Fréttablaðið - 11.03.2003, Side 6
6 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 22
1.
2.
3.
Prestur Fríkirkjunnar sagði í
predikun að mikið ójafnræði
væri milli þjóðkirkjunnar og trú-
félaga. Hvað heitir presturinn?
Systurdóttir Hollandsdrottning-
ar lýsti því yfir að drottningin
væri áfengissjúklingur. Hvað
heitir drottning Hollands?
Hvaða góðkunni tónlistarmaður
vermir efsta sætið á lista tímar-
itsins People yfir tekjuhæstu
listamenn?
Í STJÓRN EIMSKIPS
Inga Jóna Þórðardóttir sest í sjö manna
stjórn Eimskipafélagsins.
Breytingar í stjórn Eim-
skips:
Inga Jóna fer
í stjórn
STJÓRNARKJÖR Töluverðar breyt-
ingar verða á stjórn Eimskipafé-
lagsins á næsta aðalfundi. Bene-
dikt Sveinsson, sem verið hefur
stjórnarformaður undanfarin ár,
gefur ekki kost á sér. Einar
Sveinsson, forstjóri Sjóvár-Al-
mennra, sest í stjórnina. Stjórnar-
mönnum verður fækkað úr níu í
sjö í samræmi við samþykktir
hluthafafundar. Inga Jóna Þórðar-
dóttir, fyrrum oddviti borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins og eiginkona Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra, sest í stjórn
Eimskipafélagsins. Þeir sem
hætta í stjórninni auk Benedikts
eru Jón H. Bergs, Gunnar Ragn-
ars og Jón Ingvarsson. Sjálfkjörið
er í stjórnina. ■
UNGMENNI MEÐ BARNAKLÁM
Tekið hefur verið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjaness mál tæplega
nítján ára gamals pilts í Kópa-
vogi sem ákærður er fyrir að
hafa haft um 50 myndir með
barnaklámi í tölvu sinni.
Óheppinn tónleikagestur:
Fékk haus af
kind í höfuðið
NOREGUR, AP Gestur á tónleikum
norsku dauðarokkssveitarinnar
Mayhem í Björgvin varð fyrir
þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að
brákast á höfði þegar haus af kind
kom fljúgandi í átt að áhorfendum
og hafnaði á kolli hans.
Hljómsveitarmeðlimir voru að
skera upp dauða kind á sviðinu þeg-
ar hausinn flaug úr höndum söngv-
arans með fyrrgreindum afleiðing-
um. Hinn slasaði, sem er mikill að-
dáandi hljómsveitarinnar, var flutt-
ur á sjúkrahús en búist er við því að
hann nái sér að fullu. Hann hefur
engu að síður lagt fram kæru vegna
atviksins. ■
VÍS skilar uppgjöri:
Háar greiðslur til Axels
UPPGJÖR Vátryggingafélag Ís-
lands skilaði ríflega 700 milljón
króna hagnaði. Áætlanir félagsins
gerðu ráð fyrir 500 milljón króna
hagnaði. Finnur Ingólfsson, for-
stjóri félagsins segir trygginga-
starfsemina vera skila betri af-
komu en áður „Þetta skýrist fyrst
og fremst af því að veðurfar var
hagstætt síðustu þrjá mánuði árs-
ins og því minna um tjón.“
Í rekstrarreikningi félagsins
er gjaldfærður kostnaður vegna
starfsloka Axels Gíslasonar.
Fréttir höfðu borist af því að hann
næmi 200 milljónum króna. Sam-
kvæmt reikningum félagsins er
skuldbinding eftirlauna Axels
53,6 milljónir króna. Við það bæt-
ast laun í uppsagnarfresti að upp-
hæð 21 milljón. Laun forstjóra fé-
lagsins eru 1,5 milljónir á mánuði.
Ríkisútvarpið greindi frá því að
Axel fái ríflega hundrað milljónir
króna frá Samvinnutryggingum
og Andvöku, samanlagt fái Axel
því um 200 milljónir króna.
Stjórn VÍS hefur ákveðið að
greiða starfsfólki kaupauka í
formi hlutar í félaginu vegna
góðrar afkomu ársins. Fær hver
starfsmaður félagsins hlutabréf
að verðmæti 80 þúsund í kaupau-
ka. Kaupaukinn er með sköttum
og skyldum metinn á 142 þúsund
krónu á hvern starfsmann. ■
Framlög til Reykjavíkur-
lista ekki opinberuð
Kosningastjórinn segir að Jón Ólafsson hafi ekki stutt framboðið. Bar-
áttan í fyrra kostaði rúmar 30 milljónir króna.
Bændaforingi á Búnaðarþingi:
Afþakkaði launahækkun
STJÓRNMÁL Reykjavíkurlistinn
mun ekki birta opinberlega upp-
lýsingar um einstök framlög til
framboðsins vegna kosningabar-
áttunnar á síðasta ári. Þar með
halda forráðamenn Reykjavík-
urlistans sig við
sömu stefnu og
þeir stjórnmála-
flokkar sem halda
því leyndu hverj-
ir styðja þá. Að-
eins Frjálslyndi
flokkurinn hefur
opnað reikninga
sína fyrir almenn-
ingi. Ingvar
Sverrisson, kosningastjóri R-
listans, segir að þessi ákvörðun
hafi verið tekin sameiginlega af
forráðamönnum Framsóknar-
flokks, Samfylkingar og Vinstri
grænna.
