Fréttablaðið - 10.03.2003, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 10. mars 2003
FÓTBOLTI Brasilíumaðurinn Ro-
berto Carlos, leikmaður Evrópu-
meistara Real Madrid, vill ganga
til liðs við Arsenal þegar samning-
ur hans við spænska liðið rennur
út eftir tæp tvö ár.
„Mig langar að leika í ensku
úrvalsdeildinni og ég veit að hún
hentar mér,“ sagði Carlos í viðtali
við blaðið News of the World.
„Þegar samningurinn minn renn-
ur út verður þetta forgangsmál
hjá mér og í Arsenal eru samland-
ar mínir frá Brasilíu. Ég held að
félaginu svipi til Real Madrid.
Það hefur gífurlegt sjálfstraust
sem virðist óhaggandi. Þegar lið
eru þannig er erfitt að sigra þau.
Þeir eru með frábæran leik-
mannahóp, frábæran þjálfara og
liðið er í góðu jafnvægi,“ bætti
Carlos við. ■
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið hefur hafið rannsókn á at-
viki sem átti sér stað í leik
Arsenal og Chelsea í bikarkeppn-
inni á laugardag.
Þá kastaði áhangandi Chelsea
peningi í Frakkann Thierry
Henry, leikmann Arsenal. Leit
stendur nú yfir að þeim sem bar
ábyrgð á verknaðinum og verður
honum væntanlega meinaður að-
gangur að leikjum í enska boltan-
um í framtíðinni.
Henry varð ekki fyrir meiðsl-
um er peningnum var kastað að
honum en hann meiddist hins veg-
ar í leiknum sjálfum. Talið er
óvíst hvort hann geti tekið þátt í
leik Arsenal við Roma í Meistara-
deild Evrópu sem háður verður
annað kvöld. ■
HENRY
Thierry Henry heldur á peningnum sem
kastað var í hann í leiknum gegn Chelsea,
sem endaði með 2:2 jafntefli.
Leikur Arsenal og Chelsea:
Henry varð fyrir aðkasti
CARLOS
Roberto Carlos varð heimsmeistari með
Brasilíumönnum síðasta sumar. Þessi
sókndjarfi bakvörður hefur staðið sig vel
með Real Madrid undanfarin ár.
Roberto Carlos:
Vill fara til
Arsenal