Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 4
4 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Er nauðsynlegt að rannsaka
Geirfinnsmálið betur?
Spurning dagsins í dag:
Telurðu Íraka eiga gereyðingarvopn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
5,9%
25,4%Nei
68,8%
BETRI
RANNSÓKN
Meirihluti vill að
Geirfinnsmálið
verði rannsakað
betur.
Veit ekki
Já
Erlendir sérfræðingar kvaddir til:
Leitað að nýju nafni á Íslandssíma
SÍMI Yfirstjórn Íslandssíma hefur
kvatt til erlenda sérfræðinga til
að vera sér innan handar við leit
að nýju nafni á fyrirtækið. Eftir
að Íslandssími og Tal runnu
saman í eitt fjarskiptafyrirtæki
varð ljóst að finna yrði nýtt nafn:
„Við höfum einsett okkur að
skoða þau nöfn sem við höfum
þegar eða þá að kynna það
þriðja,“ segir Pétur Pétursson,
upplýsingafulltrúi Íslandssíma.
„Gerðar hafa verið markaðs-
rannsóknir á báðum nöfnunum
okkar, Íslandssíma og Tali, og
höfum við fengið innlenda og er-
lenda sérfræðinga í samruna-
verkefnum til liðs við okkur,“
segir hann.
Auk Tals hefur Íslandssími
símafyrirtækið Halló innan
sinna vébanda en það nafn mun
ekki koma til greina í þessu
sambandi: „Það eru þrír mögu-
leikar í stöðunni og ótímabært
að tjá sig um hvað verður ofan á
meðan vinnan er í fullum
gangi,“ segir Pétur Pétursson. ■
FJÁRMÁL Neytendasamtökin krefjast
þess að almennir útlánsvextir verði
lækkaðir til samræmis við eðlilega
viðmiðun í vaxtamyndun, þ.e. stýri-
vexti Seðlabankans og ávöxtunar-
kröfu markaðsskuldabréfa.
Samtökin gagnrýna bankana
fyrir að byggja stórfelldan hagnað
sinn á því að auka stöðugt álag á
lánsfé til almennings og fyrir-
tækja.
Telja þau að verulega skorti á
að ör lækkun stýrivaxta á undan-
förnum misserum hafi skilað sér í
lægri vöxtum til neytenda. Mis-
munur á stýrivöxtum og vöxtum á
óverðtryggðum skuldabréfum
hafi náð hámarki á síðasta ári.
Hann hafi þá verið 7,2% saman-
borið við 5,5% árið 1999 og 4,7%
árið 1995.
Samkvæmt Neytendasamtök-
unum kemur svipuð þróun í ljós
þegar skoðað er vaxtaálag á verð-
tryggðum skuldabréfalánum. Þeg-
ar meðalvextir þeirra séu bornir
saman við ávöxtunarkröfu fimm
ára spariskírteina, sem sveiflist í
samræmi við framboð og eftir-
spurn, hafi mismunurinn farið
vaxandi síðastliðin ár.
Þó dregið hafi úr mismun á
stýrivöxtum og vöxtum á óverð-
tryggðum skuldabréfum á síðustu
mánuðum telja Neytendasamtökin
að ástandið sé enn óviðunandi.
Vilja þau að Fjármálaeftirlitið
leiti skýringa hjá bönkunum á sí-
hækkandi vaxtaálagi og vaxta-
mun. Benda samtökin á að í ná-
grannalöndunum þyki eðlilegt að
nota stýrivexti seðlabanka sem
grundvöll fyrir samningsvöxtum í
bankaviðskiptum. ■
Impregilo gæti hafið
framkvæmdir í mars
Samningur við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo verður lagður fram á stjórnarfundi Lands-
virkjunar á föstudag. Undirritun fer ekki fram fyrr en eftir að samningar við Alcoa hafa verið
kláraðir. Alls er gert ráð fyrir 4.000 ársverkum við byggingu virkjunarinnar.
VIRKJUN Stefnt er að því að leggja
fram samning við ítalska verk-
takafyrirtækið Impregilo á
stjórnarfundi Landsvirkjunar í
dag.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, seg-
ir að í næstu viku verði svokallað
veitingabréf gefið, en samkvæmt
því skuldbindur Landsvirkjun sig
til að ganga til samninga við Ítal-
ina. Eftir það getur verktaka-
fyrirtækið farið að undirbúa
framkvæmdirnar.
Undirritun sjálfs samningsins
við Impregilo fer ekki fram fyrr
en eftir að samningar við Alcoa
vegna álvers á Reyðarfirði hafa
verið undirritaðir. Þorsteinn seg-
ir að það gæti orðið í lok febrúar
en nákvæm dagsetning sé undir
Alþingi og iðnaðarráðuneytinu
komin.
Ef allt gengur að óskum ætti
Impregilo að geta hafið fram-
kvæmdir við Kárahnjúkastíflu og
aðrennslisgöng úr Hálsalóni upp
úr miðjum mars.
Tilboð Impregilo hljóðaði upp
á 44,4 milljarða króna, en kostn-
aðaráætlun nam 50 milljörðum.
