Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2003, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 11.03.2003, Qupperneq 8
8 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR ASÍA GRÓÐURVERND Tveir fulltrúar Landgræðslunnar hafa heimsótt Vestmannaeyjar til að taka út meinta fjárbeit tómstundabænda á gróðurverndarsvæði í Helga- felli. Hefur styr staðið um fjár- beit bændanna og Kristján Bjarnason, garðyrkjustjóri bæj- arins, lengi beðið komu fulltrúa Landgræðslunnar til að fá botn í málið svo starfsmenn hans geti látið af því að smala Helgafellið daglega. „Garðar Þorfinnsson og Björn H. Barkarson komu frá land- græðslunni og lýstu því yfir að fjárbeitin í Helgafelli ætti ekki að eiga sér stað,“ segir garðyrkju- stjórinn, sem lét í framhaldinu setja upp limgerði í hliði því sem fjárbændur hafa hleypt fé sínu í gegn svo það kæmist í Fellið. „En það hefur ekki dugað til því það er klippt á hliðið og það ekki einu sinni heldur tvisvar á dag,“ segir hann. Það er Gísli Óskarsson, kenn- ari og fréttaritari Ríkisútvarps- ins, sem beitir fénu í Helgafellið. Hann skýrir það sjálfur sem svo að féð reki hann í Helgafellið á grundvelli hefðar en ekki síður vegna lífrænnar tilraunar í upp- græðslu sem byggist á því að nota úrgang kindanna sem áburð í illa fokinn sand. Karl Gauti Hjaltason, sýslu- maður í Vestmannaeyjum, heldur að sér höndum: „Sýslumaður er að lempa málið,“ segir hann. ■ DEILUR UM BEIT Langvinnar deilur hafa staðið í Vestmannaeyjum um beit kinda. Landgræðslumenn og bóndi ná ekki sáttum í deilum sínum. Landgræðslumenn ráða ekki við fjárbónda: Klippir á girðingar tvisvar á dag LÍFEYRISSPARNAÐUR Ólöf Sveinsdótt- ir vann hjá Sparisjóði Kópavogs í 25 ár. Sparisjóðurinn flutti fyrir hennar hönd uppsafnaðan lífeyr- isrétt inn á Ævileið 2 í Kaupþingi árið 1999. Ávöxtun þeirrar leiðar var mjög góð það árið. Fjárfestinga- stefna sjóðsins miðar við allt að 65 prósenta eign í h l u t a b r é f u m . Hlutabréf tóku hins vegar að falla um það leyti sem 11,6 milljónir voru lagðar inn í nafni Ólafar. Síðan þá hefur sjóður hennar rýrnað um þriðjung eða um 3,5 milljónir króna. Ólöf er 55 ára gömul og veiktist með þeim afleiðingum að hún er 75% öryrki. Hún þurfti að grípa til sjóðsins fyrr en ráðgert hafði verið. Í opnu bréfi til stjórnar Kaupþings gagn- rýnir hún há laun forstjóra fyrir- tækisins á sama tíma og fé fólks í vörslu fyrirtækisins rýrni. „Það sem ég er að deila á er að þeir sem fjármálaráðgjafar standa sig ekki sem skyldi. Þeir sjá um vörslu fjár og þeir sjá ekki um að gæta hagsmuna viðskiptamanna sinna sem vörsluaðilar,“ segir Ólöf. „Það sem mér finnst að menn eigi að gera með svona fé er að færa það á milli þar sem ávöxtunin er best hverju sinni.“ Hafliði Kristjánsson, forstöðu- maður Lífeyrissparnaðar Kaup- þings, segir þrennt vera lagt til grundvallar fjárfestingarleið. Aldur viðkomandi, hvenær hefja eigi töku lífeyris og áhættuþoli. „Við grundvöllum ráðgjöf okkar á þessu þrennu. Slík ráðgjöf getur ekki breyst eftir markaðsaðstæð- um hverju sinni.“ Hafliði segir öllum eigendum í lífeyrissjóðum hafa verið sent bréf í tvígang þar sem áréttaðar eru forsendur ráð- gjafarinnar. Hann segir að fyrir- tækið geti ekki tekið það upp hjá sjálfu sér að færa eignir milli teg- unda fjárfestinga. Til þess þurfi leyfi eigenda fjármunanna. „Við höfum virkilega samúð með henn- ar aðstæðum og munum svara bréfi hennar.“ Hann segir kaup- auka þeirra sem stýra sjóðunum tengda við árangur sjóðanna. Þá sé miðað við vísitölur eignasam- setningar og árangur sjóðanna metinn eftir því. Sjóðir Kaup- þings standist fyllilega saman- burð við sambærilega sjóði. Hafliði segist sjálfur leggja líf- eyrissparnað sinn í ævileið 2 og hafi ekki áhyggjur af slakri ávöxt- un að undanförnu. Hann segir hins vegar að sá sjóður henti ekki fólki eins og Ólöfu sem komið er yfir fimmtugt. „Ef hún hefur eitt- hvað til síns máls þá væri það ef hún hefur ekki fengið góða ráð- gjöf.