Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 15

Fréttablaðið - 10.03.2003, Side 15
15MÁNUDAGUR 10. mars 2003 Umferðargjald: Blair sektaður LONDON, AP Forsætisráðherrar verða að fara að lögum rétt eins og aðrir borgarar. Það á við um Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem gæti þurft að greiða sektir upp á andvirði rúm- lega hundrað þúsund króna. Eftir að vegatollur var tekinn upp í miðborg London hefur Blair greitt tollinn samviskusamlega í samræmi við þann afslátt sem íbúar í miðborginni fá. Blair gleymdi hins vegar að skrá bíl sinn með réttum hætti og gæti því lent í því að þurfa að greiða háar sektir. Eftir á að koma í ljós hvort honum verði fyrirgefin gleymsk- an. ■ Þyrlan kom til hjálpar: Slasaðist á vélsleða SLYS Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunn- ar sótti á laugardag mann sem hafði orðið fyrir vélsleðaslysi við Þver- brekknamúla í Kjalhrauni. Kallið barst rétt fyrir klukkan fimm síðdeg- is. Hópur vélsleðamanna var á ferða- lagi þegar einn þeirra féll af sleðan- um og slasaðist. Félagarnir voru vel búnir og höfðu meðferðis gervi- hnattasíma sem þeir gátu notað til að kalla eftir hjálp. TF-SIF var komin á slysstað um einum og hálfum tíma eftir að kallið barst, en flugið gekk vel þrátt fyrir snjókomu og lélegt skyggni. Rétt eftir klukkan sjö var hinum slasaða komið undir læknis- hendur á Landspítalann í Fossvogi. ■ Minnkandi tap Aco- Tæknivals: Rekstur áfram erfiður UPPGJÖR Tap Aco-Tæknivals var 350 milljónir árið 2002. Fyrirtæk- ið tapaði yfir milljarði árið áður. Eigið fé félagsins er neikvætt um 300 milljónir. Fyrirtækin Fengur og Baugur keyptu hvor sín 24 pró- sent í fyrirtækinu á síðasta ári. Stjórnendur félagsins eru bjart- sýnir á að það takist að snúa við langvarandi taprekstri félagsins. Ljóst sé þó að fyrsti ársfjórðung- ur þessa árs verði félaginu erfið- ur og tap meira en í fyrra. Hins vegar er búist við vexti þegar líða tekur á árið. ■ 94% LAUNAMUNUR Karlar í sam- búð hafa 94% hærri laun en þeir sem ekki eru í sambúð. Þeir fyrr- nefndu hafa 3,3 milljónir í árslaun en hinir 1,7 milljónir að meðaltali. Þetta kom fram í erindi Ingólfs V. Gíslasonar, starfsmanns Jafnrétt- isskrifstofu, síðastliðinn föstudag. 20% LAUNAMUNUR Konur í sam- búð eru með 20% hærri tekjur en þær sem eru ekki í sambúð. Með- altekjur kvenna í sambúð voru 1,5 milljónir árið 2000 en kvenna sem ekki voru í sambúð 1,3 millj- ónir. HLUTUR KVENNA HÆKKAR Konur höfðu 61,6% af tekjum karla árið 2001. Það er heldur meira en árið 1990 þegar hlutur kvenna var 52,3% af hlut karla að því er kom fram í máli Ingólfs V. Gíslasonar. ÁÆTLUNARFLUG TIL ÍSLANDS Flugmálastjórn fundar með Grænlandsflugi vegna umsóknar félagsins um áætlunarflug til Ís- lands. Fundurinn verður á mið- vikudag. INNLENT TONY BLAIR Gleymskan gæti reynst honum dýrkeypt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.