Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2003, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 11.03.2003, Qupperneq 10
10 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Bréf til blaðsins: Hvar eru bakaríin? JÓN SKRIFAR: Mér er það minnisstætt þegarfinna mátti bakarí og litlar búðir út um allt. Ég minnist þessara tíma með söknuði nú þegar maður verður að fara í verslunarmiðstöðv- ar til að sinna sínum erindum. Ég lýsi eftir fleiri litlum verslunum í hverfin til þess að maður þurfi ekki að fara bæinn á enda til þess að ná í vörur. Það hlýtur að vera góður bissness í því. Undir sársaukafullri umræðuundanfarinnar viku – sem stundum hefur verið hatrammari en líðandi er – hafa legið vanga- veltur um afskipti stjórnmála- manna af viðskiptalífinu. Allir sem tekið hafa til máls hafa talið slík afskipti óæskileg; bæði þeir sem telja sig vita um slík afskipti og hinir sem kannast alls ekki við þau. Þetta eitt sameinar menn sem hafa deilt hart; að stjórn- málamenn eigi ekki að skipta sér af viðskiptalífinu með öðrum hætti en að setja því almennar reglur. Í raun er það sögulegt að þessi skoðun skuli nú njóta svona al- mennrar viðurkenningar. Ekki að- eins vegna þess að það eru aðeins fáeinar vikur síðan stjórnvöld slepptu takinu af ríkisbönkunum fyrrverandi. Ekki aðeins vegna þess að enn skiptir pólitísk af- staða manna miklu um framgang þeirra innan fyrirtækja á vegum ríkisins; Ríkisútvarpsins og Landssímans svo dæmi séu tekin. Heldur ekki síst vegna þess að stjórnmálamenn hafa verið und- arlega plássfrekir í umræðu um ólíklegustu mál á Íslandi og eru enn. Það er til dæmis kunn sagan af erlenda ferðamanninum sem hélt að Ólafur Ragnar Grímsson væri fréttaþulur á bæði Stöð 2 og Ríkissjónvarpinu vegna þess að rætt var við hann í nánast hverri einustu frétt meðan hann var fjár- málaráðherra. Þetta á ekki aðeins við við- skiptalífið heldur nánast öll svið mannlegrar tilveru. Þetta er eink- ar áberandi í sjónvarpsfréttum. Þar eru ráðherrar og alþingsmenn sífellt að tjá skoðun sína á einelti, atvinnuástandi á Raufarhöfn, þróttinum í íslensku menningar- lífi, fíkniefnaneyslu ungmenna ... hverju sem er. Oftast er álit þeirra ekki djúphugsaðra en svo að þeir lýsa yfir áhyggjum sínum – eins og þær hjálpi til! Minnugir menn muna skrítna ræðu sem Vilmundur Gylfason flutti á Alþingi snemma á níunda áratugnum. Hún fjallaði ekki um pólitík heldur allt það góða og fagra í lífinu sem stæði utan stjórnmálanna. Þetta var þörf áminning fyrir þingheim. Þrátt fyrir mikilvægi þess að Alþingi og ríkisstjórn séu mönnuð góðu fólki þá eru blessunarlega flest svið mannlífsins utan valdsviðs þessa fólks. Og eiga að vera það. Stjórn- málamenn myndu því ef til vill gera okkur stærri greiða með því að skipta sér ekki að því sem þeim kemur ekki við en með því að sinna því af alúð sem þeim hefur verið falið. Best væri náttúrlega að þeir myndu vanda sig við hvort tveggja. ■ Lífið er utan valdsviðs stjórnmálanna skrifar um verkefni stjórnmála- manna og það sem þeim kemur ekki við. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON              !"!