Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.02.2003, Blaðsíða 2
2 7. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR Jóhannes Gunnarsson er formaður Neytendasam- takanna. Þau hafa krafist meiri vaxtalækkana eins og raunar fleiri samtök. Nei, þetta er ekki klén krafa. Vextir og vaxtamunur eru einfaldlega allt of háir hér á landi og eru að sliga heimili og fyrirtæki. Á meðan svo er, er þetta sanngjörn og eðli- leg krafa og við munum berjast fyrir vaxta- lækkunum. SPURNING DAGSINS Er þetta ekki orðin klén krafa? ALFREÐ ÞORSTEINSSON Fundur með Bóhem í bígerð. Súlustaður á Grensás- vegi: Bóhem vill fund með Alfreð SKEMMTISTAÐIR Eigendur nektar- staðarins Bóhem á Grensásvegi hafa óskað eftir fundi með Al- freð Þorsteinssyni, formanni borgarráðs, í þeim tilgangi að leita leiða til að opna staðinn aft- ur. Bóhem hefur, líkt og aðrir súlustaðir í höfuðborginni, verið lokaður eftir breytingu á lög- reglusamþykkt sem gerði þeim ókleift að starfa. „Ég hafði milligöngu um að koma fundinum á fyrir eigand- ann, Guðjón Rúnar Sverrisson, en honum er það mikið kapps- mál að koma rekstri í gang á nýjan leik svo hann geti borgað mér húsaleiguna,“ segir Leó Löve lögmaður, sem með öðrum er eigandi húsnæðisins þar sem Bóhem er til húsa. „Alfreð tók þessu ekki illa en það hefur ekk- ert orðið af fundinum enn sem komið er,“ segir Leó. ■ DÓMSMÁL Árni Johnsen var í gær dæmdur í Hæstarétti í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot í opinberu starfi, fjárdrátt, mútur og fleiri auðgunarglæpi sem hann framdi á árunum 1997 til 2001. H æ s t i r é t t u r bætti með dómi sínum níu mánuð- um við fimmtán mánaða refsingu sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í fyrra dæmt Árna til. Annar af tveim- ur fyrrverandi forsvarsmönnum Þ j ó ð l e i k h ú s - kjallarans var dæmdur til þriggja mánaða óskilorðsbundins fangelsis fyrir að múta Árna, sem formanni byggingarnefndar Þjóð- leikhússins, með 650 þúsund krón- um til að samþykkja tæplega 3,2 milljóna reikning. Auk alls þess sem Árni var sak- felldur fyrir í héraðsdómi sak- felldi Hæstiréttur hann fyrir fjög- ur ákæruatriði af níu sem héraðs- dómur hafði sýknað hann af. Með- al annars vegna byggingarefnis úr Byko, jólasería og veitinga- reikninga. Meðal þess sem Hæstiréttur staðfesti var sýkna héraðsdóms vegna þéttidúks sem Árni keypti á reikning Þjóðleikhússins og hann sagði að hefði óvart farið með öðr- um eigum hans til Vestmanna- eyja. Hæstiréttur sagði þó að skýring Árna um þetta væri fjar- stæðukennd. Hæstiréttur segist líta til þess við ákvörðun refsingar sinnar að Árni sé sakfelldur fyr- ir brot er varða hærri fjárhæð en hann var dæmdur fyrir í hér- aðsdómi. „Jafnframt verður að líta til þess að hann lét af starfi alþingismanns vegna málsins og gekkst greiðlega við hluta þeirra sakargifta, sem hann var borinn,“ segir Hæstiréttur. Á næstu dögum má Árni bú- ast við að lögregla birti honum dóm Hæstaréttar. Að því loknu mun Fangelsismálastofnun senda honum boðun um að gefa sig fram innan þriggja vikna. Þá verður ákveðið hvort Árni verði