Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.03.2003, Blaðsíða 1
PERSÓNAN Einangraður í gagnrýninni bls. 22 Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 11. mars 2003 Tónlist 14 Leikhús 14 Myndlist 14 Bíó 16 Íþróttir 12 Sjónvarp 18 KVÖLDIÐ Í KVÖLD KYNNING Erpur Eyvindarson leggur leið sína í Bókasafn Kópavogs í kvöld. Þar ætlar hann að spjalla við forvitna um rapp, uppruna þess og menningu. Kynningin hefst klukk- an 19.30. Rapp í bókasafni Innflytjendur á Norðurlöndum MÁLSTOFA Naysa Gyedu Adomako segir frá athugunum sínum á því hvernig þróunin hefur orðið á stöðu innflytjenda á Norðurlöndum. Mál- stofan hefst klukkan 20. Styttra brúðkaup TÓNLIST Brúðkaup Figaros eftir Mozart verður sýnt í Tónleikasal Söngskólans, Snorrabúð á Snorra- braut. Um er að ræða nokkuð stytta útgáfu. Sýningin hefst klukkan 20. FUNDUR Halldór Ásgrímsson, Björn Bjarnason og Þórunn Sveinbjarnar- dóttir hafa framsögu á fundi Varð- bergs og Samtaka um vestræna samvinnu. Þar verður rætt um varnir Íslands á 21. öld. Fundurinn er haldinn í Skála Hótels Sögu og hefst klukkan 17.15. Varið land LÍFEYRIR Tapaði þriðju hverri krónu ÞRIÐJUDAGUR 59. tölublað – 3. árgangur bls. 22 VÉLSLEÐAMENN Grófu sig í fönn bls. 8 MYNDLIST bls. 22 Ljóð í mynda- römmum AFMÆLI Söngvari og baráttu- kona bls. 16 REYKJAVÍK SV 5 til 10 m/s og skýjað. Framan af degi verð- ur þriggja stiga frost en fer yfir frostmark síðdegis. VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜ ➜ ➜ - - - - ALÞINGI Einar K. Guðfinnsson, for- maður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, flutti fleiri ræð- ur á 22 mínútum í gærmorgun en tíu aðrir þingmenn hafa flutt í all- an vetur. Tveir þingmenn til við- bótar hafa flutt jafnmargar ræður í allan vetur og Einar flutti í gær- morgun. Einar tölti 15 sinnum í ræðu- stól Alþingis til að flytja framsögu um álit efnahags- og viðskipta- nefndar á þingmálum sem hafa komið til kasta nefndarinnar. Ef ekki væri fyrir það að ætlast er til að þingmenn yfirgefi ræðustól þegar þeir hafa lokið máli sínu hefði Einar getað sparað sér flest- ar gönguferðirnar. Lengst af kvað enginn annar þingmaður sér hljóðs. Það var ekki fyrr en eftir að Einar hafði flutt sína 15. og síð- ustu framsögu að annar þingmað- ur kvað sér hljóðs. Þar var á ferð Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylk- ingu, sem hélt eina ræðu. Sú var lengri en allar ræður Einars til samans. FÓTBOLTI Í SKUGGA YFIRVOFANDI STRÍÐS Mikill varnarviðbúnaður er í Bagdad og víðar í Írak vegna yfirvofandi innrásar Bandaríkj- anna og bandamanna þeirra. Þessir piltar létu það þó ekki aftra sér frá því að spila fótbolta og notuðu sandpokavígi sem mark. Einar K. Guðfinnsson í stórræðum: Flutti 15 framsögur á hálftíma MÁLSHÖFÐUN Japan Tobacco International, sem meðal annars framleiðir og dreifir Winston, Camel og Salem-sígarettum um allan heim, hefur þingfest mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn íslenska ríkinu. Vill tóbaks- risinn fá úr því skorið hvort tó- baksvarnarlögin, sem hér voru sett 2001, stangist á við samning- inn um evrópska efnahagssvæðið. Tóbaksfyrirtækið sættir sig ekki við að flytja inn til landsins og selja löglega vöru án þess