Fréttablaðið - 07.02.2003, Qupperneq 1
STJÓRNMÁL
Dúfan sem
breyttist í hauk
bls. 8
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 7. febrúar 2003
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
KEPPNI Hin árlega Hönnunarkeppni
véla- og iðnaðarverkfræðinema
verður haldin í dag. Þetta er í 13.
sinn sem keppnin er haldin og að
þessu sinni felst þrautin í að koma
glerkúlum sem staðsettar eru á
miðri braut ofan í gat við enda
brautar. Á leiðinni þarf tækið að
fella brú og komast yfir tvær
hindranir. Keppnin fer fram í sal 1
í Háskólabíói og hefst klukkan
13.00.
Glerkúlur í gat
HANDBOLTI Heil umferð verður í
ESSO-deild karla í handknattleik í
kvöld. Það verður hörkuleikur í
Austurbergi en þar mætast ÍR og
HK. Fram og FH eigast við í Fram-
húsinu, Haukar og Víkingar leika
að Ásvöllum og KA tekur á móti
Gróttu/KR í KA-heimilinu á Akur-
eyri. Topplið Vals sækir Selfyss-
inga heim, Afturelding og Þór leika
að Varmá og ÍBV og Stjarnan leika
í Eyjum. Allir leikirnir hefjast
klukkan 20.00.
Stórleikir í
ESSO-deildinni
FUNDUR Lagastofnun Háskóla Ís-
lands stendur í samvinnu við um-
hverfisráðuneytið fyrir opnum
fræðafundi í dag um þátttöku al-
mennings í ákvörðunum um um-
hverfismál. Reynt verður að varpa
ljósi á alþjóðasamninga á vettvangi
umhverfisréttar og gildandi lög í
þessum efnum. Meðal fyrirlesara
er dr. Jonas Ebbesson, dósent í um-
hverfisrétti við Stokkhólmsháskóla.
Fundurinn verður í Hátíðasal Há-
skólans í Aðalbyggingu skólans og
hefst klukkan 12.15.
Almenningur og
umhverfismál
AFMÆLI
Amerískar pönnu-
kökur í rúmið
FÖSTUDAGUR
32. tölublað – 3. árgangur
bls. 26
Útsala
afsláttur
70%
allt a›
Girnilegar
tilboðskörfur
Smáralind - Glæsibæ
MYNDLIST
Ullarvettlingar
afhentir
bls. 30
DÓMSMÁL Sævar Ciesielski segist
telja að Geirfinnur Einarsson hafi
fyrirfarið sér. Kenningin um að
Geirfinnur hafi verið myrtur og
líki hans komið fyrir við Djúpa-
vatn sé blindgata sem þegar hafi
verið könnuð án árangurs.
Geirfinnur sást síðast í Hafnar-
búðinni í Keflavík að kvöldi 19.
nóvember 1974. Sævar, fyrrver-
andi unnusta hans og tveir aðrir
menn voru dæmd í Hæstarétti árið
1978 fyrir að hafa banað Geirfinni.
Sævar segir Geirfinn hafa átt í
miklum hjónabandserfiðleikum og
hafa sagt að hann kynni að grípa
til örþrifaráða.
„Það var sýnt fram á að Geir-
finnur fór í sjóinn. Hjálparsveit í
Hafnarfirði kom með leitarhund
áður en þetta varð að lögreglu-
máli. Hundurinn beindi þeim niður
Vatnsnes og beint að klöpp sem
liggur niður að sjó. Hundurinn fór
síðan til baka aftur sömu slóð upp
að Hafnarbúð,“ segir Sævar.
Að sögn Sævars áttu rannsak-
endur málsins að taka meira mark
á leitarhundinum. Í dag viti menn
betur hvaða ályktanir eigi að
draga af framgöngu slíkra hunda.
Í staðinn hafi verið búin til kenn-
ing um að Geirfinnur hafi verið
tekinn í bíl framan við Hafnarbúð-
ina þó engin ummerki væru um
slíkt. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sævar Ciesielski telur Djúpavatnskenningu ranga:
Geirfinnur gekk í sjóinn
BENSÍNSALA „Þetta verð er náttúr-
lega rugl,“ segir Gunnar O.
Skaptason, framkvæmdastjóri
Orkunnar. „Við tókum þá stefnu
þegar við komum
inn á markaðinn
fyrir sjö árum að
vera ódýrastir og
við látum ekki taka
það frá okkur.“
Gunnar var á þeyt-
ingi um bæinn í
gær að fylgjast með verði keppi-
nautanna. Hann neitar því ekki
að skemmtilegra sé á markaðn-
um þegar harka hleypur í sam-
keppnina.
