Fréttablaðið - 07.02.2003, Page 32
Loks er kominn á prent megrunar-kúr sem gerir mann eins og Tarz-
an í laginu þótt maður rífi sig upp úr
rúminu um miðjar nætur til að
drekka rjóma. Þetta er Ásmund-
arkúrinn svonefndi og heitir í höfuð-
ið á fyrrum formanni ASÍ sem forð-
um barðist hatrammlega gegn til-
raunum stjórnvalda til að fá almenn-
ing til að herða sultarólina. Þessi kúr
sem Ásmundur fann upp ásamt Guð-
mundi Björnssyni lækni er alveg
eins og megrunarkúr sem dr. Atkins
í Bandaríkjunum var svo heppinn að
finna upp – nema í Atkinskúrnum er
hvergi fjallað um hamsatólg.
EINI GALLINN á þessum megrun-
arkúr er sá að landlæknir fyrirskipar
þeim sem hann vilja stunda að útvega
sér lækni með góð mælitæki til að
fylgjast með því að gangverkið þoli
allt þetta býlífi og tattóvera 112 á
handarbakið á sér, ef það skyldi
hrökkva ofan í mann biti af söltuðu
hrossaketi. Sumir segja þó að land-
lækni gangi ekkert til nema öfund
yfir því að hafa ekki sjálfur fundið
upp nákvæmlega eins megrunarkúr
og þeir Ásmundur, Guðmundur og dr.
Atkins.
ÞAÐ ER vitanlega svekkjandi að
hálaunaðir vísindamenn skuli ekki
ennþá hafa fundið upp jafneinfaldan
hlut og megrunarpillu sem maður
gæti tekið fyrir svefninn og vaknað
upp grannur og spengilegur. En
þetta er eftir öðru. Nú þegar Íslend-
ingar hafa loksins nóg að borða eftir
margra alda svelti þá koma yfirvöld-
in og heimta að þessi langpínda þjóð
herði sultarólina enn á ný.
OFGNÓTT og offita eru aðalvanda-
mál þjóðarinnar og eina lausnin er
að lækka laun almennings svo að
hann borði sig ekki alltaf pakksadd-
an. Trúlega þarf þó gífurlega launa-
skerðingu ef bjarga á heilsu almenn-
ings, því að Pétur Blöndal alþingis-
maður þekkir mann sem lifir eins og
greifi á 90 þúsund krónum á mánuði
og leggur meira að segja fúlgur í
banka. Þessi huldumaður segir hag-
sæld sína felast í því að hann borðar
ekki pizzur, enda eru þær á bannlista
fyrir þá sem taka Ásmundarkúrinn
alvarlega og vilja herða sultarólina.
Sjálfur hefur Pétur ekki tjáð sig um
hvort hann sjálfur byggir afkomu
sína á pizzubindindi, eða lævíslegum
ráðagerðum um að krækja í væna
sneið af SPRON. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Ásmund-
arkúrinn
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
Sporléttir sölumenn
www.eignanaust.is
Sími 551 8000 • Fax 551 1160
Vitastíg 12 • 101 Reykjavík