að mega kynna hana eða sýna. Tó- baksverslunin Björk í Banka- stræti er aðili að stefnunni með tóbaksrisanum enda vandi versl- unarinnar af sömu rótum sprott- inn; varninginn má hvorki sýna né kynna. „Sígarettur eru lögleg verslunarvara en vissu- lega umdeildar sem slík- ar,“ segir Krister Löfman, aðalframkvæmdastjóri Japan Tobacco á Norður- löndum. „Þar sem tóbak getur valdið heilsutjóni og neytendur geta átt í erfið- leikum með að hætta þá sættum við okkur fullkom- lega við reglugerðir sem hamla gegn þessu ef þær eru innan skynsamlegra marka. En svo er ekki lengur á Ís- landi,“ segir aðalframkvæmda- stjórinn. „Íslendingar eru þroskaðir og vel upplýstir neyt- endur sem byrja ekki á því að reykja við það eitt að sjá sígarettupakka í verslun.“ Tóbaksrisinn sem hér um ræðir er sá þriðji stærsti í veröldinni. Með- al framleiðsluvara hans eru þrjár af fimm mest seldu sígarettutegundum heims. Markaðshlutdeild Japan Tobacco Inter- national hér á landi er um 65 prósent samkvæmt upplýsingum fyrirtækis- ins sjálfs. Það er Hróbjartur Jónatansson hæstaréttarlögmaður sem rekur málið fyrir tóbaksrisann og tó- baksverslunina Björk í Banka- stræti: „Í málinu reynir á hvort ís- lensku tóbaksvarnarlögin frá 2001 séu tæknileg viðskiptahindr- un samkvæmt ESS-samningum sem borið hefði að tilkynna til Eftirlitstofnunar EFTA áður en lögin voru samþykkt. Enn fremur hvort að lögin samræmist ákvæð- um ESS-samningsins um frjáls vöruviðskipti,“ segir Hróbjartur. „Hitt er hvort takmarkanir á sölu tóbaks, sem innleiddar voru með lögunum, séu í samræmi við ákvæði íslensku stjórnarskrár- innar um tjáningar- og atvinnu- frelsi,“ segir hann. eir@frettabladid.is AP M YN D Tóbaksrisi stefnir íslenska ríkinu Framleiðandi Winston og Camel vill láta reyna á réttmæti tóbaksvarnarlaga. Telur þau brjóta gegn EES-samningnum. Illmögulegt að versla með varning sem hvorki má sýna né kynna. Tóbaksverslunin Björk aðili að málinu. „Íslendingar eru þroskaðir og vel upp- lýstir neytend- ur sem byrja ekki á því að reykja við það eitt að sjá sígarettupakka í verslun.“ VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Él 4 Akureyri 3-8 Léttskýjað 4 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 7 Vestmannaeyjar 5-10 Snjókoma 5 EINFALT HANDRIT Einar K. Guðfinnsson var 15 sinnum kynnt- ur til sögunnar. Ræður hans voru flestar stuttar og þeim ekki svarað. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 27% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á þriðjudögum? 54% 72% Vildi losna við kallinn: Pabbi á lausu ÞRÁNDHEIMUR, AP Nina Mehlum Grönland var orðin leið á því að pabbi hennar byggi hjá henni. Hún brá því á það ráð að auglýsa hann á smáauglýsingasíðu á Net- inu í von um að losna við hann. „Gef pabba minn góðhjartaðri konu í Þrándheimi,“ hljóðaði aug- lýsingin. „Pabbi er hávaxinn, dökkleitur, grannvaxinn og á besta aldri. Ég er orðin dauð- þreytt á að hann búi í íbúðinni minni. Húsgögn fylgja með.“ Aug- lýsingin var hugsuð sem góðlátleg ábending um að 52 ára fráskilinn pabbi Ninu ætti að fara að svipast um eftir konu. Nina fékk eina sím- hringingu þar sem óskað var fleiri upplýsinga. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.