Fréttablaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 14
14 10. mars 2003 MÁNUDAGUR
Prófkvíði
Námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á kvíðanum (14 st.)
fim. 20. mars – 8. maí kl. 17:00-19:00.
Leiðbeinendur: Halldóra Bergmann sálfræðingur og Guðmunda Birg-
isdóttir námsráðgjafi.
Verð: 14.000 kr. Einstaklingstími hjá sálfræðingi innifalinn.
Upplýsingar í síma 581 4914 og www.fa.is/framvegis
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk-ur skattalækkana, ekki skatta-
hækkana. Til að vera enn ná-
kvæmari: Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki hækkað skatta á yfir-
standandi kjörtímabili, eins og
Samfylkingin með stuðningi
fréttastofu Stöðvar tvö hefur
haldið fram. Þessu hafa þeir hald-
ið fram án þess að geta bent á einn
einasta skatt sem hefur verið
hækkaður! Sjálfstæðisflokkurinn
hefur þvert á móti lækkað skatta
á kjörtímabilinu. Andstæðingar
flokksins hafa í málefnafátækt
sinni haft endaskipti á hlutunum.
Í þeirra meðförum hefur svart
orðið hvítt.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur eignaskattur verið lækkað-
ur um helming og sérstakur
eignaskattur, svokallaður Þjóðar-
bókhlöðuskattur verið aflagður.
Jafnframt hafa fríeignamörk ver-
ið hækkuð. Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir á að afnema eignaskatta
alfarið á næsta kjörtímabili fái
hann til þess tækifæri. Þessi
breyting skiptir heimilin miklu
máli, ekki síst þau sem skulda lít-
ið. Þar vil ég sérstaklega nefna
eldra fólk, sem yfirleitt er í skuld-
litlu eða skuldlausu húsnæði.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur sú breyting orðið á að per-
sónuafsláttur er nú orðinn að fullu
yfirfæranlegur milli hjóna.
Þannig nýtist að fullu skattkort
þess makans sem er heimavinn-
andi og tekjulaus. Þá hafa barna-
bætur hækkað um rúma tvo millj-
arða króna á síðustu tveimur
árum. Þessar breytingar hafa
komið barnafjölskyldum sérstak-
lega vel og aukið ráðstöfunarfé
þeirra.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur hátekjuskatturinn verið
lækkaður úr 7% í 5% og viðmið-
unarmörk verið hækkuð. Há-
tekjuskatturinn hefur verið rang-
nefni, þar sem raunin er sú að
meðaltekjufólk hefur lent innan
marka hans.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hefur skattfrádráttur vegna við-
bótarlífeyrissparnaðar verið auk-
inn um helming. Þetta hefur hvatt
til langtímasparnaðar og sam-
kvæmt nýjum athugunum átti við-
bótarlífeyrissparnaður lands-
manna, sem nam um 12 milljörð-
um króna á síðasta ári, verulegan
þátt í því að draga úr verðbólgu
og viðskiptahalla, sem um leið dró
úr þenslu í efnahagslífinu. Þessi
ráðstöfun hefur því komið öllum
til góða bæði í bráð og lengd.
Á yfirstandandi kjörtímabili
hafa húsaleigubætur verið gerðar
skattfrjálsar.
Þessu til viðbótar má nefna að
á síðustu árum hefur tekjuskattur
verið lækkaður um 4%. Tekju-
skattur var 32,8% þegar vinstri
stjórn fór frá, en er nú 28,8%. Þá
er vert að minna á að virðisauka-
skattur á matvæli, matarskattur-
inn, var lækkaður úr um 24,5% í
14% á árinu 1994, en því hafa
sjálfsagt margir þegar gleymt. Þá
er rétt að benda á að afnám tolla á
grænmeti á síðasta ári hefur leitt
til verulegrar verðlækkunar á
grænmeti og ávöxtun á síðustu
mánuðum.
Til frekari áréttingar hafa at-
huganir OECD leitt í ljós að skatt-
byrði heimilanna hér á landi sé
með því lægsta sem gerist meðal
aðildarríkja stofnunarinnar. Í
nýrri skýrslu hennar kemur fram
að skattbyrði fjölskyldu með tvö
börn, þar sem annar makinn er
heimavinnandi, er 3,2%, sem þýð-
ir að fjölskyldan fær meira greitt
til baka frá samfélaginu en hún
greiðir til þess með sköttum. Til
samanburðar er skattbyrði sam-
bærilegrar fjölskyldu í Dan-
mörku 30,5%.
Hvernig er því hægt að halda
fram að skattar hafi hækkað hér á
landi í tíð ríkisstjórna Davíðs
Oddssonar? Þegar haft er til hlið-
sjónar að kaupmáttur launa hefur
hækkað um þriðjung frá 1994 og
verðbólga er nú með því lægsta
sem gerist meðal vestrænna
þjóða, má ljóst vera að almenning-
ur nýtur afraksturs traustrar
efnahagsstjórnunar síðustu ára.
Almenningur finnur þetta á eigin
skinni og hann sér í gegnum
blekkingarvef þeirra sem halda
öðru fram.
Sjálfstæðisflokkurinn mun
halda áfram að lækka skatta fái
hann til þess stuðning í kosning-
unum í vor. ■
þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
skrifar um skattamál.