vistaður á Litla-Hrauni eða á Kvíabryggju á Snæfellsnesi. Líklegt er talið að Árni muni leita eftir því að fá að taka út dóm sinn á Kvíabryggju. Ekki er víst að hægt sé að verða við því þar sem aðeins 14 pláss eru á Kvíabryggju miðað við 87 á Litla-Hrauni. Reikna má með að Árni hefji afplánun sína innan tveggja mánaða og sitji inni í eitt ár af dómi sínum. Hann getur sótt um náðun en afar ólíklegt er talið að orðið verði við því. gar@frettabladid.is Niðurstöður upplagseftirlits: Mikil útbreiðsla Fréttablaðsins UPPLAGSEFTIRLIT Frétta- blaðinu er dreift í 86.114 eintökum að meðaltali. Þetta er niðurstaða upp- lagseftirlits Verslunarráðs Íslands fyrir tímabilið október til desember. Fréttablaðið tók nú í fyrs- ta skipti þátt í upplagseft- irliti Verslunarráðsins, en fram til þessa hefur Morg- unblaðið eitt blaða nýtt sér upplagseftirlitið. Frétta- blaðið gerði samning við Verslunar- ráðið um upplagseftirlit í október. Samkomulagið felur í sér að gengist er undir skilyrði Verslunarráðsins um eftirlit með að uppgefnar upp- lýsingar séu réttar. Verslunarráðið skoðaði prenttölur Fréttablaðsins og staðfesti að blaðið væri prentað í 86.700 eintökum á dag að meðaltali. Staðfest meðaltalsdreifing var 76.403 eintök með blaðberum á höfuðborgarsvæð- inu og á Akureyri. Fyrir utan útborin blöð voru 9.711 ein- tök lögð fram til dreifingar á höfuð- borgarsvæðinu og úti á landi. Við skoðun á upplagi Morgun- blaðsins var staðfest meðaltalssala blaðsins 53.612 eintök á tímabilinu júlí til desember. Það er rúmlega þúsund eintökum færra en á sama tímabili árið áður. ■ VILL GRUNDVALLARBREYTINGU Það verður að eiga sér stað grundvallarbreyting í samskiptum Íraka við vopnaeftirlits- menn, sagði Mo- hamed ElBaradei eft- ir fund með Tony Blair. Samstarfið hafi ekki verið nógu gott hingað til. TYRKIR VARÐIR Aðildarríki Atl- antshafsbandalagsins hafa sam- þykkt að hefja undirbúning að því að tryggja varnir Tyrklands ef kemur til stríðs í Írak. Nokkr- ar aðildarþjóðirnar hafa enn efa- semdir um ágæti slíks undirbún- ings en gáfu eftir að loknu þriggja vikna þófi. SÞ RÁÐI FERÐINNI Javier Solana, sem fer með öryggismál fyrir Evrópusambandið, segir að sam- bandið leggi enn áherslu á að Bandaríkin leiti samþykkis Sam- einuðu þjóðanna fyrir innrás í Írak en geri ekki einhliða innrás. NEYÐARFUND UM ÍRAK Belgar hafa óskað eftir því að Evrópu- sambandið boði til neyðarfundar um Íraksdeiluna. Þeir vilja að auk aðildarríkja ESB verði full- trúar verðandi aðildarríkja og Tyrklands boðaðir á fundinn, sem hafi að markmiðið að leysa deil- una án stríðs. POWELL BIÐLAR TIL ÞINGSINS Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór á fund utan- ríkismálanefndar öld- ungadeildar Banda- ríkjaþings í gær til að afla stuðnings þings- ins við hernaðarað- gerðir í Írak. Demókratar lögðu áherslu á að enn yrði reynt að fá samþykki Sameinuðu þjóðanna. TYRKIR STYÐJA BANDARÍKIN Tyrkneska þingið samþykkti að leyfa Bandaríkjaher að hefja endurbætur á herstöðvum sínum fyrir stríð gegn Írak. Búist er við að í kjölfarið fái Bandaríkjamenn að fjölga í her