Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 29
29FIMMTUDAGUR 21. nóvember 2002 Thymematernity Verslun fyrir barnshafandi konur Hlíðasmára 17 S:575-4500 Sendum í póstkröfu um allt land. Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18 Laugardaga frá kl: 11-16 Thymematernity auglýsir Frábær tilboð á tilboðsslánni..verð frá 500 kr.- 20% afsláttur af skyrtum og peysum fimmtudag, föstudag og laugardag. Svörtu buxurnar komnar Nýjar vörur Munið gjafakortin vinsælu….frábær jólagjöf. strand og farið í klessu, einmitt þegar maður var sem skyn- samastur.“ Vorhreingerningarnar Björk er ekkert að leyna því að henni finnst leiðinlegt að líta um öxl. Hún kýs helst að troða nýja stigu endalaust áfram á vit nýrra ævintýra. Hún segir að undirbún- ingsvinnan fyrir nýju safnplötuút- gáfurnar hafi reynst henni erfið en lærdómsrík. Hún fór t.d. í gegnum meira en 100 upptökur af mismun- andi tónleikum. „Ég var búin að elta eðlisávís- unina mjög sterkt og búin að fara alltaf áfram á þrjú þúsund kíló- metra hraða. Það var svo margt sem ég hafði aldrei haft tíma til þess að gera, eins og að gefa út hljómleikaupptökurnar með Brod- sky-kvartettnum. Þetta var svona vorhreingerning, allt sem ég hafði trassað. Fólk var búið að kvabba í mér í mörg ár, af hverju hitt og þetta var ekki komið út og svona. Það var mjög góð tilfinning að vera búin að þessu. Ég hef sagt við fólk að háaloftið sé mjög hreint núna, allt í kössum með slaufum og mjög vel merkt.“ Útkomuna er að heyra í safn- kassanum „Family Tree“, þar sem Björk og vinkona hennar Gabríela Friðriksdóttir hafa hreinlega kort- lag tónlistarævintýri Bjarkar og hólfaskipt sköpunargáfu hennar í fjóra hluta. Björk fór síðan þá leið að láta aðdáendur sína velja lögin á Greatest Hits safnplötuna og efndi af því tilefni til kosninga á heima- síðu sinni. „Áður en það var gert var ég í krísu. Plötufyrirtækin vildu nátt- úrulega velja lögin sem höfðu selst mest. Ég trúði því ekki að ég hefði unnið eins og brjálæðingur í 10 ár og það eina sem sæti eftir væri „kóverversion“ af „It’s Oh So Quiet“. Ég sem þóttist hafa verið í heilagri baráttu við úrelta tónlist. Að trúa því að bestu lögin séu enn óskrifuð. Það að aðdáendur manns trúi því með manni er nú ekki leiðinlegt. Ég var þess vegna ofsa- lega hamingjusöm þegar það var númer 16 og ég gat sleppt því að hafa það með.“ Og nú þegar háaloftið er hreint og annað afkvæmið komið í heim- inn veit Björk í fyrsta skiptið í 5 ár ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. „Það er ofboðslega góð tilfinn- ing að vera með allt tómt. Ég get byrjað alveg upp á nýtt og von- andi er ég búin að læra af mistök- unum. Nú hef ég greiðari aðgang að þeim hliðum í mér sem mér finnst skipta máli. Ég er spennt- ust fyrir því að vita ekkert hvað ég ætla að gera. Ég vakna á morgnana og veit ekkert hvernig lag ég sem þann daginn.“ biggi@frettabladid.is FAMILY TREE BOXIÐ Björk gaf nýverið út 5 diska boxið Family Tree. „Það er fyrir tónlistarnörda sem nenna að standa í svoleiðis. Ég reyni þar að komast að því hvernig ég fór að því að komast á að semja þessi lög. Þarna eru t.d. prufuupptökur af flautulagi sem ég samdi þegar ég var 15 ára og fyrstu upptökurnar sem ég gerði með „elektrónískum bítum“. Ég er að reyna að segja sögu laganna og hvernig ég fann minn karakter“. Japönsk dúkkugerð: Óttast að brjóta á Beckham Japanskt fyrirtæki hefur fram- leitt dúkkur sem líkjast eiga David og Victoriu Beckham með son sinn Romeo. Japanirnir segjast ekki þora að hafa dúkkurnar „of líkar“ Beck- ham-hjónunum af ótta við málaferli vegna höfundaréttarbrots á ímynd hjónanna. Beckham-dúkkurnar eru fram- leiddar í tilefni árlegs „stúlkna- dags“ í mars. ■ BECKHAM Á JAPÖNSKU Japönsku Beckham-dúkkurnar framan við heimili fjölskyldunnar, „Beckingham-höll“.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.