Fréttablaðið - 22.01.2003, Qupperneq 9
9MIÐVIKUDAGUR 22. janúar 2003
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
91
33
0
1/
20
03
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
hl‡legaHugsa›u
til barnanna í vetur
K
Teddy 8.990
Stærðir 92-146 cm, hægt er að taka fóðrið úr
Mix 7.990
Stærðir 98-146 cm, litir rautt og blátt
Ketch, hágæða barnagallar
úr beavernylon, með
styrkingu á álagsflötum.
Reflex 8.990
Stærðir 116-146 cm, mjög góð endurskinsmerki
BARÐI MANN MEÐ KJÖTEXI
Kona barði mann í höfuðið með
kjötexi á sunnudag. Þetta gerðist
eftir að maðurinn hafði komið til að
sækja muni sem hann átti í íbúð
fyrrverandi eiginkonu sinnar. Mis-
sætti kom upp milli þeirra sem
endaði með því að konan barði
manninn með kjötexinni. Við högg-
ið brotnaði skaft axarinnar og hlaut
maðurinn minniháttar áverka á
höfði. Maðurinn var fluttur á slysa-
deild en lögregla lagði hald á exina.
REYNT AÐ STILLA TIL FRIÐAR
Vera hermanna frá nokkrum Afríkuríkjum og Frakklandi sem ætlað er að halda aftur af
stríðandi fylkingum er að sumra mati ástæða þess að ekki hefur enn komið til víðtækari
bardaga og árása.
Úr öskunni
í eldinn
Eftir að hafa flúið óöld í Líberíu neyðast flótta-
menn til að snúa aftur í óvissuna heima við
eftir að átök brutust út á Fílabeinsströndinni.
FÍLABEINSSTRÖNDIN, AP „Ástandið er
hræðilegt þar, en það er kannski
verra hérna,“ sagði Morris Lahai
Kanneh, líberískur sjálfboðaliði
sem aðstoðar flóttamenn frá Lí-
beríu sem vonast
til að komast heim
til sín á nýjan leik
og forða sér
þannig frá átökun-
um sem geisa á
Fílabeinsströndinni.
Líberíubúar hófu að flýja
heimaland sitt í stórum stíl á ní-
unda áratugnum þegar bardagar
andstæðra fylkinga ollu lands-
mönnum miklum hörmungum.
Fílabeinsströndin virkaði sem ör-
uggt hæli og leituðu tugþúsundir
Líberíumanna þangað í von um
friðsamlegra og öruggara líf.
Lengi vel gekk það eftir. Það
breyttist þó í haust þegar borg-
arastyrjöld braust út í landinu. Nú
hefur á þriðja þúsund Líberíu-
manna í útlegð á Fílabeinsströnd-
inni óskað eftir aðstoð Sameinuðu
þjóðanna við að komast aftur til
Líberíu og talið er að 37.000 hafi
snúið heim á eigin vegum. Rúm-
lega 25.000 manns hafast enn við
á suðvestanverðri Fílabeins-
ströndinni en því er spáð að marg-
ir þeirra snúi aftur til Líberíu til
að flýja ofbeldið.
„Fólk hefur verið myrt, svo
mikið er víst,“ segir Jacques
Franquin, sem samhæfir neyðar-
hjálp fyrir flóttamannahjálp
Sameinuðu þjóðanna. „Það eru al-
varlegar líkamsmeiðingar.
Flóttamennirnir eru óttaslegnir.“
Forystumenn Líberíumanna á
Fílabeinsströndinni segja að í
það minnsta níu flóttamenn, allt
karlmenn, hafi verið myrtir af
hópum ungra heimamanna á síð-
ustu vikum. Þetta hafa franskir
hermenn staðfest.
„Það sorglega við þetta er að
flóttamennirnir komu hingað til að
flýja bardagana í Líberíu og eru nú
tengdir við sama fólkið og þeir voru
að flýja frá,“ segir Astrin van Gend-
eren Stort, talsmaður flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Margir þeirra sem flýðu Lí-
beríu á sínum tíma eru nú milli
steins og sleggju. Sumir þeirra
sem vilja snúa aftur þora það
ekki af ótta við að verða fyrir
barðinu á stjórnarherrum sem
leita enn uppi andstæðinga sína
úr fyrri átökum.
„Við verðum að koma fólkinu
héðan,“ segir Franquin og varar
við því að vaxandi hatur geti leitt
til mikilla hörmunga. ■
HAAG, AP Mexíkó hefur farið fram á
það við Alþjóðadómstólinn í Haag
að stöðvaðar verði aftökur
mexíkóskra afbrotamanna sem
sitja í bandaríkjunum fangelsum.
