Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 21. nóvember 2002 Þýska sjónvarpið: Sýnir grínmynd um Göbbels KVIKMYNDIR Gamanmynd um nas- istann Jósef Göbbels verður sýnd í þýsku sjónvarpi innan skamms, þrátt fyrir fyrir að hún muni eflaust rífa upp gömul sár einhverra Þjóðverja. Myndin var gerð fyrir tveimur árum, en hefur einungis verið sýnd á kvikmyndahátíðum hing- að til. Myndin segir frá gyðingn- um Harry Gedulding, sem er tvífari Göbbels. Það endar með því að Harry læst vera Göbbels meðan hinn rétti Göbbels hírist í fangabúðum nasista. Lengi vel var allt efni sem tengdist heimsstyrjöldinni síðari ekki til umfjöllunar í Þýskalandi, hvað þá í grín- þáttum. Grínmynd um Göbbels hefði fyrir nokkrum árum verið óhugsandi, en ungum leikstjór- um þykir viðfangsefnið heill- andi og reikna með að Þjóðverj- ar séu að jafna sig á fortíðinni.■ KVIKMYNDIR Mynd Hal Hartley, Monster, sem nú er sýnd í íslensk- um kvikmyndahúsum, hefur feng- ið misjafna gagnrýni. Myndin var tekin upp fyrir tveimur árum. Það var Íslenska kvikmynda- samsteypan hf. sem upphaflega kostaði gerð handrits Monster en síðar kom Francis Ford Coppola að framleiðslunni. Coppola og Friðrik Þór Friðriksson framleiða myndina því saman. Í myndinni segir frá ungri bandarískri konu sem kemur til Íslands þeirra erinda að leita að horfnum sambýlismanni. Fyrir hittir hún hins vegar íslenskt skrímsli sem mun hafa sálgað ást- manninum. Þau fara saman til New York. Friðrik Þór segir myndina, sem gerist á Íslandi og í New York, hafa gengið þokkalega í Banda- ríkjunum. Íslenska kvikmynda- samsteypan tapi ekki á þátttök- unni. „En hryðjuverkin 11. septem- ber breyttu miklu fyrir myndin. Í henni er fjallað um hryðjuverk eins og þau séu orðin daglegt brauð. Það þótti ekki alveg heppi- legt í fyrrahaust. En þetta er nú eiginlega gamanmynd,“ segir Friðrik. ■ Monster galt fyrir 11. september: Hryðjuverk í gamanmynd þóttu óheppileg SKRÍMSLIÐ FRÁ ÍSLANDI Fellur tæplega að íslenskri skrímslahefð, segir Þorvaldur Friðriksson skrímslafræðingur. Í mynd Hal Hartley segir frá ungri bandarískri konu sem kemur til Íslands að leita að horfnum sambýlismanni. Myndin hefur fengið misjafna dóma.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.