptum við sig
eftir að vínið var runnið af hon-
um.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ís-
lenska landsliðið í knattspyrnu ætlar að
hefja leikinn gegn Litháum í kvöld með
látum - þó ekki drykkjulátum.
Leiðrétting
ÁSTA RAGNHEIÐUR
Fimmtugsafmælið er henni ákaflega
minnistætt. F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Guðmundur Jónsson er stofnandi Byrgisins. Hann fékk köllun frá
almættinu og segist ekki geta skorast undan því.
Verjandinn: Geturðu lýst þeimsem þú sást?
Vitnið: Um 1.70 á hæð og með
skegg.
Verjandinn: Var þetta karlmaður
eða kona?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI