Fréttablaðið - 16.10.2002, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 16. október 2002
FÓLK Í FRÉTTUM
HEIMILDAMYND Í dag frumsýnir
Bíófélagið 101 í Regnboganum
heimildamyndina „Hljóðlát
sprenging“ eftir Þór Elís Pálsson.
Í myndinni er fylgst með síðustu
tíu árum í listaferli Magnúsar
Pálsson. Gunnar J. Árnason list-
heimsspekingur vann handritið
með Þór.
„Hann er í rauninni eitt af
stærstu nöfnum okkar í nýlist-
inni,“ segir Þór um Magnús.
„Hann kemur fyrst fram á sjónar-
sviðið árið 1967 þegar hann hélst
fyrstu sýningu sína í Ásmundar-
sal. Hann hefur síðan verið mikið
hreyfiafl í myndlistinni. Hann
hefur síendurtekið komið mönn-
um á óvart, en jafnframt slegið í
gegn, þrátt fyrir að verk hans hafi
oft og tíðum verið afar umdeild.
Hann fer aldrei troðnar slóðir og
leitar sífellt nýrra leiða til að tjá
hugsun sína. Efniviðurinn í verk-
um hans þjónar fyrst og fremst
hugmyndinni.“
Þegar spurt er um frekari
ástæður þess að Þór ákvað að
gera heimildamynd um fyrrum
lærimeistara sinn slær hann á
léttari strengi. „Ég hef gert heim-
ildarmyndir um Magnús Tómas-
son og Magnús Kjartansson. Þetta
er þríleikur Magnúsa og Magnús
Pálsson verður síðasti Magnúsinn
sem ég tek fyrir.“
Þór byrjaði að skjóta efni fyrir
myndina fyrir 10 árum. „Það stóð
til í upphafi að fylgja honum eftir
í minnsta kosti 5 ár. Af reynslu
minni af fyrri myndum veit ég að
það gerir efnið mun áhugaverðara
og skemmtilegra að fylgjast með
mönnum í lengri tíma. Svo teygð-
ist á þessu meðal annars vegna
þess að ég bjó erlendis um tíma.
Þetta urðu því óvart 10 ár. Ég er
mjög feginn í dag vegna þess að
hann hefur aldrei verið betri en
síðast liðin ár.“
Endanleg útgáfa heimildar-
myndarinnar er um klukkustund
að lengd. Þór segir að mikið magn
hafi verið af góðu efni til að velja
úr og því afar erfitt verk að klip-
pa myndina. „Það var mjög erfitt.
Ég var á tímabili kominn með
mjög góða 90 mínútna mynd.“
Myndin var framleidd af Hvíta
fjallinu - Niflungum ehf. í sam-
vinnu við Sjónvarpið.
Myndin verður sýnd í Regn-
boganum í eina viku.
biggi@frettabladid.is
Bíófélagið 101 frumsýnir í dag „Hljóðláta
sprengingu“, nýja íslenska heimildarmynd
um myndlistarmanninn Magnús Pálsson eftir
Þór Elís Pálsson. Myndin hefur verið 10 ár í
framleiðslu.
10 ár í lífi
Magnúsar
Pálssonar
MAGNÚS PÁLSSON
Fylgst er með síðustu tíu árum af myndlist-
arferli Magnúsar í myndinni.
NEF
Eitt af verkum Magnúsar.
Jakob Frímann Magnússonvirðist ætla að fara af miklum
krafti í prófkjörsbaráttuna hjá
Samfylkingunni í
Reykjavík. Hann
hefur nú ráðið
Gunnar Stein Páls-
son almanna-
tengslagúru sér til
aðstoðar og nýtur
þar að auki hjálpar
Ingvars Sverris-
sonar. Báðir hafa þeir komið að
kosningabaráttu Reykjavíkur-
listans með góðum árangri. Jak-
ob hefur enn ekki gefið upp á
hvaða sæti hann stefnir. Það hef-
ur þó verið sterklega orðað að
hann íhugi að stefna á annað
sætið. Láti hann verða af því
leggur hann til atlögu við þær
Bryndísi Hlöðversdóttur og Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Orrusta
sem fæstir myndu leggja í. Stuð-
maðurinn Jakob hefur þó áður
komið á óvart.
Það hefur vakið athygli sumrahvað andstæðingar stóriðju-
framkvæmda endast lengi við
mótmæli sín á Austurstræti. Þau
hafa nú staðið í sex vikur. Hóp-
urinn er þó ekki stór. Einar K.
Guðfinnsson leggur út af því á
heimasíðu sinni. Segir það til
marks um að andstaðan fari
minnkandi þótt hópurinn hafi
notið velvilja fjölmiðla sem hafi
veitt honum mikla athygli.
OTTAWA, AP Elísabet Englands-
drottning lauk í gær 12 daga
heimsókn sinni til Kanada.
Skömmu fyrir brottför fékk hún
blóm frá hópi barna áður en hún
veifaði til almennings. Heim-
sókn Elísabetar til Kanada var
hluti af hátíðarhöldum hennar í
tilefni af 50 ára veru hennar í
embætti. Elísabet fór víða í
heimsókninni. Skoðaði hún með-
al annars minnisvarða í landinu
og sleppti pökknum lausum við
upphaf sýningarleiks í íshokkíi,
sem haldinn var í borginni
Vancouver.
Drottningin er táknrænn yfir-
boðari í Kanada, en landið var
áður hluti af breska heimsveld-
inu. Þrátt fyrir að flestir Kana-
dabúar kæri sig kollóttan um
breska konungsveldið fagnaði
drottningunni múgur og marg-
menni hvert sem hún fór. Þetta
var 20. heimsókn Elísabetar til
Kanada.
Elísabet Englandsdrottning:
Heimsókn til
Kanada lokið
ELÍSABET
Elísabet Englandsdrottning heilsar aðdáendum eftir að hún gróðursetti tré við Rideau Hall
í Ottawa.
AP
/M
YN
D JOAN COLLINS GEFUR ÚT BÓK
Þessi ljósmynd var tekin af leikkonunni
Joan Collins í London á dögunum. Hún var
að gefa út bókina, „Joan’s Way“, sem hún
heldur á. Bókin gefur konum ráð um
hvernig þær geti viðhaldið fegurð sinni og
betrumbætt lífsstílinn.