Fréttablaðið - 21.11.2002, Blaðsíða 6
6 21. nóvember 2002 FIMMTUDAGUR
RANNSÓKN „Læknafélagið veit ekk-
ert um þennan sjóð. Lífeyrissjóður
lækna er algjörlega ótengdur þess-
um sjóði og er í vörslu Íslands-
banka,“ segir Sigurbjörn Sveins-
son, formaður Læknafélags Ís-
lands, um þrot Tryggingasjóðs
lækna.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að sjóðurinn, sem er séreigna-
sjóður lækna, væri í uppnámi eftir
að sjóðstjóri játaði á sig fjárdrátt
en sagðist jafnframt hafa endur-
greitt 27 milljónir. Nú virðist kom-
ið á daginn að þessi lífeyrissparn-
aður sé þeim læknum sem greiddu
glataður. Um er að ræða milljóna
króna tjón hjá þeim læknum sem
mestu tapa. Talið er að allt að 100
milljónum króna hafi gufað upp og
rannsakar lögregla nú með hvaða
hætti slíkt hafi gerst. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins má
rekja hluta af rýrnun sjóðsins til
þess að úr honum var lánað
óvenjuhátt hlutfall af brunabóta-
mati húseigna. Sjóðstjórinn fyrr-
verandi viðurkenndi í vor að hafa
blekkt bæði stjórn sjóðsins og end-
urskoðanda með því að leggja
fram falsaða pappíra. Hann býr nú
í Bandaríkjunum.
Fréttablaðið hefur árangurs-
laust reynt að ná sambandi við
Þorstein Gíslason, stjórnarfor-
mann Tryggingasjóðs. ■
Tryggingasjóður lækna í þrot:
Læknafélagið segist
koma af fjöllum
Meint tilraun til að
nauðga unglingsstúlku:
Sleppt
úr haldi
LÖGREGLUMÁL Manni sem grunað-
ur var um að hafa áreitt tvær
unglingsstúlkur í úthverfi
Reykjavíkur hefur verið sleppt
úr gæsluvarðhaldi. Eins og
Fréttablaðið greindi frá var mað-
urinn hnepptur í gæsluvarðhald í
viku eftir að 14 ára stúlka hafði
lýst því að hann reyndi að nauðga
henni þar sem hún dvaldi nætur-
langt á heimili hans, en fóstur-
dóttir mannsins er vinkona
stúlkunnar. Önnur stúlka bar að
maðurinn hefði áreitt sig kyn-
ferðislega þótt ekki hefði verið
um eins gróft atvik að ræða.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
Lögreglunni í Reykjavík, vildi
ekkert um það segja hvort hinn
grunaði hefði játað á sig sakir.
„Það var ekki ástæða til að
halda manninum lengur,“ sagði
Sigurbjörn.
Rannsókn málsins stendur enn
og er verið að yfirheyra ung-
lingsstúlkur í hverfinu. Stúlkan
sem lýst hefur nauðgunartilraun
mannsins hefur verið stopult í
skóla eftir atvikið, sem varð fyr-
ir 10 dögum síðan. ■
LÖGREGLUM Rannsóknarlögreglu-
menn á Keflavíkurflugvelli hafa
yfirheyrt þrjá menn vegna
meints misferlis innan Sölu-
nefndar varnarliðseigna og eru
þeir allir með réttarstöðu grun-
aðs manns.
„Einn mannanna var starfs-
maður Sölunefndarinnar, einn
starfaði hjá Varnarliðinu og svo
er þarna bandarískur hermaður,“
sagði Jóhann Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflug-
velli, en varðist að öðru leyti
allra frétta af gangi rannsóknar-
innar, sem er á frumstigi.
Íslendingarnir hafa báðir ver-
ið leystir frá störfum sínum og
bandaríska hermannsins bíða
ekki blíðar móttökur yfirmanna
reynist hann sekur: „Bandaríski
herinn er mjög strangur í þessum
efnum ef sekt sannast,“ segir
sýslumaðurinn og má hermaður-
inn eiga von á því að vera rekinn
úr hernum með skömm og honum
öll sund lokuð þar um alla fram-
tíð.
Að sögn Alfreðs Þorsteinsson-
ar, forstjóra Sölunefndarinnar, er
þetta í fyrsta sinn sem mál af
þessu tagi kemur upp í 50 ára
sögu Sölunefndarinnar.
