Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 6
Veistusvarið? 6 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR 1Leikfélag Kvennaskólans í Reykjavíkfrumsýndi á miðvikudagskvöldið leik- ritið Lýsiströtu eftir Aristófanes. Hver leikstýrir uppfærslunni? 2Forsætisráðherra Serbíu var skotinntil bana við stjórnarráð landsins í Belgrad á miðvikudaginn. Hvað hét for- sætisráðherrann? 3Formaður Húseigendafélagsins telurhækkun tekjumarka vera meginorsök sprengingar í umsóknum um félagslegar leiguíbúðir. Hvað heitir formaðurinn? Svörin eru á bls. 46 GENF, AP „Við erum ekki að tala hverjir við aðra,“ sagði Perez del Castillo, sendimaður Úrúgvæ hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, um gang viðræðna um viðskipti með landbúnaðarafurðir. „Það standa allir fast á sínu. Við höfum ekki átt í neinum samningaviðræð- um.“ Embættismenn sem taka þátt í viðræðunum sjá ekki fram á að samningar takist fyrir 31. mars eins og stefnt hafði verið að. Ekk- ert samkomulag hefur náðst um hvernig lækka megi tolla á land- búnaðarafurðir og draga úr framleiðslustyrkjum. Del Castillo, sem stýrir fundum aðal- ráðs Alþjóðaviðskiptastofnunar- innar, er þó fyrsti embættismað- urinn til að lýsa því opinberlega að ekki takist að virða sett tíma- mörk. „Menn tala um að þeir ætli að virða lokafrestinn en ég held að það sé ekki satt,“ sagði hann. Lönd sem flytja mikið út af landbúnaðarafurðum, svo sem Bandaríkin og Ástralía, vilja samning sem kveður á um tolla- lækkanir á landbúnaðarafurðum. Evrópusambandið og önnur ríki telja matvælaframleiðslu svo mikilvæga að réttlætanlegt sé að styðja hana. ■ BELGRAD, AP Serbneska lögreglan handtók í gær nokkra meðlimi glæpasamtakanna Zemun sem eru grunaðir um að eiga þátt í morðinu á Zoran Djindjic, forsæt- isráðherra Serbíu, á miðvikudag. Fyrirskipanir Djindjic til lög- reglu um að ráðast af fullu afli gegn skipulagðri glæpastarfsemi höfðu aflað honum margra óvina í röðum glæpamanna, sérstaklega gamalla stuðningsmanna Slobod- ans Milosevic, fyrrum forseta Júgóslavíu. Ríkisstjórn landsins kennir Zemun glæpasamtökunum um morðið. Milorad Lukovic, fyrrum samstarfsmaður Milos- evics, er talinn standa á bak við morðið. Þing Serbíu kom saman í gær til að minnast hins látna forsætis- ráðherra. Þingmenn Róttæka flokksins, hörðustu andstæðingar Djindjics, létu sig þó vanta við minningarathöfnina. Flokkur Voj- islav Kostunica, síðasta forseta Júgóslavíu, gagnrýndi stjórnvöld fyrir að lýsa yfir neyðarástandi, sagði ótta við að það yki enn frek- ar á sundrungu. Djindjic var skotinn af 300 metra færi þegar hann var að koma til fundar í stjórnarbygg- ingu í Belgrad.■ GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77.32 0.05% Sterlingspund 124.13 -0.40% Dönsk króna 11.36 -0.98% Evra 84.36 -1.01% Gengisvísitala krónu 122,0 -0,04% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 454 Velta 10.001 m ICEX-15 1.372 -0,76% Mestu viðskipti Straumur hf. 2.482.354.734 Landsbanki Íslands hf. 1.042.982.281 Íslenski hugbúnaðarsj. hf. 713.103.809 Mesta hækkun Þormóður rammi-Sæberg hf. 12,50% Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. 6,90% Kögun hf. 6,06% Mesta lækkun Opin kerfi hf. -3,47% Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -2,64% Olíuverslun Íslands hf. -2,51% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7700,9 2,0% Nasdaq*: 1313,7 2,7% FTSE: 3486,9 6,1% DAX: 2325,2 5,6% Nikkei: 7868,6 -0,9% S&P*: 819,1 1,9% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 SKAPAR ÓVISSU Morðið á forsætisráðherra Serbíu skapar óvissu fyrir Pharmaco. Forstjóri félagsins telur atburðinn þó ekki hafa mikil áhrif á rekstur félagsins í Serbíu. Forstjóri Pharmaco um morðið á Djindjic: Óvissa en ekki áhrif á reksturinn VIÐSKIPTI Morðið á Zoran Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, kann að hafa áhrif á starfsemi fyrirtækja í Serbíu. Lyfjafyrirtækið Pharmaco á lyfjaverksmiðu í Serbíu. Róbert Wessman, for- stjóri Pharmaco, segir erfitt að segja hvaða áhrif morðið á Djindi- jic hafi á starfsemina í Serbíu. „Það er á okkar fólki að heyra þarna niður frá að þetta muni ekki hafa mikil áhrif á starfsemina. Þetta er auðvitað hryggilegur at- burður, en menn telja frekar að þarna hafi verið glæpaflokkur á ferðinni. Auðvitað á það eftir að koma í ljós. Við metum það þannig eins og staðan er nú að þetta muni ekki hafa áhrif á okkar rekstur.