Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 2
2 21. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR DÓMSMÁL Maður fæddur árið 1976 hefur verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðis- brot gegn þremur stúlkum. Fimmtán mánuðir eru skilorðs- bundnir í þrjú ár og því mun maðurinn þurfa að sitja inni í þrjá mánuði. Maðurinn misnotaði hálfsyst- ur sína, sem er fædd 1982, nokkrum sinnum kynferðislega á tímabilinu frá 1992 til 1996. Þá misnotaði hann fimm ára gamla stúlku á árunum 1994 til 1995 og átta ára stúlku árið 1995. Hann mun hafa afklætt stúlkurnar í einhverjum tilfellum, káfað á kynfærum þeirra og haft sam- farir við eina þeirra. Auk fangelsisrefsingar var maðurinn dæmdur til að greiða hálfsystur sinni 700 þúsund krónur í miskabætur, en hún fór fram á 1,8 milljón. Stúlkunni fæddri 1989 ber honum að greiða 200 þúsund, en hún fór fram á 800 þúsund, og stúlkunni fæddri 1987 skal hann greiða 500 þúsund, en hún fór fram á 1,5 milljónir króna. Við ákvörðun refsingar var litið til þess hversu ungur mað- urinn var þegar brotin voru framin. Enn fremur að hann er nú tæplega 26 ára gamall og hef- ur verið í sambúð með konu um nokkurra ára skeið og á með henni nokkurra mánaða gamalt barn. ■ Misnotaði þrjár stúlkur kynferðislega: Situr inni í þrjá mánuði HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Maðurinn misnotaði hálfsystur sína, sem er fædd 1982, nokkrum sinnum kynferðis- lega á tímabilinu frá 1992 til 1996. Landsleikur: Ísland lá í snjónum FÓTBOLTI Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 2-0 fyrir Eistum í Tallinn í gær. Leikurinn fór fram við mjög erfiðar að- stæður, en mikil snjókoma var í Eistlandi og völlurinn snævi þakinn. Eistar náðu forystunni á 75. mínútu og innsigluðu sigurinn á þeirri 84. Íslendingar áttu skalla í stöng í fyrri hálfleik og hefðu átt að fá vítaspyrnu þegar Tryggvi Guðmundsson var felld- ur rétt innan vítateigs. Dómar- inn taldi brotið hafa verið utan teigs. ■ BAGDAD, AP Írösk stjórnvöld hafa samþykkt möglunarlaust að vopnaeftirlit Sameinuðu þjóð- anna fái að skoða svonefndar forsetalóðir, sem vopnaeftirlitið hafði ekki nema takmarkaðan aðgang að á síðasta áratug. Yfirmenn vopnaeftirlits Sam- einuðu þjóðanna leggja mikla áherslu á að fá Íraka til sam- starfs við sig með góðu í stað þess að hóta stríði um leið og hnökra verður vart. Hans Blix kom í gær til Kýp- ur ásamt Mohamed El Baradei, yfirmanni Alþjóðlegu kjarn- orkustofnunarinnar. Þeir dvöldu þrjá daga í Írak til þess að undir- búa vopnaeftirlitið, sem á að hefjast 27. nóvember. El Baradei segir að á það verði að reyna hvort Írakar standi við loforð sín um að veita vopnaeftirlitinu allar upplýsing- ar. Það komi hins vegar ekki í ljós fyrr en vopnaeftirlitið hefst fyrir alvöru. Þeir Blix og El Baradei gáfu Írökum vonir um að ef þeir sýndu vopnaeftirlitinu fulla samvinnu gæti vopnaeftirlitið hugsanlega gefið Öryggisráðinu skýrslu eftir um það bil eitt ár um að Írakar hafi fullnægt þeim skilyrðum sem sett hafa verið fyrir því að refsiaðgerðum Sam- einuðu þjóðanna verði aflétt. ■ Í LANDI SADDAMS Þessi maður hefur þann starfa að mála myndir af Saddam Hussein og hefur nóg að gera. Vopnaeftirlitið í Írak: Fær óheftan aðgang að forsetalóðunum EFNAHAGSMÁL „Þetta er skref í átt- ina,“ segir Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Ís- lands, um ákvörðun ríkisstjórnar- innar að hækka almannatrygg- ingar á næsta ári. Mikilvægust fannst honum ákvörðunin að hverfa frá 67% skerðingu tekju- tryggingaraukans. Garðar segist hafa átt von á að ríkisstjórnin hefði séð sér fært að færa megin bótaflokkana til jafns við þróun launa, í ljósi þess að næsta ár sé ár fatlaðra. „Hvað varðar þá aðferð sem farin er við að setja mestu hækk- unina á tekjutryggingaraukann þá er þetta sá bótaflokkur sem fæst- ir fá og mest skerðist. Þessar krónur sem verið er að tala um skila sér ekki vegna raunlækkun- ar skattleysimarka,“ segir Garðar og bætir við að öryrkjar sem ekk- ert hafi nema almannatryggingar þurfi að borga u.