Verðstríð á bensíni er skollið
á milli sjálfsafgreiðslustöðva.
Lítraverðið er komið niður fyrir
90 krónur. Bensín hefur því
lækkað verð um rúmar tvær
krónur á lítrann frá því að Skelj-
ungur og Esso boðuðu hækkanir
sem dregnar voru til baka. Í
fyrradag lækkaði Esso sjálfsaf-
greiðslubensínið í 90,30 krónur.
ÓB lækkaði bensínverð á stöðv-
um sínum í 89,20 krónur á lítr-
ann í gærmorgun. Ekki leið á
löngu þar til Orkan svaraði með
lækkun og fór lítrinn hjá þeim í
89,10 krónur lítrinn. Verðmunur
á hæsta og lægsta verði á 95 okt-
ana bensíni er því rúmar níu
krónur. Á sama tíma hefur verð
farið hækkandi á heimsmarkaði.
Að sögn Samúels Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra
áhættustýringarsviðs Olís, var
Olís komið að því að tilkynna um
hækkun þegar hin félögin til-
kynntu um lækkunina. „Við
hættum því við að hækka. Stefna
okkar er að bjóða eldsneyti á
samkeppnishæfu verði. Við-
skiptavinir okkar geta treyst
því,“ segir Gunnar sem var á
þeytingi í gær að fylgjast með
verðinu hjá samkeppnisaðilun-
um. Hann segir að miðað við er-
lendar verðhækkanir sé ólíklegt
að þetta verð haldist lengi.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að það sé
ómögulegt að segja hversu lengi
þessi staða verði uppi. „Hálft í
hvoru er þetta ferð án fyrirheits.
Er á meðan er, og ég vona að
menn geti tekið mörgum sinnum
á bílinn. Verst hvað það er erfitt
að geyma þetta,“ segir Kristinn.
Hann segir að allt eins megi bú-
ast við verðbreytingum mörgum
sinnum á dag.
haflidi@frettabladid.is
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
66%
71%
SJÁLFSAFGREIÐSLUSTRÍÐ
Fyrsta dag verðstríðs á bensíni í sjálfsafgreiðslu viðraði illa á þá sem dæla sjálfir. Í gær var veðrið hins vegar engin fyrirstaða og margir urðu til þess að nýta sér samkeppni olíufélaga.
REYKJAVÍK Suðvestan 8-13
m/s og skúrir eða slydduél.
Hiti 3 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Skúrir 3
Akureyri 8-13 Skýjað 3
Egilsstaðir 8-13 Skýjað 3
Vestmannaeyjar 10-15 Skúrir 3
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
„Hálft í hvoru
er þetta ferð
án fyrirheits.
Er á meðan
er.“
VERÐ Á 95 OKTANA BENSÍNI
SÍÐDEGIS Í GÆR
Verð með þjónustu:
Esso 98,20 krónur
Skeljungur 98,20 krónur
Olís 98,20 krónur
Verð í sjálfsafgreiðslu:
Esso Express 90,30 krónur
ÓB 89,20 krónur
Orkan 89,10 krónur
Bensínverðstríð geisar á
sjálfsafgreiðslustöðvum
Verð á bensíni er rugl að mati framkvæmdastjóra Orkunnar . Afsláttur er kominn yfir níu
krónur. Heimsmarkaðsverð hækkar og ólíklegt að lækkunin vari lengi.
SÆVAR CIESIELSKI
Hundurinn beindi þeim aðeins á einn
stað; Vatnsnes og beint niður að sjó,“ segir
Sævar Ciesielski um leitarhund sem hjálp-
arsveitarmenn úr Hafnarfirði komu með til
Keflavíkur áður en eftirgrennslanin eftir
Geirfinni varð að lögreglumáli.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÞETTA HELST
Hæstiréttur þyngdi í gær dómhéraðsdóms yfir Árna John-
sen um 9 mánuði. Árni hlaut
tveggja ára óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir brot sín. bls. 2
Impregilo gæti hafið fram-kvæmdir við Kárahnjúkastíflu
og aðrennslisgöng um miðjan
mars. Samningur við Impregilo
verður lagður fyrir stjórn Lands-
virkjunar í dag. bls. 4
Háttsemi Flugstöðvar Leifs Ei-ríkssonar sem tengist forvali
á viðskiptatækifærum í flugstöð-
inni í ágúst í fyrra brýtur í bága
við samkeppnislög að mati Sam-
keppnisstofnunar. bls. 10