“ Róbert segir að auðvitað skap- ist óvissa við slíka atburði. Menn telji hins vegar að áfram verði haldið á þeirri braut sem Djindjic markaði. „Við höfum lent í svipuð- um hlutum á svæðum þar sem við störfum, án þess að það hafi haft áhrif á reksturinn. Stjórnmálaum- hverfið er ekki orðið eins þroskað og á Vesturlöndum, þannig að það má alltaf búast við svona hlutum,“ segir Róbert. ■ FORSÆTISRÁÐHERRANS MINNST Fjöldi Belgradbúa lagði blóm við anddyri stjórnarbyggingarinnar þar sem Djindjic var skotinn. Morðingja Djindjics leitað: Mafíósar handteknir BELGRAD, AP Skömmu eftir að Zor- an Djindjic, forsætisráðherra Serbíu, var ráðinn af dögum voru sumir landa hans farnir að líkja honum við John F. Kennedy, fyrr- um forseta Bandaríkjanna. Kannski er það við hæfi, báðir voru þjóðarleiðtogarnir skotnir til bana og þeim brigslað um tengsl við mafíuna. Djindjic hóf fljótlega að starfa með lýðræðishreyfingum sem börðust gegn valdi kommúnista í Júgóslavíu. Árið 1994 tók hann við leiðtogahlut- verkinu í D e m ó k r a t a - flokknum, þá rúmlega fertug- ur. Þremur árum síðar var hann einn af helstu hvatamönnum og skipuleggj- endum víðtækra mótmæla gegn stjórn Slobodans Milosevic. Þriggja mánaða löng mótmælin vöktu athygli á alþjóðavettvangi og veiktu grunnstoðir stjórn- valda. Það var þó ekki fyrr en árið 2000 sem stjórnarandstæðingar komu Milosevic og samstarfs- mönnum hans frá völdum. Djindjic sameinaði stjórnarand- stæðinga til aðgerða gegn Milos- evic. Meðal samherja hans var þjóðernissinninn Vojislav Kost- unica sem tók við forsetaembætt- inu eftir að hafa borið sigurorð af Milosevic í kosningu. Djindjic viðurkenndi síðar að hafa samið við mafíósa um að styðja stjórn- arskiptin. Honum var legið á hálsi að hafa átt meiri samskipti við þá en neitaði því iðulega. Eftir að Djindjic tók við emb- ætti forsætisráðherra skildi leið- ir með honum og Kostunica. For- sætisráðherrann gagnrýndi for- setann fyrir of mikla þjóðernis- stefnu, of mikla svartsýni og skort á vilja til að breyta þjóðfé- laginu í frjálsræðisátt. Forsetinn gagnrýndi forsætisráðherrann hins vegar fyrir dýran lífsstíl og sakaði hann um að vilja breyta Serbíu í mafíuland að kól- umbískri fyrirmynd. Deilur þeir- ra leiddu til þess að minna varð úr efnahags- og lýðræðisumbót- um en ástæða þótti til. Djindjic var annt um að bæta tengslin við Vesturlöndum, reyndar svo mjög að mörgum þótti nóg um. Það var Djindjic sem tryggði að Milosevic var framseldur til Stríðsglæpadóm- stólsins í Haag þrátt fyrir efa- semdir Kostunica. Hann vildi líka framselja Ratko Mladic, einn helsta leiðtoga Bosníu-Serba. Skipulagshæfileikar Djindjic þóttu miklir. Hann þótti þó full ráðríkur og hlaut af þeim sökum viðurnefnið „Litli Slobo“. ■ Stjórnlynd frelsishetja Zoran Djindjic átti einna stærstan þátt í því að veldi Slobodans Milosevic var brotið á bak aftur og koma á lýðræði í Serbíu. Hann var þó langt í frá óumdeildur. Deilur hans og Vojislavs Kostunica drógu úr umbótum. „Djindjic viðurkenndi síðar að hafa samið við mafíósa um að styðja stjórnar- skiptin.“ FRELSISHETJA FALLIN Zoran Djindjic var einn helsti leiðtogi hreyfingarinnar sem kom Slobodan Milosevic frá völdum í október árið 2000. Hann lék lykilhlutverk í mótmælunum miklu gegn stjórn Milosevic árið 1997. Á þessari mynd sést hann ávarpa mannfjölda í þeim mótmælum. KÝR Á FÍLABEINSSTRÖNDINNI Neytendur í ríkum löndum og bændur í fátækum löndum gjalda fyrir takmarkanir á við- skiptum með landbúnaðarafurðir. Heimsviðskipti með landbúnaðarafurðir: Ekkert samkomulag

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.