Fréttablaðið - 14.03.2003, Síða 36
37FÖSTUDAGUR 14. mars 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5 og 8 bi. 16 áraABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8 og 10.30
BLUE CRASH kl. 4 og 6 THE RING kl. 10.10
THUNDRPANTS kl. 4 og 6 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10.40
FRIDA kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára CHICAGO bi. 12 ára kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 bi. 12 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 bi. 16 ára
Óskarsverðlaunaakademíansendi frá sér fréttatilkynningu
í vikunni þar sem greint var frá
ákvörðun hennar að halda áfram
með hátíðina sama hvernig ástand-
ið við Írak verður þann 23. mars.
Þar kom einnig fram að ef stríð
verður orðið að veruleika þá muni
hátíðin endurspegla stöðu heims-
mála á einhvern hátt.
Leitin að Súpermann helduráfram og nú hefur leikarinn
Ashton Kutcher, sem þekktastur
er fyrir hlutverk sín í „That 70’s
Show“ og „Dude, Where’s My
Car“, bæst í hóp þeirra sem hafa
afþakkað boðið um að leika ofur-
hetjuna. Nú er talað um það í
Hollywood að álög hvíli yfir hlut-
verkinu. Leikararnir óttast þriggja
mynda skuldbindinguna sem fylgir
hlutverkinu, auk þess að festast í
hlutverki hetjunnar og fá aldrei
önnur hlutverk.
Í verðinu er innifalið:
• 15 myndir sem fermingarbörn fá afhent á diski auk yfirlitsmyndar.
• 4 stækkaðar myndir í stærð A5.
• Förðun fyrir stúlkur.
• Strákar fá nýjustu Gillette rakvélina.
• Stelpur fá Maybelline Gloss.
• 10% afslatt í Topshop, Miss Selfridge og Topman á fermingarfatnaði.
Þeir sem vilja, geta fengið lánaðan fatnað frá Topshop fyrir myndatökuna.
Allir þátttakendur komast á skrá hjá Eskimo Models og fá Eskimo boli.
Takmarkaður fjöldi kemst að! Bókanir í síma: 533-4646.
Verð: 15.900 kr.
Eskimo Models
Fermingarmyndataka
fyrir stelpur og stráka.
Þessi mynd ber í raun fá höfund-areinkenni Roman Polanskis.
Margar mynda hans hafa verið
góðar en þessi er af allt öðrum
toga. Hún er líka án efa hans besta
frá upphafi.
Sagan er eins manns helför í
gegnum skuggalegustu tíma síð-
ustu aldar, þegar nasistar náðu yf-
irráðum í Evrópu. Sagan er sönn og
segir frá pólska píanóleikaranum
og gyðingnum Wladyslaw Szpilm-
an.
Þetta er annað sjónarhorn á hel-
förina en við höfum fengið að sjá í
myndum á borð við „Schindlers
List“ eða „La Vita è bella“ og ekki
er það fallegra. Szpilman komst hjá
útrýmingarbúðunum og fyrir vikið
kynnumst við gettóum og borgum
Póllands á þessum tíma betur en í
öðrum seinni heimsstyrjaldar-
myndum. Í raun er þetta hálf
óraunverulegt fyrir ungan Íslend-
ing, eins og mig, sem kvartar ef
hann þarf að taka strætó í stað þess
að fara á einkabílnum.
Leikarinn Adrian Brody ber
myndina á herðum sér og lesa má
nánast allt úr annars tómu augna-
ráði hans. Polanski hefur svo unnið
þrekvirki í allri undirbúningsvinnu
og leikstjórn.
Stórkostleg mynd en ekki fyrir
viðkvæma. En nauðsynleg, því eins
auðvelt og það væri nú að gleyma
en ekki geyma, þá megum við
aldrei leyfa okkur það. Sérstaklega
á tímum sem þessum.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjöllunkvikmyndir
Þrekvirki Polanskis
THE PIANIST.
Leikstjóri: Roman Polanski
Aðalhlutverk: Adrian Brody
TÓNLIST Samtónn og
írska fyrirtækið In-
flight Audios undir-
rituðu í gær samn-
ing þess efnis að
verðlaunaefni frá
Íslensku tónlistar-
verðlaununum verði
leikið á sérstakri
tónlistarrás um
borð í vélum Flug-
leiða. Þetta þýðir
meðal annars að
ferðamenn sem eru
á leiðinni til landsins fá gullið
tækifæri til þess að kynna sér ís-
lenska tóna áður en þeir lenda á
Keflavíkurflugvelli.
Inflight Audios hefur séð um
tónlist um borð í vélum Flugleiða
í mörg ár en þeir sjá einnig um
tónlist fyrir 70 stærstu flugfélög í
heiminum. Samtónn hefur einnig
samið við fyrirtækið um að ís-
lenskt tónlist verði notuð í fleiri
flugvélar á þeirra vegum.
Farþegarnir geta svo fengið
upplýsingar á síðum Atlantica um
það efni sem þeir heyra.
Aðilar að Samtóni eru: STEF
(Samband tónskálda og eigenda
flutningsréttar), SFH (Samband
flytjenda og hljómplötuframleið-
enda), FÍH (Félag íslenskra tón-
listarmanna), Félag íslenskra
leikara, Samband íslenskra karla-
kóra, Samband blandaðra kóra,
Samband lúðrasveita og Samband
hljómplötuframleiðenda. ■
SIGUR RÓS
Nú gefst flugfarþegum kostur á að horfa
út um gluggann, stilla á Sigur Rós og láta
hugann reika með skýjunum.
Samtónn og Inflight Audios semja:
Íslenskir tónar
í skýjunum
CHRIS ROCK FÆR STJÖRNU
Grínleikarinn Chris Rock var kátur er stjarna með nafni hans var sett í gangstéttina á
Hollywood Walk of Fame á miðvikudaginn. Hann hóf feril sinn í kvikmyndum árið 1987
eftir að hafa starfað sem sviðsgrínari um skeið. Þekktustu myndir hans eru „Dogma“,
„Nurse Betty“, „Lethal Weapon 4“, „New Jack City“ og „Down to Earth“.
Fréttiraf fólki