ÁSTA MÖLLER
Um daginn
og veginn
Svart verður hvítt
Í Fréttablaðinu í dag eru birtarniðurstöður skoðanakönnunar
um tiltrú fólks á lýsingu Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra á
fundi hans og Hreins Loftssonar,
stjórnarformanns Baugs, í
London fyrir rúmu ári. Sam-
kvæmt þeim segist 41 prósent
fólks telja að Davíð hafi sagt satt
og rétt frá fundinum, 26 prósent
töldu svo ekki vera og 33 prósent
voru óákveðin um hvort ráðherr-
ann hafi sagt satt og rétt frá fund-
inum. Það má glögglega sjá mis-
munandi afstöðu til spurningar-
innar eftir flokkum. Hlutfallslega
flestir sjálfstæðismenn telja að
frásögn Davíðs sé rétt og sönn en
fæstir stuðningsmanna Samfylk-
ingarinnar. Meðal þeirra sem
ekki taka afstöðu til flokka segist
31 prósent telja að Davíð hafi gef-
ið rétta og sanna mynd af fundin-
um.
Það er þungbært fyrir samfé-
lagið að ekki fleiri landsmenn
skuli treysta frásögn forsætisráð-
herrans. Stuðningsmenn hans
munu án efa skýra það með því að
svarnir andstæðingar Davíðs hafi
grafið undan trúverugleika hans.
Á hitt verður hins vegar að líta að
margt í frásögn ráðherrans orkar
mjög tvímælis. Hann hefur til
dæmis haldið því fram að Hreinn
Loftsson hafi ekki verið að til-
kynna honum afsögn sína úr
einkavæðinganefnd á fundinum.
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins
benti hins vegar á það á föstu-
dagskvöldið að Hreinn hefði sent
frá sér fréttatilkynningu á sínum
tíma og greint þar frá því að hann
hefði tilkynnt Davíð þetta á þess-
um fundi og að þessari fullyrð-
ingu í fréttatilkynningunni hafi
ekki verið mótmælt á sínum tíma.
Þetta atriði er mikilvægt. Ekki
aðeins sökum þess að fréttatil-
kynning Hreins var gefin út áður
en það hatursandrúmsloft gaus
upp sem ríkt hefur í samfélaginu
frá morgunspjalli Ríkisútvarps-
ins við forsætisráðherrann síð-
asta mánudag, heldur ekki síður
vegna þess að í framsetningu
sinni hefur forsætisráðherrann
látið í það skína að Hreini hafi
snúist hugur af ástæðum sem séu
ráðherranum ekki kunnar. Og yfir
þeim vangaveltum hangir opin
spurning ráðherrans sjálfs: Á
hverja hafa þessir menn borið fé?
Undanfarnir dagar hafa verið
þjóðinni erfiðir – jafnt stuðnings-
mönnum Davíðs og þeim sem
hann flokkar ekki í sitt lið. En
ásakanir ráðherrans á hendur
fjölda fólks eru það alvarlegar að
það væri sorglegt ef þetta mál
myndi hrekjast úr umræðunni
sökum þess hversu sársaukafullt
það er. Það er því fyllilega eðlileg
krafa að Davíð Oddsson geri opin-
bera minnispunkta þá sem hann
hefur vitnað í og segist hafa skrif-
að niður strax morguninn eftir
fundinn. ■
Það þarf að opinbera minnispunktana
skrifar um trúnað þjóðarinnar við
forsætisráðherra sinn.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Minningarathöfn:
Mótmæli
björguðu
gyðingum
SOFIA, AP Fjöldi Búlgara minntist
þess í gær að 60 ár eru liðin frá því
að öflug mótmæli leiddu til þess
að stjórnvöld landsins ákváðu að
flytja búlgarska gyðinga ekki í út-
rýmingarbúðir nasista.
Búlgarar voru bandamenn
Þjóðverja í síðari heimsstyrjöld.
Stjórn landsins hugðist flytja gyð-
inga landsins á brott og afhenda
þá Þjóðverjum. Mikil mótmæli
urðu til þess að Boris III, konung-
ur Búlgaríu, ógilti stjórnarákvörð-
unina. 50.000 búlgarskir gyðingar
sluppu því við útrýmingarbúðir
nasista. Landið var hið eina í Aust-
ur-Evrópu sem neitaði að afhenda
Þjóðverjum gyðinga. ■
Afganistan:
Aftur á Netið
KABÚL, AP Afganistan verður form-
lega hluti af netþjóðfélaginu í dag
þegar .af-ending vefslóða verður
tekin upp á nýjan leik.
Meðan Talibanar voru við
stjórnvölinn í Afganistan var
landsmönnum bannað að nota
Netið. Nú hafa afgönsk stjórnvöld
í samvinnu við Þróunaráætlun
Sameinuðu þjóðanna ákveðið að
efla netnotkun landsmanna. Hluti
af því er að taka upp .af-endingu
fyrir afganskar heimasíður. Slík
ending var til um tíma en eftir að
hvatamaðurinn að því hvarf datt
sú ending upp fyrir. Ekki er þó bú-
ist við að netnotkun verði út-
breidd í landinu á næstunni. ■
Friðarsinni:
Handtekinn
vegna bolsins
BANDARÍKIN Búðarferð feðganna
Stephen og Roger Downs lauk
með því að faðirinn var handtek-
inn fyrir að vera í leyfisleysi í
verslunarmiðstöðinni í Guilder-
land í New York-ríki. Ástæðan var
sú að stjórnendum verslunarmið-
stöðvarinnar geðjaðist ekki að því
að þeir feðgar voru í bolum
merktum „Friður á jörð“ og „Gef-
um friðnum tækifæri“. Öryggis-
verðir fyrirskipuðu feðgunum að
fara úr bolunum. Sonurinn varð
við kröfunni en faðirinn ekki.
Hann var leiddur burt af lögreglu-
mönnum. Bolina létu feðgarnir út-
búa fyrir sig í verslun í verslunar-
miðstöðinni. ■
MÓTMÆLANNA MINNST
Flestir búlgarskir gyðingar fluttu til Ísraels
þegar landið var stofnað. Nú búa um
5.000 gyðingar í Búlgaríu.
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.