“ Sé slíkt raunin þá eigi að sjálfsögðu að skoða það. haflidi@frettabladid.is FÁTÆKARI Lækkun á lífeyrissjóði hefur valdið Ólöfu Sveinsdóttur tjóni. Hún þarf að nota sjóðinn núna og getur ekki beðið eftir því að tíminn lagi meðalávöxtun lífeyriseignarinnar. YFIRLIT Á yfirlitinu má sjá hvernig eign Ólafar hefur rýrnað. Tapaði þriðjungi af lífeyrissjóðnum Ólöf Sveinsdóttir þurfti vegna veikinda að fá greiðslur úr séreignasjóði sínum fyrr en hún ætlaði. Kaupþing segist hafa sent viðskiptamönnum bréf þar sem forsendur áhættumats sjóða eru skýrðar. FRANKFURT, AP Dómstólar í Þýska- landi hafa dæmt fjóra Alsíringa í tíu til tólf ára fangelsi fyrir að skipuleggja sprengjutilræði á frönskum jólamarkaði. Mennirn- ir voru fundnir sekir um ásetn- ing um að koma fyrir sprengju, að hafa lagt á ráðin um morð og brotið lög um vopnaeign. Tveir hinna dæmdu neituðu sakargiftum og héldu því fram að ætlunin hefði verið að sprengja í loft upp mannlausa sýnagógu í Strassborg. Báðir hlutu þeir tólf ára fangelsisvist. Einn fjórmenninganna gekkst við öllum ákæruatriðum og hlaut aðeins tíu ára dóm. Saksóknarar höfðu haldið því fram að fjórmenningarnir til- heyrðu hópi norður-afrískra öfgamanna sem kallar sig Hina óháðu Mujahideen og tengist al Kaída hryðjuverkasamtökunum. Þrír mannanna játuðu að hafa dvalið í þjálfunarbúðum í Afganistan og viðurkenndu tengsl við öfgahópa. Engu að síður ákváðu yfirvöld á endan- um að falla frá öllum ákærum um aðild að hryðjuverkasam- tökum til þess að koma í veg fyrir að réttarhöldin drægjust á langinn. ■ Á BAK VIÐ GRÍMU Aeroubi Beandalis hlaut vægasta dóminn af sakborningunum fjórum en hann játaði að hafa ætlað að koma fyrir sprengju á jólamarkaði fyrir utan dómkrikjuna í Strassborg ásamt félögum sínum. Fjórmenningar dæmdir: Ætluðu að sprengja upp jólamarkað „Það sem ég er að deila á er að þeir sem fjármála- ráðgjafar standa sig ekki sem skyl- di.“ TÍU FARAST Í SJÓORUSTU Til átaka kom milli sjóhersins í Sri Lanka og Tamil-tígra skammt út af norðurströnd landsins. Skipst var á skotum með þeim afleiðing- um að fjórir hermenn særðust og bátur uppreisnarmannanna sökk með tíu manns innanborðs. Óvíst er hvaða áhrif atvikið mun hafa á vopnahléð sem herinn og upp- reisnarmenn sömdu um fyrir skemmstu. FÁTÆKRAHVERFI BRENNUR TIL GRUNNA Eldur breiddist út í fá- tækrahverfi í hafnarborginni Chittagong í Bangladesh með þeim afleiðingum að sex manna fjölskylda lét lífið og hundruð strá- og bambuskofa brunnu til grunna. Þegar slökkviliðið kom á staðinn höfðu nánast öll húsin á svæðinu þegar orðið eldinum að bráð. LÍFSHÆTTULEGT LEIKSVÆÐI Tvö börn létu lífið og önnur tvo særð- ust þegar sprenging varð á lok- uðu svæði þar sem geymd voru úrelt vopn í afskekktu héraði í suðausturhluta Pakistan. Börnin, sem voru á aldrinum níu til fjórt- án ára, voru að leik á svæðinu þegar atvikið átti sér stað. Evrópumet í sælgætisáti: Danir fremstir í sælgætisáti DANMÖRK Danir hljóta þann vafa- sama heiður að eiga Evrópumetið í sælgætisáti, samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Hver Dani borðar marsípan, súkkulaði, lakk- rís og hlaup fyrir sem nemur um 4.000 íslenskum krónum á ári að meðaltali, að því er fram kemur í Politiken. Talið er að þetta mikla sælgæt- isát dönsku þjóðarinnar megi að hluta til rekja til hins kalda lofts- lags sem gerir það að verkum að fólk dvelur löngum stundum í verslunarmiðstöðum og í kvik- myndahúsum. Einnig eru leiddar að því líkur að margir noti sæl- gæti til þess að hugga sig í svart- asta skammdeginu. Ekki liggur fyrir hvort Íslend- ingar voru með í þessari rannsókn en líklegt má telja að við hefðum lent þar ofarlega á blaði þar sem meðalneysla sælgætis á hvern íbúa hér á landi var 17,2 kíló árið 2000, samkvæmt upplýsingum frá Manneldisráði. ■ SÆLGÆTISGRÍSIR Ef marka má nýja breska rannsókn eru Danir gráðugri í sælgæti en nokkur önnur Evrópuþjóð. Po rt úg al 47 .2 67 kr . * á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. * Be ni do rm Po rt úg al Be ni do rm 47 .2 67 kr . * Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann. Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann. Allt a› seljast upp ver›læ kkun8-15% SumarPlús FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.