þ.b. 130.000 krón- ur í skatta á ársgrundvelli eða hátt á annan milljarð til viðbótar því sem var árið 1995. „Það hleypur á milljörðum sem farið er að taka af lífeyris- þegum í landinu vegna óeðlilegr- ar þróunar skattleysismarka. Sú þróun skiptir miklu fyrir laun þeirra allra lægst settu og bilið milli okkar fólks og láglaunafólks hefur vaxið gríðarlega. Það mun- ar um minna þegar byrjað er að taka tæplega 40% skatt um leið og menn eru komnir fram yfir 67.000 krónur á mánuði eins og ráðgert er á næsta ári. Þetta hef- ur gríðarleg áhrif á kaupmátt ör- yrkja. Það gildir einu fyrir okkur hvort skattleysismörk eru hækk- uð eða fólki er bætt þetta þannig að það hafi efni á því að borga skattinn. Þetta er mjög nýstárleg- ur tekjustofn sem ríkisstjórnin hefur fundið í öryrkjum,“ segir Garðar. Hann segir þessa 1,6 milljarða sem fara eigi í almann- atryggingar tölur á blaði. Einung- is um tveir þriðju upphæðarinnar komi til greiðslu úr ríkissjóði. Garðar segir að þrátt fyrir að teflt sé á tæpasta vað gagnvart núgildandi lögum, sem kveða á um að þróun bóta taki mið af launaþróun í landinu, skipti máli að með ákvörðun ríkisstjórnar- innar um hækkun almannatrygg- inga sé komið til móts við ör- yrkja. Gjáin milli sjónarmiða fari minnkandi. kolbrun@frettabladid.is Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir ákvörðun ríkisstjórnar um hækkun almannatrygginga skref í áttina. Hann segir stór- an hluta hækkunarinnar ekki skila sér vegna lækkunar skattleysismarka. Framlag ríkisins tölur á blaði GARÐAR SVERRISSON Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir að það hlaupi á milljörðum sem tekið sé af lífeyrisþegum vegna óeðlilegrar þróunar skattleysismarka. BÓNUS Við lambalærastuldinn var maðurinn í slagtogi við rúmlega þrítugan mann. Sá hefur ekki fundist þrátt fyrir handtökuheimild og ítrekaða leit lögreglu. Dæmdur í árs fangelsi: Stal 5 lærum úr Bónusi DÓMSMÁL Tuttugu og þriggja ára karlmaður var dæmdur í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Reykja- ness í gær. Maðurinn var m.a. dæmdur fyrir að stela 5 lamba- lærum úr verslunin Bónuss við Smáratorg. Verðmæti læranna var um 10 þúsund krónur. Við lambalærastuldinn var maðurinn í slagtogi við rúmlega þrítugan mann, en sá hefur ekki fundist þrátt fyrir handtökuheim- ild og ítrekaða leit lögreglu. Ungi maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hafa brotist inn í bifreið á bifreiðaverkstæði við Hlíðahvamm í Kópavogi og stolið þaðan geislaspilara af gerðinni Blaupunkt, tösku og 15 geisladisk- um, samtals að verðmæti 50 til 60 þúsund krónur. Þá var hann einnig dæmdur fyrir að stela tveimur bílum á tveimur dögum í október. Í öðru tilfellinu lenti hann í umferðaróhappi. Maðurinn hefur þrisvar áður hlotið dóm, fyrst árið 1997. Í júlí var honum veitt reynslulausn eft- ir að hafa afplánað 12 mánuði af 26 mánaða refsingu. Með brotun- um sem ákærði er nú sakfelldur fyrir hefur hann rofið skilorð. ■ Fjórir menn um tvítugt dæmdir: Kefluðu búðarkonu DÓMSMÁL Fjórir menn um tvítugt hafa verið dæmdir í 4 til 9 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölda afbrota á 10 mánaða tím- bili. Tveir höfðu áður hlotið dóm. Þann 24. febrúar rændu tveir þeirra verslunina Sparkaup við Stigahlíð. Þeir þóttust vera starfsmenn gosdrykkjaverk- smiðju og fengu þannig starfs- mann verslunarinnar niður í kjallara. Þar veittust þeir að henni, bundu hana og settu lím- band fyrir munn hennar. Höfðu þeir rúmar 70 þúsund krónur upp úr krafsinu. Í janúar stálu þeir fartölvu úr íbúð í Hafnarfirði. Nokkrum dög- um síðar brutust þeir inn í skrif- stofu meðferðarheimilis við Ár- velli á Kjalarnesi. Stálu þeir tveimur tölvum, myndbandstöku- vél og lyfjum, alls að verðmæti um 300 þúsund krónur. Í mars rændu þeir 5 þúsund krónum í versluninni 10-11 við Sporhamra og í júní reyndi einn fjórmenninganna að nota falsað- ann 5 þúsund króna seðil á skemmtistaðnum Vegas. ■ Íslensk erfðagreining: Nýr samningur VIÐSKIPTI Íslensk erfðagreining og bandaríska lyfjafyrirtækið Wyeth hafa skrifað undir samning um rannsóknir í lyfjaerfðafræði. Erfðagreining mun sjá um rann- sóknir á virkni erfðavísa í tengsl- um við þróun Wyeth á nýju lyfi gegn ákveðnum öndunarfæra- sjúkdómi. Vonast er til að niður- stöðurnar megi nota til að velja sjúklinga í klínískar prófanir á lyfinu. Ekki var greint frá fjár- hagshlið samningsins. ■ Eggert Magnússon, formaður KSÍ, vegna 2-0 taps íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrir Eistum í Tallinn í gær. Völlurinn var snævi þaktur og snjó- koma nánast allan leikinn. Við lögum okkar keppnistímabil hér á Ís- landi að þeim tíma þegar enginn snjór er. Ætli við séum nokkuð vanir því að spila í snjó. SPURNING DAGSINS Eru Íslendingar svona lélegir í snjó? FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.