# $%&'($%&')  FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN hefur birt alla framboðslista sína. NORÐVESTURKJÖRDÆMI Þar er nýkjörinn formaður flokksins, Guðjón A. Kristjánsson alþingis- maður, í fyrsta sæti, Sigurjón Þórðarson á Sauðárkróki er ann- ar og Steinunn Pétursdóttir á Akranesi er í þriðja sæti. Matthí- as Bjarnason, fyrrverandi ráð- herra Sjálfstæðisflokksins, er í heiðurssætinu. NORÐAUSTURKJÖRDÆMI Þar er Brynjar S. Sigurðsson á Siglu- firði í fyrsta sæti, Guðmundur W. Stefánsson á Vopnafirði er annar og Stella Björk Steinþórsdóttir á Norðfirði er í þriðja sæti. Heið- urssæti skipar Haraldur Bessa- son, fyrrverandi háskólarektor á Akureyri. SUÐURKJÖRDÆMI Magnús Þór Hafsteinsson, nýkjörinn varafor- maður flokksins, er í fyrsta sæti, Grétar Mar Jónsson skipstjóri er annar og í þriðja sæti er Arndís Ásta Gestsdóttir á Selfossi. Heið- urssætið skipar Benedikt Thorarensen á Þorlákshöfn. SUÐVESTURKJÖRDÆMI Gunnar Örlygsson á Kjalarnesi er í fyrsta sæti, Sigurlín Margrét Sigurðar- dóttir Garðabæ í öðru og Guð- mundur Örn Jónsson Kópavogi í þriðja sæti. Heiðurssætið skipar Helgi G. Þórðarson í Hafnarfirði. REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI NORÐ- UR Sigurður Ingi Jónsson er í fyrsta sæti, Eyjólfur Ármannsson í öðru og Kjartan Eggertsson í þriðja sæti. Sverrir Hermanns- son er í heiðurssætinu. REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI SUÐUR Margrét K. Sverrisdóttir er í fyrsta sæti, Gísli Helgason, for- maður Blindrafélagsins, er í öðru sæti og Birgir H. Björgvinsson er í þriðja sæti. Heiðurssætið skipar Jón Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri. Nú líður senn að því að Alþingiljúki störfum, þá hefst kosn- ingabaráttan af fullum krafti fram að alþingiskosningum þann 10. maí nk. Að vanda snýst kosningabarátt- an um að draga fram árangur stjórnmálaflokkanna í fortíðinni, að fá fylgi við stefnumiðin og sann- færa kjósendur um ágæti einstakra frambjóðenda. Framsóknarflokk- urinn hefur ástæðu til að ganga stoltur til lokabaráttunnar fyrir kosningarnar í maí, enda árangur flokksins glæsilegur gegnum tíð- ina, grundvallarstefna flokksins höfðar til stórs hóps kjósenda og áherslumál flokksins nú falla í góð- an jarðveg. Allt þetta hefur birst í því að mikill meirihluti kjósenda hefur í skoðanakönnunum lýst þeirri skoðun að þeir vilji að Fram- sóknarflokkur eigi aðild að ríkis- stjórn. Framsóknarmenn ganga nú til kosningabaráttunnar undir yfir- skriftinni „vinna, vöxtur, velferð“. Þessi þrjú orð segja mikið, það er og hefur verið skoðun okkar Framsóknarmanna að öflugt at- vinnulíf leggi grunninn að velferð okkar á nánast öllum sviðum. Fyrir alþingiskosningar árið 1995 lögðu Framsóknarmenn megináherslu á að blása nýju lífi í atvinnulífið. Á þeim tíma hafði ríkt stöðnun í at- vinnu- og efnahagskerfinu og at- vinnuleysi hafði verið allt of mikið síðustu árin fyrir þær kosningar. Margir muna eflaust ennþá eftir markmiði okkar um að sköpuð yrðu 12.000 ný störf til aldamóta. Póli- tískir andstæðingar okkar gerðu lítið úr þessu, hentu jafnvel að því gríni og töldu að þá væru Fram- sóknarmenn