Fréttablaðið - 10.03.2003, Síða 12
12 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR
BORGARMÁL Undir stjórn R-listans
hafa rekstrarstyrkir til íþrótta-
og æskulýðsstarfs í borginni ver-
ið skertir um 13%. Þetta kom
fram í máli Kjartans Magnússon-
ar, borgarfulltrúa sjálfstæðis-
manna, á fundi borgarstjórnar í
fyrradag.
Íþrótta- og tómstundaráð hef-
ur ákveðið að úthluta styrkjum
fyrir 26 milljónir króna í ár.
Kjartan sagði að þetta væri 4
milljónum króna lægri upphæð
en á síðasta ári.
„Á meðan R-listinn beitir sér
fyrir niðurskurði til æskulýðs-
starfsemi og íþróttamála fatlaðra
og aldraðra eru peningar afgangs
til kaupa á lóðum af vildarvinum
fráfarandi borgarstjóra,“ sagði
Kjartan. „Mörg félög sem verða
fyrir niðurskurðinum nú hafa
orðið fyrir búsifjum á undanförn-
um árum vegna síhækkandi fast-
eignagjalda og vandséð hvernig
þau muni mæta slíkum viðbótar-
útgjöldum á sama tíma og dregið
er úr stuðningi við þau frá borg-
inni.“
Anna Kristinsdóttir, borgar-
fulltrúi R-listans og formaður
ÍTR, vísaði þessari gagnrýni til
föðurhúsanna. Hún sagði að þó
rekstrarstyrkir væru að lækka
milli ára væri framlag til íþrótta-
og æskulýðsmála í heildina að
hækka um rúmlega 100 milljónir
milli ára. Alls næmu styrkveit-
ingar á vegum ÍTR tæpum 700
milljónum króna. ■
Innbrotsþjófur:
Ótrúleg
afköst
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
hefur verið dæmdur í tólf mánaða
fangelsi fyrir hátt í hundrað inn-
brot, bílaþjófnaði og fleiri afbrot
á um tveggja ára tímabili. Níu
mánuðir refsingarinnar eru skil-
orðsbundnir.
Maðurinn braust bæði inn í bíla
og hús og stal öllu steini léttara.
Hann falsaði ávísanir og misnot-
aði greiðslukort annarra. Alls stal
hann fyrir rúmar fimm milljónir
króna.
Í Héraðsdómi Reykjavíkur
sagðist maðurinn, sem rauf skil-
orð fyrri dóma, vera hættur í af-
brotum, vera í vinnu og eiga von á
barni. ■
Fangar flýja:
Gengu
út í frelsið
MEXÍKÓ, AP Fangarnir þrír sem
flúðu úr fangelsi í Norður-Mexíkó
þurftu ekki að hafa mikið fyrir
flóttanum. Þeir gengu út um aðal-
inngang fangelsisins án þess að
nokkur maður gerði tilraun til að
stöðva þá.
Fangelsismálayfirvöld segja
allt útlit fyrir að fangarnir hefðu
notið aðstoðar fangavarða við
flóttann. Rannsókn hefur verið
hafin á flótta mannanna þriggja.
Enn sem komið er hefur enginn
verið handtekinn í tengslum við
flóttann. ■
HÚSNÆÐISMÁL Rúmlega 20% fé-
lagslegra íbúða í Reykjavík eru í
Efra Breiðholti, en 36% allra
íbúða í hverfinu tilheyra félags-
lega kerfinu. Um 19% allra fé-
lagslegra íbúða í borginni eru í
Grafarvogi, eða um 24% allra
íbúða í hverfinu.
Lægsta hlutfall félagslegra
íbúða er í Norðurbænum eða póst-
númeri 104. Þar eru um 4% allra
félagslegra íbúða í borginni, eða
tæplega 5% allra íbúða í hverfinu.
Í nýrri skýrslu um félagslega
íbúðakerfið segir að þetta sé mjög
óæskileg staða og bjóði heim
verulegri hættu á aðgreiningu
þjóðfélagshópa. Í skýrslunni er
komið með tillögur til úrbóta og
ein af þeim er að við gerð skipu-
lagsáætlana í Reykjavík verði
lögð rík áhersla á blöndun byggð-
ar til að vinna á móti þessari að-
greiningu.
Æskilegt þykir að í íbúðahverf-
um verði allt að 20% íbúða miðað-
ar við þarfir tekjuminni hópa,
ungs fólks sem er að hefja búskap
og námsmanna. Lagt er til að við
þéttingu byggðar í grónum hverf-
um verði gert ráð fyrir byggingu
leiguíbúða. ■
LEIGUÍBÚÐIR Umsóknum um félags-
legt leiguhúsnæði í Reykjavík
fjölgaði um 53% milli áranna 2001
og 2002. Í fyrra sótti 881 um hús-
næði en 164 fengu úthlutað íbúð.
Þetta kemur fram í skýrslu um
stefnu í uppbyggingu leiguhús-
næðis í Reykjavík.
Biðlisti eftir félagslegu leigu-
húsnæði í Reykjavík hefur lengst
um 429 umsækjendur síðan árið
1998. Á sama tímabili fjölgaði
íbúðum Félagsbústaða hf. hins
vegar um 400 og um síðustu ára-
mót áttu Félagsbústaðir 1.400
íbúðir. Meðalbiðtími eftir úthlutun
var 22 mánuðir í fyrra og hafði
hann lengst um tvo mánuði frá því
árið 2001.
