Fréttablaðið - 11.03.2003, Page 22

Fréttablaðið - 11.03.2003, Page 22
22 11. mars 2003 ÞRIÐJUDAGUR HRÓSIÐ Já, ég leyfði mér að benda á þágríðarlega mikla mismunun sem er ríkjandi milli trúfélaga hér á Íslandi. Mér heyrist þessu máli ekki lokið,“ segir séra Hjörtur Magni Jóhannsson Frí- kirkjuprestur. Séra Jón Helgi Þórarinsson í Langholtskirkju, formaður Prestafélags Íslands, hefur svar- að gagnrýni Hjartar af mikilli hörku. „Já, þetta er ekki tveggja, þriggja manna tal á fundi í London. Þetta er stærra mál og óneitanlega er ég töluvert ein- angraður þar sem ég er einn prestur í Fríkirkjunni en í Þjóð- kirkjunni eru 150 ríkislaunaðir prestar.“ Hjörtur Magni er fæddur árið 1958 í sjálfum bítlabænum Kefla- vík og ólst þar upp. Hann missti af því þegar Hljómar tröllriðu öllu og Keflavík var nafli Ís- lands. Hjörtur segir það ljóm- andi að alast upp í Keflavík og hann hafi notið þess að ná í skott- ið á blómabylgjunni. Foreldrar Hjartar Magna eru Jóhann Hjartarson, fyrrum húsgagna- og húsasmíðameistari, og Sigríður Jónsdóttir. Fríkirkjupresturinn er búsettur í Reykjavík og hefur verið undanfarin ár eða allt frá því að hann tók við kallinu. Hjörtur er fjölskyldumaður, kona hans heitir Ebba Margrét Magnúsdóttir, sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingar- hjálp á Landspítalanum. Hjörtur er þriggja barna faðir: Aron Þór fæddur 1986 og stundar nám í Versló, Ágústa Ebba fædd ‘91 og yngstur er Magnús Jóhann, fimm ára og kröftugur skæruliði að sögn. Áhugamálin hafa verið tengd starfinu. „Kirkjumálin hafa það nú verið undanfarin og trúar- brögð almennt. Ég var í nokkur á, við nám í Jerúsalem, borginni helgu. Svo hef ég alltaf haft mik- inn áhuga á íþróttum en ekki haft þann tíma sem ég vildi til að sinna því vegna mikilla anna í Fríkirkjunni.“ ■ PERSÓNAN 76 ÁRA „Ég ætla að fara með mínum gömlu vinkonum út að drekka kaffi síðdegis. Ætli við förum ekki á Lækjarbrekku og horfum á mann- lífið í miðbænum,“ segir Þuríður Pálsdóttir söngkona, afmælisbarn dagsins. Þuríður var yfirkennari Söngskólans í Reykjavík um langt árabil, var formaður Þjóðleikhús- ráðs um 20 ára skeið og sat á þingi fyrir um tíu árum sem varaþing- maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Hún hefur því komið víða við á langri starfsævi og ekki bara sem lærimeistari fjölmargra söngvara og söngkennara hér á landi, heldur líka sem baráttukona fyrir ýmsum þörfum málefnum. Hún gaf út rit um breytingaskeið kvenna á sínum tíma og er höfund- ur orðsins „beinþynning“, en það var ekki viðurkennt vandamál á árum áður. Jafnframt barðist hún gegn hinum umdeilda ekknaskatti, m.a. með eftirminnilegum fundi á Borginni, sem var fjölsóttur. Gömlu vinkonurnar sem Þuríður ætlar að hitta í dag kynntust í Út- varpskórnum á árum áður. Þær sátu saman í biðstofunni 1948, þeg- ar þær voru að fara í prufu, en staða í Útvarpskórnum var mjög eftirsótt, og þær hafa haldið vin- skap síðan. „Einungis 24 komust inn og enginn mátti vera yfir 35 ára, því það átti að yngja upp í söngvarastéttinni,“ segir Þuríður. „Við komumst allar inn. Þetta var mjög flottur kór. Upp úr þessu spratt mikið af góðu söngfólki. Ég söng mín fyrstu stóru sóló í þessum kór.“ Þuríður segir það mjög góða til- finningu að vita af öllu því fólki sem stundar söng og kennir söng úti um allt land, sem hún hefur kennt á undanförnum áratugum. „Ég er búinn að kenna afskaplega mörgu fólki,“ segir Þuríður. Hún kenndi ekki bara söng, heldur líka tónlistarsögu ásamt öðru. Þuríður á í fórum sínum heilmikinn fróðleik um íslensk tónskáld sem hún stefn- ir á að koma á bókarform þegar tími gefst til. Annars segir Þuríður að áhugamálin séu nokkuð mörg. Hún málaði til dæmis mikið á árum áður og getur vel hugsað sér að taka aftur upp þráðinn á því sviði. „Og svo er nú bara svolítið gaman að vera til.“ ■ ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR söngkona á afmæli í dag og ætl- ar að fá sér kaffi í miðbænum síðdegis í góðra vina hópi og horfa á mannlífið. Afmæli Söngvari og baráttukona HJÖRTUR MAGNI JÓHANNSSON Hefur gagnrýnt mikla mismunun sem hann telur ríkjandi milli trúfélaga á Íslandi og sér ekki fyrir endann á því máli. ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR Hefur kennt ógrynni af söngfólki í gegnum tíðina og komið víða við á starfsævi sinni. TÍMAMÓT Séra Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur segist einangraður í gagnrýni sinni, hann er einn Fríkirkjuprestur en í Þjóðkirkjunni eru 150 ríkislaunaðir prestar. Benti á mismunun Mamma... pabbi... á síðustu fimm árum hef ég myrt átta karlmenn, elskhuga mína, og grafið lík þeirra hérna í garðinum! Imbakassinn eftir Frode Øverli Séra Hjörtur Magni Jóhanns- son. Beatrix. Paul McCartney. 1. 2. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 3. Fær Árni Johnsen. Árni læturekki mótlætið buga sig og tap- ar ekki fram- kvæmdagleðinni. Hann vatt sér í að leita tilboða í rúm á Kvía- bryggju með þeim árangri að Rauði krossinn pantaði sextán almennileg rúm fyrir fangana. JARÐARFARIR 10.30 Baldvin Ólafsson, húsasmiður, verður jarðsunginn frá Háteigs- kirkju. ANDLÁT Hannes Lárus Guðjónsson, Hrafnistu, Reykjavík, lést miðvikudaginn 5. mars. Jónína Elín Guðmundsdóttir, Hamra- hlíð 21, Reykjavík, lést föstudag- inn 7. mars. HA! Ertu HOMMI?!! FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Lagersala næstu daga Minnst 50% afsláttur - gengið inn að norðan - Barnaskór í bláu húsi við Fákafen • opið virka daga 10-18 • Laugardaga 11-15 REIÐSKÓLINN ÞYRILL Næstu námskeið byrja 11. mars. Barnaflokkar og fullorðinna, byrjendur og framhald. Skólinn útvegar örugga hesta og hjálma. Sími 899 4600 - Bjarni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.