Fréttablaðið - 11.03.2003, Page 12

Fréttablaðið - 11.03.2003, Page 12
12 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGURFÓTBOLTI BROSMILDUR Ítalski dómarinn Pierluigi Collina brosti sínu breiðasta þegar hann tók á móti verð- launum sem besti knattspyrnudómari heimsins á dögunum. Verðlaunin voru af- hent í borginni Covericano í norðurhluta Ítalíu. FÓTBOLTI Í kvöld verður leikið í A- og B-riðlum og beinist kastljósið einkum að tveimur viðureignum enskra og ítalskra félaga. Arsenal og Roma leika í London og Inter- nazionale og Newcastle í Mílanó. Þessi félög mættust í 1. umferð og sigraði Arsenal 3-1 í Róm en Internazionale vann 4-1 í Newcastle. Arsenal og Roma stóðu í stór- ræðum um helgina. Arsenal gerði jafntefli við Chelsea í bikar- keppninni og Roma náði jafntefli gegn erkifjendunum í Lazio. Thierry Henry, sem skoraði þrennu í fyrri leik félaganna, fór meiddur af velli í bikarleiknum en hann verður með í kvöld. Roma mætir einnig með sitt sterkasta lið til Lundúna. Vonir liðs- ins um sæti í átta liða úrslitum virtust úr sögunni eftir tap í fyrstu þremur um- ferðum milliriðlanna. Góður sigur á Val- encia í síðustu viku gaf þeim nýja von um sæti í átta liða úrslit- um en framhaldið velt- ur á úrslitunum í kvöld. Newcastle átti frí um helgina en Inter- nazionale, sem hélt upp á 95 ára afmæli sitt í gær, vann Bologna 2-1. Með sigrinum treysti Inter stöðu sína í 2. sæti deildarinn- ar en sig- urinn kost- aði sitt. V a r n a r - maðurinn M a r c o Materazzi fór meidd- ur af velli og missir af síðustu tveimur leikj- unum í Meistaradeild- inni. Á meiðslalista Inter voru þegar Dani- ele Adani, Matías Al- meyda, Domenico Morfeo, Stéphane Dalmat, Mohamed Kallon, Hernán Crespo og Nicola Beati. Auk þess er Ál- varo Recoba í banni og Gabriel Batistuta er ekki gjald- gengur í þennan hluta keppninnar. Óvíst er hvort Shay Given og Gary Speed geti leikið með Newcastle í kvöld. Given meiddist á fingri á æfingu og Speed á ökkla í tapleiknum gegn Middlesbrough í síðustu viku. Sir Bobby Robson er bjartsýnn á sigur í kvöld og sæti í fjórðungsúrslitum en til þess að það gangi eftir þarf Newcastle einnig sigur gegn Barcelona á heimavelli í næstu viku. ■ FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson knatt- spyrnuþjálfari segist í viðtali á heimasíðu Aston Villa vera óáttur við tæklingu sonar síns Jóhannes- ar Karls, leikmanns Villa, í leik gegn Birmingham fyrir viku síðan. „Ég sagði Jóhannesi hvernig leikurinn yrði en hann missti stjórn á sér. Hann veit að tækling- in var slæm og hann sér eftir því sem gerðist.“ Guðjón telur samt sem áður að Villa eigi að bjóða Jóhannesi samn- ing. „Ef hann verður áfram hjá fé- laginu er ég viss um að hann getur myndað öfluga miðju með strákum eins og Gareth Barry og Lee Hendrie.“ ■ JÓHANNES KARL Jóhannes Karl Guðjónsson var rekinn út af í síðustu viku fyrir gróft brot á leikmanni Birmingham. Guðjón Þórðarson: Jóhannes missti stjórn á sér MEISTARADEILDIN Í KVÖLD A-riðill Barcelona - Leverkusen Internazionale - Newcastle Staðan L S Barcelona 4 10 Inter 4 7 Newcastle 4 6 Leverkusen 4 0 B-riðill Ajax - Valencia Arsenal - Roma Staðan L S Ajax 4 6 Arsenal 4 6 Valencia 4 5 Roma 4 3 Ögurstund í Evrópuboltanum Fimmta og næstsíðasta umferð milliriðla Meistaradeildar Evrópu fer fram í vikunni. Ensk og ítölsk félög keppa um sæti í átta liða úrslitum. PIRES OG MELCHIOT Robert Pires og Mario Melchiot í bikarleik Arsenal og Chelsea. A P- M YN D AP /M YN D FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Vala Flosadóttir (ÍR) sigraði í fimmtarþraut á sæn- ska meistaramótinu í fjölþraut á laugardag. Fimmtarþraut er al- þjóðleg keppnisgrein en ekkert Ís- landsmet hefur hingað til verið skráð í greininni. Fimm stúlkur kepptu í fimm- tarþrautinni í Gautaborg á laugar- dag og hlaut Vala 3.607 stig. Önnur varð Malin Svensson með 3.585. Vala varð fjórða í fyrstu grein- inni, 60 metra grindahlaupi, á 9,70 sekúndum. Hún og Camilla Siland- er stukku 1,67 metra í hástökki en Vala kastaði kúlu 12,27 metra og sigraði með yfirburðum. Anna Larsson sigraði í langstökki en Vala hafði betur í jafnri keppni um 2. sætið og stökk 5,29 metra. Vala sigraði síðan í 800 metra hlaupi á tveimur mínútum og 29,34 sek- úndum og var rúmri sekúndu á undan Malin Svensson. Til samanburðar við árangur Völu má nefna að sænska metið er 4.520 stig og náði methafinn betri árangri en Vala í öllum greinum nema í kúluvarpi. Evrópumetið í fimmtarþraut á Irina Belova en hún fékk 4.991 stig í Berlín árið 1992. ■ VALA Vala Flosadóttir sigraði í fimmtarþraut á sænska meistaramótinu og setti Íslandsmet. Vala Flosadóttir: Sigraði og setti Íslandsmet FR ÉT TA B LA Ð I/ B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.