„Það var ákveðið af flokkun-
um að birta hvað kosningabar-
áttan í heild kostaði. Á meðan
aðrir flokkar birta ekki einstök
framlög þá mun Reykjavíkur-
listinn heldur ekki gera það,“
segir Ingvar.
Hann segist þó geta staðfest
að Norðurljós hafi ekki stutt
Reykjavíkurlistann með neinum
fjárframlögum.
„Við fengum ekki krónu frá
Jóni Ólafssyni eða fyrirtækjum
honum tengdum,“ segir Ingvar.
Hann segir að kosningabar-
áttan í fyrra hafi kostað rúmar
30 milljónir króna og enn vanti
einhverja peninga til að loka
reikningum.
„Við tókum kosningabaráttuna
skynsamlega og bruðluðum hver-
gi. Við gerðum áætlanir áður en
baráttan hófst og stóðum við þær,“
segir Ingvar.
Hann bendir á að Sjálfstæðis-
flokkurinn harðneiti að upplýsa
um kostnað við sína kosningabar-
áttu í fyrravor. Ingvar segir að
gaman væri að fá upplýst hverjir
hafi fellt niður skuldir þeirra í því
ljósi að kosningabarátta Sjálf-
stæðisflokksins hafi verið mun
dýrari.
Ekki náðist í Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, til að fá upplýs-
ingar um kostnað við framboð
Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnarkosninganna. ■
LANDBÚNAÐUR Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtakanna, af-
þakkaði launahækkun sem hon-
um var boðin á nýafstöðnu Bún-
aðarþingi. Kom fram tillaga um
að störf Ara yrðu metin til þing-
farakaups en hingað til hefur
Ari fengið 75 prósent af þingfar-
arkaupi. Tillaga þessa efnis var
borin upp á þinginu við góðar
undirtektir en Ari sagði nei,
takk:
„Þetta sýnir bara að það eru
ekki allir Íslendingar sem hugsa
eins,“ sagði Ari eftir að hafa af-
þakkað launahækkunina. „Í setn-
ingarræðu minni á þinginu kom
fram að stór hluti bænda hefur
jafnvel engin laun og það hefði
ekki alveg verið í takt ef ég
hefði þá farið að þiggja hækkun.
Ég hef nóg fyrir mig og mína
konu, börnin eru uppkomin og ég
hef ekkert við meira að gera.
Myndi ekki vita hvað ég ætti að
gera við það,“ sagði Ari Teitsson.
■
REYKJAVÍK
Ekki verður sagt frá einstökum framlögum til Reykjavíkurlistans en kosningabaráttan á síð-
asta vori kostaði alls um 30 milljónir króna.
„Á meðan aðr-
ir flokkar birta
ekki einstök
framlög þá
mun Reykja-
víkurlistinn
heldur ekki
gera það.“
STARFSLOKASAMNINGUR
Heildar kostnaður vegna starfsloka Axels
Gíslasonar, samkvæmt uppgjöri VÍS, nema
ríflega 70 milljónum króna.
BANDARÍKIN
ARI TEITSSON
„Þetta sýnir bara að það
eru ekki allir Íslendingar
sem hugsa eins.“
DÓMSMÁL
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.79 -0.23%
Sterlingspund 122.55 -0.81%
Dönsk króna 11.42 0.60%
Evra 84.77 0.55%
Gengisvístala krónu 122,29 0,75%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 522
Velta 7.209 milljónir
ICEX-15 1.392 0,24%
Mestu viðskipti
Samherji hf. 265.616.959
Flugleiðir hf. 228.012.105
Búnaðarb. Ísl. hf. 141.737.847
Mesta hækkun
ACO-Tæknival hf. 33,33%
Vátryggingafélag Íslands hf. 6,25%
Skýrr hf. 2,56%
Mesta lækkun
Vinnslustöðin hf. -3,45%
Flugleiðir hf. -3,39%
Eimskipafélag Íslands hf. -1,64%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7614,8 -1,6%
Nasdaq*: 1281,5 -1,8%
FTSE: 3436,0 -1,6%
DAX: 2334,2 -4,0%
Nikkei: 8042,3 -1,3%
S&P*: 812,3 -2,0%
FORELDRAR FÓRUST Í UMFERÐAR-
SLYSI Lögreglumenn sem komu að
umferðarslysi á hraðbraut í
Wisconsin fundu tveggja ára gam-
alt stúlkubarn sitjandi upp við
girðingu skammt frá slysstaðnum.
Stúlkan hafði verið með föður sín-
um og móður í fólksbifreið sem
lenti í árekstri við flutningabíl.
Báðir foreldrarnir fundust látnir í
flaki bifreiðarinnar.
RÚTA KEYRÐI Á RÚTU Rúta keyrði
aftan á aðra rútu á þjóðvegi sem
liggur frá Las Vegas til Kaliforníu
með þeim afleiðingum að tugir
manna slösuðust, þar af átta lífs-
hættulega. Loka þurfti veginum í
fimm klukkustundir og myndaðist
við það mikil umferðarteppa. Or-
sakir slyssins eru enn ókunnar en
vegaframkvæmdir stóðu yfir þar
sem óhappið varð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M