Þorsteinn segir að inni í tilboðinu
séu allir verkþættir, allt frá upp-
setningu vinnubúða til byggingar
sjálfrar stíflunnar. Næstu áfang-
ar í byggingu virkjunarinnar,
eins og útboð vegna véla- og raf-
búnaðar, aflstöðvar og minni
stífla við Hálsalón, séu í vinnslu.
Gert er ráð fyrir því að bjóða
þessa verkþætti út á næstu mán-
uðum.
Alls er gert ráð fyrir 4.000 árs-
verkum við byggingu virkjunar-
innar og tilheyrandi flutnings-
virkja. Framkvæmdirnar ná há-
marki árið 2006 en þá er gert ráð
fyrir um 1.100 til 1.200 ársverk-
um.
Samkvæmt framkvæmdaáætl-
un á bygging Kárahnjúkastíflu að
taka þrjú og hálft ár. Gert er ráð
fyrir því að byrja að safna vatni í
Hálslón í september 2006. Gangi
það eftir er hægt að afhenda
orkukaupanda rafmagn til álvers-
ins í byrjun apríl 2007 og Kára-
hnjúkavirkjun yrði tekin form-
lega í notkun í byrjun júní 2007.
trausti@frettabladid.is
HARMI LOSTNAR
Mikill fjöldi syrgjenda fylgdi palestínsku
hjúkrunafræðingunum til grafar í flótta-
mannabúðunum í Jabaliya á Gaza-strönd-
inni.
Átök á Vesturbakkanum:
Árásir á
báða bóga
JERÚSALEM, AP Tveir palestínskir
byssumenn réðust á útvarðar-
stöð ísraelska hersins á Vestur-
bakkanum og drápu tvo Ísraels-
menn áður en þeir voru sjálfir
skotnir til bana. Ísraelsku her-
mennirnir voru að æfa fyrir
árás af þessu tagi þegar menn-
irnir birtust.
Á Gaza-ströndinni féllu tveir
palestínskir hjúkrunarfræðing-
ar fyrir hendi ísraelskra her-
manna sem skutu af handahófi
úr þyrlum.
Að sögn palestínskra lækna
voru hjúkrunarfræðingarnir að
vinna á litlu elliheimili þegar
skotárásin átti sér stað en tveir
aðrir liggja alvarlega slasaðir
eftir skotárásina.
Í norðurhluta Ísraels drap
lögreglan óbreyttan palestínsk-
an borgara sem lagt hafði með
hnífi til lögreglumanns. ■
Framtíð Kosovo:
Vill ákvörð-
un sem fyrst
SERBÍA, AP Zoran Djindjic, forsætis-
ráðherra Serbíu, hefur krafist þess
að alþjóðleg ráðstefna verði haldin
um framtíð Kovosvo. Hann sagði
Kosovo stefna leynt og ljóst að sjálf-
stæði og slíkt skapaði mikil vanda-
mál. Serbar líta svo á að Kosovo-
hérað sé fæðingarstaður Serbíu og
þar er fjöldi gamalla klaustra og
annarra minja um serbneska menn-
ingu. Sameinuðu þjóðirnar hafa far-
ið með yfirstjórn í Kosovo í kjölfar
loftárásanna 1999. Sendinefnd Sam-
einuðu þjóðanna vill bíða með
ákvarðanir um framtíð svæðisins
þar til efnahagslegur og pólitískur
stöðugleiki hefur náðst. ■
LEITAÐ AÐ NAFNI
Þrír möguleikar eru í í
stöðunni.
MISMUNUR STÝRIVAXTA SEÐLABANKANS
OG VAXTA ÓVERÐTRYGGÐRA LÁNA
Stýrivextir Óverðtryggð skuldabréf Mismunur
1995 6,9% 11,6% 4,7%
1996 6,6% 12,4% 5,8%
1997 7,0% 12,9% 5,9%
1998 7,3% 12,8% 5,5%
1999 8,2% 13,7% 5,5%
2000 10,4% 16,8% 6,4%
2001 10,9% 17,9% 7,0%
2002 8,3% 15,5% 7,2%
2003 5,8% 12,5% 6,7%
MISMUNUR VERÐTRYGGÐRA SKULDABRÉFALÁNA
OG ÁVÖXTUNARKRÖFU 5 ÁRA SPARISKÍRTEINA
Verðtryggð skuldabréfalán 5 ára spariskírteini Mismunur
1995 8,7% 5,6% 3,1%
1996 8,9% 5,6% 3,3%
1997 9,0% 5,5% 3,5%
1998 8,8% 4,9% 3,9%
1999 8,6% 4,7% 3,9%
2000 9,5% 5,9% 3,6%
2001 10,2% 5,9% 4,3%
2002 10,2% 5,5% 4,7%
HÖFUÐSTÖÐVAR LANDSVIRKJUNAR
Undirritun sjálfs samningsins við Impregilo fer ekki fram fyrr en eftir að samningar við
Alcoa vegna álvers á Reyðarfirði hafa verið undirritaðir. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir að það gæti orðið í lok febrúar en nákvæm dagsetning sé
undir Alþingi og iðnaðarráðuneytinu komin.
Neytendasamtökin gagnrýna þróun vaxtamunar í landinu:
Krefjast lækkunar
útlánsvaxta
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T