Mennirnir sem við sögu koma
eru grunaðir um að hafa selt í það
minnsta tvær bifreiðar og einn
tjaldvagn fram hjá sölukerfi
Sölunefndarinnar. ■
Fisksali dæmdur
í Shanghaí:
Seldi
fisk í
formalíni
SHANGHAÍ, AP Wang Qiang, fisksali
í Shanghaí, hefur verið dæmdur í
átján mánaða fangelsi fyrir að
nota lífshættulegt eiturefni til
þess að láta fiskinn líta betur út.
Wang var handtekinn 7. mars
eftir að upp komst að hann bar
formalín á fiskinn í búðinni. Hon-
um þótti formalínið gefa fiskinum
svo fallegan gljáa að hann yrði
mun söluvænni fyrir vikið.
Formalín er meðal annars not-
að til þess að varðveita lífsýni og
til þess að þrífa gróðurhús.
Ekki er talið að neinn hafi beð-
ið tjón af þessu uppátæki fisksal-
ans. ■
Slakað á umdeildu
banni í Singapore:
Tyggjó fáan-
legt gegn
lyfseðli
SINGAPORE, AP Bandaríkin og
Singapore hafa gert með sér við-
skiptasamning sem þykir marka
tímamót. Ekki síst vekur athygli
að stjórnvöld í Singapore hafa
slakað á tíu ára gömlu banni við
notkun tyggigúmmís.
Nú mega þeir, sem sannanlega
þurfa, nota sykurlaust tyggjó - en
þó því aðeins gegn lyfseðli frá
lækni eða tannlækni. Enda verður
þessi vara eingöngu seld í lyfja-
búðum.
Bann hefur verið í gildi frá
1992 við því að flytja inn eða selja
tyggigúmmí í Singapore. Rökin
voru þau að erfitt væri að þrífa
tyggjóklessur af götum. ■
FÍKNIEFNI Á NESKAUPSTAÐ
Fíkniefni fundust við húsleit á
Neskaupstað á þriðjduagskvöld.
Auk þess var lagt hald á áhöld til
neyslu. Um var að ræða óveru-
legt magn af kannabisefnum.
Málið telst upplýst.
FIMMTÁN FÍKNIEFNAMÁL Í
KEFLAVÍK Tæplega fimmtán
fíkniefnamál eru til rannsóknar
hjá lögreglunni í Keflavík. Guð-
mundur Baldursson fíkniefna-
lögreglumaður sagði í samtali
við Víkurfréttir málin tilkomin
af götuafskiptum lögreglu-
manna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Misferli í Sölunefnd varnarliðseigna:
Bandarískur her-
maður undir grun
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Þrír menn eru grunaðir um misferli innan Sölunefndar varnarliðseigna. Einn þeirra er
bandarískur hermaður sem búast má við að verða rekinn með skömm ef sök sannast.
FASTEIGNAMARKAÐUR 17% Íslend-
inga hyggjast kaupa húsnæði
næsta árið ef marka má niðurstöð-
ur úr skoðanakönnun Gallup sem
gerð var fyrir Íbúðalánasjóð. Fyr-
ir ári síðan var sambærileg tala
26%, en 18% aðspurðra höfðu fest
kaup á húsnæði síðustu 12 mánuði.
Guðrún Árnadóttir, formaður
Félags fasteignasala, sagðist ekki
vera búin að kynna sér niðurstöð-
ur könnunarinnar. „Hins vegar er
alltaf erfitt að spá fyrir um þróun
á fasteignamarkaði,“ segir
Guðrún. Hún bendir á að fyrir ári
var spáð 10% samdrætti á fast-
eignamarkaði. „Raunin er hins
vegar sú að við sjáum 20% aukn-
ingu á þessu ári miðað við árið í
fyrra. Árið í ár er næstbesta ár frá
upphafi samkvæmt tölum frá
Fasteignamati ríkisins.“ Verð fast-
eigna hefur verið mjög stöðugt að
undanförnu. Húsnæðisliður vísi-
tölu neysluverðs hefur þó hækkað
meira en vísitala án húsnæðis.
Guðrún segir að skýra megi þá
hækkun með hækkun á minna hús-
næði. „Það getur alltaf orðið
ákveðin mettun á þessum mark-
aði, en við teljum að fremur bjart
sé framundan,“ segir Guðrún.
