Fréttablaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 22. janúar 2003 21
Kynningarfundur í kvöld klukkan 20:00
í safnaðarheimili kirkjunnar við Laufásveg.
Alfa er öllum opið og er fyrir þá sem vilja leita svara
við spurningum um tilgang lífsins og vilja kynna sér
grundvallaratriði kristinnar truar.
Alfa er fyrir þá sem trúa, sem efast og síðan ekki síst
fyrir þá sem ekki trúa, eða eru leitandi á trúarsviðinu.
Komdu í kvöld og kynntu þér málið án allra skuldbindinga.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
Hreiðar Örn Zoega Stefánsson
Fríkirkjan í Reykjavík, sími 552-7270
Vefslóð: www.frikirkjan.is • Netfang: frikirkjan@frikirkjan.is
ALFA - námskeið
í Fríkirkjunni í Reykjavík
BITLAUSAR BLÓÐSUGUR
Michael Crawford og Mandy Gonzalez í
hlutverkum sínum í sýningunni Dance of
the Vampires á Broadway. Sýningunni mis-
heppnaðist algerlega að heilla áhorfendur
þrátt fyrir kynþokkafullan efniviðinn og
hún hefur því verið slegin af. Verkið verður
aðeins sýnt 56 sinnum. Lokasýningin er á
laugardaginn og áætlað tap á uppfærsl-
unni nemur 12 milljónum dollara.
VEÐUR „Það er ómögulegt að segja
hvað veldur þessum hitamun en
líklega er helsta skýringin mis-
munandi landslag,“ segir Kristín
Hermannsdóttir, veðurfræðingur
á Veðurstofu Íslands, aðspurð um
hitamun í Hafnarfirði, Kópavogi
og Reykjavík en hitamunur er ein
gráða á milli bæjarfélaga.
Glöggir menn hafa veitt því at-
hygli að jafnan er hlýrra í Hafnar-
firði en í Reykjavík og Kópavogi
og þvertaka fyrir að misræmi sé á
milli mælanna. Þessir sömu menn
halda því fram að mælarnir í bíl-
um þeirra sýni einnig þennan
hitamun. Kristín segir að einnig
geti regn og vindar haft sitt að
segja. „Nótt og dagur skipta máli
og svo er með vetur og sumar.
Annars er engin einhlít skýring á
þessu.“ Aðspurð um hvort ekki
geti verið að almættið sé einfald-
lega Hafnfirðingum hliðhollara
segir hún að það geti meira en
verið: „En ekki hafa það eftir mér
því ég hallast fremur að því að
náttúrulegar ástæður séu þarna
að baki,“ segir Kristín Hermanns-
dóttir veðurfræðingur. ■
MISMUNANDI HITASTIG
Þessar myndir eru teknar með fimmtán mínútna millibili. Sú fyrsta er af mæli við Reykja-
víkurveg í Hafnarfirði og sýnir -9 gráður, næsta er frá Smáranum í Kópavogi og sýnir -11
gráður og sú þriðja er tekin við Kringlumýrarbrautina en þar er frostið -10 gráður.
Hitinn á höfuðborgarsvæðinu:
Minnst frost
í Hafnarfirði
FJÁRÖFLUN Kurr er í forráðamönn-
um íþróttafélagsins Aftureldingar
í Mosfellsbæ vegna orða bæjar-
stjórans á staðnum um auglýs-
ingaskilti sem íþróttafélagið setti
upp eftir mikla baráttu. Auglýs-
ingaskiltið er staðsett í hjarta
bæjarins og kostaði 15 milljónir
króna. Íþróttaforkólfarnir í Mos-
fellsbæ binda miklar vonir við
skiltið og trúa því og treysta að
það eigi eftir að skila Aftureld-
ingu miklum tekjum þegar fram
líða stundir:
„Vissulega var skiltið dýrt en
þegar búið er að greiða það niður
á það eftir að skila miklum tekjum
í framtíðinni. Ég held að bæjar-
stjórinn skipti um skoðun þegar
hún sér hvers konar lyftistöng
skiltið er fyrir íþróttalífið hér í
bænum,“ segir Hlynur Guð-
mundsson hjá frjálsíþróttadeild
Aftureldingar.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, lét hafa
eftir sér hér í blaðinu fyrir
skemmstu að hún væri á móti aug-
lýsingaskiltum í bæ sínum: „Þessi
skilti eru lýti í fallegri náttúru og
ég vildi helst sjá þau fara,“ sagði
hún.
„Við erum þeirrar skoðunar að
skiltið okkar sé á góðum stað og af
þessu er engin sjónmengun ef
snyrtilega er frá öllu gengið. Við
erum búnir að berjast mikið fyrir
þessu skilti og viljum ekki sjá það
hverfa,“ segir Hlynur Guðmunds-
son. ■
AUGLÝSINGASKILTIÐ Í MOSFELLSBÆ
Dýrt skilti sem á þó eftir að skila miklum tekjum ef það fær að standa.
15 milljóna króna auglýsingaskilti í Mosfellsbæ:
Afturelding gegn
bæjarstjóranum
BLÚS Bob Dylan er einn þeirra tón-
listarmanna sem hafa verið til-
nefndir til W.C. Handy-verðlaun-
anna fyrir besta blúslag ársins.
Dylan er tilnefndur sem höf-
undur lagsins Stepchild af plöt-
unni Don’t Give Up On Me. Til-
nefningar í 25 greinum sem allar
tengjast blúsnum voru tilkynntar
á mánudaginn. Shemekia
Copeland og Magic Slim & the
Teardrops fengu fimm tilnefning-
ar hvor en Shemekia, sem er dótt-
ir blúsgítarleikarans framliðna
Johnny Copeland, er meðal ann-
ars tilnefnd sem besti skemmti-
kraftur ársins.
Rúmlega 30.000 blúsaðdáendur
um allan heim taka þátt í að velja
sigurvegarana, sem verða verð-
launaðir í Orpheum-leikhúsinu í
Memphis. ■
BOB DYLAN
Er tilnefndur fyrir
lagið Stepchild en
þetta er í fyrsta
sinn sem þessi lif-
andi goðsögn
kemst á blað hjá
Handy-verðlaun-
unum.
Blúslag ársins:
Bob Dylan tilnefndur