Fréttablaðið - 11.03.2003, Side 24
Í morgun vaknaði ég með hálsrígeftir skelfilega martröð. Mig
dreymdi að það var verið að bera á
mig fé. Ég stóð á Esjutindi á
bólakafi. Seðlabúntin héldu mér fast-
ri líkt og aurskriða. Smám saman
missti ég víðáttumikla sýn af tindin-
um og seðlarnir lokuðu augum mín-
um. Þung fimmþúsundkallalyktin
fyllti vitin og truflaði hugsunina.
Skurðgröfukjaftar mokuðu yfir mig
klinki þar til ég kiknaði í herðum. Ég
var orðin ein allsherjar peninga-
varða og haugflugur komu úr öllum
áttum og settust á hana.
RÁÐVILLT stökk ég fram úr í svita-
kófi. Kaffi og ristað brauð náði mér
fljótlega inn í raunveruleikann. Ég
andaði léttar, fletti blöðum og sá
myndir af hugsanlegum peninga-
vörðum og fjárburðarmönnum á
hverri síðu. Samsærið er lyginni lík-
ast. Það taka allir þátt. Ef menn eru
ekki að láta bera á sig fé þá eru þeir
í fjárburðarliðinu. Í sjónvarpi lýsti
reyndur þingrefur fjárburði sæ-
greifa og sjóræningja á vörður
íhaldsins. Annars staðar lýsti
dramatískur háskólaprófessor með
algebrudæmi nánu samhengi á milli
ávaxtasala, krata, plötusnúða og
blaðasnápa. Ég kastaði blöðunum út í
ystu myrkur eldhússins og slökkti á
kassanum. Hvað var draumur og
hvað var veruleiki?
EF TIL VILL er best að trúa engu,
jafnvel ekki sínum eigin bakþönkum,
og gefa bara út vantraustsyfirlýs-
ingu á sjálfan sig – best að leggja
traust sitt á einhvern annan, ofur-
menni sem allt veit og allt getur.
Kannski er blað sem gefur ekki upp
eigendur sína ekki jafn trúverðugt
og það blað sem gefur upp eigendur
sína. Blað sem gefur upp eigendur
sína kemur fram grímulaust, setur
upp bláa lopavettlinga og ruglar í
hausnum á manni.
FLOKKUR sem gefur ekki upp eig-
endur sína eða styrktaraðila er
kannski ekki jafn trúverðugur og sá
sem gerir það. Flokkarnir biðja um
trú, von og kærleika almennings til
lífstíðar, en hverjir sitja þar inni í
peningavörðum og sjá ekki út? Og
hvað hafa þeir setið þar lengi? Kol-
krabbar stýra skurðgröfum og göm-
ul fjölskylduveldi halda ættarmót við
vörðurnar og moka á þær í gleði
sinni. Þau systkini, Trú, Von og Kær-
leikur, eru að pakka í gáma og flytja
af landi brott. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Trú, von og
kærleikur
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is