Hún bendir á að þrátt fyrir að
hægt hafi á í efnahagslífinu sé
margt sem bendi til þess að virkj-
unarframkvæmdir muni hafa
áhrif á væntingar folks í nánustu
framtíð. Hliðaráhrifin af slíkum
framkvæmdum geti haft góð áhrif
á fasteignamarkaðinn.
Guðrún segir að þó árið í ár
hafi verið fjörugt á fasteigna-
markaðnum sé það ekkert í lík-
ingu við árið 2000 þegar verð aug-
lýstra eigna úreltist á einni viku.
„Umhverfið í dag er miklu stöð-
ugra. Það er betra fyrir alla í fast-
eignaviðskiptum: fasteignasala,
kaupendur og seljendur fast-
eigna.“ Hún segir að fasteigna-
markaðurinn hafi verið líflegur
allar götur frá árinu 1998.
Guðrún segir að félag fast-
eignasala hafi ekki staðið fyrir
markaðsrannsóknum og einstakar
fasteignasölur hafi ekki bolmagn í
slíkt. „Við höfum bara tekið því
sem að höndum ber. Efnahags-
ástandið er viðunandi. Ég á frekar
von á því að næsta ár verði svipað
en nú. Ef það hægir á markaðnum
má gera ráð fyrir að það vari
stutt.“
Í úrtaki Gallup voru 1200
manns og var svarhlutfallið tæp
70%.
haflidi@frettabladid.is
Árið í ár er næst-
best í fasteignasölu
Ef marka má nýja könnun Gallup fyrir Íbúðalánasjóð má búast við að að-
eins hægi á fasteignasölu á næstunni. Árið í ár er hins vegar orðið næst-
besta ár í fasteignasölu frá upphafi. Verð fasteigna er nokkuð stöðugt.
GOTT ÁR
Fasteignasalar eru bjartsýnir á framhaldið. Guðrún Árnadóttir, formaður Félags fasteigna-
sala, segir að þrátt fyrir um 10% samdrátt hafi fasteignaviðskipti aukist um 20%.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Sala ríkisbankanna hefur
verið mikið í umræðunni
að undanförnu. Hvað heitir
formaður Einkavæðingar-
nefndar?
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að hækka almannatrygg-
ingar á næsta ári. Hversu
hárri upphæð verður varið
til þess?
Heimsfrægur söngvari sem
staddur var í Berlín
hneykslaði alla þegar hann
lyfti barni sínu yfir handrið
svala. Hver er var það?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.83 1.08%
Sterlingspund 135.08 0.22%
Dönsk króna 11.57 -0.01%
Evra 85.93 -0.03%
Gengisvísitala krónu 12,86 0,51%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 276
Velta 1.945 m
ICEX-15 1324 0,66%
Mestu viðskipti
Skeljungur hf. 482.454.637
Grandi hf. 153.752.747
Flugleiðir hf. 114.781.057
Mesta hækkun
Nýherji hf. 10,00%
SR-Mjöl hf. 6,25%
Sláturfélag Suðurlands svf. 4,35%
Mesta lækkun
Íslenska járnblendifélagið hf. -20,00%
SÍF hf. -4,43%
Kögun hf. -2,22%
ERLENDAR VISITÖLUR
DJ*: 8531,4 0,7%
Nsdaq*: 1400,5 1,9%
FTSE: 4093,3 -0,1%
DAX: 3156,7 -1,6%
Nikkei: 8459,6 1,1%
S&P*: 902,3 0,6%
Samfylkingin:
Gísla boðið
þriðja sæti
STJÓRNMÁL Uppstillingarnefnd Sam-
fylkingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi bauð Gísla S. Einarssyni,
þingmanni Vesturlands,
þriðja sætið á framboðslista flokks-
ins. Karl V. Matthíasson, þingmað-
ur Vestfjarða, hefur gert tilkall til
sætisins en var boðið fjórða sætið.
„Ég svaraði því til að ég myndi
taka þriðja sætið,“ segir Karl og
vísar til þess að þegar ákveðið var
að stilla upp á lista hafi verið talað
um að öll gömlu kjördæmin ættu
sína fulltrúa í þremur efstu sætun-
um. Hann svarar engu um hvort
hann myndi taka fjórða sætið ef
það byðist. ■