Byggja Mexíkóar kröfur sínar á því
að Bandaríkin hafi ekki gefið föng-
unum færi á að leita réttar síns en
bæði löndin eru aðilar að alþjóðleg-
um samningi sem kveður á um að
fangar eigi rétt á aðstoð ræðis-
manns. Mexíkó hefur um árabil átt í
deilum við Bandaríkin vegna dauða-
refsinga en hefur iðulega þurft að
láta í minni pokann.
Mál af svipuðum toga hefur áður
farið fyrir Alþjóðadómstólinn en
árið 1999 hófu þýsk yfirvöld mál-
sókn á hendur Bandaríkjunum
vegna dauðadóms yfir þýskum
bræðrum. Dómstóllinn úrskurðaði
Þýskalandi í hag en Bandaríkin
virtu dóminn að vettugi og frestuðu
ekki aftökum bræðranna. ■
Frjálslyndir:
Hjálmar
ekki í
framboð
STJÓRNMÁL Hjálmar Blöndal,
nemi á Bifröst sem orðaður hef-
ur verið við annað sætið hjá
Frjálslynda flokknum í Norð-
vesturkjördæmi, hefur ákveðið
að taka ekki sætið þar sem hann
hyggst einbeita sér að námi
sínu í viðskiptalögfræði á Bif-
röst.
Atburðarásin var hröð þá
daga sem Hjálmar var orðaður
við sætið og ákvað Hjálmar að
endingu að fara ekki í framboð
sökum anna á Bifröst. ■
Nágrannar Íraka:
Vilja frið
ANKARA, AP „Við viljum að Írakar
verði fengnir til að sýna vopna-
eftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna fullu samvinnu,“ sagði
Yasar Yakis, utanríkisráðherra
Tyrklands, í aðdragandanum að
fundi um stöðu Íraks sem Tyrk-
ir hafa skipulagt með utanríkis-
ráðherrum nágrannaríkja.
Hann segir það ekki á stefnu-
skrá tyrkneskra stjórnvalda að
skipta um stjórn í Írak eða að
Saddam Hussein verði sendur í
útlegð.
Yakar og aðrir utanríkisráð-
herrar nágrannaríkja Íraks
leggja áherslu á friðsamlega
lausn sem tryggi öryggi á svæð-
inu. ■
Launahækkanir til bæjarstjórnarmanna og bæjarstjóra í Árborg:
Tvöföld þingmannslaun
KJARABÓT Bæjarstjórn Árborgar
hefur samþykkt tillögu frá Ein-
ari Njálssyni bæjarstjóra um
launahækkanir fyrir setu í bæj-
arstjórn, bæjarráði og í nefnd-
um á vegum bæjarins:
„Við vorum að breyta viðmið-
uninni og gera kerfið einfaldra
og betra. Nú miðum við greiðsl-
ur við þingfarakaup auk þess
sem við bættum við sjö prósent
launahækkun sem Kjaradómur
var að ákveða til handa æðstu
stjórnendum ríkisins,“ segir
bæjarstjórinn, sem sjálfur þigg-
ur þingmannslaun margfölduð
með 2,05 þannig að hann er með
rúmlega tvöfalt þingfararkaup.
„Ætli þetta losi ekki 700 þúsund
krónur hjá mér,“ segir hann.
Eftir breytinguna fær forseti
bæjarstjórnar í Árborg 40 pró-
sent af þingfararkaupi, óbreytt-
ir bæjarfulltrúar fá 24 prósent
og bæjarráðsmenn átta prósent
þar ofan á.
Varabæjarfulltrúar fá svo
fjögur prósent af þingfarar-
kaupi.
Þá hefur nefndum á vegum
sveitarfélagsins verið skipt í A-
nefndir og B-nefndir og þiggja
nefndarmenn hærri laun fyrir
setu í B-nefnd en A-nefnd. ■
EINAR NJÁLSSON
Hækkar launin hjá bæjarstjórnarmönnum
og miðar við þingfararkaup.
„Fólk hefur
verið myrt, svo
mikið er víst.“
AP/C
H
R
ISTO
PH
E EN
A
Alþjóðadómstóllinn:
Mexíkó leitar
réttar síns
LÖGREGLUFRÉTTIR
Ljósmyndastofan Mynd
sími 565 4207 • www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími 554 3020
Passamyndatökur alla virka daga.
Erum byrjaðir að taka niður
pantanir á fermingarmynda-
tökur í vor.
Pantaðu tímanlega!