að lofa of miklu. Hver varð staðreyndin? Eftir góðan kosningasigur gerð- ist flokkurinn aðili að ríkisstjórn og fljótlega fóru kyrrstæð hjól at- vinnulífsins að snúast á ný. Niður- staðan varð sú að um aldamótin höfðu skapast miklum mun fleiri störf en við höfðum sett sem mark- mið, pólitískir andstæðingar okkar skammast sín fyrir grínið forðum og nú eru nokkur ár síðan gerð hef- ur verið tilraun til að halda því fram að við ætluðum að svíkja þetta kosningaloforð. Þetta er eitt dæmi af mörgum sem sýnir að Framsóknarmenn leggja sig jafnan fram um að standa við orð sín og fylgja eftir þeim markmiðum sem sett eru. Mættu sumir andstæðing- ar okkar taka sér það til fyrirmynd- ar. Eftir að hafa átt aðild að ríkis- stjórnum sl. átta ár hefur Fram- sóknarflokkurinn lagt grunn að áframhaldandi framsókn þjóðfé- lagsins, góð staða þjóðarbúsins og efnahagskerfisins gerir það að verkum að á næstu árum verður mögulegt að efla velferðarkerfið enn frekar. Margt hefur verið gert á síðustu árum til að uppfylla sem flestar þær þarfir sem velferðar- kerfið þarf að mæta, en því verk- efni lýkur seint og því verður áfram verk að vinna í þessum efn- um. Atvinnustefna Framsóknar- manna hefur nú skilað þeim ár- angri að á næstu árum verða mjög aukin umsvif á mörgum sviðum at- vinnulífsins, þjóðarframleiðsla mun aukast og það skilar okkur mjög auknum tekjum. Með sterkri stöðu flokksins eftir kosningarnar í maí mun flokkurinn áfram hafa aðstöðu til að fylgja at- vinnustefnunni eftir næstu ár, það mun sem fyrr kalla fram hagvöxt, aukinn kaupmátt og vaxandi þjóð- artekjur. Allt þetta mun auka svig- rúm ríkissjóðs enn frekar til að efla velferðarkerfið og draga úr opin- berri skattheimtu á almenning og fyrirtæki. Vegna þess svigrúms sem nú þegar hefur skapast mun Framsóknarflokkurinn beita sér fyrir því á næstu árum að tekju- skattar almennings verði almennt lækkaðir og við leggjum jafnframt til að dregið verði enn frekar úr tekjutengingu barnabóta þannig að öll börn fái ótekjutengdar barna- bætur. Á þessu kjörtímabili var það skref tekið að öll börn innan sjö ára aldurs fá ótekjutengdar barnabæt- ur og við viljum nú taka skrefið að fullu. Vinna, vöxtur og velferð eru grundvallarhugtök sem lýsa þeim áherslum sem við Framsóknar- menn leggjum upp með fyrir kom- andi kosningar. Við vitum að al- mennt eru kjósendur sammála okk- ur, við vitum að reynsla kjósenda er sú að þeir geta trúað okkur og treyst, það hafa skoðanakannanir sýnt. Framtíðarhagsmunir þjóðar- innar felast í því að veita Fram- sóknarflokknum brautargengi til áframhaldandi aðildar að lands- stjórninni. ■ alþingismaður skrifar um stefnu Fram- sóknarflokksins. MAGNÚS STEFÁNSSON Um daginn og veginn Vinna, vöxtur og velferð AÐALVERKTAKAR GERA VARNAR- GARÐ Bæjarráð Reykjanesbæj- ar hefur samþykkt tillögu stjórnar atvinnu- og hafnarráðs um að taka frávikstilboði Ís- lenskra aðalverktaka vegna los- unar á klöpp í Helguvík og gerðar sjóvarnargarða. Frá- vikstilboðið hljóðar upp á 322 milljónir króna. Það er 59% af kostnaðaráætlun. SVEITARSTJÓRNIR STJÓRNMÁL

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.