Ástæðurnar fyrir þessari gríð-
arlegu fjölgun umsækjenda eftir
félagslegu leiguhúsnæði eru
margþættar. Atvinnuleysi jókst í
Reykjavík í fyrra, en skýr tengsl
eru á milli aukins atvinnuleysis og
þarfar fyrir ódýrt og öruggt leigu-
húsnæði. Lokun félagslega eigna-
íbúðakerfisins og kaupleiguíbúða-
kerfisins árið 1998 hafði í för með
sér að hundruð félagslegra íbúða
hurfu af markaðnum. Uppsveifla
fasteignamarkaðarins árið 1999
og 2000 hafði einnig áhrif, en hún
leiddi til þess að almennum leiguí-
búðum fækkaði og leiguverð á al-
menna markaðnum hækkaði. Í
skýrslunni er einnig sagt að hækk-
un vaxta hafi leitt til þess að fé-
lagasamtök hafi dregið úr nýbygg-
ingum leiguíbúða til félagsmanna
sinna.
Í skýrslunni er leitað leiða til
þess að mæta þeim vanda sem
skapast hefur á leigumarkaðnum.
Ein af megintillögunum er að
styrkja almenna leigumarkaðinn
með því meðal annars að lækka
gjöld þeirra sem vilja byggja
leiguíbúðir og hækka hámarks-
upphæð húsaleigubóta. Einnig er
lagt til að félagsmálaráðuneytið
endurskoði tekju- og eignamörk
vegna félagslegra íbúða og að
kannað verði hvort lífeyrissjóðir
geti komið að fjármögnun 10%
framlags til byggingar leiguíbúða.
Þá er einnig lagt til að óbeinar
niðurgreiðslur Reykjavíkurborg-
ar á íbúðir verði lagðar af og fyrir-
komulagi stuðningsins breytt á
þann hátt að hann verði persónu-
bundinn, skattfrjáls og skerði ekki
bætur frá Tryggingastofnun ríkis-
ins.
trausti@frettabladid.is
Dómur staðfestur:
Skilorð yfir
barnaníðingi
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest tólf mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm yfir kynferðis-
afbrotamanni á Suðurlandi.
Maðurinn var í október dæmd-
ur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur stúlk-
um og einum dreng. Auk fangels-
isdómsins átti hann að greiða
tveimur barnanna 450 þúsund
krónur í miskabætur. Þriðja barn-
ið krafðist ekki bóta. Stúlkurnar
eru tengdar brotamanninum ætt-
arböndum.
Maðurinn undi dómnum en
ákæruvaldið áfrýjaði til refsi-
þingingar. ■
HEILDARHÆKKUN STYRKJA
Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans og formaður ÍTR, sagði að þó rekstrarstyrkir
væru að lækka milli ára væri framlag til íþrótta- og æskulýðsmála í heildina að hækka um
rúmlega 100 milljónir milli ára.
Tekist á um styrki til íþrótta- og æskulýðsstarfs í
borgarstjórn:
Um 13% skerðing
rekstrarstyrkja
EFRA BREIÐHOLT
Í nýrri skýrslu um fé-
lagslega íbúðakerfið
segir að núverandi
skipting félagslegs
húsnæðis í borginni
sé mjög óæskileg og
bjóði heim verulegri
hættu á aðgreiningu
þjóðfélagshópa.
Skipulag félagslegs húsnæðis í Reykjavík býður heim
hættu á aðgreiningu í þjóðfélagshópa:
Um 20% íbúða
í Efra Breiðholti
YFIRLIT FÉLAGSLEGRA ÍBÚÐA Í REYKJAVÍK EFTIR HVERFUM Í
ÁRSLOK 2001
Fjöldi Fjöldi Hlutfall
íbúða félagslegra íbúða félagslegra íbúða
Vesturbær 7.406 1.093 14,8%
Austurbær 8.976 1.308 14,6%
Norðurbær 5.573 275 4,9%
Suðurbær 5.774 294 5,1%
Árbær 2.970 203 6,8%
Efra Breiðholt 3.634 1.317 36,2%
Neðra Breiðholt 1.499 379 25,3%
Seljahverfi 2.485 339 13,6%
Grafarvogur 5.319 1.266 23,8%
Grafarholt 600 40 6,7%
Alls 44.236 6.514 14,7%
Sprenging í umsóknum
um félagslegt húsnæði
Í fyrra sótti 881 um félagslegt leiguhúsnæði eða 53% fleiri en árið 2001. Rekja má fjölgunina til
hækkunar á leiguverði á almennum markaði og aukins atvinnuleysis. Lagt til að húsaleigubætur
verði hækkaðar.
SAMDRÁTTUR Í
NÝBYGGINGUM LEIGUÍBÚÐA
Í skýrslu um stefnu í uppbyggingu leigu-
húsnæðis í Reykjavík segir að hækkun
vaxta hafi leitt til þess að félagasamtök
hafi dregið úr nýbyggingum leiguíbúða til
félagsmanna sinna.
MÓTMÆLI GEGN STRÍÐI
Ungur drengur heldur í hönd móður sinn-
ar í mótmælastöðu fyrir framan bandaríska
sendiráðið í Istanbúl í Tyrklandi. Á spjald-
inu fyrir aftan hann er „bandarískri villi-
mennsku“ hafnað.
MEIRI LOÐNA Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra hefur
ákveðið að auka loðnukvótann um
50 þúsund tonn og er hann því
765 þúsund tonn. Þetta er gert
eftir mælingar fyrir Suðaustur-
landi. Endanleg ákvörðun um
kvóta vertíðarinnar verður tekin
að lokinni athugun rannsókna-
skipsins Árna Friðrikssonar fyrir
Vestjörðum og er ákvörðunar að
vænta fljótlega. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M