Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 21

Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 21
FÖSTUDAGUR 14. mars 2003 * Flugvallarskattur og tryggingagjald (333 kr.) er ekki innifalinn. Börnin verða að vera í fylgd með fullorðnum. Sjá nánari upplýsingar á flugfelag.is. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 2 05 18 03 /2 00 3 flugfelag.is Flugfarið kostar alltaf aðeins 1500 kr.* aðra leiðina fyrir börn yngri en 12 ára ef þú bókar á netinu. Njóttu dagsins - taktu flugið með alla fjölskylduna. ■ Lögreglufréttir SPRENGJUM KASTAÐ Á LÖG- REGLUMENN Tveir létu lífið og tveir særðust þegar sprengjum var kastað á lögreglumenn í eft- irlitsferð í borginni Khulna í suð- vesturhluta Bangladesh. Að minnsta kosti sex sprengjum var kastað á lögreglumennina sem allir voru fótgangandi. Þrjátíu manns hafa verið færðir til yfir- heyrslu vegna árásarinnar. HERTRUKKUR SPRENGDUR Fjar- stýrð sprengja lenti á hertrukki í norðvesturhluta Afganistan með þeim afleiðingum að einn afganskur hermaður lést og tveir særðust. Annar hinna særðu var afganskur túlkur en þjóðerni hins hefur ekki verið gefið upp. HRYÐJUVERKAMAÐUR MYRTUR Indverska lögreglan hefur drepið meintan meðlim íslamsks öfga- hóps sem vann að undirbúningi hryðjuverka í Nýju Delí. Manz- oor Dar lést í skotbardaga sem braust út þegar indverskar ör- yggissveitir reyndu að handtaka hann í einu af úthverfum höfuð- borgarinnar. VIÐSKIPTI Bjarni Ásgeir Jónsson, fyrrum eigandi kjúklingabúsins Reykjagarðs, hefur fest kaup á jörðinni Dagverðarnesi í Skorra- dal. Bjarni seldi kjúklingabú sitt fyrir nokkru og hyggst nú snúa sér að útleigu á sumarhúsalóð- um en af þeim er nóg á jörð hans: „Þarna eru um hundrað sum- arhúsalóðir, þó ekki allar byggð- ar enn,“ segir Bjarni Ásgeir sem sjálfur á sumarhús á jörðinni. „Þetta er 400 hektara jörð, þar af mikið fjalllendi,“ segir hann. Í Dagverðarnesi er íbúðarhús svo og útihús en Bjarni Ásgeir ætlar ekki að búa þar sjálfur. Lítur á fjárfestingu sína sem hver önnur viðskipti og ætlar að halda áfram því starfi sem fyrr- um ábúendur og eigendur jarð- arinnar stóðu að. Við Skorradals- vatn eru margar af eftirsóttustu sumarhúsalóðum landsins, nátt- úrufegurð mikil og verð á lóðum í samræmi við það. Hyggur Bjarni Ásgeir gott til glóðarinn- ar og sér möguleika á hverri þúfu. ■ Dagverðarnes í Skorradal: Kjúklingakóngur kaupir sumarparadís GOLDFINGER Allar umsagnir jákvæðar. Kópavogur: Goldfinger fær 4 ár LEYFI Bæjarstjórn og bæjarráð Kópavogs hafa samþykkt mótat- kvæðalaust fjögurra ára fram- lengingu á leyfi súlustaðarins Goldfinger í bænum: „Ég er ánægður og þá sérstak- lega með samstöðuna í málinu,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson, eig- andi staðarins. Þórður Þórðarson, bæjarlögmaður í Kópavogi, bendir hins vegar á að hér sé að- eins um framlengingu á vínveit- ingaleyfi að ræða. Það sem fram fari innandyra sé allt annað mál: „Umsóknin var send til viðkom- andi aðila og umsagnirnar voru allar jákvæðar. Því var þetta samþykkt,“ segir bæjarlögmað- urinn. ■ ■ Athugasemd Að gefnu tilefni skal tekið fram að heilsuþjónustan Mecca Spa heldur áfram rekstri á Hótel Sögu við Hagatorg þó svo rekstur fyrirtækisins við Nýbýlaveg í Kópavogi hafi verið seldur Guð- mundi Björnssyni lækni eins og greint var frá hér í blaðinu í gær.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.