Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 31
32 14. mars 2003 FÖSTUDAGUR
KÚLUNEF?
Það var engu líkara en kylfingurinn
Karrie Webb frá Ástralíu væri komin með
sérkennilegt kúlunef þegar hún kastaði
golfkúlu sinni upp í loftið á móti í
Tuscon, Arizona, á dögunum.
Golf
Christian Vieri:
Neitar
kynþátta-
fordómum
FÓTBOLTI Christian Vieri, leikmaður
Inter Milan, hefur neitað að hafa
haft uppi kynþáttafordóma gegn
Lomana LuaLua, leikmanni
Newcastle, í leik liðanna í Meistara-
deildinni á þriðjudagskvöld.
„Þrátt fyrir að um væri að ræða
mikilvæga stund í leiknum sagði ég
ekkert tengt kynþáttahatri,“ sagði
Vieri á heimasíðu Inter. „Ég reyndi
bara að halda leikmanninum í burtu
og sagði honum að færa sig. LuaLua
sagði ekkert á vellinum og sýndi
engin viðbrögð.“
Evrópska knattspyrnusam-
bandið mun taka ákvörðun í mál-
inu hinn 21. mars. ■
KÖRFUBOLTI Karl Malone, leikmaður
Utah Jazz, skoraði 36 þúsundasta
stig sitt í NBA-deildinni í körfu-
bolta í fyrrakvöld í leik gegn Or-
lando Magic.
„Bréfberinn“ er annar leik-
maðurinn í sögu NBA deildarinn-
ar sem hefur náð 36 þúsund stiga
markinu, en áður hafði Kareem
Abdul-Jabbar, fyrrum leikmaður
L.A. Lakers, náð því. Hann skor-
aði alls 38.387 stig á sínum glæsta
ferli.
Shaquille O’Neal skoraði 24
stig fyrir Lakers sem tapaði
111:88 fyrir Detroit Pistons. Fyrir
leikinn hafði Pistons tapað níu
leikjum í röð. ■
Karl Malone skráir sig
í sögubækurnar:
36 þúsund
stig í NBA
18.00 Sýn
Sportið með Olís. Í þættinum verður
fjallað um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
19.15 Ásvellir
Fyrsta viðureign Hauka og Tindastóls í
átta liða úrslitum Intersport-deildarinnar.
19.15 Keflavík
Fyrsti leikur Keflavíkur og ÍR í átta liða
úrslitum Intersport-deildarinnar.
20.00 Selfoss
Selfoss og Stjarnan keppa í ESSO-deild
karla.
20.00 Valsheimilið
Valur fær FH í heimsókn í ESSO-deild
karla. Heimaliðið er efst í deildinni en
gestirnir eru í 9. sæti.
20.00 Vestmannaeyjar
ÍBV leikur við ÍR í ESSO-deild karla. ÍR-
ingar eru í 3. sæti og eiga möguleika á
Deildarmeistaratitlinum.
20.00 Víkin
Víkingur og Þór Ak. keppa í ESSO-deild
karla. Þór er í 7. sæti og keppir að sæti í
úrslitakeppninni.
20.00 Sýn
4-4-2 Snorri Már og Þorsteinn J. fjalla
um enska og spænska fótboltann,
Meistaradeildina og allt markvert sem
gerist í þessum hasarleik tuttugu og
tveggja leikmanna.
20.15 Boginn
Þór Ak. keppir við Fram í Deildabikar-
keppni karla. Þar mætast einu taplausu
félögin í A-riðli.
Allt opið í B-riðli fyrir
leiki lokaumferðarinnar
FÓTBOLTI: Staðan í Meistaradeild
Evrópu skýrðist að nokkru leyti
í vikunni. Úrslitin í D-riðli eru
nánast ráðin, í B-riðli er allt opið
en öðru sætinum í hinum riðlun-
um er enn óráð-
stafað.
B a r c e l o n a
tryggði sér
efsta sætið í A
riðli með 2-0
sigri á botnliði
Bayer Leverku-
sen en með jafn-
tefli gegn
N e w c a s t l e
United hélt
Internazionale
frumkvæðinu í
baráttu félag-
anna um 2. sæt-
ið í riðlinum.
Newcastle á
heimaleik gegn
Barcelona í
lokaumferðinni
en Inter heim-
sækir Bayer.
Keppnin í B
riðli er jöfn og
spennandi. Sex
af tíu leikjum hefur lokið með
jafntefli og eiga öll félögin enn
möguleika á sæti í átta liða úr-
slitum. Í lokaumferðinni leikur
Valencia gegn Arsenal og Roma
gegn Ajax.
AC Milan tryggði sér sigur í C
riðli með fjórum 1-0 sigrum og
Real Madrid fylgir þeim líklega í
átta liða úrslitin. Real sýndi mátt
sinn í leiknum gegn Milan á mið-
vikudag og vann með sannfær-
andi hætti. Real varð þar með
fyrst félaga til að sigra í 50 leikj-
um í Meistaradeildinni og fyrirliði
þeirra, Raúl González, varð fyrst-
ur til að skora 40 mörk í keppn-
inni. Borussia Dortmund vann
Lokomotiv frá Moskvu en frami
Borussia í keppninni veltur á sigri
í Mílanó í lokaumferðinni og því
að Real Madrid tapi stigum í
Moskvu.
Úrslitin í D-riðli eru nánast
ráðin. Manchester United hefur
tryggt sér sæti í átta liða úrslitum
og Juventus er næstum öruggt
áfram eftir dramatískan sigur á
Deportivo. Basel gerði jafntefli
við United á Old Trafford. Sviss-
lendingarnir leiddu lengi vel en
fyrsta mark Gary Neville í 83
Evrópuleikjum þýðir að Basel
þarf að vinna Juventus með fjög-
urra marka mun í lokaumferðinni.
Verði félög jöfn í riðlakeppn-
inni gilda eftirfarandi reglur um
lokastöðu þeirra: Fjöldi stiga í inn-
byrðis viðureignum vegur þyngst,
þá markatala, skoruð mörk á úti-
velli, markatala í öllum leikjum
riðilsins og loks fjöldi marka.
Dugi þetta ekki verður miðað við
stuðla UEFA en þeir byggja á ár-
angri landsliða og félagsliða í
keppnum á vegum UEFA undan-
farin fimm ár. ■
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
MARS
Föstudagur
MALONE
Karl Malone er annar stigahæsti leikmað-
urinn í sögu NBA-deildarinnar.
Barcelona, AC Milan og Manchester United hafa tryggt sér sæti í átta liða úrslitum
og Juventus er næstum öruggt áfram.
STAÐAN Í
MEISTARA-
DEILDINNI
A-riðill L S
Barcelona 5 13
Inter 5 8
Newcastle 5 7
Leverkusen 5 0
B-riðill L S
Ajax 5 7
Arsenal 5 7
Valencia 5 6
Roma 5 4
C-riðill L S
Milan 5 12
Madrid 5 8
Dortmund 5 7
Lokomotiv 5 1
D-riðill L S
Man. Utd. 5 13
Juventus 5 7
Deportivo 5 4
Basel 5 4
IGOR TUDOR
Sigurmark Igor Tudor réð örlögum tveggja félaga í Meistaradeildinni. Juventus er næstum
öruggt með sæti í átta liða úrslitum en Deportivo La Coruna er úr leik.
VIERI
Christian Vieri segist vera saklaus af ákær-
um Newcastle um að hafa haft uppi kyn-
þáttafordóma gegn LuaLua.