Fréttablaðið - 10.03.2003, Page 18
KAPPAKSTUR Ökuþórinn David
Coulthard, liðsmaður McLaren,
fagnaði sigri á fyrsta móti For-
múlu 1 kappakstursins sem haldið
var í Melbourne í Ástralíu í gær.
Coulthard kom í mark 8,6 sek-
úndum á undan Juan Pablo
Montoya, liðsmanni Williams.
Montoya var um tíma í forystu en
þegar 10 hringir voru eftir missti
hann Coulthard fram úr sér.
Kimi Raikkonen, samherji
Coulthard hjá McLaren, var lengi
vel í baráttunni um fyrsta sætið
en dróst aftur úr þegar hann
þurfti að taka út refsingu fyrir að
aka of hratt á viðgerðarsvæðinu.
Lauk hann keppni í þriðja sæti.
Heimsmeistarinn Michael
Schumacher var einnig lengi vel í
baráttunni um efsta sætið en
skemmdi bíl sinn þegar 20 hringir
voru eftir og missti þar úr mikil-
vægan tíma.
Hann lauk keppni í fjórða sæti
og er þetta í fyrsta sinn síðan í júlí
árið 2001 sem Þjóðverjinn snjalli
kemst ekki á verðlaunapall.
Rubens Barrichello, samherji
Schumacher hjá Ferrari, féll úr
keppni eftir fimm hringi. Niður-
staðan var því mikil vonbrigði
fyrir Ferrrari-liðið, sem vann For-
múluna með yfirburðum í fyrra.
Coulthard, sem er 31 árs gam-
all, hefur unnið að minnsta kosti
einn kappakstur á ári í Formúlu 1
síðan 1997. Hann lenti í öðru sæti
í Melbourne árið 2001 en náði ekki
að ljúka keppni í fyrra.
„Þetta voru frábær úrslit,“
sagði Coulthard eftir kappakstur-
inn. „Frá sjónarhóli liðsins þá get-
um við ekki annað en verið
ánægðir með fyrsta og þriðja sæt-
ið. En við eigum enn mikið verk
fyrir höndum í baráttunni við
Ferrari-liðið.“
Michael Schumacher var ekki
eins ánægður. „Það er eðlilegt að
hlutirnir breytist einn góðan veð-
urdag. Þannig ganga hlutirnir
bara fyrir sig í íþróttunum.“ ■
10. mars 2003 MÁNUDAGUR
Til leigu atvinnuhúsnæði
1. Við Hjallabrekku/Nýbýlaveg. Ca 820m2 jarðhæð með m/2 stór-
um innkeyrsludyrum. Góður möguleiki á að skipta upp í 3-5 ein.
5m lofthæð. Í húsinu er stór og virtur förðunarskóli
2. Við Tranavog.Á 2.hæð ca 435 m2. Stór bjartur salur sem hægt er
að skipta upp í smærri ein. Tilvalið fyrir skrifstofur eða léttan iðn-
að.
3. Við Barðastaði í Grafarvogi. 2 verslunarbil 68m2 og 136 m2. Í
þetta 1500 manna hverfi vantar ýmsa þjónustu.
4. Við Bolholt- skrifstofuhúsnæði Á 4.hæð í lyftuhúsi ca 545 m2
hæð sem skipta má upp í smærri einingar. Hagstætt leiguverð.
5. Við Bergstaðastræti- verslunar eða þjónustuhúsnæði. 2 einingar,
ca.60m2 ca.50m2 á jarðhæð.Hægt að sameina. 200 m frá Skóla-
vörðustíg.
Upplýsingar gefur Snorri í síma 892 3797 og
tsh@islandia.is
HNEFALEIKAR Íslendingar og Danir
unnu fjórar viðureignir hvorir í
átta hnefaleikabardögum sem
háðir voru í Laugardalshöll á
laugardagskvöld.
Þeir Ronald Þór Fairweather,
Stefán Breiðfjörð, Arnar Bjarna-
son og Ingólfur Snorrason fóru
með sigur af hólmi í sínum bar-
dögum gegn Dönunum.
„Ég held að það geti allir verið
sáttir við þennan árangur miðað
við að þetta var fyrsta keppnin
okkar,“ sagði Salvar Halldór
Björnsson, framkvæmdastjóri
keppninnar. „Maður sá að sumir
keppendur hefðu getað gert betur
ef stressið hefði verið minna. En
salurinn var ótrúlegur og hvatn-
ingin var þvílík.“
Að sögn Salvars mættu um
1.500 til 2.000 manns til að styðja
við bakið á íslensku keppendun-
um og hafði hann aldrei kynnst
annarri eins stemningu. ■
16.00 Sýn
Útsending frá leik Los Angeles Lakers
og Philadelphia 76ers.
19.15 Grindavík
Grindvíkingar leika gegn Haukum í
lokaumferð 1. deildar kvenna í körfu-
bolta. Heimamenn eru í 3. sæti deild-
arinnar en gestirnir í því neðsta.
19.15 Keflavík
Deildarmeistarar Keflavíkur leika gegn
KR í lokaumferð 1. deildar kvenna í
körfubolta.
19.15 Kennaraháskólinn
ÍS leikur gegn Njarðvík í lokaumferð
1. deildar kvenna í körfubolta. Njarð-
víkingar eiga möguleika á að ná þrið-
ja sætinu af Grindvíkingum.
20.00 Sýn
Toppleikir. Upptaka frá leik Blackburn
Rovers og Manchester United.
22.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
22.50 Skjár 1
Mótor. Þáttur um mótorsport.
23.00 Sýn
Ensku mörkin. Sýnt verður frá leikjum
helgarinnar í enska boltanum.
23.40 RÚV
Markaregn. Sýndir verða valdir kaflar
úr leikjum helgarinnar í þýska fótbolt-
anum.
ÞUNGT HÖGG
Ingólfur Snorrason kýlir Dan-
ann Nicolaj Thogersen í
viðureign þeirra í þungavigt.
Þetta var síðasti hnefaleika-
bardagi kvöldsins og vann
Ingólfur auðveldan sigur.
Viðureign Íslands og Danmerkur:
Jafntefli í hringnum
HÖRÐ KEPPNI
Kappaksturinn í Melbourne var afar spennandi og skiptust ökumenn á um að halda
forystunni. Hér sést Michael Schumacher aka rétt á eftir Finnanum Kimi Raikkonen, á
meðan hann var í fyrsta sæti.
Coulthard
fagnaði sigri
Fyrsta mótið í Formúlu 1 kappakstrinum var háð í Ástralíu í gær. Liðs-
menn McLaren náðu fyrsta og þriðja sætinu. Heimsmeistarinn Michael
Schumacher komst ekki á verðlaunapall í fyrsta sinn í tvö ár.
FÖGNUÐUR
Skotinn David Coulthard fangar sigrinum í Melbourne. Þetta var 13. sigur kappans í Formúlu 1 kappakstrinum.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
FR
ÉT
TB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M