sínum í landinu. ÖFGAFRIÐARSINNAR Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að Þjóðverjar væru rétt eins og Líbía og Kúba harðlínumenn gegn stríði. Ummæl- in fóru fyrir brjóstið á ýmsum en þýskir stjórnarandstæðingar tóku undir orð varnarmálaráðherrans bersögla. BIN LADEN DAUÐUR Osama bin Laden er nær örugglega dauður, sagði Pervez Musharraf, leiðtogi Pakistan. Hann sagði tíma al Kaída sem stórra hryðjuverka- samtaka liðinn. Þau gætu staðið að smærri hryðjuverkum víðs vegar um heiminn en ekki staðið fyrir stærri aðgerðum. ÍRAKSDEILAN ÁRNI JOHNSEN Árni Johnsen er á leið í fangelsi á næstu vikum. Líklegt er að Árni afpláni helming tveggja ára fangelsisdóms síns eins og hefð er fyrir í sambærilegum málum. Árni var ekki við- staddur þegar Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær. Lögregla birtir Árna Johnsen dóm á næstu dögum. Fang- elsismála- stofnun mun síðan senda Árna boð um að gefa sig fram innan þriggja vikna. Jón Steinar Gunnlaugsson ósammála settum saksóknara: Þráður spunninn um Magnús hjá lögreglu SAKAMÁL Jón Steinar Gunnlaugs- son hrl., lögmaður Magnúsar Leopoldssonar, er ósammála viss- um ályktunum sem Lára V. Júlí- usdóttir dregur af rannsókn sinni á tildrögum þess að Magnús tengdist Geirfinnsmálinu. „Lára segir engan sjáanlegan tilgang hafa verið með því að láta leirmyndina líkjast Magnúsi Leo- poldssyni og segir að ef lögregl- an hefði á þeim tímapunkti grun- að Magnús um að vera manninn í Hafnarbúðinni hefði verið auð- veldara að fá úr því skorið með löglegum og venjubundnum að- ferðum. Það hefur hins vegar alltaf verið ljóst að engin tilefni voru til þess að gruna Magnús um aðild að þessu mannshvarfi. Samt var hann á dagskrá hjá lög- reglunni strax á fyrstu dögum rannsóknarinnar,“ segir Jón Steinar. Að sögn Jóns Steinars stað- festa nýjar upplýsingar í skýrslu Láru að ljósmynd af Magnúsi hafi verið í höndum lögreglu- mannanna áður en leirmyndin var gerð. „Það fær ákveðna staðfest- ingu í skýrslu Láru að löggæslu- menn voru á þessum tíma að rannsaka spírasmygl sem þeir töldu að tengdist veitingahúsinu Klúbbnum og vildu tengja þessi tvö mál. Nafn Magnúsar tengdist því við mannshvarfið strax á fyrstu dögum leitarinnar fyrir tilverknað lögreglumanna sem reyndu að tengja málin saman án þess að hafa fyrir því nokkrar tækar ástæður. Þetta var þráður sem var spunninn hjá lögregl- unni í Keflavík.“ ■ JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON Magnús Leopoldsson var tengdur Geir- finnsmálinu strax á fyrstu dögum leitar fyrir tilverknað lögreglumanna sem höfðu eng- ar tækar ástæður til þess, segir lögmaður Magnúsar. GÓÐ DREIFING Niðurstaða upplagseftirlits Verslunarráðs Íslands stað- festir mikla dreifingu Frétta- blaðsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT Árni Johnsen fer í fangelsi Hæstiréttur þyngdi í gær fangelsisdóm héraðsdóms yfir Árna Johnsen og dæmdi hann í tveggja ára fangelsi. Veitingamaður í Þjóðleikhúsinu var dæmdur fyrir að múta Árna. Árni afplánar að líkindum ár í fangelsi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.